Morgunblaðið - 21.09.1995, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
5CÖ&U M£R HVE gam.au. þu
'VEFiÐUR í NÆSTU VIKU, ÉQ SKAU-
LOFA AO HUÆöJA EKKl
Tommi og Jenni
Ljóska
meira. eSa<,/, minsiA.
7, <T, 9,/OV Affoxriu eriu
Ticurbu. ) StMrio. fiunnr?
þcfta-OruA, Eg A.afðú
FisUteruerra, gjaJol-
keragnaMcuri./
Ferdinand
1 HOPE TMI5 I5N T ONE OF TH05E M0VIE5
WHERE A KlP 60E5 T0 B0ARPIN6 5CH00L,
AND EVERVONE 15 MEAN T0 HIM..
OR. UJHERE EVERYONE TEA5E5
A 6IRL BECAU5E 5HE MA5
FUNNN' HAIR..
1 LIKE A MOVlE THAT
5H0UJ5A D06 5LEEPIN6
IN FRONT OF A
FIREPLACE FORTWOHOUR5
ÉG VONA að þetta sé ekki ein af þess-
um myndum þar sem krakki fer í
heimavistarskóla, og allir eru and-
styggilegir við hann
... Eða þar sem allir eru að ... Mér þykir gaman að
stríða stelpu af því að hún er mynd sem sýnir hund sof-
með skrýtið hár andi fyrir framan arin í tvær
klukkustundir.
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik 9 Sími 5691100 # Símbréf 569 1329
„Góða ferð
til Kína“
Frá Sigurði Magnússyni:
í DV 9.september síðastliðinn seg-
ir Ingibjörg Sólrún að hún fari
bráðlega til Kína, ekki sem fulltrúi
kvenna heldur fyrst og fremst sem
borgarstjóri Reykjavíkur.
Eg bið góðan Guð um að gefa
borgarstjóranum góða ferð til
Kína, ián og heilbrigði og að hún
og hennar föruneyti fái að koma
heim, heil og óskemmd af róg-
burði.
Eg er undrandi á ómaklegum
árásum þínum og annarra á for-
seta íslands.
Upphaf!
Með þessum línum vil ég byija
á að láta í ljós aðdáun mína á
forseta vorum, frú Vigdísi Finn-
bogadóttur, fyrir frábær störf í
þágu þjóðarinnar þar sem hún
sýnir glæsilegan virðuleika og
mikla visku.
Vekur því undrun mína fram-
koma borgarstjórans, Ingibjargar
Sólrúnar, og gagnrýni hennar á
ferð forseta okkar til Kína, auk
þess sem ég er heldur ekki sam-
mála Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur og
öðrum sem hafa gagnrýnt forset-
ann okkar með ómaklegum árás-
um vegna Kínaferðar hennar.
Borgarstjóri!
Ég tel það ómaklegt af borgar-
stjóra Reykjavíkurborgar og öðr-
um sem hafa gagnrýnt forseta
vorn fyrir störf hennar á ferð sinni
um Kína.
„Það er með ólíkindum hvernig
sumir slíta í sundur setningar og
túlka einstaka hluta þeirra og orð
annarra eftir sínum hentugleika “
- orð sem notuð eru í löngum
samtölum, við aðstæður sem
gagnrýnandinn getur ekki lagt
mat á, þar sem hann var ekki
staddur í andartaki orðsins, þegar
það var valið og notað.“
Ég vil minna á að oft er betra
að fara sér hægt í gagnrýni á
aðra, þar sem eigin gerðir geta
oft verið gagnrýni verðar.
Vil ég í því sambandi minna á,
að ekki er langt síðan borgarstjóri
og meirihluti borgarstjórnar létu
Ijarlægja myndina af Bjarna
heitnum Benediktssyni, fv. forsæt-
isráðherra og borgarstjóra úr hinu
heimsþekkta herbergi, sem ráð-
stefnustofan í Höfða er, og með
því lítilsvirt minningu hans og
þeirra manna sem lögðu drög að
þeim friði sem við búum við hér
á norðurhveli jarðar.
Á ég þá við hinn heimssögulega
viðburð er átti sér stað, er R.
Regan, forseti Bandaríkjanna, og
M. Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkj-
anna, funduðu þar árið 1986 og
sömdu um fækkun á kjarna-
sprengjuflaugum landanna, sem
varð til að minnka spennuna á
milli USSR og USA.
Að lokum!
Þótt mér sárni framkoma þín
og annarra, og sé umræddri gagn-
rýni þinni ósammála, þá vil ég að
lokum biðjast afsökunar á hugleið-
ingum mínum ef þær ergja þig,
og jafnframt óska þér góðrar ferð-
ar, á ferð þinni um Kína.
SIGURÐUR MAGNÚSSON,
Hofteigi 14, Reykjavík.
Virðing Alþingis
Frá Halldóri Jónssyni:
ALÞINGISMENN kvarta stundum
yfir því, að alþýða manna sýni
stofnuninni ekki tilhlýðilega virð-
ingu. Það fer minna fyrir því að
þingmenn reyni að líta í eigin barm
og reyna að komast að því, af
hveiju þetta meinta virðingarleysi
stafar.
Það er illskilj anlegt þegar menn
vinna sjálfum sér tjón á líkama.
Sorglegt þegar þeir vinna tjón vís-
vitandi á sálu sinni. Ömurlegt þeg-
ar menn vinna sér tjón með
heimsku sinni einni, enda eru sjálf-
skaparvítin verst.
Hversvegna eru alþingismenn,
sem hafa nær sjálfdæmi um laun
sín, að gefa tilefni til þess að al-
múgi kalli þá sukkara og smábísa?
Hversvegna eru þeir svona vitlaus-
ir? Af hveiju eru þeir að geyma
beinagrindur inni í skápum? Hafa
svona menn yfirleitt næga dóm-
greind til að vera á þingi?
ftalir sýndu af sér rögg hér um
árið og hreinsuðu þing sitt af flest-
um gömlum þingmönnunum sín-
um á einu bretti. Hefur einhvern-
tímann orðið einhver þjóðarvoði
hér þótt einhveijir einstaklingar
hafi horfið af þingi?
Rak ekki Kristur þá út sem
gerðu hús Drottins að ræningja-
bæli? Taldi hann líka ekki verka-
manninn verðan launa sinna án
þess að skipta sér af því hvernig
konan hans eyddi þeim? Minntist
hann á að keisaranum bæri aðeins
sumt af sínum hlut?
Þjóðin telur ekki eftir sér að
borga vel fyrir góða vinnu. Hún
vill hinsvegar greinilega að sömu
leikreglur gildi fyrir alla þegna
landsins. Fríðindaauki býður líka
hættunni heim, jafnt á heimilum
sem í Hæstarétti.
Er ekki ráðlegt að þingmenn
sjálfir hefji endurreisn virðingar
Álþingis? Viðurkenni að þeir séu
aðeins verkamenn í víngarðinum
og venjulegir kontóristar.
HALLDÓR JÓNSSON verkfr.
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.