Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Gulrætur
í þessum þætti segír Kristín Gests-
dóttir okkur frá gulrótum, sem hún
metur mikils og ræktar lífrænt.
VAFALAUST er gulrótin
vinsælasti garðávöxtur-
inn. Hún er mjög A-vít-
amínrík en í henni er líka C-vít-
amín og steinefni. Mesta víta-
mínið er í hýðinu og við það,
nýjar íslenskar gulrætur ætti því
hvorki að skafa né afhýða, held-
ur þvo vel. Séu gulrætur soðnar
óskafnar, er auðvelt að stijúka
himnuna af að suðu lokinni. ís-
lendingar rækta eingöngu sum-
argulrætur, en h'ka eru til vetrar-
gulrætur, sem hafa lengra
geymsluþol en eru ekki eins ljúf-
fengar. Sumargulrætur eru mjög
mjúkar og safaríkar og því góðar
hráar, en vetargulrætur eru
grófari og seig-
ari og henta síð-
ur hráar nema
niðurrifnar. Álit-
ið er að uppruni
gulrótarinnar sé
Mið-Asía og
Austurlönd en
þar uxu villtar
beiskar, harðar
gulrætur um
2.000-3.000
árum f. Kr. Þessi
villta gulrót var
kynbætt í Mið-
jarðarhafslönd-
um, en hvemig
og hvenær er
ekki vitað.
Fyrstu sagnir af
gulrót líkri þeirri
sem við þekkjum
eru frá 12. öld.
Spænskur Arabi
getur um tvær
tegundir, fagur-
rauða, safamikla
og góða og aðra gulgræna grófa.
Fagurgula gulrótin, sem við
þekkjum, kom ekki fram fyrr en
löngu síðar. Sjá má þær á hol-
lenskum 17. aldar málverkum
og þær urðu ekki algengar í
Evrópu fyrr en á síðustu öld.
Gulrætur voru ekki til í Ameríku
þegar hún fannst en Indjánar
hófu fljótlega ræktun þeirra eftir
að farið var að flytja fræ vestur
um haf. Nýsprottnar gulrætur
eru afar ijúffengar hráar eða
snöggsoðnar í smjöri.
Gulrótarrúllur
Nokkar meðalstórar gulrætur
hnífur með rauf
tannstönglar
kalt vatn
1. Burstið gulrætumar vel,
skerið síðan í þunnar sneiðar
langsum með hnífi með rauf
(kartöfuhnífi). Vefjið rúllumar
upp og festið saman með tann-
stönglum.
2. Setjið kalt vatn í skál, legg-
ið rúllumar í vatnið og geymið
í kæliskáp í minnst 4-6 klst.
3. Hellið vatninu af, takið
tannstönglana úr og rúllurnar
haldast stífar.
Athugið: Þetta er skemmtilegt
að bera fram með ídýfu.
Smj örsoðnar g-ulrætur
með steinselju
200-300 g frekar smáar gulrætur
1 msk. matarolia
30 g smjör
tsk. salt
nýmalaður pipar
fersk steinselja
1. Burstið gulræturnar vel,
skafið ekki. Ef gulræturnar eru
nýuppteknar þarf ekki að skera
allt laufið af, heldur má skilja
eftir um 2 sm bút af því og borða
hann með. Ef gulræturnar eru
stórar, þarf að skera þær langs-
um í stafi.
2. Seijið matarolíu og smjör í
lítinn pott. Hafið hægan, hita.
Setjið gulrætur í pottinn, stráið
salti yfir og sjóðið við mjög hæg-
an hita í 5-7 mínútur. Gott er
að hrista pottinn öðru hveiju.
3. Klippið steinselju yfir og
berið strax á borð.
Athugið: Þetta er mjög hent-
ugt að sjóða í örbylgjuofni.
Næsta uppskrift er úr bók
minni Minna mittismál.
Gulrótarbúðingur
með laxi eða rækjum
4 dl fínt rifnar gulrætur
__________1 dl mjólk________
2 dl brauðrasp eða mulið Ritzkex
3 eggjarauður lótsk, salt (sleppið
því ef þið notið Ritzkex)
’/b tsk. múskat
_________3 eggjohvítur_______
nokkrgr sneiðar reyktur eða
grafinn lax eða 200 g rækjur
fersktdill
1. Rífið gulræturnar. Setjið
ásamt mjólk í pott og sjóðið við
hægan hita í sjö mínútur. (Þetta
má sjóða í örbylgjuofni). Hellið
síðan á sigti, hafíð skál undir og
geymið mjólkina. Setjið brauð-
rasp eða mulið Ritzkex í mjólkina
látið blotna eins og hægt er.
2. Hrærið eggjarauður með
múskati og salti og setjið saman
við raspblönduna. Þeytið eggja-
hvítur og setjið saman við.
3. Smyijið aflangt álmót 20x8
sm. Stráið raspi í mótið. Setjið
maukið í mótið.
4. Hitið bakaraofn í 200 C°,
blástursofn í 180 C°, setjið í
miðjan ofninn og bakið í 25-30
mínútur. (Þetta má baka í ör-
bylgjuofni en mun skemur, tími
fer eftir styrkleika ofnsins.
5. Skerið niður með mótinu
og hvolfið á fat. Ef þið notið
reyktan eða grafinn lax er þetta
borið fram kalt, en með rækjum
er betra að það sé heitt. Hitið
þó ekki rækjurnar.
6. Klippið dill yfir laxinn eða
rækjurnar.
Meðlæti: Ristað brauð og
smjör.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 5691100 frá 9-5 frá mánudegi til föstudags
Ófremdarástand
í Miðbænum
HAFLIÐI hringdi og vildi
taka undir með manninum
sem kvartaði undan stöðu-
mælavörðum í miðbæ
Reykjavíkur í Velvakanda
fyrir skömmu. Hafliði
sagði að verðirnir fari off-
ari í starfi og séu að gera
út af við alla umferð í
bænum. Þetta hefur farið
versnandi síðastliðnar vik-
ur og hann er virkilega
óhress með þetta.
Tryggvi
Gíslason
í BLÓMA- og gjafavöru-
verslunina Biómið, Grens-
ásvegi 60, kom Tryggvi
nokkur Gíslason og keypti
þar vörur sem hann síðan
gleymdi. Hann er frá Akur-
eyri en var nýkominn frá
Skotlandi. Eigendum versl-
unarinnar er mikið í mun
að Tryggvi fái vörurnar
sínar og ef hann les þessar
línur þá eru hann, eða ein-
hveijir sem þekkja hann,
vinsamlega beðnir að hafa
samband við verslunina.
Góð grein
ÞORLEIFUR Guðlaugsson
hringdi og vildi þakka
Dagrúnu Kristjánsdóttur
fyrir góða grein í Morgun-
blaðinu sl. miðvikudag.
Hann segir að greinin sé
eins og úr sínu hjarta töluð.
Komi hún inn á ýmis mál
sem gott var að fá fram í
dagsljósið.
Gæludýr
Skyndikynni!
DIMMA hin hárprúða hef-
ur hug á að eignast kettl-
inga og leitar þvi að föður
handa verðandi bömum
sínum. Hún vill síðhærðan,
geðgóðan og kurteisan
kavalér en ekki er bráð-
nauðsynlegt að um æðar
hans renni blátt blóð. Ekki
hefur hún heldur áhuga á
að borga fyrir greiðann.
Guðlaug, - umboðsmaður
Dimmu, mun sjá um valið
fyrir hennar „loppu“ og
hægt er að ná í þær stöllur
í síma 564-3938 á kvöldin.
KIói er týndur
KLÓI er tveggja ára síams-
köttur sem hvarf úr Stiga-
hlíð 35 að kvöldi 18. sept-
ember sl. Hann er með
margbrotið skott og er
tattóveraður í eyra R-
4025. Þeir sem kynnu að
hafa séð til hans í hverfun-
um í kring eru beðnir að
láta Jónínu vita í síma
568-2392.
Týndur köttur
GRÁ fjögurra mánaða
læða fór að skoða heiminn
sl. sunnudagskvöld og síð-
an hefur ekkert til hennar
spurst. Hún á heima í
Steinaseli og hafi einhveij-
ir í nærliggjandi hverfum
orðið varir við hana eru
þeir beðnir að láta vita í
síma 557-2376.
Tapað/fundið
Giftingarhringur
GIFTINGARHRINGUR
tapaðist á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir nokkru. Inn-
an í hringinn eru stafirnir
HK letraðir. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 552-1640.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp í viður-
eign tveggja stórmeistara í
þýsku Bundesligunni í vor.
Ungveijinn Zoltan Almasi
(2.620) hafði hvítt og átti
leik gegn Willie Watson
(2.525), Englandi.
34. Hxf7! og svartur sá sig
nauðbeygðan—til að gefast
upp. Hann er mát .ef hann
tekur hrókinn: 34. — Kxf7
35. De7+ og mát í næsta
leik, eða 34. - Hxf7 35.
De7+ og mát í næsta leik,
eða 34. - Hxf7 35. De8+
og óveijandi mát í öðrum
leik.
Skemmtikvöld skák-
áhugamanna í kvöld kl. 20
í Skákmiðstöðinni við Faxa-
fen. Fylgst verður með 12
einvígisskák Kasparovs og
Anands í New York og tefld
hraðskák.
Með morgunkaffinu
í auglýsingunni. Ég er
alveg laus við alla appel-
sínuhúð.
Ást er...
að fara í ökuferð í
gamla blæjubílnum
hans.
TM Bog. U.S. Pat Ofl. — all dghte resorvod
(c) 1896 Loa Angeies Tlmes Syndicato
ÞETTA er þér að kenna!
Þú sagðist vilja fara eitt-
hvert í frí, burt frá öllu.
AUÐVITAÐ veit ég hvað
eyðslukló er. Ég er sjálfur .
giftur einni.
Farsi
HlCRo
COMPUTERS
I NC.
7-18
C1995 Farcus CmoonsMél. &v UrtvtfSal Piass S«ndc»le WAISbtASS/CCUVTUMW
„ Eg get ctcti, ennþá s'eb LyidaborHb."
Víkveiji skrifar...
RÉTTINDI kvenna í heiminum
hafa mjög verið til umræðu
að undanfömu og hefur margt bor-
ið á góma í því sambandi. Þessi
umræða er þörf og þó margt hafi
breyst á liðnum áratugum er alveg
ljóst að betur má ef duga skal.
Vinkona Víkverja er mikil bar-
áttukona fyrir jafnrétti kynjanna.
Hún hefði vel getað verið á ráð-
stefnunni í Kína svo mjög ber hún
málin sem þar voru rædd fyrir
brjósti. Oftsinnis hefur Víkveiji
heyrt þessa ágætu kona ræða jafn-
réttismálin af miklum eldmóði og
þunga og hefur oft verið henni sam-
mála.
Það var síðan einn daginn fýrir
skömmu að konan hringdi heim til
skrifara og eftir vinsamlegt spjall
um daginn og veginn sagðist hún
eiga erindi við húsmóðurina; hvort
hún væri við. Þær tóku síðan tal
saman konurnar og fóm víða í sam-
talinu. Að lokum bar vinkonan upp
erindið, það var sum sé að bjóða í
bamaafmæli. Vinkonan bauð eigin-
konu skrifara og dóttur þeirra í
afmælið. Víkveija dagsins var ekki
boðið, en eflaust hefði hann mátt
koma ef hann hefði sótt það fast.
Skrifari veltir því fyrir sér hvers
vegna honum var ekki boðið eins
og eiginkonunni og dótturinni. Eiga
feður ekki erindi í afmæli með börn-
um sínum? Em þessi samkvæmi
eingöngu fyrir konur og börn að
mati jafnréttiskonunnar góðu?
Þurfum við kallarnir kannski að
setjast niður og ræða þessi mál, þó
við förum ekki alla leiðina til Kína
út af þessu!
XXX
NOKKUR ár hefur skrifari séð
einn og einn mann róta í rusla-
fötum í borginni í leit að gosflösk-
um eða dósum. Þetta fólk er oft
orðið roskið og hefur greinilega
ekki úr miklu að moða. Síðustu
mánuði hefur skrifari velt því fyrir
sér hvort þessu fóiki fari fjölgandi
og hvort það sé stöðugt yngra fólk
sem gerir út á það sem aðrir henda
frá sér. Fátækt er fylgifiskur at-
vinnuleysis og annarra erfiðleika í
lífinu og sú spurning vaknar hvort
svo sé komið í velferðarríkinu ís-
landi, einu auðugasta ríki heims,
að velferðin sneiði hjá garði fleiri
og fleiri.
xxx
ORFÆRUMÓT kraftmikilla
jeppa og sérútbúinna bíla á
vinsældum að fagna hjá stórum
hópi fólks. Víkvetji er ekki í þeim
hópi; hann hefur reyndar í mörg
ár haft horn í síðu þessarar keppnis-
greinar. Sem betur fer keppa þess-
ir menn yfirleitt á sandflákum og
svæðum þar sem lítinn eða engan
gróður er að finna. I einni keppn-
inni nú síðsumars fór svona keppni
þó fram í mýrarflákum og spændu
kraftmiklir bílarnir upp grasi grón-
ar og fallegar mýrarnar. Skrifara
finnst lágmark að krefjast þess að
svona mót fari fram á gróðursnauð-
um svæðum þar sem lágmarkstjón
er unnið á náttúrunni.