Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 36

Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 36
36 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ANNA JÓNSDÓTTIR + Anna Jónsdóttir var fædd í Nes- kaupstað 27. mars 1974. Hún lést í bíl- slysi sunnudaginn 1. okt. siðastliðinn. Foreldrar _ hennar eru Jóna Ólafsdótt- ir og Jón K. Sig- urðsson í Neskaup- stað. Anna átti fimm systkini. Elst er Hólmfríður þá Þorgeir, Sesselja sem er tvíburi Önnu, Sigurður og Ólafur sem er 12 ára. Anna lauk almennu námi og stundaði síðan ýmis störf, aðallega verslunar- og af- greiðslustörf og vann einnig við afgreiðslu íslandsflugs í Nes- kaupstað. Hún var íþróttamað- ur og spilaði knattspyrnu í meistaraflokki frá 15 ára aldri, fyrst með Þrótti Nes og síðast tvö sumur með KR í Reykjavík. Útför Önnu verður gerð frá Norðfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ANNA Jónsdóttir, Þiljuvöllum 19 í Neskaupstað, fórst í bílslysi aðfara- nótt 1. okt. sl. Svona atburðir koma alltaf sem reiðarslag. Ung stúlka í blóma lífsins er hrifm brott og eftir stöndum við samferðafólkið. Tómið við missi Önnu er ógnarstórt. Hún var vel gerður unglingur, heil i hugsun og verki og minningin um hana er ljúfsár en fögur. Hún var hæglát og yfirveguð og við fyrstu kynni leit út sem hún væri feimin. En svo reyndist ekki við nánari kynni. Hún var bara svona hæglát og yfirveguð. Knattspyma var hennar aðaláhugamál og þar komst hún í fremstu röð. Auk þess iðkaði hún sund og aðrar iþróttir meðan hún var yngri. Anna var í úrvalsflokki stúlkna sem byrjuðu að vinna hjá okkur hjónunum í Tröllanausti fýrir um fimm ámm. Þessar stelpur hafa síðan haldið mikilli tryggð og starf- að með okkur milli þess sem þær hafa verið við nám, heimsreisur eða sinnt áhugamálum annars staðar eins og t.d. Anna, sem spilaði knatt- spyrnu með meistaraflokki KR síð- astliðin tvö sumur. En þær komu alltaf aftur. í byijun september sl. kom Anna austur og hóf störf i Tröllanausti en þar ætlaði hún að starfa í vetur. En svo kom hið óvænta kall. Innst inni var Anna alvörugefin og hugleiddi og las, já og ræddi stundum við nána vini um andleg málefni. Það var töluverður heimspekingur í Önnu. Hún var ein- læg og trygglynd og mikill vinur vina sinna. Hún reyndist okkur hjónum á erfiðum stundum með afbrigðum vel og eftir það fannst okkur hún nánast vera eins og fóst- urdóttir. Hún bjó við mikið ástríki í uppvexti. Systkinahópurinn á Þiljuvöllum 19 ber þess fagurt vitni að uppeldið var gott. Mannvænlegri hópur er fáséður. En nú er hljótt í ranni, sorgin mikil, sár í hjörtum. Anna er látin, horfin okkur spm eftir lifa. Hún gaf okkur öllum sem kynntumst henni mikið og lífshlaup hennar sem varð svo stutt var flekklaust og fagurt í minningunni. Við hjónin vottum ættingjum og vinum Önnu okkar dýpstu samúð. Sérstaklega er hug- urinn hjá fjölskyldunni á Þiljuvöll- um 19. Við biðjum að sú heiðríkja sem hvílir yfir minningu Önnu megi hjálpa þeim og sefa sorgirnar og gefið þeim frið i sálina þegar frá líður. Blessuð sé minning Önnu Jónsdóttur. Magni og Sigríður. í kvöld kemur saman í Reykjavík knattspymufólk alls staðar að af landinu til að fagna lokum keppnis- tímabils sem fyrir svo stuttu var æsileg keppni en er núna minningar, ljúfar eða sárar eftir því hvernig leikirrlir fóra. Þar verðum við KR- stelpur eins og aðrir, en þó ekki, því að það vantar eina og hún er ómissandi. Það varð slys fyrir austan, sem enginn gat hindrað og enginn getur aftur tek- ið. Við vitum að hún kemur ekki aftur og við getum ekki hætt að hugsa um það. Fyrir rúmum þrem- ur árum heilsaði Anna Jónsdóttir frá Norðfírði hressilega upp á okkur KR-inga á lokahófi knattspyrnu- manna. Hún vildi koma í KR, af- henti miða með símanúmerinu sínu og sagði okkur að hafa samband. Það fór þó ekki svo að hún kæmi strax, Þróttur þurfti á öllu sínu fólki að halda næsta sumar, KR- ingar vildu gjaman hafa lið til að keppa við á Neskaupstað og Anna var trú sínu heimafélagi. En um haustið var hún mætt í KR-heimil- ið, ákveðin í að láta ekkert stöðva sig og þegar hún steig út í vestur- bæjarsólina var hún komin í KR. Þennan vetur stóð til að fara í æfingaferð til Hollands og Frakk- lands. Við vorum, eins og gengur, misjafnlega duglegar við alls konar verk sem varð þó að vinna til að safna peningum, en Anna Jónsdótt- ir frá Norðfirði brást aldrei. Það var ekki nóg með að hún gerði sitt heldur vann hún líka stundum verk okkar hinna. Sjálf ferðin varð kannski ekki eins góð fyrir fótboltann sem við spiluðum og við höfðum vonað, en mórallinn varð enn betri en fyrr og nú kynntumst við allar Önnu. Hún átti ekki erfítt með að kynnast nýju fólki, féll strax inn í hópinn og þeg- ar heim var komið var eins og hún hefði alltaf verið í KR. Sumarið 1994 var það fyrsta hjá Önnu með okkur. Við höfðum Is- landsmeistaratitil að veija. Anna komst ekki í byrjunarlið strax og kunni því svo sem ekki vel frekar en aðrir sannir keppnismenn. En í stað þess að leggja árar í bát óx henni ásmegin og í okkar huga var hún þetta sumar það sem Bjarni Fel. myndi kalla „súper söbb“, vegna þess að þegar hún kom inn á gerði hún usla, hristi upp í okkur hinum sem þar voru fyrir, og sneri jafnvel leiknum okkur í hag. Fyrir sumarið, sem var að líða, sáu allir að nú ætlaði Anna sér öraggt sæti í byijunarliðinu og það gekk eftir þrátt fyrir að hún yrði fyrir meiðslum um vorið. Stundum finnur liðið, þær sem fyrir era og hafa verið lengi, að nýja stelpan er aðkomumaður og hún ætlar að stoppa stutt. En Anna virtist vera KR-ingur frá hvirfli til ilja, að innstu hjartarótum. KR-heimilið varð hennar annað heimili. Fyrra sumarið gætti hún þess sem hús- vörður en það síðara starfaði hún við knattspyrnuskóla KR auk þess að þjálfa yngstu stelpurnar í fímmta flokki. Hún reyndist afbragðs þjálf- ari, röggsöm og ákveðin og að von- um stóð liðið hennar sig mjög vel. KR-fótboltastelpur hafa alltaf verið mjög samhentur hópur. En í sumar héldum við enn meira saman en áður. Það leið vart sá dagur að við hittumst ekki, á æfingu, í pasta kvöldið fyrir leik, í léttu spjalli til að lyfta okkur upp eftir slæman leik eða til að fagna góðum. Á þess- um stundum var Anna alltaf hress og kát og þegar við hugsum um það eftir á er eins og hún hafí allt- af verið svo spennt fyrir lífinu, til í að vera með og reyna það sem bauðst að reyna. Hún naut lífsins en velti því Iíka fyrir sér. Nætur- langar samræður um líf eftir dauð- ann fá allt aðra merkingu fyrir okkur nú en þær höfðu fyrir bara nokkrum dögum. Við ætluðum að hitta hana i kvöld. Þegar við vissum að hún kæmi ekki voram við að hugsa um að fara ekki heldur. En það hefði ekki verið hennar stíll. Við minnt- umst hennar við bænastund í Foss- vogskapellu á fimmtudaginn, þær sem gátu minnast hennar á Norð- firði í dag, þær sem spila fyrir ís- land í dag gera það af öllu hjarta með hana í huga. Og næsta vor þegar boltinn fer af stað í okkar hópi verður Anna nærri, með kraft sinn, bjartsýni og fómfýsi fyrir liðið og félagið sem tengir okkur allar. Allar stelpurnar í KR ásamt þjálf- ara, liðstjóra og kvennanefnd senda fólkinu hennar Önnu innilegar sam- úðarkveðjur og þakka af heilum hug fyrir að hafa fengið hana í hópinn þaðan sem hún getur ekki horfíð því hún var ómissandi. Meistaraflokkur KR í knattspyrnu kvenna. Hún Anna okkar er dáin. Þannig hljóðuðu skilaboðin sem mér bárust sunnudaginn 1. október sl. Anna var ein af „stúlkunum mínum“ í meistaraflokki KR. Hún gekk til liðs við okkur haustið 1993 og var mikill styrkur fyrir okkur að fá hana í okkar raðir. Það fór ekki mikið fyrir Önnu í hópnum, hún var hæglát en ákveðin og gerði ávallt sitt besta innan vallar sem utan. Það hefur stórt skarð verið höggvið í hópinn okkar við fráfall hennar og það eru erfiðir tímar núna að takast á við sorgina. En eins og sagt er: „Það er engin gleði án sorgar og engin sorg án gleði.“ Anna var gleði okkar og því syrgj- um við nú. Við „stúlkurnar mínar“, sem horfa á eftir góðum félaga og vini, vil ég segja. Munið Önnu okk- ar eins og hún var, brosmild og glöð og minnist hennar með gleði í huga yfír því að hafa átt hana að vini og félaga. Foreldram Önnu og systkinum sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur og bið Guð að milda sárs- aukann og sorgina. Önnu minni þakka ég samfyldina og góð kynni. Guð veri henni líf og ljós. Ásta Jónsdóttir. Það er erfitt að kveðja, sérstak- lega þegar ungt fólk fer alltof snemma og maður skilur ekki hvað honum gengur til, honum sem öllu ræður. Við viljum með nokkrum orðum minnast Ónnu Jónsdóttur sem var ein af okkur, hún var Þróttari. Þegar kvennaknattspyrnan rers sem hsæt hér í Neskaupstað á ár- unum 1989 til 1993 og við spiluðum í 1. deild þá var Anna einn af burðarásum liðsins. Hún hafði mikla hæfileika til að leika knatt- spyrnu og hæfíleikarnir nutu sín enn betur vegna þess hversu mik- inn áhuga hún hafði á íþróttinni. Hún hafði mikinn metnað fyrir framgang kvennaknattspyrnunar í bænum og lét okkur í stjórninni heyra það ef henni fannst við ekki standa nógu vel við bakið á stelpun- um og oft rökræddum við málin og stóð hún alltaf föst á sínu. Með baráttukonu eins og Önnu innan- borðs þá erum við ekki frá því að það hafí náðst meira fram fyrir kvennaboltann en ella hefði orðið. Húmorinn var samt aldrei langt undan og þegar komið var saman þá var Anna ein af þeim sem létu ljós sitt skína. Þegar meistaraflokksliðið lagðist af hér í Neskaupstað fór Anna til Reykajvíkur og spilaði með KR. Þar náði hún að festa sig í liðinu sem hefur verið í toppbaráttu í 1. deild undanfarin ár. Missir okkar Þróttara er mikill en missir fjölskyldu Önnu er mikill og erfiður og sendum við, knatt- spyrnufólk í Neskaupstað, okkar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar Jón, Jóna og fjölskylda. Megi góður guð styrkja ykkur á þeim erfíða tíma sem er framund- an. Knattspyrnudeild Þróttar í Neskaupstað. Mig langar í örfáum orðum að minnast Önnu Jónsdóttur en hún lést í hörmulegu bílslysi aðfaranótt síðastliðins sunnudags. Anna var leikmaður með meist- araflokki kvenna í knattspyrnu hjá KR og kynntumst við þar fyrir tveimur árum þegar hún kom til okkar frá Þrótti Neskaupstað, ég þjálfari, hún var leikmaður. Anna komst strax inn í KR-hóp- inn, hún átti mjög auðvelt með að aðlagast. Það var aldrei lognmolla í kringum Önnu, það gustaði af henni og það var mikið líf og fjör þar sem hún var. Það var alltaf gaman að fylgjast með því hvernig Anna fagnaði mörkum sínum, en það gerði hún á allsérstakan hátt. Hvernig hún fagnaði markinu sínu á móti Stjömunni í sumar mun ég aldrei gleyma, það lifír alltaf í minn- ingu minni um Önnu. Það er stórt skarð höggvið í hóp KR-stelpna og allra KR-inga. En minningin um hressa og brosmilda stelpu mun lifa. Fjölskyldu hennar, ættingjum og vinum votta ég mína dýpstu samúð. í gegnum móðu og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir dijúpa og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég kijúpa og kyssa sporin þín. (DavíðStef.) . Ama K. Steinsen. Þegar hringt var í okkur sunnu- dagsmorguninn 1. októberog okkur tilkynnt að Anna vinkona okkar hefði látist í bílslysi um nóttina voru fyrstu viðbrögðin rosalegt sjokk og neituðum við að trúa því að þetta væri satt. Af hveiju, spyr maður, er svona ungt fólk í blóma iífsins tekið frá okkur og af hverju hún Anna okkar? En þegar stórt er spurt er verður fátt um svör. Kynni okkar af Önnu hófust fyr- ir alvöru í fótboltanum í Þrótti Neskaupstað og spiluðum við sam- an í mörg ár, og myndaðist sterkur og góður vinahópur sem ávallt hef- ur haldist. Stórt skarð hefur nú myndast í þennan hóp sem aldrei verður fyllt. Þrátt fyrir misjafnt gengi í Þrótti komum við oft á óvart og má það þakka samheldni hópsins og hve gaman við höfðum af því sem við vorum að gera. Rifjast þá upp þegar liðið tók sig saman og fór í kirkju og bað fyrir um sigur í leik gegn KR. Vannst hann öllum til mikillar undrunar 1-0. Veturinn ’93-’94 lá leið okkar suður til Reykjavíkur og rættist þá langþráður draumur Önnu um að spila fótbolta með KR. Spilaði hún tvö tímabil með félaginu og ætlaði hún að mæta sterk til leiks núna eftir áramótin. En enginn veit sín örlög fyrirfram og verður hennar sárt saknað úr boltanum. Anna var sterkur og traustur persónuleiki með mikla kímnigáfu og ávallt var hægt að treysta á hennar félags- skap, enda átti hún marga vini og kunningja. Það var gott 'að tala við hana og oft var setið og spjallað tímunum saman. Hugurinn lá þá oft heim til fjölskyldunnar fyrir austan og til Sellu tvíburasystur sem dvaldi síð- astliðin tvö ár á Ítalíu sem au-pair. Elsku Anna okkar. Við þökkum þér innilega fyrir allar samveru- stundirnar og munum við sakna þín mikið. Elsku Jón, Jóna, Þorgeir, Sella, Siggi, Ólafur Jón, Hóffí, Ómi, Örn og aðrir aðstandendur. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Guð styrki ykkur í sorginni. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta. Söknuðurinn laugar tári kinn, Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta. Dökkur skuggi fyllir huga minn. í miðjum leik var komið til þín kallið, klippt á strenginn þinn, eitt af vorsins fógru blómum fallið. (H.A.) Gerður, Hlín og Þórveig. Élsku Anna mín. Það er skrýtið að hugsa til þess að kveðjustundin á flugvellinum fyrir þremur vikum hafí verið sú hinsta. Að hugsa til þess að ég sjái þig aldrei framar. Þú sem varst ekki nema 21 árs varst hrifinn frá okkur í blóma lífsins. En mitt í sárum söknuði skjóta upp kollinum yndislegar minningar frá liðnum tímum, minningar sem verða aldrei teknar frá manni. Það er margt sem gerist á lífsleiðinni sem erfitt er að sætta sig við. Eitt af því erfíðasta er að horfa á eftir ástinni yfír móð- una miklu. En Anna mín, það er mín sannfæring að hlutverki þínu sé alls ekki lokið, að handan móð- unnar miklu bíði þín stærra og veigameira hlutverk. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég þig, Anna mín, og tileinka þér þessi erindi: Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fýrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Stórt skarð hefur nú verið'höggv- ið í þessa yndislegu fjölskyldu sem erfitt verður að fylla. Én þótt leikur- inn hafí verið stuttur og leiktíminn skammur þá lifír minningin í huga okkar og hjarta. Elsku Nonni, Jóna, Hóffí og Ijöl- skylda, Sella, Þorgeir, Ólafur Jón, Siggi og aðrir aðstandendu, Guð gefi ykkur styrk á þessum sorgar- stundum. Kveðja, Guðlaug Ólöf. Mig langar í fáum orðum að minnast góðrar vinkonu. Orð megna lítið þegar sorgin ber að dyram. Ég trúði því ekki, síðasta sunnudagsmorgun, þegar mér var sagt að Anna hefði dáið um nótt- ina. Fyrsta hugsun mín var: Nei, þetta getur ekki verið satt. Hún var í heimsókn hjá mér í gærkvöldi. Það er stutt milli lífs og dauða og enginn veit hver verður næstur. Kynni okkar Önnu hófust 1990 þegar ég þjálfaði hana í fótbolta. Strax kom í ljós að hugur hennar lá þar, enda var hún gædd miklum hæfíleikum. Strax urðum við miklir mátar og góð vinátta hélst alla tíð. Anna hafði það fram yfir marga aðra að hún var traustur vinur, allt- af var hægt að leita til hennar ef eitthvað bjátaði á. Minningarnar hrannast upp á þessari stundu. Við höfum brallað margt saman og vil ég, elsku Anna, þakka þér fyrir allar þær ánægju- legu samverastundir sem við áttum. Þær lifa í minningunni. Elsku Jóna, Jón, Sella, Hófí, Þor- geir, Siggi og Ólafur Jón. Sorgin er mikil. Megi Guð styrkja ykkur og hjálpa, en munum að þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Inga Birna. Okkur langar að kveðja hana Önnu vinkonu okkar, sem svo skyndilega hefur verið tekin frá okkur. Það er engin orð sem fá lýst þeim söknuði sem við fínnum fyrir. Elsku Anna, við munum alltaf minnast þín sem góðrar og traustar vinkonu. Takk fyrir allar þær góðu stundir sem við fengum að njóta saman. Nú legg ég augun aftur. Ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Elsku Sella, Jón, Jóna, Ólafur Jón, Siggi, Þorgeir, Hoffí og fjöl- skylda. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Þínar vinkonur, Sigríður Þrúður og Ásta Lilja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.