Morgunblaðið - 29.09.1995, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 51
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Guömundur Páll
Arnarson
EITT er að leysa þraut
dagsins á prenti, annað að
gera það í hita leiksins við
spilaborðið.
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 875
¥ KD
♦ 8432
+ D873
Suður
♦ ÁK4
¥ Á109842
♦ ÁK5
♦ 5
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass l hjarta
Pass l grand Pass 2 spaðar
Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Hvemig á suður að spila?
Sagnhafi á tíu toppslagi
ef hjartagosinn skilar sér í
þrjá efstu. Svo það er aug-
ljóst að hann gerir það ekki!
Annars væri spilið ekki til
umræðu. Ekkert er hægt að
gera við gosanum fjórða í
vestur, en ef austur er með
gosann valdaðan, er hægt
að ná upp trompbragði. En
til þess er nauðsynlegt að
spila laufi í öðrum slag -
ekki trompi, eins og bjart-
sýnismennimir myndu gera:
Norður
♦ 875
¥ KD
♦ 8432
♦ D873
Vestur Austur
♦ DG109 ♦ 632
¥ 5 lll ¥ G763
♦ G976 ♦ DIO
* K1064 ♦ ÁG92
Suður
♦ ÁK4
¥ Á109842
♦ ÁK5
♦ 5
Sagnhafi notar svo inn-
komur blinds á hjartahjónin
til að tvístytta sig í trompi
og getur þá spilað sig út á
tapslag í lokin og beðið eftir
tveimur síðustu slögunum á
ÁIO í hjarta.
LEIÐRÉTT
Ljósm: SS
Röng myndbirting
í SMÁKLAUSU um Úlf-
ljótsvatn bls. 51 í blaðinu í
gær birtist rong mynd.
Myndin sem birt var undir
röngu höfundamafni er í
íslandshandbókinni eftir
RH. Því er rétta myndin
endurbirt hér um leið og
beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Kláfur á Jökulsá
I grein á Á slóðum Ferða-
félagsins bls. 32 í Mbl. síð-
astliðinn þriðjudag þar sem
ijallað var um Austurdal í
Skagafirði hefur mynda-
texti misritast. Við mynd-
ina átti að standa eftirfar-
andi texti: Kláfur á Jökulsá
við bæinn Skatastaði.
Förufálki
ÁHUGAMAÐUR um fugla
hafði samband við blaðið
og sagði að fuglinn á baks-
íðunni í gær væri ekki fálki
heldur ungur förufálki.
Munurinn sæist á hinum
áberandi skeggrákum á
fuglinum. Förufálkar em
mjög sjaldgæfir á íslandi.
Árnað heilla
GULLBRÚÐKAUP. í dag, 29. september, éiga fimmtíu
ára hjúskaparafmæli hjónin Guðrún Sigfríður Þorsteins-
dóttir, húsmóðir, f. 28. desember 1920 og Hafsteinn
Auðunsson, vörubifreiðarstjóri, f. 29. september 1908,
til heimilis í Glaðheimum 14, Reylqavík. Þau eiga fjögur
börn. í tilefni dagsins taka hjónin á móti gestum á morg-
un, laugardaginn 30. september, í safnaðarheimili Laugar-
neskirkju milli kl. 16 og 19.
október nk. verður níræð
Kristín Sölvadóttir, Skóg-
argötu 8, Sauðárkróki.
Af því tilefni tekur hún á
móti gestum í félagsheimil-
inu Bifröst, Sauðárkróki, á
morgun laugardaginn 30.
september kl. 15-18.
rtf\ÁRA afmæli. í dag,
I \J föstudaginn 29.
september, er sjötug Hulda
Valtýsdóttir, blaðamaður,
Sólheimum 5, Reykjavík.
rfkÁRA afmæli. í dag,
fj V/ föstudaginn 29.
september, er fimmtugur
Jón Þ. Eggertsson, neta-
gerðarmeistari, Skóla-
vegi 46, Keflavík. Eigin-
kona hans er Hólmfríður
Guðmundsdóttir, hús-
stjórnarkennari. Þau
hjónin verða að heiman á
afmælisdaginn.
Ijósra: MYND
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. ágúst í Víði-
staðakirkju af sr. Sigurði
Helga Guðmundssyni
Björk Eiríksdóttir og
Gunnlaugur Carl Nielsen.
Heimili þeirra er í Stuðla-
bergi 104, Reykjavík.
HÖGNI HHEKKVtSI
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Dómgreind þín er góð, og
þú hefur mikinn áhuga á
umhverfisvernd.
Hrútur
(21.mars- 19. apríl)
Þér semur vel við starfsfé-
laga í dag og þið komið miklu
í verk. Gagnkvæmur skiln-
ingur ríkir hjá ástvinum þeg-
ar kvöldar.
Naut
(20. apríl - 20. maí) iff^
Það er kominn tími til að
bretta upp ermar og taka til
hendi við vanrækt verkefni
heima. Þú getur gert góð
kaup í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þú átt það til að ganga of
langt þegar þú ert úti að
skemmta þér. Það sem þér
þykir fyndið getur sært til-
finningar annarra.
Krdbbi
(21. júní — 22. júlí)
Þótt ekki gangi allt að óskum
í vinnunni kemur þú miklu í
verk og færist feti nær settu
marki. Þú getur slakað á í
kvöld.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að standa við
gömul loforð. Sumir taka
helgina snemma og skreppa
í stutta ferð í dag. Ástvinir
eiga gott kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Láttu ekki batnandi fjárhag
gefa þér falska öryggis-
kennd. Þú þarft að sýna að-
gát í fjármálum og varast
óþarfa eyðslu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Láttu ekki deigan síga í sókn
þinni að settu marki, því þú
getur áorkað miklu í dag. í
kvöld lætur gamall vinur frá
sér heyra.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú hefur tilhneigingu til að slá
slöku við í vinnunni, en þarft
að taka til hendi ef þú ætlar
að njóta komandi helgar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) «0
Samkvæmislífið heillar og
truflar þig við vinnuna í dag,
en með góðri aðstoð starfsfé-
laga tekst þér það sem þú
ætlaðir þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Reyndu að Ijúka verkefni sem
hefur lengi beðið lausnar, því
það er tímabært að koma því
frá. Njóttu svo kvöldsins í
vinahópi.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) ðh
Þú ert að íhuga að skreppa
í spennandi ferðalag, og und-
irbúningur gengur vel. En
þú hefur einnig skyldum að
gegna heima.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þér býðst fjárhagslegur
stuðningur til að ljúka verk-
efni, sem þú hefur mikinn
áhuga á. Með þrautseigju
nærð þú góðum árangri.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvól. Spdr af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vtsindalegra staó--
reynda.
Mataræði, líkams-
þjálfun og erfða-
þættir styrkja beinin
Líkamsæfingar
skipta máli í
baráttunni við
beinþynningu.
Sjónarhorn
Konum hefur verið ráðlagt að neyta mjólkur
og lýsis og iðka líkamsæfíngar til að koma
í veg fýrir beinþynningu. Rannsóknir benda
til að veilur í erfðaþættinum geri sumar
konur viðkvæmari fýrir beingisnu en aðrar.
Margrét Þorvaldsdóttir kannaði málið.
RANNSÓKNIR á erfðavísum, I
tengslum við myndun sterkra
beina, benda til þess að mikilvægi
líkamsæfínga og mjóikumeyslu
fari eftir því hvers konar erfðavís-
ir fyrir D-vítamín viðtaka. (VDR)
sé í beinunum.
Vísindamenn uppgötvuðu árið
1994 að D-vítamín viðtakar eru
nauðsynlegir til að bein nái góð-
um þéttleika. Þessir viðtakar eru
ekki allir eins. VDR erfðavísar,
sem flytja forrit fyrir uppbygg-
ingu D-vítamín viðtaka, koma í
tveim gerðum og hleður annar
þeirra kalki í beinin með örlítið
betri árangri en hinn.
Loran Salamone við Pitts-
burgh Háskóla í Bandaríkjunum
kynnti niðurstöður rannsókna á
þessu svið á þingi faraldsfræð-
inga í Snowbird í Utah í júní sl.
Salamone og samstarfsmenn,
sem hafa rannsakað beinþéttni
hjá konum á aldrinum 44-50 ára,
segja að hægt sé að yfirvinna
lélega erfðaeiginleika með kalk-
neyslu og líkamsþjálfun. Aftur á
móti virðist lítil líkamshreyfing
og lítil kalkneysla ekki hafa nei-
kvæð áhrif á bein þeirra sem
hafa hagstæðri erfðaeiginleika.
Frá þessu er greint í júlíblaði
Science News. Þar segir að þess-
ar niðurstöður geti verið hjálpleg-
ar konum sem þurfi að vinna að
uppbyggingu sterkari beina.
Fólk er fram á fullorðinsár að
bæta kalki og styrk í beinin og
nær sú uppbygging hámarki um
35 ára aldur. Konur missa bein-
þéttni eftir tíðahvörf og getur
hæfni til að hindra beingisnu ráð-
ist. af þéttni beina fyrir þann tíma.
Þær sem erfa tvö afrit af hinum
virkari VDR erfðavísum, þekkt
sem B gerð, mynda mikla þéttni
í beinum. Aftur á móti hafa þær
sem erfa tvö forrit af erfðavísum,
sem þekktir eru sem B gerð, ekki
eins sterk bein. Konur sem höfðu
tvö forrit hinna áhrifaminni B
erfðavísa og stunduðu mesta lík-
amsþjálfun juku beinþéttni um 7
prósent meira en konur sem
stunduðu minni líkamsþjálfun.
Konur með B erfðavísa sem tóku
mikið af kalki og stunduðu lík-
amsþjálfun juku beinþéttni um
10 prósent. Aftur á móti virtist
kalkauðug fæða án líkamsþjálf-
unar ekki skila neinum árangri.
Athygli vakti að konur sem höfðu
hina hagstæðu B erfðavísa virtust
fá sterk bein hvort sem þær höfðu
neyttu kalkauðugrar fæðu eða
ekki eða stundað líkamsþjálfun.
Rannsóknin þykir áhugaverð
þar sem hún sýnir að hægt er
að hafa áhrif á beingisnu með
fyrirbyggjandi aðgerðum. Hún
var þó aðeins gerð á hvítum kon-
um en ekki konum af svarta kyn-
stofninum, en þeldökkar konur
og konur af Asíu-uppruna hafa
að jafnaði mun meiri beinþéttni
en konur af hvíta kynstofninum,
hver sem ástæðan er.
K I N G A
Lvm
Vinningstölur
27.09.1995
VINNINGAR FJÖLDI VlNNINGA UPPHÆÐ A HVERN VINNING
H eate 2 23.500.000
5 af 6 C33+bónus 0 728.144
E1 5af6 6 42.230
□ 4a(6 262 1.530
ri 3 af 6 C*W+bónus 841 200
^Aðaltölur:
i-níi61 18
22j ^26^^30
BÓNUSTÖLUR
14 35 40
Heildanipphæð þessa vlku
48.550.584
á ísl.:
1.550.584
f/fVinninqur: fór til Danmerkur og Noregs
UPPLÝSINQAR, SÍMSVARI 568 1511 EÐA
QRÆNT NR. 800 6511 — TEXTAVARP 453
BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR