Morgunblaðið - 07.10.1995, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Stjórn Yitzhaks Rabins heldur velli á þingi ísraels
Naumur meirihluti
fyrir PLO-samningi
Jerúsalem. Reuter.
ÞING ísraels samþykkti í fyrrinótt
samning stjómar Yitzhaks Rabins
forsætisráðherra við Frelsissamtök
Palestínumanna (PLO) um stækkun
sjálfstjórnarsvæða Palestínu-
manna. 61 þingmaður greiddi at-
kvæði með samningnum en 59 á
móti eftir stormasamar umræður í
15 klukkustundir.
Atkvæðagreiðslan er ti! marks
djúpstæðan klofning meðal ísraela
í afstöðunni til friðarviðræðnanna
og vaxandi andstöðu við stjóm
Verkamannaflokksins sem stendur
frammi fyrir þingkosningum í nóv-
ember á næsta ári.
Þúsundir hægrisinna sátu um
þinghúsið eftir blysgöngu um mið-
borg Jerúsalem. Margir göngu-
manna hrópuðu í sífellu „Rabin er
Réttarhöldin yfir
O.J. Simpson
Litar-
hætti
kennt um
Los Angeles. Reuter.
MARCIA Clark aðalsækjandi
málsins á hendur O.J. Simpson
er sögð hafa tjáð blaðamanni
CMY-sjónvarpsstöðvarinnar
að litarháttur kviðdómenda
hafi valdið því að þeir sýknuðu
Simpson. Af hálfu embættis
saksóknara Los Angeles er
blaðamaðurinn sakaður um að
hafa haft rangt eftir henni.
„Þeir ftjálslyndu vilja ekki
viðurkenna það, en kviðdómur,
sem að meirihluta er skipaður
blökkumönnum, sakfellir ekki
í máli sem svona er vaxið.
Þeir láta sig réttlætið engu
varða,“ er haft eftir Marciu
Clark. Talsmaður CNN sagði
að stöðin stæði við frásögn
sína og ekki hefði verið að
ræða að blaðamaðurinn hefði
rætt við hana á þeirri forsendu
að ekkert yrði eftir henni haft.
Talsmaður saksóknaraemb-
ættisins hélt því fram að henni
hefðu verið lögð orð í rnunn
og ummælin endurspegluðu
engan veginn afstöðu hennar.
Fred Goldman, faðir Rons
Goldmans, sem myrtur var á
heimili Nicolé Brown Simpson
um leið og hún, hét því í gær,
að sækja Simpson til saka
vegna dauða sonarins. Hyggst
hann höfða einkamál á hendur
Simpson en sönnunarbyrðin í
máli af því tagi er mun minni
en í opinberu réttarhaldi í
glæpamálum. Tapaði Simpson
slíku máli þyrfti hann ekki að
afplána fangavist, heldur tap-
aði einungis háum upphæðum.
Flytur Simpson?
Orðrómur er á kreiki þess
efnis að fjölskylda Nicole muni
hins vegar falla frá áformum
um að höfða einkamál á hend-
ur Simpson. Með hagsmuni
barna þeirra tveggja að leiðar-
ljósi kjósi fjölskyldan fremur
að sættast við hann.
Fjölmiðlar skýrðu frá því í
gær, að Simpson ráðgeri að
flytja frá Los Angeles til annað
hvort New York, þar sem hann
á íbúð, eða til Flórída en þar
býr unnusta hans, sýningar-
stúlkan Paula Barbieri.
svikari“ og nokkrir héldu á styttu
af forsætisráðherranum í herbún-
ingi þýskra nasista. Blysum var
kastað á lögreglumenn og bifreið
að minnsta kosti eins ráðherra var
grýtt.
Stjórnarandstæðingar sögðu
samninginn greiða fyrir stofnun
palestínsks ríkis á öllum landsvæð-
unum sem ísraelar hernámu í stríð-
inu 1967.
Stjórnarliðar
„brugðust"
„Þetta var naumur meirihluti
vegna þess að tveir af þingmönnum
Verkamannaflokksins brugðust
kjósendum sínum og snerust gegn
stjórninni," sagði Rabin. „Ég for-
dæmi þetta, en þar sem við náðum
meirihluta höldum við áfram að
framfylgja samningnum á Vestur-
bakkanum."
Samkvæmt samningnum flytja
ísraelar hermenn sína frá byggðum
Palestínumanna á Vesturbakkanum
í áföngum og efnt verður til kosn-
inga þar á næsta ári. Áður höfðu
Palestínumenn öðlast heimastjórn á
Gaza-svæðinu og í Jeríkó á Vestur-
bakkanum samkvæmt Óslóarfriðar-
samningnum frá árinu 1993. Mun
minni andstaða var við þann samn-
ing á þinginu, sem samþykkti hann
með 61 atkvæði gegn 50. Síðan þá
hefur meirihluti samsteypustjómar-
innar minnkað og nokkrir þingmenn
tekið afstöðu gegn stefnu flokka
sinna í deilunni um friðarviðræð-
umar.
Reuter
ÞÚSUNDIR hægrimanna ganga með blys um miðborg Jerúsalem
til að mótmæla samningnum um heimastjórn Palestínumanna á
V esturbakkanum.
Fagnar frestun
NATO-stækkunar
Moskvu. Reuter.
ANDREI Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, fagnaði í gær
þeirri ákvörðun NATO-ríkjanna að
fresta til 1997 áætlunum um
stækkun bandalagsins í austur.
„Þetta er rétt ákvörðun," hafði
Interfax-fréttastofan eftir Kozyrev
í Múrmansk þar sem hann kom við
á leið sinni frá Noregi til Moskvu.
Eftir heimildum í Bandaríkjunum
er haft, að ákveðið hafi verið að
fresta stækkuninni til að friða
Rússa og í von um að fá þá til að
hætta andstöðu við hana.
Tími til viðræðna
Kozyrev sagði, að fulltrúar Rúss-
lands og aðildarríkja NATO ættu
að nota tímann til viðræðna um
stækkunina en Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, hefur varað við henni
og sagt, að hún gæti kynt uhdir
úlfúð og átökum í Evrópu.
Þau ríki, sem standa því næst
að fá aðild að NATO, eru Pólland,
Ungveijaland, Tékkland og Slóvak-
ía, fyrrverandi bandalagsríki Rúss-
lands í Varsjárbandalaginu.
Reuter
Minnsta
vídeóvélin
JAPANSKA fyrirtækið
JVC kynnti í gær nýja
myndbandsupptökuvél
sem sögð er sú minnsta
sem framleidd hefur verið
til þessa. Hún er 14,8
sentimetrar á hæð, 8,8 sm
á breidd, 4,3 sm þykk og
vegur 520 grömm.
Myndavélin verður sett
á markað í Japan í desem-
ber og er áætlað að liún
kosti um 220.000 jen, jafn-
virði rúmlega 140 þúsund
króna.
Skrifstofa norskra
umhverfissinna í
Múrmansk
Lögregla
fjarlægir
skjöl
Ósló. Morgunblaðið.
RÚSSNESKA öryggislögreglan
(SSB), arftaki KGB í Sovétríkjun-
um gömlu, lokaði í gær skrifstofu
norsku urrihverfisverndarsamtak-
anna Bellona í Múrmansk. SSB
hótar að kæra samtökin fyrir að
hafa dreift rússneskum ríkisleynd-
armálum, að sögn talsmanns sam-
takanna í Ósló, Thomas Nilsens.
Bellona hefur einkum beitt sér
fyrir könnun á umhverfisspjöllum
vegna geislamengunar frá kjarn-
orkuverum og kjarnavopnum
Rússa á norðurslóðum, fyrst og
fremst á Kólaskaga. Nokkrir Rúss-
ar vinna á skrifstofunni í Múr-
mansk.
„Þegar starfsmenn komu í vinn-
una snemma í morgun var búið að
girða svæðið af,“ sagði Nilsen.
Hann sagði að fulltrúar SSB hefðu
horfið á brott eftir hálfa klukku-
stund og tekið með sér mikið af
skjölum, tölvudisklingum og öðrum
gögnum. Sagt er að SSB hafi eink-
um viljað fá í sína vörslu efni um
rússneska íshafsflotann.
Ciller myndar ;
mimiihlutastjóni
Ankara. Reuter.
TANSU Ciller, forsætisráðherra
Tyrklands, hefur myndað minni-
hlutastjórn með stuðningi þjóðern-
issinna sem hafa verið andvígir lýð-
ræðisumbótum sem Evrópusam-
bandið hefur reynt að knýja fram.
Forseti Tyrklands samþykkti
ráðherralistann í fyrrakvöld og
fyrsti fundur stjórnarinnar í gær. I
stjórninni eru aðeins ráðherrar úr
hægriflokki forsætisráðherrans en
þjóðernissinnar lengst til hægri,
undir forystu Alparslans Turkes,
og Bulent Ecevit, sem er hallur
undir vinstristefnu og þjóðernis-
hyggju, ætla að veija stjórnina falli.
Turkes hefur lagst gegn því að
slakað verði á baráttunni gegn
kúrdískum aðskilnaðarsinnum og
Ecevit hefur gagnrýnt samninginn
um tollabandalagið.
„Ef Ciller ætlar sér í raun að
knýja fram tollabandalag er val
hennar á samstarfsmönnum furðu-
legt,“ sagði í fréttaskýringu tyrk-
neska dagblaðsins Hurríyet.
Foringi „Gráúlfa"
„Furðulegt val“
Fréttaskýrendur segja að Turkes
og Ecevit kunni að hætta stuðningi
við stjórnina standi Ciller við loforð
um að breyta lögum sem takmarka
mjög tjáningarfrelsið. Evrópuþingið
vill að Tyrkir ógildi ákvæði í lögum
um baráttuna gegn hryðjuverkum
sem bannar „áróður aðskilnaðar-
sinna“ og sett það sem skilyrði fyr-
ir staðfestingu samnings ESB og
Tyrkja um tollabandalag.
Ecevit var forsætisráðherra árið
1974 og fyrirskipaði þá innrás
Tyrkja á Kýpur. Herskáir stuðn-
ingsmenn Turkes, sem nefndust
„Gráúlfarnir", tóku þátt í daglegum
drápum og bardögum við öfgasinn-
aða vinstrimenn á götum tyrk-
neskra borga á áttunda áratugnum
sem kostuðu 5.000 manns lífið.
Mehmet Ali Agca, Tyrkinn sem
reyndi að myrða Jóhannes Pál II.
páfa 1981, var „Gráúlfur".
Drápin leiddu til valdaráns án
blóðsúthellinga árið 1980 ogTurkes
var handtekinn. Hann var kjörinn
á þing 1991 eftir að tíu ára bann
við starfsemi flokksins var afnumið.
>
;
>
Páfi segir fóstureyðingar
i
meinsemd á frelsishugsjón
New York. Reuter.
JÓHANNES Páll II. páfi fjallaði í
fyrrakvöld um mál, sem hefur valdið
djúpstæðum ágreiningi meðal
Bandaríkjamanna, og sagði lög sem
heimila fóstureyðingar „siðferðislega
meinsemd" á samfélaginu og hefð-
bundnum hugsjónum Bandaríkja-
manna um frelsi og umburðarlyndi.
Um 83.000 manns hlýddu á ávarp
páfa í úrhellisrigningu við messu á
leikvangi ruðningsliðsins Giants í
New Jersey. Hann talaði um Banda-
ríkin sem „leikvang guðs“ og sagði
það sorglegt að Bandaríkjamenn
væru að svíkja háleitustu hugsjónir
sínar.
Páfi lýsti ófæddum börnum sem
„nýrri stétt manna“ sem fengi ekki
að njóta fullra réttinda í samfélag-
inu. Hann líkti andstöðunni við fóst-
ureyðingum við baráttuna gegn kyn-
þáttamismunun.
„Rétturinn til lífs er helgastur allra
réttinda," sagði páfi. „Þegar því er
lýst yfir að ófædda bamið - hinn
„óþékkti í móðurkviði" - eigi ekki
að njóta vemdar samfélagsins, þá
eru menn ekki aðeins að grafa undan
mikilvægustu gildum Bandaríkjanna
og stefna þeim í hættu, heldur að
skapa siðferðilega meinsemd í samfé-
laginu."
Hvetur til aðstoðar við hina
fátæku
Kaþólska kirkjan hefur verið í
fylkingarbijósti í baráttunni gegn
fóstureyðingum í Bandaríkjunum
ásamt mörgum kirkjum mótmæl-
enda. Nokkrir kaþólskir fræðimenn
segja þó að bandarískir biskupar
hafi reynt að draga úr baráttuþung-
anum eftir nokkrar árásir fyrr á ár-
inu á sjúkrahús og læknastofur, þar
sem fóstureyðingar eru framkvæmd-
Páfi hefur þrisvar áður heimsótt
Bandaríkjamenn og bandarískir ka-
þólikkar hafa ávallt tekið honum ein-
staklega vel, þótt margir þeirra séu
ekki sammála íhaldsömum skoðun-
um hans um getnaðarvarnir, hjóna-
skilnaði, prestvígslu kvenna og þörf-
ina á skírlífi presta.
Áður hafði páfi tekið afstöðu í
deilunni um tilraunir repúblikana til
að takmarka íjölda innflytjenda og
minnka útgjöld ríkisins vegna að-
stoðar við hina fátæku. „Það væri
svo sannariega sorglegt ef Banda-
' ríkjamenn sneru baki við framtak-
sandanum sem hefur ávallt reynt að
deila með öðrum þeirri blessun sem
Guð hefur veitt hér svo ríkulega."
í
l
>