Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 38

Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 38
38 LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞORBJÖRG LÍKAFRÓNSDÓTTIR + Þorbjörg Lík- afrónsdóttir fæddist í Kvíum í Grunnavíkur- hreppi, Jökulfjörð- um, 31. ágúst 1908. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 27. sept. sl. 87 ára að aldri. Foreldrar Þorbjargar voru Guðrún Haralds- dóttir, f. 28.7. 1885, d. 27.5. 1968, og Líkafrón Sigur- garðsson, f. 12.7. 1882, d. 4.5. 1968. Þorbjörg ólst upp í Kvíum hjá hjónunum Jóni Jakobssyni og Kristínu Alexandersdóttur. Hún fluttist. til Isafjarðar um tvítugt og bjó þar til ársins 1989, þá fór hún til Reykjavíkur og dvaldi á Hrafnistu við Laugarás frá 7. des. það ár. Þorbjörg giftist Gísla H. Guð- mundssyni sjómanni á Isafirði, f. 17.9.1907, d. 18.10.1964. Þau bjuggu í Sundstræti 21, í húsi foreldra hans. Böm þeirra urðu fimm. 1) Guðmunda Rannveig, f. 17.2. 1932, gift Inga S. Er- lendssyni. 2) Jón Kristinn, f. 24.4. 1933, kona hans var Bára Guðmundsdóttir, d. 1989. 3) Guðmundur Hilaríus, f. 19.5. 1935, hann fórst af Guðbjörgu ÍS 1974, kona hans var Ragna Sólberg. 4) Guðrún, f. 31.7. 1940, var gift Þórði Finnbjörnssyni. 5) Matthildur Mess- íana, f. 9.12. 1945, gift Sigurði Þor- kelssyni. Barna- böm Þorbjargar eru 18 og bama- barnabörn 28. Hálf- systkini Þorbjargar vom 17 og var hún elst sinna systkina. Böra Guðrúnar Haraldsd. og Guðleifs Guðleifss. vom fjögur: Haraldur Jónatan, d. 1924, Guðfinna, Guðbjörg, Eðvarð, fórst með Trausta úr Súðavík 1968. Börn Líkafróns og Bjam- eyjar S. Guðmundsd. vom 13: Guðmundur Sigurður, d. 1989, Sigurlaug María, d. 1963, Einar Sigmundur, Friðrika Betúelína, Guðbjörg, d. 1978, Sigurrós Laufey, Aðalheiður Bergþóra, d. 1987, Sigurgeir, Jóhanna Friðmey, Jóna Kristín Júlía, Hrefna, Katrin Jóna, Gunnar. Þorbjörg verður jarðsungin frá Isafjarðarkirkju laugardaginn 7. október og hefst athöfnin ld. 14. NÚ þegar amma á ísafirði er farin er rétt að minnast hennar nokkrum orðum. Ég sem elsta barnabarnið varð þeirrar hamingju aðnjótandi að alast á sumrin upp á ísafirði hjá ömmu og afa á árunum 1955-1970. í minningunni var mikil sól og hiti á ísafirði á þessum árum og einnig hin tvö sumrin á ísfirðingaplaninu á Siglufirði. Ef til vill fegrar tíminn og minningin Þetta. Þá var lent á pollinum á katalínu-flugbátnum og ferðast sjóleiðina með Heklunni. Dokkan, þar sem nú er smábáta- höfnin, var sérstakur heimur okkar dokkupúkanna. Gamlir skúrar og hjallar um allt með sínum leyndar- málum og felustöðum og dokkan angaði af siginni grásleppu og bik- tjöru. Litlir kofar karlanna stóðu í þyrpingu og þar stokkuðu þeir upp línuna .og greiddu úr flækjum á meðan spáð var í veður og afla- brögð. Enn var landað smáhvelum í fjörunni og gert þar að þeim og dokkufólkið keypti _ sveitasmjörið hjá honum Ömólfi. Á haustin kom Fagranesið með sauðféð alls staðar að og því var slátrað í að minnsta kosti tveim slátilrhúsum í dokk- unni. Litla húsið hennar ömmu, Sundstræti 21, stóð á bökkunum sem kallað var, við hliðina á dokk- unni. Húsið var jafnan kallað Amst- erdam og var það áfast stærra húsi, Sundstræti 23, sem jafnan var kallað Rómaborg. Þarna stóðu þess- ar tvær heimsborgir áfastar hvor annarri þangað til landafræðin Blómakrossar, Útfarakran sar &. Kistuskreytingar Blómaskreytingar og afskorin blóm við öll tækifæri liFS-j^BLtM I i a t i n a d ts k r e y t a Hlíðaimára 8 • Miðjan • Kópavogi Sí'mi: 5 6 4 4 4 0 6 Opið frá kl. 10 til 21 kenndi okkur annað. Amma vann alla sína tíð í Efra-íshúsinu og kom heim í hádeginu til að gefa okkur afa að borða, því annars hefðum við afí soltið heilu hungri. Ekki var matargerðarlist karlmanna fyrir að fara í þá daga. Gjaman var það siginn fískur með mörfloti og salt- fiskur eða siginn bútungur eða grá- sleppa, en það þótti henni mjög gott. Ömmu var alltaf hugað um að maður fengi nóg að borða og hugsaði síður um sjálfa sig. Undir lokin þurfti að styðja ömmu að snyrtiborðinu sínu í íshúsfélagi ís- fírðinga, ekki voru burðimir meiri, þó viljinn væri til staðar eins og alltaf hjá henni. Jonni verkstjóri í efra húsinu var henni ævinlega mjög góður og hafi hann miklar þakkir fyrir, eins og aðrir sem reyndust henni vel, en þeir eru ekki ófáir fyrir vestan og hér fyrir sunn- an. Amma átti láni að fagna með nágranna. Fólkið frá Kvíum bjó í Rómaborg og vom henni miklir vin- ir. Eins var með fjöskyldumar í Sundstræti 19, bæði Guðmund, Ásu og fjölskyldu og síðar Hrafn, Her- dísi og fjölskyldu. Ekki var heldur langt í Leif Jóhannsson og Ingu Straumland. Þetta fólk á miklar þakkir skildar fyrir umhyggju við ömmu meðan hún bjó ein fyrir vest- an. Amma var ekki mikið fyrir kyn- slóðabil og skemmti sér vel með ungu fólki, sem kunni að gantast og hlæja, hún hafði létt skap og naut þess að hafa glatt fólk í kring um sig, þó aldrei bragðaði hún áfenga drykki. Yfirleitt þurfti ekki mikið til að koma henni til að brosa. Þó „gamla konan“ yrði eldri var hún síung í anda. Best leið henni með húsið fullt af gestum til að stjana við. Þessa mikla örlætis og gestrisni nutum við barnabömin Séifræðingar ■ blóniaskreyUnguni við öll lækilicri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 hennar í ríkum mæli og einnig önn- ur böm meðan hún bjó fyrir vest- an. Hún var einstaklega gjafmild og bamgóð og úr brúnu augunum geislaði mikil hlýja og einlægni. Hún var mjög tryggur vinur vina sinna og hélst vel á þeim. Það var mikið áfall á sínum tíma þegar hún missti afa og nokkram áram síðar Guðmund heitinn Gíslason, eina barnið hennar, sem fest hafði rætur á ísafírði. Það var mikil sorg. ekki bugaði það ömmu og ekki flíkaði hún tilfinningum sínum. Hún var sterk og dugleg. Henni féll helst ekki verk úr hendi og prjónaði mik- ið á meðan hún hafði heilsu til. Hér fyrir sunnan tók við erfið sjúkra- ganga sem nú er loksins lokið til mikillar friðþægingar fyrir ömmu, sem þjáðist mikið síðustu árin sín hér fyrir sunnan. Hún varð um síð- ir að láta undan hinum erfiða bein- þynningarsjúkdómi, sem gerði vart við sig hjá henni á efri áram. En meiri lífsvilja og seiglu hafa læknar og hjúkranarfólk vart kynnst. Hún gafst ekki upp. Hún var af þessari aldamótakynslóð sem hefur lifað mestu breytinar á íslensku þjóðfé- lagi sem nokkur kynslóð á trúlega eftir að sjá, frá sauðkinnsskóm til tunglgönguferða, frá ríki sauðkind- arinnar til ríkis sjónvarps og tölvu- veraldarvefs. Hún var tökubam og talaði ævinlega vel um fósturfor- eldra sína frá Kvíum í Grannavíkur- hreppi. Ég hef á tilfinningunni að þar hafi verið rekið fyrirmyndarbú. Hún ólst ekki upp hjá móður sinni en naut samvista við hana á Ísafirði og var það fyrir mína tíð. En ég man vel þegar móðir hennar, hún Gunna Hall, eins og hún var kölluð, lá sína banalegu á Hrafnistu hér í Reykjavík á sama stað og amma. Skrýtið hvað tíminn líður hratt, nú þegar amma fer á fund forfeðra sinna. Þó amma hefði ekki alist upp hjá Líkafrón heitnum, pabba sínum, átti hún gott samband við hann og var hún elsta barnið hans. Hún átti 13 hálfsystkini frá föður sínum og var oft kátt í Damminum (Amster- dam) í gamla daga Þegar Líka- frónssystkinin vora í heimsókn. Níu af þeim era lifandi í dag. Hún átti 4 hálfsystkini frá móður sinni. Það elsta dó snemma, en hin þijú héldu góðu sambandi við ömmu. Varði í Súðavík, Gugga á Kleifum og Finna í Smáíbúðahverfinu. Tvö af þeim era á lífi í dag. Amma trúði á að eitthvað tæki við fyrir handan sem við sæjum ekki og vissum ekki um. Gerði hún stundum grín og ekki grín að því að fjölmennt væri hjá sér í kofanum, þó að jafnaði byggi hún þar ein. Hún var ætíð bjartsýn og létt og eflaust hefur það hjálpað henni óumræðilega mikið á enda- sprettinum sem varð langur. Vil ég óska henni alls velfarnaðar á þess- um tímamótum um leið og ég þakka fyrir allt það góða sem hún gerði fyrir mig í svo mörg ár. Megi þú nú hvíla í guðs friði, amma mín. Guðmundur Ingason. Dánarfrétt er skrítin frétt. Það kom mér ekki á óvart að amma fengi að fara eins gömul og las- burða og hún var orðin, en tíminn stoppað og hugurinn fór á ferðalag minninganna sem rifjaði upp fyrir mér svo margt gott úr samskiptum mínum við þá góðu konu. Ég og systkini mín sem ólust upp á Isafírði eyddum miklum tíma hjá ömmu í Amsterdam og lékum þar oft fram á rauða nótt þar til hún annaðhvort sendi okkur heim eða bauð okkur að sofa. Amsterdam er lágreist hús í Dokkunnu á ísafírði. í huga okkar barnanna var það hins vegar stórt og spennandi hús enda mikið af vinum og ættingjum sem litu inn í kaffi hjá ömmu. Ekkert er forvitni- legra en reynslusögur fullorðna fólksins og fá að smakka kaffi meðí, eins og sagt var. Þegar ég varð eldri reyndi ég að fá ömmu til að segja mér frá sér og sínum uppvaxtaráram, en gekk það brösu- lega. Hún skipaði mér þá yfirleitt að segja frekar eitthvað af viti og hætta þessari vitleysu. Orðið harka er kannski það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar ég tek saman það sem hún þó sagði mér. Það sem hafði sært hana í lífinu faldi hún hins vegar vandlega, en undir hijúf- um skráp var hlýtt hjarta og höfð- ingskapur einkenndi alla tíð alþýðu- konuna hana ömmu mína. Hún vann lengi í íshúsinu þar sem æviverk hennar varð dijúgt. Þegar að starfslokum kom eftir hartnær 30 ár var hún orðin svo veikburða að hjálpa þurfti henni í sloppinn og leiða hana að borðinu. Mörgum af yngri kynslóðinni þótti þetta skrítið en hún vildi ekki láta sig vanta og fyrir því bára eldri sem yngri vinnufélagar hennar virðingu. Ég get ekki látið hjá líðast að þakka öllum í íshúsinu fyrir að leyfa henni að vinna þar til hún vildi sjálf hætta, því ég veit hversu mikilvægt það var fyrir hana að fá að taka þá ákvörðun sjálf og kveðja með reisn. Sjórinn er stór þáttur í lífi fólks á ísafirði og það var borin mikil virðing fyrir sjómönnum á heimili ömmu. Þegar setið var við kaffi- drykkju og spjall og bátahljóð heyrðist úr fjarska var gert hlé á samræðunum og kíkt hvaða bátur væri að koma inn eða fara út. Amma sagði svo eitthvað á þessa leið: „Nú fór Hjörtur Stapi á sjó- inn,“ eða ,jæja, þá er Reynir Torfa kominn“. Þegar pabbi minn var á rækju fór ég oft til ömmu og fylgd- ist með rækjubátunum koma inn þar til pabba bátur birtist á sjón- deildarhringnum. Sjómennskan var þannig órofaþáttur í líf ömmu enda fóra báðir synir hennar til sjós. Þau era líka óteljandi skiptin sem ís- firskir sjómenn birtust á tröppunni, oft á leiðinni heim úr löndun, til að færa henni í soðið. Það var mik- il gagnkvæm virðing sem sýnd var og hún varð alltaf jafn glöð yfir hugulsemi þeirra enda var hún van- ari að gefa en þiggja. Við bömin urðum vör við gjafmildina, en það var brýnt fyrir okkur systkinunum að biðja ömmu aldrei um pening, ég held að það hafí hins vegar haft hvetjandi áhrif á gjafmildi hennar. Það var því oft óþægilegt að þurfa að kveðja hana með seðil í vasanum eftir að hún hafði rétt manni budd- una, beðið mann fyrst að telja hvað mikið væri í henni og síðan tekið budduna og sagt „taktu þetta“. Á unglingsáram mínum fór hún að gefa vinum mínum pening líka. Það fannst þeim skrítið enda voru ekki margir veraldlegir munir í kringum hana, ef frá er talið sjónvarpið og frystikistan góða sem alltaf var stútfull af fiski! Hún var aldrei nísk og deildi öllu því sem hún átti með öðram. Á þessum áram eyddi ég mörgum stundum í kjallaranum hjá ömmu við trommu- og síðan hljómsveitar- æfingar og fetaði þá í fótspor bróð- ur míns, Rabba, sem hafði lagt granninn að trommuleikaraferli sín- um þar nokkram árum áður. Stund- um var hávaðinn þvílikur að ég skammaðist mín og spurði ömmu hvort hún heyrði nokkuð í sjónvarp- inu, þá svaraði hún jafnan: „Hættu þessari vitleysu maður, ég heyri ekkert í ykkur.“ Eða „ég vissi ekki af ykkur þama niðri!“ Þá vissi ég að hún var ekki að segja satt en ofsalega fannst mér flott að eiga svona ömmu. Á svona stundum fannst mér allur aldursmunur hverfa. Það var ekki auðvelt að ganga fram af henni ömmu, en ég man eftir einum atburði sem varð til þess að minna mig á að við vor- um ekki alveg af sömu kynslóð. Þá hafði hún beðið mig um að mála fyrir sig ganginn í Amsterdam ein- hvern dag á meðan hún væri í vinnu. Mér fannst það ekki mikið mál og fékk til liðs við mig nokkra vini mína. Við máluðum eins og okkur fannst flottast, veggina skærgula og hurðirnar fjólubláar. Þegar hún opnaði húsið í hvíta vinnusloppnum sínum held ég að hún hafi næstum misst andlitið enda líktist gangurinn meira her- bergi síðhærðra hippa en vistarver- um fullorðinnar konu. Líf ömmu var enginn dans á rós- um, en hún var léttlynd og átti auðvelt með að gleðjast. Það var stutt í hláturinn og gleðitárin runnu ósjaldan niður kinnar þótt tilefnið væri oftar en ekki fábrotið. Hún Tobba amma, eins og við kölluðum hana þegar við vildum stríða henni, veitti okkur krökkunum mikla at- hygli og var stolt af bömum sínum og bamabömum. Vinir ömmu vora margir en nágrannar í Rómaborg og Herdís og Hrafn í Sundstræti 19 áttu alltaf sérstakan stað í hjarta hennar svo og fólkið í Björnsbúð. Mér þykir vænt um að rifja upp hvað þetta mæta fólk var henni gott og hvað amma kunni vel að meta samskiptin við það. Ég, Sóley systir og Rabbi bróðir kveðjum ömmu öll með þakklæti í lijarta fyrir að hafa fengið að arka með henni æviveginn. Amma vildi minnst um sjálfa sig tala og ég veit að ef ég hefði sagt henni áður en hún dó að ég ætlaði að skrifa minningargrein um hana þá myndi hún hafa bragðist hvumsa við og sagt mér að nota tímann í eitthvað annað. Það er hins vegar gott að fá að kveðja Þorbjörgu ömmu, sem átti svo stóran þátt í lífí mínu og okkar systkinanna. Minningar um samverastundirnar með henni lifa þótt hún kveðji nú í veraldlegum skilningi. Gísli Þór Guðmundsson. Mig langar að kveðja Þorbjörgu vinkonu mína og fyrram nágranna rneð fáeinum orðum. Þegar við fluttum í Sundstræti 19 haustið 1974, bjó hún í húsinu við hliðina á okkur, snaggaraleg, fullorðin kona. Hún var lágvaxin en snör í snúningum og það komi fljótt í ljós að hún var með afbrigð- um greiðvikin og ekki til sá hlutur sem hún vildi ekki gera fyrir okk- ur. Það mynduðust fljótlega sterk vinabönd á milli hennar og fjöl- skyldu okkar og var mikill sam- gangur á milli. Það vildi ekki gróa grasið á milli húsanna, enda var stöðugt verið að ganga yfir það, og hefði aldrei hvarflað að okkur að setja girðingu á milli okkar. Börnin okkar kölluðu hana Joggu, enda var nafnið hennar með því fyrsta sem þau reyndu að segja, því hún var þeim sem besta amma. Það var ómetanlegt fyrir þau og okkur að eiga hans að, því alltaf var hægt að leita til hennar með stórt og smátt. Það var börnunum tilhlökkunarefni að fá að skreppa fyrir hana í Bjömsbúð, því oftar en ekki var á innkaupalistanum malt og appelsín, kexpakki eða jafn- vel ávaxtadós, sem þau borðuðu svo sjálf með bestu lyst við eldhúsborð- ið í Amsterdam. Þorbjörg var einhver ríkasta manneskja sem ég hef kynnst. Samt var hún ekki auðug á veraldlegan mælikvarða. En hún var svo ánægð með það sem hún átti og svo stolt af heimilinu sínu og hveijum hlut sem hún eignaðist, að margur mætti taka það sér til fyrirmyndar. Hún var ekki fædd með neina silfurskeið í munninum og hafði þurft að vinna hörðum höndum fyr- ir sér og sínum alla tíð. Ég ætla ekki að rekja ævisögu hennar hér, enda margir aðrir betur til þess fallnir. En ég veit þó að hún fékk fyllilega sinn skammt af erfiðleikum og fékk sjálf að hafa fyrir hlutun- um, henni var ekki rétt neitt ókeyp- is. E.t.v. var það þess vegna sem hún var svo stolt og ánægð með sitt, hún vissi að hún hafði unnið fyrir því sjálf. Enda féll henni mun betur að gefa en þiggja, það fengum við að finna svo ótal sinnum. Nú er hún farin þessi sterka kona. Löngu stríði er lokið, og ég efa ekki að hún er hvíldinni fegin. Hún verður jörðuð hér á Isafirði við hlið Gísla mannsins síns í gamla kirkjugarðinum. Hún hefur viljað það sjálf, enda Vestfirðingur af lífí og sál alla tíð. Hún sagði mér áður margar sögur frá æskustöðvunum í Kvíum í Grunnavík, og þó að hún byggi í Reykjavík síðustu sex árin, veit ég að hugurinn var ávallt hér fyrir vestan. Ég býð hana velkomna vestur og þakka fyrir allt og allt. Herdís M. Hiibner og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.