Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 22

Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT ILO-ráðstefnan í Póllandi Endimörk- um velferð- arinnar náð Varsjá. Reuter. RÁÐSTEFNU ILO, Alþjóðavinnu- málastofnunarinnar, lauk í Varsjá í Póllandi í fyrradag og voru fulltrúar ríkisstjórna, vinnuveitenda og verka- lýðsfélaga sammála um, að hugsan- lega hefði velferðarkerfið náð endi- mörkum sínum í núverandi mynd. Meiri ágreiningur var þó um hvernig við því skyldi brugðist. Einna mestur ágreiningur var um hugmyndir um að hækka lífeyrisald- ur til að létta byrðamar á sjóðunum og voru fulltrúar verkalýðsfélaga í Vestur-Evrópu almennt andvígir þeim. Það kann þó að reynast óhjá- kvæmilegt í Austur-Evrópu þar sem lífeyrisaldur er verulega lægri en vestar í álfunni. í lokaályktun ráðstefnunnar sagði, að ljóst væri, að breytingar á félagslega kerfinu væru óhjákvæmi- legar. Það þyrfti í framtíðinni að reiða sig á fleira en ríkið eitt, þar á meðal á tryggingar eða samninga, sem gerðir væru á vegum einstakl- inga og fyrirtækja. Arfberamir skrásettir VÍSINDAMÖNNUM hefur tekist að skrásetja þrjá fjórðu hluta af arfberum (genum) mannsins, auk þess sem þeir hafa skilgreint hvert hlutverk 10.000 arfbera er. Þetta kom fram í vísindaritinu Nature en þar var jafnframt birt teikning yfir svokölluð erfða- mengi, það er þau gen sem fel- ast í kjarna tvílitna frumna. Von- ast vísindamennirnir til þess að skrásetningunni verði lokið ári 2005. Þeir rannsökuðu um 350.000 arfbera og komust að því að stærstur hlutinn, rúmur fjórð- ungur, varðaði heilann. Næst á eftir komu legkakan, lifrin, hvít blóðkorn, lungu, fóstur, bijóst og hjarta. Segja vísindamennimir rann- sóknir á arfberum geta leitt til þess að lækning finnist við sjúk- dómum á borð við krabbamein og Alzheimer. Þar til það gerist sé hins vegar full ástæða til að hafa áhyggjur af því hvemig þær upplýsingar sem nú liggja fyrir, verði notaðar. Flestar uppgöt- vanir á arfberunum er nú hægt að nálgast á veraldarvef alnets- ins en nokkrir vísindamenn hafa þó sótt um einkaleyfi á uppgötv- unum sínum. 3K AS! «, «51 P«NC»Í*« KWSNSV ».n* MftKlSi TOSWÍ MI7 æwawvís i <jvmm t-Mi »,»Í0 wm9«»íM.Mro ivm n,5*i iMOOTmiM. «us Ttssue SKÍtSm UO&CU: 1,»11 Reuter Landnemar og Palestínumenn mótmæla friðarsamningi Hamas segja Ara- fat hafa haft betur Allsherj arverkfall boðað á Vesturbakka o g „undirritun“ landnema í Jerúsalem Beirút, Jerúsalem, Deheisheh. Reuter. YASSER Arafat, leiðtogi frelsis- samtaka Palestínumanna, PLO, hafði betur í átökunum við and- stæðinga friðarsamninga PLO og ísraelsmanna, að mati fulltrúa íslömsku samtakanna Hamas í Líbanon. Sagði hann að Hamas hefði aðeins tekist að tefja fyrir friðarferlinu en ekki eyðileggja það. ísraelskir landnemar og Pal- estínumenn mótmæltu undirritun friðarsamnings PLO og ísraela í gær. Gyðingar efndu til eigin „undirritunar“ en Palestínumenn boðuðuðu til allsheijarverkfalls á Vesturbakkanum. „Þegar allt kemur til alls, hafði Arafat betur en andstæðingar hans,“ sagði Mustapha al- Liddawi, fulltrúi Hamas. „Friðar- samningurinn er tákn um alþjóða- vilja og mun ekki fara út um þúf- ur á næstu árum... Hann er mun öflugri en við en við þurfum þó ekki að missa alla von... Hernaðar- aðgerðir okkar geta hindrað hann.“ Liddawi sagði að andstæðingum friðarsamningsins sem gerður var árið 1993 hefði mistekist þar sem þeir hefðu ekki sameinast um að- gerðir gegn honum. Boðað til allsherjarverkfalls Hamas og Jihad-samtökin boð- uðu í gær til allsheijarverkfalls á Vesturbakkanum. Voni verslanir og skólar lokaðir í borginni Hebr- on, þar sem ísraelskir hermenn verða eftir til að vemda um 400 ísraelska landnema, þrátt fyrir að þeir verði fluttir á brott frá öðrum borgum og bæjum á Vesturbakk- anum. „Þessi friðarsamningur veitir enga möguleika á friði á svæð- inu,“ sagði Alaa Saftawi, ritstjóri al-Istiklal. „Hann mun leiða' til aukins ofbeldis og barátta Palest- ínumanna á Vesturbakkanum mun halda áfram.“ Palestínumenn rifu í gær niður hluta girðingar, sem ísraelar SAMNINGUR ÍSRAELA OG PLO Samningur ísraela og PLO um stækkun sjálfstjórnarsvæóa Palestínumanna kveóur á um aö ísraelar flytji her- menn sína frá stærstum hluta Vesturbakkans Bandaríkjamenn vona einnig aö samningurinn greiði fyrir allsherjarsamkomulagi um friö í þessum heimshluta • f fyrsta áfanga brottflutningsins fara ísraelsku hermennirnir frá sex af sjö borgum Vesturbakkans og 450 þorpum á sex mánuöum. 22 dögum síðar veröur efnt til kosninga á svæöinu. • Alþjóðlegt.gæslulið verður um tíma í Hebron og ísraelar halda rétti sínum til að vernda 400 gyöinga sem búa þar meðal 100.000 araba • ísraelskir hermenn halda áfram að tryggja öryggi byggða gyöinga á Vestur- bakkanum. Þeir hafa ennfremur eftirlit með vegum sem gyðingarnir fara um • (samningnum er kveðiö á um að margir af þúsundum palestínskra fanga í ísraelskum fangelsum verði látnir lausir • Samið verður um framtfð Jerúsalem, byggða gyöinga og palestínskra flóttamanna í viðræöum sem hefjast ekki síöar en i maí á næsta ári. ISRAEL 4»' höfðu reist umhverfis flótta- mannabúðir á Vesturbakkanum, til að mótmæla undirritun friðar- samkomulagsins í Washington. Beittu ísraelskir hermenn táragasi og skutu í loft upp til að dreifa mannfjöldanum en ekki er vitað til þess að neinn hafi særst. „Dagur hörmunga“ Þúsundir ísraelskra landnemar efndu til mótmæla í Hebron. Kváðust þeir telja sam- ‘ komulagðið sem undir- ritað var í gær vera afar slæmt. Það bryti í bága við orð spámannanna í ________ biblíunni. Réðust þeir að stjórnvöldum fyrir að gefa upp á bátinn drauminn um „Stór-ísra- el“, heimkynni gyðinga, sem þeir 51% hlynnt friðarsam- komulagi segja ná yfir Vesturbakkann. vÞetta er dagur hörmunga fyrir. Israel. [Stjórnvöld] skilja okkur eftir upp á náð og miskunn araba,“ sagði ungur landnemi. Að sögn Palestínumanna réðust landnemarnir á hús og bifreiðar Palestínumanna. í Jerúsalem stóðu gyðingar fyr- ir eigin „undirritun" þar sem þeir hétu trúnaði við drauminn um Stór-ísrael og hétu því að gefa -------- landsvæðin ekki eftir. Samkvæmt skoðana- könnun sem birt var í ísraelsku dagblaði, er ________ 51% ísraela fylgjandi friðarsamkomulaginu, 47% eru því andvíg og 2% gáfu ekki upp afstöðu sína. Viðamikil leit að meintum tilræðismanni nálægt Lyon Reuter FRANSKIR lögreglamenn umkringja svæði í skógi skammt frá Lyon þar sem viðamikil leit var gerð að Alsírbúa sem er grunað- ur um sprengjutilræði.' Gjörólíkar lýsing- ar á O. J. Simpson „Gangandi tímasprengja“ eða fórnarlamb? Los Angeles. Reuter. Alsír- búi um- kringdur Lyon, París. Reuter. HUNDRUÐ franskra lögreglu- manna umkringdu svæði í skógi vestan við borgina Lyon í gær vegna leitar að Alsírbúa, sem er á flótta undan lögreglunni og grunað- ur um aðild að nokkrum sprengjutil- ræðum sem hafa kostað sjö manns lífíð og sært um 130. „Lögreglumennirnir hafa lokað svæðinu svo maðurinn komist ekki undan,“ sagði lögreglumaður á staðnum. Hundum og þyrlum var beitt við leitina að Khaled Keikal, sem lögreglan hafði leitað að í nokkrar vikur. Fingraför hans fund- ust á sprengju sem fannst við járn- braut norðan við Lyon í síðasta mánuði. Leitin hófst á miðvikudag eftir að þrír meintir samstarfsmenn Kelkais voru handteknir í skógin- um. Kelkal gakk þá lögreglunni úr greipum. Mennimir voru handteknir eftir að maður, sem var að tína sveppi, skýrði tveimur sérsveitarmönnum frá því að hann hefði séð tvo sof- andi menn í skóginum. Þegar sér- sveitarmennimir komu að mönnun- um og báðu þá um skilríki hóf ann- ar þeirra skothríð. Sérsveitarmenn- imir skutu á móti og særðu mann- inn. Hann var síðan fluttur á sjúkra- hús ! Lyon með þyrlu og hann er sagður á batavegi eftir aðgerð. Vopn fundust á svæðinu, meðal annars vélbyssa og tvær haglabyssur. Lögreglan fann síðan þijá menn í bíl sem reyndu að flýja. Tveir þeirra voru handteknir en sá þriðji, Khaled Kelkal, komst undan. EFTIR þriggja daga lokaræður sak- sóknara og veijenda í réttarhöldun- um yfir O.J. Simpson stendur kvið- dómurinn frammi fyrir tveimur gjör- ólíkum lýsingum á sakborningnum. Saksóknararnir lýsa O.J Simpson sem bráðum manni, „gangandi tíma- sprengju", en veijendurnir segja hann saklaust fómarlamb viðamikils samsæris lögreglunnar. Lýsingarnar eru svo óiíkar að nokkrir fréttaskýr- endur hafa furðað sig á að þeir skuli vera að tala um sama manninn. Fórnarlamb kynþáttahaturs? Saksóknarinn Chris Darden lýsti Simpson sem manni með „stuttan kveikiþráð“ sem brynni þar til hann spryngi í taumlausu morðæði. Hann hefði myrt Nicole Brown Simpson, fyrrverandi eiginkonu sína, „til að hefna sín á henni“ og Ronald Gold- nian, vin hennar, „vegna þess að hann var fyrir“. Johnnie Cochran, aðalveijandi Simpsons, hóf lokaræðu sína á mið- vikudag með því að lýsa viðamiklu samsæri lögreglunnar um að koma sök á saklausan blökkumann. Aðal- maðurinn í þessu meinta samsæri er lögreglumaðurinn Mark Fuhr- man, sem Cochran lýsti Sem „lygn- um meinsærismanni og kynþátta- hatara" sem hefði lengi haft ímu- gust á blökkumanninum fræga. Fuhrman kvaðst hafa fundið blóð- ugan hanska á heimili Simpsons, en Cochran sakaði hann um að ljúga því einnig og að hafa sjálfur komið hanskanum þar fyrir. Cocíiran sakaði annan lögreglu- mann, Phillip Vanatter, um að hafa borið ljúgvitni til að koma sök á Simpson og sagði hann hafa hellt úr smáfiösku með blóði sakbornings- ins á sönnunargögn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.