Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 21

Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 21 FRÉTTIR: EVRÓPA Helmut Schmidt gagnrýnir seðlabankann Bonn. Reuter. HELMUT Schmidt, fyrrum kanslari Þýskalands, skrifar grein í tímaritið Die Zeit í gær þar sem hann gagn- rýnir þýska seðlabankann harðlega fyrir afstöðuna til peningalegs sam- runa Evrópuríkja (EMU). Sakar Schmidt seðlabankann um peninga- lega þjóðernisstefnu. Schmidt, sem gegndi embætti kanslara á árunum 1974-1982, seg- ir í greininni að sameiginlegi gjald- miðillinn sé fyrst og fremst pólitískt má 1 og nauðsynleg forsenda frekari samruna ESB-ríkjanna. Hans Tietmeyer, bankastjóri seðlabankans, hefur verið einn helsti talsmaður þess að ströng skilyrði verði sett fyrir sameiginlegum gjaldmiðli. „Sumir herramenn eru fyrir löngu búnir að venjast því að reyna að kippa fótunum jafnt sálfræðilega sem pólitískt undan peningalega samrunanum," segir Schmidt. Sakar hann seðlabankann um að vera á móti EMU vegna þess að hann óttist að önnur stofnun muni taka yfir þau völd, sem seðlabankinn hefur í dag. Því kyndi hann nú und- ir peningalegri þjóðernishyggju með efnahagslegum rökum og lýðskrumi. Markið allsráðandi Schmidt spáir því að ef ekki verði af EMU muni ESB breytast í frí- verslunarsvæði, þýski seðlabankinn og þýska peningakerfið verði alis- ráðandi í Evrópu innan skamms og það muni leiða til að önnur ríki taki höndum saman gegn Þýskalandi. Horst Köhler, aðstoðarráðherra í fjármálaráðuneytinu, sem var samn- ingamaðúr þýsku stjórnarinnar í Maastricht, sagði Schmidt ýkja í grein sinni. Hann sagðist telja víst að Frökkum, Dönum og Bretum myndi takast að uppfylla hin ströngu skilyrði sem einungis Þjóðveijar og Lúxemborgarar uppfylla í dag. Ef fallið yrði frá EMU gæti það að hans mati haft slæm áhrif á þýsk- an iðnað vegna of mikils kostnaðar. Reuter EMU-reglum ekki breytt HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka- lands, sagði í ræðu á þingi Evr- ópuráðsins í gær að það væri „ ekki sanngjarnt" að ætla að herða skilyrði fyrir þátttöku Evrópu- sambandsríkja í Efnahags- og mjntbandalagi Evrópu (EMU). „Eg skil ekki þessar umræður um tímaáætlun EMU,“ sagði Kohl. „í [Maastrichtjsamningnuin eru mjög skýrar dagsetningar. EMU mun ganga í gildi þegar hinum efnahagslegu skilyrðum hefur verið fullnægt. Þau eru í samn- ingum lika. Það er ekki sann- gjarnt að vilja breyta skilyrðun- um nú. Þjóðverjar munu ekki samþykkja það.“ Kohl hvatti til þess að ríki ESB héldu áfram á braut efnahagslegs og pólitísks samruna, „Við höfum val á milli þess að sameina Evrópu og að sitja aðgerðalaus og biða,“ sagði hann. „Eg tel ekki að tæki- færið til að sameina Evrópu komi aftur í fyrirsjáanlegri framtíð ef við spilum því út úr höndunum á okkur nú.“ ESA samþykkir norska ríkisstyrki til skipasmíða EFTIRLITSSTOFNUN EFTA (ESA) hefur ákveðið að gera ekki athugasemdir við styrki norskra stjórnvalda til skipasmíða. Stofnunin telur styrkina vera innan þeirra marka, sem tilskipun Evrópusam- bandsins (90/684/EBE) kveður á um, en tilskipunin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahags- svæðið 1. maí síðastliðinn. Skipasmíðaiðnaður í Noregi fær þrenns konar ríkisstyrki. í fyrsta lagi eru svokallaðir „styrkir til skipa- smíða, nýsmíða og breytinga", í öðru lagi tryggingar, sem veittar eru af Tryggingastofnun útflutningslána og í þriðja lagi „tryggingar til skipa- smíða“. Fyrstnefndu styrkirnir eru veittir til smíða eða endurbóta á skipum, sem eru að minnsta kosti 100 brúttórúmlestir, og til meiriháttar breytinga á skipum, sem eru a.m.k. 1.000 brl. Styrkir þessir verða veitt- ir til verkefna, sem samið er um fram til ársloka og eru alls um tíu milljarðar íslenzkra króna tii ráð- stöfunar. Samrýmist EES-samningnum ESA hafði áður ákveðið að ríkis- styrkir til smíða lítilla skipa og breyt- inga, þar sem andvirði samninga væri undir 850 milljónum króna, mætti ekki vera hærra en 4,5% af smíðaverði. Fyrir dýrari skip mætti styrkurinn vera 9%. Styrkir Norð- manna eru taldir uppfylla þessi skil- yrði og önnur, sem tilskipun ESB kveður á um. Byrjaðu að skafa og þú getur unnið 2milljónir strax „Happ í Hendi" hjá Henrnia hefst Skafðu fyrst, horfðu svo í Sjónvarpinu, föstudaginn 6. október. Þar eru líka miiljónir í spilinu, og fjöldi spennandi x aukavinninga. Landsýn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.