Morgunblaðið - 29.09.1995, Side 29

Morgunblaðið - 29.09.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 29 AÐSENDAR GREINAR Fór Kjara- dómur að lögum? MIKIL umræða hefur verið und- anfarið um úrskurð Kjaradóms um laun æðstu embættismanna ríkis- ins, þ. á m. alþingismanna. Við þessa umræðu er gagnlegt að skoða þær reglur sem Kjara- dómur vinnur eftir. Hér áður fyrr voru öll laun opb. starfsmanna ákvörðuð af Kjara- dómi. Samkvæmt núgildandi lögum um Kjaradóm nr. 120/1992 er hon- um ætlað að ákveða laun forseta íslands, þingfararkaup alþingis- manna svo og önnur starfskjör þeirra, launakjör ráðherra, hæsta- réttardómara, héraðsdómara og Umboðsmanns barna. Við úrlausn sína skal Kjaradóm- ur gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim sem hann ákveður og að þau séu á hveijum tíma í samræmi við laun í þjóðfélag- inu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. Ennfremur skal Kjara- dómur taka tillit til kjaramála á vinnumarkaði. Við setningu núgildandi laga var felld niður tilvísun í afkomuhorfur þjóðarbúsins. Þess í stað var tekin upp viðmiðun við þróun kjaramála á almennum vinnumarkaði. í athugasemdum við frumvarp að núgildandi lögum er eftirfarandi texti: „Viðurkennt er það markmið að treysta þurfi stöðugleika í efna- hagslífi þjóðarinnar og gildi hóf- legra launahækkana í því sam- bandi. Afar brýnt er að varðveita þann stöðugleika og samstöðu um hann, sem næst á vinnumarkaði á hveijum tíma. Því þykir rétt að setja ákvæði sem tilgreint er í 2. tl. um að taka beri tillit til þeirrar þróunar sem er í kjaramálum á vinnumarkaði, þannig að ekki sé hætta á að úrskurður Kjaradóms raski kjarasamningum þorra launa- fólks og stefni þar með stöðugleika í efnahagslífinu í hættu.“ Eins og menn rekur eflaust minni til voru síðustu samningár aðila vinnumarkaðarins gerðir með það markmið í huga að bæta kjör hinna lægst launuðu. Kauphækk- anir voru því umsamin krónutala þannig að þeir lægst launuðu fengu mest. Menn sömdu ekki um hundr- aðshlutahækkanir. Menn voru að semja um 3.700 króna kauphækk- anir. Umdeildur úrskurður Kjaradóms er frá 8. september sl. Forsendur dómsins eru m.a. þessar: „Æðstu stjórnendur ríkisins ber að launa sæmilega. Vandfundin eru hins vegar störf sem sam- bærileg verða talin störfum þeirra. Til dæmis eru ýmis stjórn- unarstörf í þjóðfélag- inu sem tæpast verða talin fela í sér meiri ábyrgð talsvert betui; launuð en störf ráð- herra. Frá árinu 1989 og þar til lögunum um Kjaradóm var breytt í árslok 1992 tóku úr- skurðir hans eingöngu mið af grunnkaups- hækkunum kauptaxta. Eftir að núgildandi lög um Kjara- dóm tóku gildi hefur dómurinn engan úrskurð fellt um almennar kauphækkanir. Frá árinu 1989 hefur þannig verið horft fram hjá ýmsum launabreytingum svo sein breytingum á röðun í sérsamning- um, launaskriði og fleiru og frá. Það er ekki hlutverk Kjaradóms, segir Guðni A. Haraldsson, að standa vörð um launa- mun í landinu. árslokum 1992 einnig öllum taxta- hækkunum.“ Bæði fjármálaráðherra og for- sætisráðherra hafa réttlætt launa- hækkanirnar er fólust í úrskurði Kjaradóms út frá þessu, þ.e. að Kjaradómur hafi í raun verið að ijalla um mun lengra tímabil en kjarasamningar á almenna vinnu- markaðnum. I forsendum Kjaradóms kemur fram að verið er að bæta æðstu embættismönnum launahækkanir urrifram taxtahækkanir tímabilið 1989 til 1992 og taxtahækkanir frá_ þeim tíma. í fyrsta lagi vekur það furðu að Kjaradómur skuli leiðrétta laun svo langt aftur í tímann því skv. 12. gr. laganna frá 1992 sem dómurinn starfar eftir á Kjaradómur að meta það eigi sjaldnar en árlega -hvort tilefni sé til breytinga á starfskjör- um sem hann ákveður. Ætlast er til að Kjaradómur fylgist vel með breytingum á launakjörum í þjóðfé- laginu og geri með hliðsjón af þeim nauðsynlegar breytingar á starfs- kjaraákvörðunum sínum. í öðru lagi kemur viðmiðunin „þróun kjaramála á vinnu- markaði" fyrst inn með lögunum frá 1992. Engu að síður virðist Kjaradómur notast við slíka þróun allt frá árinu 1989 eins og segir í forsendum hans. I þriðja lagi virðist dómurinn ekki gera ráð fyrir þeirri stað- reynd að einungis hluti launa alþingismanna og ráðherra kemur í gegnum ákvarðanir Kjaradóms. Ýmsar starfstengdar greiðslur eru viður- kenndar til þessara starfsmanna ríkisins. Án þess að það komi fram þá rennur mann í grun, að Kjaradóm- ur hafi unnið út frá hundraðshluta- hækkunum og þannig fundið út þær hækkanir í krónutölu sem hann ákvarðaði. Það er ekkert í lögunum um dóminn sem segir að hann eigi að vinna þannig heldur gat hann í raun ákveðið krónutölu- hækkanir til þessara æðstu emb- ættismanna á sömu nótum og al- menningur fékk. Af hveiju var það ekki gert? Það er ekki hlutverk Kjaradóms að standa vörð um launamun í land- inu. Honum er einungis falið að haldi innbyrðis samræmi í starfs- kjörum þeirra er hann ákvarðar laun, sbr. 5. gr. laganna frá 1992. Er fjármálaráðherra í fjarveru forsætisráðherra var spurður út í þetta fullyrti hann að Kjaradómur hefði farið að lögum. Og hér er einmitt komið að kjarna málsins. Fór Kjaradómur að lögum? Hvað er það í lögum dómsins sem segir að Kjaradómur eigi að ákvarða kauphækkanir með hundraðshluta- hækkunum í stað krónutöluhækk- ana. Þær reglur sem Kjaradómur hefur í lögum til að fara eftir eru þessar: 1. Hann skal gæta innbyrðis samræmis í starfskjörum þeim sem hann ákveður. Þetta felur í sér að launamunur milli þeirra starfa sem hann ákveður skuli halda sér. 2. Hann skal gæta þess að laun þeirra séu á hveijum tíma í sam- ræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar. 3. Og að lokum skal hann taka tillit til þróunar kjaramála á vinnu- markaði. Nú þegar sú staðreynd liggur fyrir að launahækkanir á hinum almenna markaði byggðust á krónutöluhækkunum á bilinu 3.700 til 4.500 á mánuði þá er vert að spyija. Hvaðan koma þessar launa- hækkanir sem námu allt að 80.000 krónum á mánuði og hvernig rökstyður Kjaradómur þær? Eða af hverju var ekki miðað við krónu- töluhækkanir félagsmanna ASÍ? Og eru þessar hækkanir í samræmi við „þróun kjaramála á vinnumark- aði“? Bæði íjármálaráðherra og for- sætisráðherra hafa réttlætt þessar launahækkanir með því að Kjara- dómur væri í raun að fjalla um tímabilið 1989 til og með ársins 1994. Eins og fram hefur komið eru forsendur Kjaradóms fyrst og fremst almenn þróun kjaramála á vinnumarkaði. Sú viðmiðun kom fyrst inn í lögin frá 1992 og því gat Kjaradómur ekki notast við hana allt til ársins 1989. Að því leyti eru forsendur hans rangar. Auk þess er vandséð hvemig Kjaradómur getur verið að fjalla um tímabilið 1989 til 1992 þar sem síðasti úrskurður Kjaradóms féll 20. júlí 1992. Sá Kjaradómur er nú starfar getur á engan hátt leyft sér að endurskoða fyrri úrskurði dómsins. Og svo kemur Kjaradómur með sinn úrskurð úr takti við allt sem er að gerast, þrátt fyrir að skýrt sé tekið fram í athugasemdum við frumvarpið að lögum um dóminn, að hann eigi að taka tillit til þróun- ar í kjaramálum á vinnumarkaði, þannig að ekki sé hætta á að úr- skurðir hans stefni stöðugleika i efnahagslífinu í hættu. Eftir stendur hins vegar sú stað- reynd að alþingismönnum og ráð- herrum hefur verið ákveðin þessi kauphækkun og hún er varin af stjórnarskránni, sbr. dómur Hæsta- réttar í svokölluðu BHMR máli frá 1992. Nú þegar forysta ASÍ og hinn almenni launamaður krefst endur- skoðunar á úrskurði Kjaradóms þá er alþingismönnum vandi á hönd- um. Enda geta þeir ekki sjálfir staðið að lögum sem ganga gegn stjórnarskránni. Engin heimild er heldur til fyrir Kjaradóm til þess að taka málið upp aftur. Því gat forsætisráðherra ekki tekið undir slíkar tillögur. Eða er kanns*ki hægt að hækka laun hins almenna launamanns til samræmis við þessar kauphækkan- ir? Er það lausnin? Eða vilja alþing- ismenn afsala sér þessum kaup- hækkunum? Sá stöðugleiki sem náðst hefur í þjóðfélaginu undanfarin ár og rót sína á að rekja til þeirrar stefnu sem aðilar vinnumarkaðarins hafa fylgt er nú í hættu. Eg ætla ekki að svara þeirri sþumingu er í upphafi er sett fram, en læt lesendum það eftir. Höfundur er hæstaréttarlögmað- ur. •. „í Grænlandi“ LIÐIÐ sumar dvaldi ég hér á landi og lagði mitt gestseyra við dagblöð, út- og sjónvarp. Kannski er það vegna þess að ég bý erlend- is að fúleggin í fjölvarpinu verða mqr enn fúlli. Þrátt fyrir stabílíser- ingu íslenskrar fjölmiðlaflóru hnignar málfari enn. Þrátt fyrir að þessi sömu 30 nöfn hafi nú hljómað og ljómað á síðum og skjám í nokk- ur ár eru þau enn að gera sömu villurnar. Þrátt fyrir umræðu og málfarsráðunauta. Einkum virðist á undanhaldi hæfni manna til að fara rétt að staðar- og örnefnum landsins. Þetta er að vísu útbreitt vandamál í þjóð- lífinu, fólk talar ekki lengur um að fara á Vestfirði heldur til Vest- fjarða, ekki austur á Selfoss heldur til Selfoss. Hinsvegar er engin ástæða til að fjölmiðiungar api upp þessa nýju lensku. Þó um sé að ræða smáar forsetningar eru þær Hæfni manna til að fara rétt að staðar- og ör- nefnum fer þverrandi, segir Hallgrímur Helgason, sem hér leið- réttir fjölmiðlafólk. stór og mikilvægur þáttur í málinu og sorglegt ef þetta blæbrigði hverfur alveg. Eða hvenær kemur að því að okkur verði sama hvort við búum á íslandi eða í íslandi. Eg nefni hér nokkur slæm dæmi frá liðnu sumri. „Von er á mörgu fólki til Borga- fjarðar eystri. . .“'(Ágúst Már Olafsson, Bylgjan.) „Þá erum við komnir til Bíldudals ...“ (Þorsteinn J. Vilhjálmsson, Rás Tvö.) „... og þessir grísir fluttir til Hríseyj- ar...“ (Gísli Sigur- geirsson, Sjónvarpið.) Allt eru þetta merki um flótta frá beyging- arvandanum, menn leysa hann með hinu hlutlausa „til“ og „frá“. Jafnvel hið málfars- ráðuneytta Ríkisút- varp bregst tungumál- inu og hleypir þessu í gegn: „Tvær tíkur hurfu frá Mosfellsdai" (Gerður G. Bjarklind, Tilkynningalestur.) Þegar menn ætla hinsvegar að nálgast staðina á hefð- bundinn hátt tekur ekki betra við. Þá segja menn frá því að Valsmenn hafi flengt „Leiftursmenn í Ólafs- firði í gær“ (Íþróttasíða Morgun- blaðsins), eru staddir „hjá Trostan í Bíldudal" (G. Pétur Matthíasson, Sjónvarpið) eða eru á leið á Neista- flug „á Neskaupstað" (Magnús Ein- arsson, Rás Tvö). Sú villa sem er þó hvað algengust og fer hvað mest í taugarnar á mér er þegar talað er um að vera „í Græn- landi“. Þessi óskemmti- lega nýjung er orðin svo útbreidd að hún virðist vera að festast í málinu. Svo margir útvarps- menn hafa farið með hana, sem og margir málvandir vinir mínir, að ég er orðinn hálfleið- ur á því að leiðrétta hana. Þetta er lokatil- raun mín. Sjálfur utanríkisráð- herra hélt því fram í sjónvarpsfrétt- um fyrir nokkru að hér á landi hafi aldrei verið kjarnavopn þó svo hafi verið „í Grænlandi". Kannski á hann við að engin kjarnavopn hafi sést á íslandi en gætu hinsveg- ar hafa verið í Islandi? Höfundur er ungur listamaður. Hallgrímur Helgason Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bílasala Opið laugard. kl. 10-17 Sunnudaga kl. 13-18 Fjöldi bifreiða á mjög góðum lánakjörum. Bílaskipti oft möguleg. Toyota Corolla 1600 XLI Hatsback ’93, rauður, 5 g., ek. 36 þ. km. V. 1.080 þús. Sk. ód. Nissan Sunny GTI 2000 ’93, 5 g., ek. 54 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu. V. 1.290 þús. Grand Cherokee Laredo ’93, rauður, sjálfsk., ek. 71 þ. km., rafm. í öllu, álfelgur o.fl. V. 3.2 millj. Einnig: Grand Cherokee Limited (8 cyl.) 94, sjálfsk., leðirinnr. o.fl., ek. 14 þ. km. V. 4.150 þús. MMC L-300 Minibus '88, grásans., 5 g., ek. 120 þ. km., vól yfirfarin (tímareim o.fl). V. 1.050 þús. Mjög hagstæð lánakjör. Nissan Pathfinder EX V-6 (3000) '92, 5 dyra, 5 g., ek. 54 þ. km. Fallegur jeppi. V. 2.290 þús. M. Benz 190 ’88, 4 g., ek. 122 þ. km. Gott eintak. V. 1.490 þús. Tilboðsv. 1.190 þús, MMC Colt GLXi ’92, 5 g., ek. 74 þ. km. V. 940 þús. MMC L-200 4x4 m/húsi 91, 5 g., ek. 103 þ. krh. V. 1.090 þús. Toyota Corolla XL Sedan '91, sjálfsk., ek. aðeins 44 þ. km. V. 790 þús. Toyota Corolla 1600 Si Hatsback ’94, rauður, 5 g., ek. 19 þ. km., sóllúga, spoil- er o.fl. V. 1.350 þús. Toyota Corolla GTi '88, 5 g., ek. 90 þ. km. V. 650 þús. V.W Golf CL ’91, 5 g., ek. 38 þ. km. V. 690 þús. Wagoneer Limited 4.0 L '87, sjálfsk., ek aðeins 79 þ. km., rafm. í öllu, sóllúga o.fl Toppeintak. V. 1.490 þús. Subaru Justy J-12 GL II '90, 5 dyra sjálfsk., ek. aðeins 57 þ. km. V. 590 þús. V.W Golf 1.8 Gl Station ’94, 5 dyra, ek. 30 þ. km. V. 1.250 þús. Subaru Legacy Station '91, 5 g., ek. 66 þ. km. V. 1.190 þús. Sjaldgæfur sportbíll: Nissan 300 ZX V-6 '85, m/t-topp, 5 g., ek. 135 þ. km., rafm í rúðum o.fl. V. 1.200 þús. Tilboðsv. 990 þús. BMW 325 IX Station 4x4 ’90, grásans. sjálfsk., ek. 75 þ. km., sóllúga, rafm. í öllu o.fl. Sérstakur bíll. V. 1.950 þús. Honda Accord EX Sedan '87, sjálfsk., ek, 124 þ. km. Gott eintak. V. 650 þús. Góð lánakjör. MMC Lancer GLi Sedan '93, rauður, g., ek. 56 þ. km. V. 990 þús. Peugeot 205 XL 3ja dyra ’90, rauður, g., ek. 107 þ. km. Gott ástand. V. 450 þús. GMC Geo Tracker 4x4 '90, (USA týpa af Suzuki Vitara), hvítur, sjálfsk., ek. 83 þ. km. V. 1.050 þús. Toyota 4Runner V-6 ’95, dökkgrænn, sjálfsk., ek. 13 þ. km., rafm. í öllu, 31 dekk, brettakantar, álfelgur o.fl. V. 3.390 þús. Hyundai Pony SE ’94, 4ra dyra, rauður 5 g., ek. aðeins 11 þ. km., spoiler, samlit- ir stuðarar o.fl. V. 890 þús. Nissan Sunny SR Twin Cam 16V '88 svartur, 5 g., ek. 120 þ. km., ný tímareim, sóllúga, spoiler o.fl. V. 590 þús. Tilboðsv, 490 þús. Toyota Celica Supra 2.8i ?84, hvítur, g., álfelgur o.fl., 170 ha. Gott eintak. V, 490 þús. Hyundai Accent GS '95, 5 g., ek. 12 þ, km. V. 1.020 þús. Mazda 323 1.6 GLX '91, dökkgrænn sjálfsk., ek. 58 þ. km., rafm. i rúðum. hiti í sætum o.fl. Toppeintak. V. 930 þús. MMC Pajero V-6 (3000) '92, nýja útlitið vínrauður, sjálfsk., ek. 113 þ. km., Eirfh m/öllu. V. 2.850 þús. Toyota Corolla Liftback ’88, ek. 65 þ km., hvítur, 5 g. Fallegur bíll. V. 590 þús, Suzuki Sidekick JX 5 dyra '91, ek. 85 þ km., vínrauður, 5 g. V. 1.360 þús. Sk. ód. Daihatsu Feroza EL II '90, grár, 5 g., ek 80 þ. km. V. 850 þús. Fjörug bílaviðskipti. Vantar góða bfia á skrá og á staðinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.