Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 47
FRÉTTIR
SÍBSmeð
merkjasölu
SAMBAND íslenskra berkla-
og bijóstholssjúklinga (SÍBS)
stendur fyrir merkjasölu á
föstudag, laugardag og sunnu-
dag til þess að safna fyrir bygg-
ingu þjálfunarlaugar á Reykja-
lundi.
Nú eru 50 á_r liðin frá því að
Vinnuheimili SÍBS tók til starfa
á Reykjalundi en allar bygging-
ar á Reykjalundi hafa verið
reistar fyrir tilstuðlan happ-
drættis SÍBS. Mikill sigur
vannst á sínum tíma á berklum,
eða hvítadauða eins og sjúk-
dómurinn var kallaður, m.a.
fyrir tilstuðlan starfsemi SÍBS.
Eftir það lögðu SÍBS og
Reykjalundur þó ekki árar í bát
heldur héldu áfram af sama
krafti og áður og þróuðu rekst-
urinn til þess að mæta þörfum
fólksins í landinu í baráttu við
aðra sjúkdóma. Ungt fólk í dag
man ekki eftir hvítadauðanum
og getur e.t.v. ekki sagt fyrir
hvað skammstöfunin SIBS
stendur, en flestir kannast við
starfsemi félagsins til að
styrkja sjúka til sjálfsbjargar.
Þeir tugir þúsunda íslendinga
sem notið hafa aðstöðunnar á
Reykjalundi í lengri eða
skemmri tíma eru til vitnis um
öfluga starfsemi Reykjalundar
og SÍBS, segir í frétt um
merkjasöluna.
Kröflustarfs-
menn hittast
í KVÖLD, föstudag, ætla að
hittast í Kringlukránni starfs-
menn við byggingu Kröfluvirkj-
unar frá 1975 og árunum næstu
og þar á eftir.
Mikill íjöldi manna starfaði
við þessar framkvæmdir, m.a.
á vegum Miðfells, Vélsmiðjunn-
ar Héðins, Stálsmiðjunnar, Raf-
afls, Hamars, Orkustofnunar
og Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen
Fagnaðurinn hefst stundvís-
lega klukkan 20,30.
Opið hús í
Heimsljósi
JÓGASTÖÐIN Heimsljós, Ár-
múla 15, hefur nú starfað um
nokkurra ára skeið og fer áhugf
fólks á kripalujóga ört vaxandi.
Fjölbreytni starfseminnar er
alltaf að aukast og hefst vetrar-
starfið með fjölda ólíkra nám-
skeiða.
Kynning á kripalujóga verður
í Heimsljósi laugardaginn 30.
september kl. 13. Einnig verða
kynnt ný námskeið kl. 14. Fyrra
námskeiðið heitir Gyðjan, norn-
in og leyndardómarnir og er
fyrir konur sem viija efla kven-
orku sína, skoða dekkri og
bjartari hliðar hennar.
Seinna námskeiðið heitir
Listin að lifa í gleði og heil-
brigði og er fyrir alla þá sem
vilja skoða lífsstíl sinn í heild,
gera breytingar sem stuðla að
meiri gleði, vellíðan og heil-
brigði.
Allir velkomnir, aðgangur
ókeypis.
Afmælis-
afsláttur í
Blómavali
1. OKTÓBER verða tuttugu og
fimm ár liðin síðan Blómaval
tók til starfa í Sigtúni 40. Af
þessu tilefni verður veittur 25%
afsláttur af öllum vörum versl-
unarinnar frá fimmtudegi til
sunnudags.
Sjálfan afmælisdaginn verð-
ur að auki boðið upp á risastóra
25 metra afmælistertu, kaffi
og gosdrykki. Afmælisveislan
hefst kl. 14 og eru allir vel-
komnir.
Kjaramálaályktun stjórnar verkamannafélagsins Dagsbrúnar í gær
Samstarf við önnur félög í
VMSI um að stöðva ranglætið
Kjarasamningar sem hafa snúist upp
í andhverfu sína hljóta að vera lausir
STJÓRN verkamannafélagsins
Dagsbrúnar lýsir yfir þeirri skoðun
sinni að kjarasamningar séu lausir
og skorar á verkalýðsfélög láglauna-
fólks í Verkamannasambandi ís-
lands að þau hafi samstarf um að
stöðva ranglætið.
I ályktun stjórnarinnar sem sam-
þykkt var samhljóða segir að þeir
kjarasamningar hljóti að vera lausir
sem hafi snúist upp í andhverfu sína
og brugðist allri þeirri hugmynda-
fræði og siðfræði sem þeir byggðust
á. Verði ranglætið ekki stöðvað
muni Dagsbrún ásamt öðrum lág-
launafélögum í VMSÍ gera þær ráð-
stafanir sem dugi og hvorki ríkis-
stjórn né Vinnuveitendasamband
geti stöðvað.
Ályktunin sem samþykkt var í gær
er svohljóðandi: „Höfuðmarkmið síð-
ustu kjarasamninga var að tryggja
efnahagslegan stöðugleika og auka
launajafnrétti. I anda þess var samið
um litlar almennar kauphækkanir en
að þeir sem lægst hefðu launin fengju
mest. Samningarnir fólu síðan í sér
að kaup Dagsbrúnarmanna hækkaði
um 2.700 krénur á mánuði upp í
3.700 kr.. og þeim fylgdu ítrekaðar
yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um að
svokallaður efnahagsbati skyldi fyrst
og fremst renna til þeirra sem lægst
hefðu launin. Raunin hefur orðið allt
önnur.
Nær allir kjarasamningar sem
gerðir hafa verið síðan hafa faiið í
sér meiri kauphækkanir þannig að
þeir lægst launuðu hafa enn einu
sinni fengið minnst. Þá hefur efna-
hagsbatinn alls ekki skilað sér til
hinna lægst launuðu í bættum lífs-
kjörum. Þvert á móti hefur hann
skilað sér í auknu atvinnuleysi og
lakari kjörum láglaunafólks. Kjara-
samningar sem þannig hafa snúist
upp í andhverfu sína og brugðist
allri þeirri hugmyndafræði og sið-
fræði sem þeir byggðust á, hljóta
því að vera lausir.
Síðustu ráðstafanir svokallaðs
Kjaradóms hafa bætt gráu ofan á
svart með því að stórhækka kaup
æðstu starfsmanna ríkisins og nema
hækkanir í sumum tilfellum hærri
upphæðum en mánaðarkaupi verka-
fólks og til að kóróna þetta allt hafa
ákveðnum hópum verið veitt sérstök
skattfríðindi.
Dagsbrún lýsir því yfir þeirri skoð-
un sinni að kjarasamningar séu laus-
ir og skorar á verkalýðsfélög lág-
launafólks í Verkamannasambandi
Islands að þau hafi samstarf um að
stöðva ranglætið og knýja fram
breytingar.
Verði ranglætið ekki stöðvað mun
Dagsbrún ásamt öðrum láglaunafé-
lögum í Verkamannasambandi ís-
lands gera þær ráðstafanir sem duga
og hvorki ríkisstjórn né Vinnuveit-
endasamband getur stöðvað.“
*
Forseti ASI á fundi Kristilegrar stj órnmálahreyfingar
Atvinnuleysi
þrátt fyrir
efnahagsbata
BENEDIKT Davíðsson, forseti
ASÍ, sagði á fundi Kristilegrar
stjórnmálahreyfingar um launa-
og atvinnumál, að það væri mikið
áhyggjuefni hvað hægt gengi að
ráða niðurlögu atvinnuleysisins á
íslandi þrátt fyrir að hagur efna-
hagslífsins færi batnandi.
Benedikt • sagði að ástæðurnar
fyrir miklu atvinnuleysi á íslandi
væru ekki ósveigjanlegur vinnu-
markaður eða há laun almennra
launamanna. Kenningar í þá átt
ættu við engin rök að styðjast.
Benedikt sagði að baráttan gegn
atvinnuleysinu ætti að vera for-
gangsverkefni stjórnmálaflokk-
anna. Flestir væru þeir með þetta
verkefni efst á stefnuskrá sinni,
en hann sagðist hafa grun um að
þar færi ekki alltaf saman orð og
efndir. Benedikt sagði nauðsynlegt
að mynda almenna sátt um at-
vinnuuppbyggingu landsins. Að
þeirri sátt þyrftu að koma laun-
þegahreyfingin og samtök at-
vinnurekenda. Hann sagðist því
leggja áherslu á að ríkið og samtök
launþega og atvinnurekenda héldu
áfram viðræðum um leiðir til að
Morgunblaðið/Ásdís
BENEDIKT Davíðsson, forseti ASÍ, var einn frummælenda
á fundi Kristilegrar sljórnmálahreyfingar.
styrkja atvinnulif hér landi.
í yfirlýsingu sem dreift var á
fundinum segir: „Kristileg stjórn-
málahreyfing vill standa fyrir
þjóðarátaki í atvinnumálum, fyrst
og fremst með því að atvinnuveg-
ir landsins móti stefnu til framtíð-
ar. Framtíðarsýnin á að byggjast
á að koma á fullri atvinnu, góðri
afkomu heimilanna, réttlátri
tekjuskiptingu í þjóðfélaginu og
með því að treysta undirstöðu
velferðarinnar sem er verðmæta-
sköpunin og grundvöllur þess að
þjóðin geti brauðfætt sig og betur
en það.“
Anand féll í gildru
ANAND lék hroðalega af sér og
tapaði 11. einvígisskákinni við
Kasparov í New York í gærkvöldi.
Þessi staða kom upp eftir 27. leik
Kasparov, sem hafði svart og lék
síðast 27. - Be6! Þar lagði hann
gildru fyrir Indverjann, sem var of
fljótur á sér:
Sjá stöðumynd
28. b4? - axb4 29. axb4 - Hc4 30.
Rb6??
Anand hefur talið sig vinna skipta-
mun en verður á hroðaleg yfirsjón.
30. - Hxb4+ 31. Ka3 - Hxc2!! og
Anand gafst upp því 32. Hxc2 er
svarað með 32. - Hb3+ 33. Ka2 -
■ KVENFÉLAG Kópavogs er
að hefja vetrarstarfsemi sína en
félagið verður 45 ára 29. október
nk. Af því tilefni verður bæjarbú-
um boðið í veglegt afmæliskaffi í
Félagsheimilinu kl. 20 þar sem
félagskonur munu skemmta gest-
um með ræðum, dansi og söng.
Eins og mörg undanfarin ár verður
leikfimi á vegum félagsins í leik-
fimisal Kópavogsskóla á mánudög-
um og miðvikudögum kl. 20. Leik-
fimin hefst 2. október. Kennari
verður Hulda Stefánsdóttir. Nán-
ari upplýsingar fást hjá Önnu
Bjarnardóttur. Þá er basarnefnd-
in tekin til starfa en jólabasarinn
verður 12. nóvember. 19. október
verður námskeið í perlusaumi,
kennari verður Þórhildur Gísla-
a b c d • # ( 0 h
He3+ og vinnur hrókinn til baka
með gerunnu endatafli.
dóttir. Síðast en ekki síst er stefnt
að listsýningu kvenna í Gerðar-
safni á aðventunni, 4. til 17. des-
ember, en sýningin er fyrirhuguð
í tilefni af tveimur afmælum, fjöru-
tíu og fímm ára afmæli Kven-
félágsins og fjörutíu ára afmæli
Kópavogsbæjar. Líknarsjóður
Áslaugar Maack starfar innan
vébanda félagsins. Minningarkort
sjóðsins fást á Pósthúsinu við
Digranesveg, hjá Helgu Þorsteins-
dóttur og hjá Öglu Bjarnadóttur.
Stjóm Kvenfélags Kópavogs skipa
Helga Sigurjónsdóttir, Kristín
Pétursdóttir, Rannveig Garðars-
dóttir, Erna Einarsdóttir og
Ásta Sigurðardóttir. í varastjórn
eru Sigríður Jónasdóttir og Sig-
ríður Andrésdóttir.
Fyrirlestur
um dagblöð
framtíðar
ERLING Zanchetta, framkvæmda-
stjóri Árhus Stiftstidende og kons-
úll íslands í Árósum, flytur fyrir-
lestur í Norræna húsinu laugardag-
inn 30. september kl. 17.15 um
dagblöð framtíðarinnar.
Á undanförnum árum hefur
blaðalestur ungs fólks dregist um-
talsvert saman í Danmörku. Árhus
Stiftstidende, sem Erling Zanchetta
stjórnar, hefur sl. ár markvisst unn-
ið að því að höfða til barna og ungl-
inga með ýmsu frumkvæði og verið
í nánu samstarfi við ungt fólk í
Árósum, gefið út tímarit fyrir ungt
fólk og dagblað fyrir börn.
Erling Zanchetta mun í fyrir-
lestri sínum í Norræna húsinu fjalla
um áskorun rafrænu miðlanna á
dönsku dagblöðin almennt, um
frumkvæði Árhus Stiftstidende
þessu tengt og að lokum starfsemi
Fjölmiðlanefndarinnar svokölluðu.
Fjölmiðlanefndin var skipuð af
Poul Nyrup Rasmussen 1994 og til
þess að skilgreina hlutverk og stöðu
dagblaðanna og benda á mögulegar
úrlausnir og aðferðir til þess að
tryggja stöðu dagblaðanna sem
menningar- og upplýsingarmiðils í
nútíma samfélagi.
Fyrirlesturinn er á dönsku. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
tdÉJi
adidas
Nýkomnir sundbolir
Kr. 3.78D
5% staðgreiðsluafsláttur
af póstkröfum greiddum
innan 7 daga.
T
! ÚTILÍFf
GLÆSIBÆ ■ SÍMI 581 2922