Morgunblaðið - 07.10.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 19
NEYTENDUR
Kynning á
Vicco jurta-
tannkremi
NÆSTU helgar, frá fimmtudegi til
sunnudags, stendur Hrímgull, nátt-
úru- og heilsuvörur, fyrir sérstökum
kynningum á Vicco-jurtatannkremi
í Hagkaup, Kringlunni. Af því til-
efni verða gefnar 25 þúsund prufu-
túbur af tannkreminu í 25 g pakkn-
ingum.
Vicco-jurtatannkremið fæst í
tveimur gerðum, þ.e. bragðbætt
útgáfa í rauðum umbúðum og jurta-
tannkrem í grænum umbúðum sem
er til sölu í flestum matvöruverslun-
um og apótekum.
Vicco-tannkremið er framleitt af
samnefndu fyrirtæki á Indlandi,
sem einnig_ framleiðir andlitskrem
úr jurtum. í fréttatilkynningu segir
að þar sem áhugi á hreinum jurtaaf-
urðum fari vaxandi á Vesturlöndum
hafi sala á Vicco-tannkreminu auk-
ist undanfarin ár. Tannkremið sé
unnið úr um 20 tegundum jurta,
sem notaðar hafa verið til tannhirðu
í Austurlöndum í þúsundir ára.
Hráefnið séu valdar rætur, börkur,
hnetur og aðrir jurtahlutar, sem
meðhöndlaðir séu þannig að nátt-
úrulegir eiginleikar haldi sér.
♦ ♦ ♦
Nýttkrem
frá L’Oreal
L’ORÉAL hefur sett á markað nýtt
andlitskrem Plentitude Revitalif
sem ætlað er að slétta húðina oj
auka teygjanleika hennar.
í fréttatilkynningu frá L’Oréal
segir að á rannsóknarstofum fyrir-
tækisins hafí verði þróuð afleiða af
A-vítamíni, Pro-Retinol A, sem geri
húðina aftur eðlilega þétta, minnki
hrukkur og jafni skarpar línur út.
Revitalift inniheldur líka efnið Par
Elastyl, elastasavöm sem var þróuð
á rannsóknarstofum L’Oréal. í
fréttatilkynningunni segir að þetta
efni geri að verkum að teygjuþræðir
húðarinnar haldi sínu upphaflega
lagi og geta þeirra til að styrkja
húðina haldist óbreytt.
Margir vinna oft!
Hver íslendingur hefur að meðaltali unnið
tíu sinnum íLottóinu.*
§ <**
' Fjöldi vinningshafa frá upphafi
er rúmlega. 2.7 milljónir.
/ Í Ö1 !f *
-vertu viðbúinm) vinningi
1. október
Upplysingar uin
síinanuiner innanlands
Hva& er hjá Siggu?
1. október 1995 - þriggja stafa þjónustunúmer Pósts og síma
tekin í notkun til samræmis viö önnur lönd Evrópu. 03 breytist í 118.
POSTUR OG SIMI