Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 37

Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMINGAR LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 37 Elsku Anna. Hver hefði getað trúað því að þú myndir yfirgefa okkur svona fljótt. Við fráfall þitt myndaðist stórt skarð í hjarta okk- ar sem við reynum að fylla upp í með góðu minningunum sem við eigum. Við eigum erfitt með að skilja þessa ákvörðun Guðs að taka þig burt frá okkur og munum eflaust aldrei skilja en við reynum að fullvissa okkur um að þér líði vel og að þú sért sátt og við vitum að þú átt eftir að fylgjast með okkur og taka á móti okkur þegar okkar tími kemur. Takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Elsku Sella, Jóna, Nonni, Hoffí, Ómi, örn, Þorgeir, Siggi, Ólafur og aðrir sem eiga um sárt að binda, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Þorbjörg og Karl. Hver er sem veit, nær daggir dijúpa, hvar dafnar fræ, sem ná skal hæst. Hver er sem veit, nær knéin kijúpa við kirkjuskör, hvað guði er næst. Fyrst jafnt skal rigna yfír alla, jafnt akurland sem grýtta jörð, - skal nokkurt tár þá tapað falla, skal týna sauði nokkur hjörð? Hver er að dómi æðsta góður, - hver er hér smár og hver er stór? -1 hveiju strái er himingróður, í hveijum dropa reginsjór. (Einar Benediktsson) Það er stórt skarð höggvið í raðir knattspyrnukvenna. Lítinn hóp sem stendur þétt saman í erf- iðri baráttu. Innan hópsins þekkja allir alla og jafnan fagnaðarfundir þegar liðin hittast og gera sér glað- an dag. Þar fór Anna oft fremst - hress og kát utan vallar, en erfið- ur andstæðingur innan. Við vottum félögum Önnu Jóns- dóttur í KR, foreldrum hennar og ættingjum okkar innilegustu sam- úð. Meistaraflokkur kvenna og meistaraflokksráð Breiða- bliki. Það var fyrir rúmu ári að leiðir okkar og Önnu skárust. Sumar af okkur voru að stíga sín fyrstu skref fjarri faðmi fjölskyldunnar og hug- myndirnar um heimilishald voru á byijunarreit. Aðrar fylgdust grannt með úr kallfæri. Allar áttum við það sameiginlegt að vera í boltan- um og þótt við værum ekki í sama liði og börðumst hvor á móti ann- arri á fótboltavellinum, bundust mörg vinabönd á einu tilrauna- heimilinu, sem fékk nafnið „Hæl- ið“. Anna var þar, ásamt mörgum, tíður gestur og við eigum margar góðar minningar um Ónnu þaðan og frá fleiri uppákomum síðastliðið ár. Fréttin af sviplegu fráfalli Önnu hefur skilið okkur eftir harmi slegn- ar. Um leið og við þökkum henni stutt en ánægjuleg kynni sendum við fjölskyldu Ónnu og vinum okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér. Hvert andartak er tafðir þú hjá mér, var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (H. Laxnes) Hann Björg, Kolbrún Eva, Sandra Björk, Úlfhildur Osp, Hulda Kristín og Þóra. í dag kveð ég Önnu frænku mína og vinkonu í hinsta sinn. Kveðju- stund sem mig hafði aldrei órað fyrir. Alltaf er maður jafn sleginn yfir því hvað það er stutt bilið á milli lífs og dauða. Anna svona lífsglöð og kát var fyrirvaralaust rifin burt frá okkur í blóma lífs síns. Það er einmitt á svona stundum sem ég finn hversu lítils megnug við erum gagnvart æðri máttarvöldum. Aleitnar spurningar öskra út í tóm- ið en fá ekkert svar. Bara nístingsk- öld; óskiljanleg þögnin. Önnu hef ég þekkt frá því ég man eftir mér. Sem krakkar brölluð- um við frænkurnar, Anna, Sella og ég, ýmislegt saman. Þær voru oft í „pössun“ hjá okkur eða ég í „pöss- un“ hjá þeim. Prakkarastrik voru okkar uppáhald og oftar en ekki var grallarinn Anna í fararbroddi. En það voru einmitt gömlu góðu prakkarastrikin sem við Anna rifj- uðum upp, skellihlæjandi síðast þeg- ar við spjölluðum saman. Ég gleymi því aldrei þegar við vorum reknar úr fyrsta dansskólan- um okkar eða þegar þær systur Anna og Sella hjálpuðu mér að stinga af af barnaheimilinu. Á unglingsárunum skildu leiðir, en alltaf vissum við þó hver af ann- arri. Það var síðan fyrir um sex árum sem vináttan tók að dafna á ný þegar við fórum að vinna saman hjá Siddu, Magna og Bryndísi. Oft var glatt á Hjalla hjá okkur litlu fjölskyldunni í Tröllanausti og það var einstaklega auðvelt og skemmti- legt að vinna með Önnu. Það var á þeim tíma sem ég gerði mér grein fyrir því hversu frábær stelpa Anna var. Hún var ekki bara þessi glettni, skemmtilegi grallari. Undir niðri var líka að fínna einlæga og skilnings- ríka vinkonu. Hún hafði sérstakt lag á að skynja hvenær fólk átti bágt og alltaf var hún boðin og búin að sýna því stuðning. Með einlægni sinni og lífsgleði náði Anna að vinna sér stað í mínu hjarta sem og-svo margra annarra. „Lákinn" hún Anna skipaði stóran sess innan ijölskyldunnar minnar. Vinátta okkar Önnu hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. En það voru einmitt spurningar eins og þær sem dynja á mér núna sem við Anna ræddum svo oft. Pælingar um dauðann, líf eftir dauðann og til- gang lífsins voru oft ofarlega í huga hennar. Nú er Anna eflaust búin að fá svör við þessum áleitnu spurningum. En eftir sitjum við með ekkert nema óskiljanlega sársaukafulla þögn- ina... og minninguna um Önnu. Elsku Anna, það er stutt bilið sem skilur okkur að — andartakið milli lífs og dauða. En samt er það bil sem ekki er hægt að brúa — bil sem veldur því að ég fæ ekki lengur að heyra hlátur þinn. — Að ég fæ ekki lengur að sjá glettinn svip þinn. — Að ég fæ ekki lengur að njóta einlægni þinnar og skilnings þegar eitthvað bjátar á hjá mér. — Að ég get ekki lengur faðmað þig- Þín er og verður sárt saknað. Minningin um þig lifír. Sjáumst síð- ast. Elsku Jóna, Nonni, Þorgeir, Sella, Siggi, Ólafur Jón, Hoffý, Omar, Öm og aðrir ættingjar og vinir, ykkur sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Með orðum Kahlíl Gibrans: „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ Þín vinkona og frænka, Kristín. + Eiginmaður minn, JAMES W.E. LILLIE, Tenterden, Englandi, ándaðist laugardaginn 23. september sl. Betty A. Liliie. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, KRISTÍN FRIÐRIKA JÓNSDÓTTIR, Aðalstræti 8, lést á heimili sínu þann 5. október sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Jón Egill Bergþórsson, Sigrfður Bachmann, Skúli Jónsson, Egili Jónsson. Við kveðjum í hinsta sinn Önnu Jónsdóttur, þjálfara dætra okkar í 5. flokki stúlkna í knattspyrnudeild KR. Hennar verður sárt saknað í okkar herbúðum. Anna var ljúf stúlka og góður vinur stelpnanna og okkar foreldranna. Hún var líka hæfur þjálfari og síðasta verk hennar í okkar þágu var að leiða sínar stelpur og okkar til frækilegs sigurs í Nóatúnsmóti Afturelding- ar í Mosfellsbæ í haust. Foreldrum og fjölskyldu Önnu vottum við dýpstu samúð okkar. Missir okkar er mikill. Kveðja frá KR-stelpunum í 5. flokki í knattspyrnu og for- eldrum þeirra. + Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANN Þ. ALFREÐSSON hafnarstjóri, Heinabergi 23, Þorlákshöfn, lést í Borgarspítalanum 5. október. Björg Serensen, Elísabet Steinunn Jónsdóttir, Halldór M. Ólafsson, Jón Guðmundur Jóhannsson, Vilfríður Víkingsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir, Thorvald Smári Jóhannsson, Elísabet Steinunn Jóhannsdóttir, Ólafur E. Guðmundsson og barnabörn. ERLENDUR VILHJÁLMSSON -4- Erlendur Vilhjálmsson ■ fæddist í Vinaminni á Eyr- arbakka árið 1910. Hann lést í Borgarspítalanum 24. septem- ber síðastliðinn og fór útförin fram 3. október. MIG langar að senda afa smá kveðju. Ég og afi vorum bestu vinir og sakna ég þeirra tíma þegar ég kom á sumrin í heimsókn frá Danmörku. Ég minnist sérstaklega sundlauga- ferða okkar þar sem við hittum vini hans sem líka urðu vinir mínir. Minningar mínar um afa eru'allar mjög yndislegar. Að síðustu langar mig að senda honum ljóð sem ég veit að hann hélt upp á. Ó minning, minning. Líkt og ómur fjarlægra söngva, líkt og ilmur deyjandi blóma berast orð þín hlustandi eyrum mínum. Eins og lifandi verur birtast litir og hljómar hinna liðnu daga, sem hurfu sinn dularfulla veg Út í dimmbláan fjarskan og komu aldrei aftur. Þitt barnabarn, Nína Sif Guðnadóttir. Það er vegna andláts afa míns sem ég sest við skrif til að riíja upp gamla tíma og kveðja hann. Það vill gjarnan sefa sorgina að rifja upp góðar stundir og er það fyrsta sem kemur í huga þegar við bræðurnir 5-6 ára gamlir komum úr skóla á Reynimelinn og hann passaði okkur þar til mamma kom heim úr vinnu. Það var alltaf gott að koma á Reynimelinn, þar var skjól fyrir öll- um veðranna vindum, því þar ríkti gleði og léttur andi. Enda var það ein af lífsreglum afa að heima mátti alvaran aldrei ná nema vissu marki. Þetta var ríkjandi alveg fram á síð- ustu daga hans, þrátt fyrir þrálát veikindi og sársauka sem þeim fylgdi. Minnisstætt er mér þegar afi vann hjá kvikmyndaeftirlitinu og hann hóaði stundum á okkur bræðurna til að koma með sér á bíó, kannski um miðjan dag er skóla var lokið. Það var spennandi fyrir unga drengi að uppgötva nýja heima með afa sínum. En ekki aðeins var það létt- leiki sem ég sótti til hans heldur jafnframt viska og réttlæti. Þegar ég átti við vandamál að stríða lá beinast við að ræða þau við hann og fá góð ráð. Með slíkri leiðsögn vissi maður af stuðningi og trú á hveiju sem maður tók sér fyrir hend- ur. Það var að miklum hluta honum að þakka hvernig menntavegur minn fór, enda trúði hann statt og stöðugt á gildi æðri menntunar. Afi talaði alltaf við mann eins og fullorðna manneskju. Hann gerði mér grein fyrir hlutum og hlustaði á mig. Við áttum okkur leiki sem afi átti oft frumkvæðið að, s.s. var það okkur um tíma kappsmál að leysa myndgátur Dagblaðsins og sátum við lengi yfir þessu og ráð- færðum okkur hvor við annan. Þetta var dæmigert fyrir samband okkar afa, því það var ekki aðeins sam- band afa og barnabarns heldur vil ég frekar líta á það sem samband góðra vina. Það var gaman að velta vöngum með afa og opnaði það fyr- ir mér nýjar hliðar á málum. Gaman var sitja með honum og velta sér uppúr íslendingasögum og kveð- skap. Þar var afi á heimavelli og voru það Gerpla og Disneyrímur sem afi unni hvað mest. Man ég sérstak- lega eftir eintaki hans af Gerplu sem eftir margendurtekinn lestur var orðið slitið og gamalt. Þannig er það eins með eintakið af Gerplu og afa, að þó svo að ellin legðist á þau bæði var innihaldið samt að fegurð og visku og mun ég ávallt minnast hans fyrir þær sakir. Þitt barnabam, Erlendur S. Guðnason. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, ÞÓRDÍS BJARNADÓTTIR, lést á heimili sínu aðfaranótt fimmtu- dagsins 5. október. Útförin verður auglýst síðar. Henrik G. Thorarensen, Gunnþórunn Arnarsdóttir, Ragnar Hilmarsson, Hulda Henriksdóttir, Gunnþórunn Björnsdóttir, Bjarni Guðbjörnsson, Björn Ragnar Bjarnason, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Gunnar Þór Bjarnason, Jóhanna Einarsdóttir, Gunnlaugur Þórarinsson og fjölskyldur. Geir A. Guðsteinsson. + Hjartans þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför HELGA SIGURGEIRSSONAR, Hvammi, Húsavík. Fyrir hönd aðstandenda, + Einlæg þökk fyrir samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÖLLU ÁRNADÓTTUR. Einnig færum við starfsfólki Grensás- deildar Borgarspítalans sérstakar þakkir. Heiðrún Þorgeirsdóttir, Benedikt Sigurðsson, Brynhildur Þorgeirsdóttir, Magni Baldursson, Árni Ibsen, Hildur Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.