Morgunblaðið - 29.09.1995, Síða 48
48 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
fB6 GÆTISMKAP MEK.
\þptG67A M6A FEBÐALA
\/tlEB>þi/! APSTD04/A'/FlKlj
L&
Grettir
Ferdinand
Hver er þessi náungi með svarta Það er Svarti-Pétur, hinn frægi Eigum við að tala, eða eigum
hattinn? fjárhættuspilari. við að spila „Svarta-Pétur“?
BRÉF
TIL BLADSINS
Kringlan 1108 Reylq'avík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Fornmannsgröf í
Skriðdal
Frá Gissuri Símonarsyni:
EFTIR AÐ fregnin af fornmanns-
gröfinni í Skriðdal á Héraði barst
vaknaði strax hjá mér nokkur for-
vitni um það hver hér hefði verið
lagður til hinstu hvílu, með svo rík-
mannlegum hætti, sem nú hefur
komið fram.
Við lauslega athugun mína í
Landnámabók Hins ísl. fornritafé-
lags, sem Jakob Benediktsson gaf
út, bls. 295, segir:
(S. 278) „Ketill ok „Graut-Atli“,
synir Þóris Þiðranda, fóru ór Verdal
til íslands ok námu land í Fljótsdal,
fyrr en Brynjólfur kom út. Ketill nam
Lagarfljótsstrandir báðar fyrir vestan -
Fljót á milli Hengifossár ok Ormsár.
Ketill fór útan ok var með Véþormi
syni Vémundar ens gamla; þá keypti
hann at Véþormi Amheiði, dóttir
Ásbjamar jarls skerjablesa, er Hólm-
fastur son Véþorms hafði hertekit,
þá er Grímur systurson Véþorms drap
Ásbjöm jarl. Ketill keypti Amheiði
dóttur Ásbjarnar tveim hlutum dýrra
en Véþormur mat hana í fyrstu; en
er kaupit var orðit, þá gerði Ketill
brúðkaup til Amheiðar. Eptir þat fann
hon grafsilfr mikit undir viðarrótum.
Þá bauð Ketill at flytja hana til
frænda sinna, en hon kaus þá honum
at fylgja. þau fóm út ok bjuggu á
Arneiðarstöðum; þeira son var Þiðr-
andi faðir Ketils í Njarðvík.
(S. 279) Graut-Atli nam ena eystri
strönd Lagarfljóts allt á milli Giljár
ok Vallaness fyrir vestan Öxnalæk.
Hans synir váru þeir Þorbjörn ok
Þórir, er átti Ásvöra Brynjólfsdóttur.
(S. 280, H. 241) Þorgeirr Vestars-
son hét maðr göfugr; hann átti þijá
sonu; var einn Brynjólfr enn gamli,
annar Ævarr enn gamli, þriðji Heij-
ólfur. Þeir fóru allir til íslands á sínu
skipi hverr þeira. Brynjólfur kom
skipi sínu í Eskifjörð ok nam land
Tár úr
Frá Asgerði Jónsdóttur:
ÉG VAR að koma frá því að sjá
myndina „Tár úr steini" í annað
sinn. Hún brást ekki fyrri áhrifum
nema síður sé, en þá kom ég heim
nánast upphafin af hrifningu. í
myndinni fer allt saman fagur og
trúverðugur texti, stórfengleg tón-
list ímyndrænum tengslum við nátt-
úru íslands og afburða fagur leikur.
Það er á engan hallað þó að ég
nefni sérstaklega hlutverk Rutar
a Heraði
fyrir ofan fjall, Fljótsdal allan fyrir
ofan Hengiforsá vestan, en fyrir ofan
Gilsá fyrir austan, Skriðudal allan,
ok svá Völluna út til Eyvindarár ok
tók mikit af landnámi Una Garðars-
sonar ok byggði þar frændum sínum
ok mágum. Hann átti þá tíu börn,
en síðan fékk hann Helgu, er átt
hafði Herjólfur bróðir hans, og áttu
þau þijú börn. Þeira son var Qzurr,
faðir Bersa, föður Helgu, móður
Þorbjargar, er átti Loptur byskups-
son.
(S. 281, H. 242) Ævarr enn gamli
bróðir Brynjólfs kom út í Reyðarfjörð
ok fór upp um fjall; honum gaf Brynj-
ólfur Skriðdal allan fyrir ofan Gilsá;
hann bjó á Arnaldsstöðum; hann átti
tvá sonu ok dætur þijár.“
Þá er að athuga kortið sem fylgir
þessari útgáfu af Landnámabók,
„Austfirðir nyrðri“.
Þar kemur það greinilega fram
hvar bræðumir Ketill og „Graut-
Atli“ námu land beggja vegna Lagar-
fljóts, en Brynjólfur gamli austan
Lagarfljóts, þegar Ævar bróðir hans
kemur til landsins þá gefur Brynjólf-
ur honum Skriðdal allan og Landn-
áma segir að Ævar hafi búið þar á
Arnaldsstöðum.
Fyrst verður þvi að álykta að það
sé Ævar Þorgeirsson, f. um 860, sem
hér hafi verið grafinn upp eftir um
1100 ár. Faðir hans hét Þorgeir
Vestarsson, f. um 830, „göfugur
maður í Noregi". Kona Ævars var
Þjóðhildur Þorkelsdóttir f. um 880,
faðir hennar var Þorkell „fullspak-
ur“.
Þessi ályktun mín er gerð með
sama fyrirvara og Ari Þorgilsson
hafði um ritun Íslendingabókar að
komi annað í Ijós, þá skal hafa það
sem sannara reynist.
GISSUR SÍMONARSON
húsasmíðameistari.
steini
Ólafsdóttur sem Annie eiginkonu
Jóns Leifs. Það er hverjum manni
góð gjöf að horfa á hennar fágaða
leik í gleði og sorg.
Einkunn þessarar kvikmyndar er
sú hófstilling og fágun, sem lyftir
henni upp á skör eftirsóknarverðrar
kvikmyndalistar.
Tár úr steini kemur öllum mönnum
við.
ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR,
Drápuhlíð 32, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.