Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
••
Okuhæfni - ökukennsla
Frá Guðvarði Jónssyni:
MEÐAN akvegir landsbyggðarinnar
voru bara malarvegir og varla meira
á breiddina en rétt hjólförin, varð
hraðinn aldrei meiri en svo, að menn
réðu vel við það að stjóma bílnum
og hemla, áður en til stóróhappa kom.
Nú eru vegirnir upphækkaðir, með
bundnu slitlagi á öllum helstu um-
ferðarleiðum og færri og. opnari
beygju en áður var. Vegna þessa
hefur ökuhraðinn tvöfaldast og vel
það, en krafan um hæfni manna til
aksturs bifreiða, hefur hinsvegar
ekkert breyst.
Ungir ökumenn
17 ára ökumaður sem tekið hefur
próf í Reykjavík, er yfírleitt ekki með
aðra akstursþjálfun en þá, að geta
stjórnað bifreið á litlum hraða hér
innanbæjar við bestu aðstæður. Sami
ökumaður á svo að geta farið út á
landsbyggðarvegina, án þjálfunar í
utanbæjarakstri, með bílinn fullan
af fólki og jafnvel börn, og þann
áróður ökuníðinga í veganesti að
þeir sem aki hægt séu hættulegustu
mennirnir í umferðinni.
Ég er ekki með þessu að segja
að það eigi að banna þessum aldurs-
hópi að taka bílpróf, síður en svo.
Það er mín skoðun .að eftir að
akstursþjálfun innanbæjar og fræði-
legu prófi er lokið, þá ætti að fara
með nemandann eina ferð t.d. um
Hvalfjörð í Borgarnes, undir leiðsögn
kennarans. Það gæti orðið grunn-
tónninn undir utanbæjaraksturslagi
margra ungra ökumanna.
Mér hefur fundist mun auðveldara
að aka framúr þeim sem fara hægt,
en þeim sem fara hratt. Þar að auki
hef ég ekki séð annað en að það sé
ekið framúr þótt menn aki á yfir 100
km hraða.
Strjálbýli - þéttbýli
Flestir ökumenn þekkja það fyrir-
bæri þegar þeir koma úr hröðum
akstri af landsbyggðinni, inn á þétt-
býlissvæði og eiga að fara að keyra
á 50-60 km hraða, þá fínnst mönnum
hreinlega bíllinn ekkert komast áfram
og þeir sem hraðast óku komast aldr-
ei neðar en 70-80. Þama eru á ferð-
inni viðbrögð augans við hraðanum.
Þegar hraðinn er kominn upp í 70-80
km þá fer augað að sleppa úr smáatr-
iðum og þegar hraðinn er orðinn vel
yfír 100 km, sér augað aðeins heildar-
myndina af því sem framundan er
og hraðaskynið að mestu horfíð. Verði
síðan einhver hindrun á veginum, kem-
ur hraðaskynið snögglega inn, augað
hefur fengið fastan punkt og ökumað-
urinn skynjar bflinn nálgast hættuna
á ógnarhraða. Viðbrögð óreynds öku-
manns við þessu verða yfírieitt þau
að hann stígur hemplapetalann í botn
og þeim mun fastar sem hann nálgast
hættuna meir, sem sagt útilokar
möguleika sinn á því að geta stýrt
framhjá hættunni ef þess væri kostur.
Hemlunarvegalengdin verður allt
að helmingi styttri ef viðnám dekkj-
anna við veginn er fullnýtt án þess
að dekkin renni. Þetta atriði þarf að
kenna og æfa, ef ungir ökumenn eiga
að geta nýtt sér það.
Vandamálið er bílstjórinn
Eitt af því sem ökumaður, er ekur
á miklum hraða, þarf að hafa í huga
eru dekkin. Við hraðan akstur hitna
dekkinn mikið og þeim mun meira
þegar rifflumar fara að grynnast í
bananum. Dekk yfírhitna meira en
eðlilegt er og þá er hætt við að strigi
fari að rifna í hliðunum og vírinn að
slitna í bananum. Gerist þetta getur
dekkið hvellsprungið þegar álagið er
sem mest og síst skyldi.
Oft undrast ég hvað menn taka
mikla áhættu þegar þeir keyra á mikl-
um hraða undan brekku í beygjum,
það er eins og menn geri sér ekki
grein fyrir því að við þessar aðstæður
er aðalálagið, vegna stefnubreytinga
og fallþunga bflsins, orðið á ytra
framhjóli í beygjunni, ekki á sólanum
heldur á hliðum dekksins. Sé dekk
mjög vír- eða strigaslitið við þessar
aðstæður er það lífshættulegt.
Sumir hafa verið að tala um að
það þyrfti að bæta öryggisbúnað í
bílum til þess að draga úr líkamlegu
tjóni í umferðarslysum, t.d. með því
að setja loftpúða fyrir framan bíl-
stjóra og farþega í framsæti. En hvað
með farþegana í aftursætinu sem oft
eru böm? Ég hef ekki á móti því að
öryggisbúnaður í bílum sé sem bestur
en vandamáliö er ekki öryggisbúnað-
ur heldur bílstjórinn.
Menn vilja oft kenna aðstæðum
um þau óhöpp sem þeir verða fyrir,
en gleyma því að það er bflstjórans
að meta aðstæður hveiju sinni, en
ekki vegarins að skapa þær aðstæður
sem bílstjórinn vill að séu til staðar,
þar sem hann ekur á hveijum tíma.
Það er nauðsynlegt að ökumenn
hafí í huga að hæfni mannsins til
þess að geta stjómað bfl, við hvaða
aðstæður sem er, er takmörkuð og
hæfni bílsins til þess að geta Iátið að
stjóm, við hvaða aðstæður sem er,
er einnig takmörkuð. Þetta fer alveg
eftir því hverrar tegundar bíllinn er,
hver búnaður hans er og ástand veg-
ar. Okumaður verður að meta hæfni
sína lágt, ef öryggið á að vera tryggt.
Væri ekki rétt að velta ýmsu af
því, sem hér hefur verið drepið á,
fyrir sér og vita hvort eitthvað af því
mætti ekki betur fara.
GUÐVARÐURJÓNSSON
Hamrabergi 5, 111 Reykjavík
Ymis starfsemi í Hall-
grímskirkju í vetur
NÆSTKOMANDI sunnudag, 1.
október, hefjast að nýju
fræðslumorgnar í Hallgríms-
kirkju og verða
þeir hvern sunnu-
dag kl. 10 f.h. í
október og nóv-
ember eins og
verið hefur
undanfarin ár.
í tilefni af því
að Sameinuðu
þjóðirnar hafa
helgað': þetta ár
umburðarlyndi
verða fyrirlestrar
þriggja fyrstu
fræðslumorgn-
anna helgaðir því
efni.
Næstkomandi
sunnudag, 1.
október, kl. 10
f.h. flytur dr. Páll Skúlason pró-
fessor fyrirlestur um umburðar-
lyndi, sunnudaginn 8. október
ræðir Ævar Kjartansson dag-
skrárgerðarmaður um kyn-
þáttafordóma og sunnudaginn
15. október flytur dr. Hreinn
Pálsson skólastjóri Heimspeki-
skólans erindi um uppeldi til
umburðarlyndis.
Að þessum fyrirlestrum lokn-
um verða fluttir fyrirlestrar um
ýmis trúarleg og siðfræðileg
efni. Þann 22. október flytur
séra Jón Bjarman sjúkrahús-
prestur erindi um örvæntinguna
sem hann nefnir Þegar maður
missir tökin. Viku síðar, þann
29. október ræðir séra Sigurður
Pálsson um trú milli vonar og
ótta og 5. nóvember flytur séra
Karl Sigubjörns-
son erindi sem
nefnist Hvar eru
hinir dánu? Sig-
ríður Guðmunds-
dóttir hjúkrunar-
fræðingur, skrif-
stofustjóri al-
þjóðaskrifstofu
Rauða kross ís-
lands, flytur síð-
an erindið Alls-
nægtir - alls-
leysi þann 12.
nóvember.
Mótettukór
Hallgrímskirkju
æfir nú jólaórat-
óríu Bachs til
flutnings um jól-
in. Hörður Áskelsson organisti
og söngstjóri mun kynna óratór-
íuna og fleira í erindi sem hann
mun flytja með tóndæmum þann
19. nóvember undir yfirskrift-
inni Bach og jólin.
Síðasti fræðslumorgunn fyrir
jól verður 26. nóvember, en þá
mun séra Kari Sigurbjörnsson
ræða um guðsmyndina í erindi
sem hann nefnir Hann Guð eða
hún?
í byrjun febrúar verður svo
þráðurinn tekinn upp að nýju
og verður það auglýst þegar þar
að kemur.
Séra Karl Sigurbjörnsson,
séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Jöfur
NYBYLAVEGUR
V
Toyota
DALBREKKA
AUÐBREKKA
Nýbýlavegi 4, (Dalbrekkumegin)
Kópavogi, sími 554 5800.
HEFSTI
0PNUM KL. 8 MEÐ VÖRUP
Á FRÁBÆRU VERÐI
■>,
* -V; '• C
Jakkaföt frá kr. 14.900
Stakir herrajakkar frá kr. 4.900
Stakar herrabuxur frá kr. 900
Vesti frá kr. 1.990
Dömujakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 900
Dömubuxur frá kr„ 900
Efnisbútar í úrvali, frábært verð.
Og margt, margt fleira á ótrúlega lágu verði.
Opið föstudag
frá kl. 8 - 19
Laugardag
frá kl. 8— 16