Morgunblaðið - 07.10.1995, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. OKTÓBER 1995 43
FRÉTTIR
Dagur iðnaðarins
á Eyrarbakka
SAMTÖK iðnaðarins standa fyrir
„Degi iðnaðarins" sunnudaginn 8.
október nk. undir kjörorðinu íslensk
sókn með stöðuleikann sem sterkasta
vopnið.
Eitt iðnfyrirtæki á Suðurlandi er
með opið hús þennan dag en það er
Alpan hf. á' Eyrarbakka sem fram-
leiðir fargsteypta potta og pönnur
úr áli. Alpan hf. hefur þá einstöku
stöðu að 98% af framleiðsluvörum
fyrirtækisins eru seld til útlanda.
Verksmiðja félagsins við Búðar-
stíg verður opin frá kl. 13 til 17 og
í Miklagarði (við hlið kirkjunnar)
verður markaðssetning fyrirtækisins
kynnt og matreiðslumaður sýnir,
hvemig nota á pottana og pönnumar
frá Alpan. Kjörís í Hveragerði mun
einnig kynna framleiðslu sína í húsa-
kynnum Alpan hf.
I tilefni af degi iðnaðarins verður
Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á
Eyrarbakka með sérstaka kynningu
á. jámsmíðaverkfæmm i eigu safns-
ins. Jafnframt verða aðrar sýningar
safnsins í Húsinu opnar.
Sjóminjasafnið á Eyrarbakka tek-
ur einnig þátt í degi iðnaðarins á
Eyrarbakka og verður safnið opið frá
kl. 13-17. Kl. 14 og 16 býður Sjó-
minjasafnið upp á stuttar gönguferð-
ir með leiðsögn.
Veitingahúsið Kaffi Lefolii í Gunn-
arshúsi mun taka þátt í degi iðnaðar-
ins á Eyrarbakka og þar geta gestir
keypt sér kaffí og meðlæti.
Fundur um
kvennaráð-
stefnuna
MENNINGAR- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna boða til opins fundar
laugardaginn 7. október k!. 14 á
Kornhlöðuloftinu, Bankastræti 2.
Á dagskrá verður fjallað um „NGO
Form 95 í Peking, Huairou-hverfi".
Þórunn Magnúsdóttir, varaformaður
M.F.Í.K., Ragnheiður Hulda Proppé,
mannfræðinemi, Margrét Rósa Sig-
urðardóttir, prentsmiður, Kolbrún
Oddsdóttir, landslagsarkitekt, Guð-
rún Jónsdóttir, félagsráðgjafí og
Bryndís Dagsdóttir flytja erindi.
Einnig ræðir Bryndís Hlöðversdóttir,
alþingismaður, um helsta ávinning
af samþykktum ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna um málefni kvenna.
Nokkrar litskyggnur frá Fomm-
svæðinu verða sýndar og skriflegum
fyrirspurnum verður svarað og að
lokum verða almennar umræður.
Ræðutími er takmarkaður við 5-10
mínútur og skal ekki fara fram úr
10 mín. Fyrirspyijendur em hvattir
til að vera stuttorðir. Fundurinn er
öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Opið hús
í Hörpu
í TILEFNI af Degi iðnaðarins verður
opið hús í Hörpu á morgun frá kl.
13-17.
Málningaverksmiðja fyrirtækisins
að Stórhöfða 44 í Reykjavík verður
almenningi til sýnis. Áfylling og
pökkun málningar verður í gangi og
starfsmenn Hörpu veita gestum upp-
lýsingar um málningarframleiðslu og
starfsemi Hörpu.
Fólki gefst kostur á að gera sín
eigin listaverk með Hörpu þekjulit-
um. Félagar úr Spaugstofunni, þeir
Pálmi Gestsson, Sigurður Siguijóns-
son og Öm Ámason, bregða á leik
fyrir böm og fullorðna kl. 14, 15 og
16.
Kynning á ís-
lenskum mat-
vælum og by gg-
ingavörum
í TILEFNI af Degi iðnaðarins nk.
sunnudag verður kynning og sértil-
boð á íslenskum vömm í nokkrum
verslunum. Tilboðin hófust í gær og
verða áfram í dag. Kynningin fer
fram í verslunum Hagkaups, Byko,
Byggt og búið og Fjarðarkaupum.
Matvælaiðnaðurinn er mikilvægur
og vaxandi hluti iðnaðarins en þar
sem ekki er hægt að opna matvæla-
fyrirtæki almenningi var gripið til
þess ráðs að kynna framleiðslu þeirra
í verslunum. íslenskar byggingavör-
ur em framleiddar víða um land í
smáum sem stóram fyrirtækjum og
verður úrval þeirra kynnt í verslunum
Byko og Byggt og búið.
H-dagur í Hafn-
arfirði í dag
H-DAGUR, hafnfírskur verslunar-
dagur, verður í fjölda hafnfirskra
verslana og þjónustufyrirtækja í dag,
laugardag. Þátttakendur í H-degi
bjóða upp á sértilboð og afslætti í
tilefni dagsins og hafa verslanir sínar
opnar til kl. 16.
H-dagur er átak til að efla verslun
í heimabyggð. Slíkir dagar voru
haldnir þrisvar í Hafnarfírði sl. haust
og tókust vel. Nú er fyrirhugað að
halda H-daga fyrsta laugardag í
mánuði fram til jóla. Gefið er út sér-
stakt blað sem borið er í hvert hús
í Hafnarfirði, þar sem þátttakendur
auglýsa tilboð sín, en átakið er auk
þess kynnt sérstaklega í Sjónvarpi
Hafnarfjarðar og Útvarpi Hafnar-
fjarðar.
Þetta verkefni er unnið í samvinnu
ýmissa aðila í Hafnarfirði s.s. Kaup-
mannafélags Hafnarfjarðar og stétt-
arfélaga, en Hafnfírsk fjölmiðlun hf.
annast útgáfuþáttinn og kynningu.
Kaffisala
í Óháða
söfnuðinum
KIRKJUDAGURINN í Óháða söfn-
uðinum er sunnudaginn 8. október
kl. 14 þar sem kvenfélag safnaðarins
verður með kaffísölu eftir guðsþjón-
ustu.
Kvenfélagið hefur haft veg og
vanda af margs konar líknar- og
mannúðarmálum í Óháða söfnuðin-
um og er þessi kaffisala ein helsta
fjáröflunarleið kvenfélagsins.
Messað er alltaf annan og fjórða
sunnudag hvers mánaðar og á sama
tíma er barnastarf þar sem börnin
fara í safnaðarheimilið þegar komið
er að predikun. Fá börnin fræðslu
við sitt hæfi í leikjum, söngvum og
öðra álíka. í guðsþjónustunni á und-
an kaffisölunni taka fermingarbörnin
þátt.
Það verða nægar veitingar fyrir
þá sem mæta í Óháðu kirkjuna á
sunnudaginn þar sem ijómaterturnar
bíða í röðum eftir því að þeim verði
gerð góð skil, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fundur um
framtíðarskip-
an lyfjamála
ASTRA ísland, Kemikalia og Lyíja-
fræðingafélag íslands boða til opins
fundar um framtíðarskipan í smá-
söludreifíngu fyfja á íslandi að Hótel
Örk í Hveragerði sunnudaginn 8.
október kl. 12.30-14.30. Fundar-
stjóri verður Stefán Jón Hafstein,
dagskrárgerðarmaður.
Fulltrúi heilbrigðisráðherra kynnir
hugmyndir stjórnvalda um útfærslu
nýrra lyfjalaga. Þátttakendur í pall-
borðsumræðum verða auk hans Ing-
olf Petersen, formaður Apótekarafé-
lags íslands, Þorvaldur Ámason, yf-
irlyfjafræðingur, Vilhjálmur Egils-
son, formaður Verslunarráðs og al-
þingismaður og Sighvatur Björgvins-
son, alþingismaður og fyrrverandi
heilbrigðisráðherra. Einnig gefst
þátttakendum í sal kostur á að bera
fram fýrirspumir og taka þátt í
umræðunum.
Alþjóðadagur
Lions
ALÞJ ÓÐ AÞJ ÓNUSTUDAGUR Li-
onshreyfíngarinnar er 8._ október.
Munu Lionsumdæmin á íslandi, af
því tilefni, kynna starfsemi sína með
ýmsum hætti víða um land.
í Reykjavík fer aðalkynningin
fram í Kringlunni frá klukkan 13-16
laugardag og sunnudag 7. og 8.
október.
Auk þess sem upplýsingum um
starf hreyfingarinnar verður komið
fyrir á veggspjöldum, sem gestir
Kringlunnar geta kynnt sér, munu
Lionafélagar dreifa bæklingum og
veita nánari upplýsingar þeim sem
þess óska.
Athugasemd um starfslok fram-
kvæmdastjóra Alþýðuflokks
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Sigurði Tómasi
Björgvinssyni: „Bréf mitt var
sent sem trúnaðarmál til flokk-
stjórnar og það var ekki ætlunin
að ræða það við fjölmiðla. Hins
vegar hefur einn fjölmiðill birt bréf-
ið í heild sinni þannig að ég hef
ákveðið að svara þeirri gagnrýni
sem fram kom frá Guðmundi Odds-
syni í Morgunblaðinu.
Ummæli Guðmundar Oddssonar
koma mér ekki á óvart því það er
vel þekkt innan flokksins að hann
þykist ekki skilja neitt þegar gagn-
rýni beinist að honum frá einstakl-
ingum og stofnunum flokksins. í
þessu tilfelli hefur hann líka valið
leið strútsins, hann stingur höfðinu
í sandinn og neitar að ræða hlutina
á málefnalegum gmndvelli.
Guðmundur Oddsson þykist ekki
skilja hvers vegna ég skrifa þetta
brét til flokksstjórnarmanna. Ég
skrifaði uppsagnarbréf þegar ég
varð þess áskynja að hann ætlaði
að beita bolabrögðum og þvinga
framkvæmdastjórn til þess að segja
mér upp, eftir að því hafði verið
hafnað í apríl. í kjölfarið komu
Guðmundur og Sigurður Arnórsson,
gjaldkeri af stað dylgjum og per-
sónulegum rógi um mig, eins og
fram kemur í upphafi bréfsins. Til
þess að veija æru mína þá skrifaði
ég bréf til þess fólks sem ég hef
átt mjög gott samstarf við innan
Alþýðuflokksins undanfarin fjögur
ár. Það kann hins vegar að vera
framandi fyrir Guðmund að leyfa
hinum almenna flokksmanni að
fylgjast með því sem er að gerast
innan flokksins.
Guðmundur segir: Hann er að
gefa eitthvað í skyn varðandi fjár-
málin, en ég hef aldrei fengið krónu
eða verið að vinna fýrir peninga í
þessum flokki.
Svarið við þessu er þetta: í bréfi
mínu er því hvergi haldið fram að
Guðmundur Oddsson hafi verið á
launum eða þegið peninga hjá
flokknum. Ég veit að Guðmundur
er heiðarlegur í peningamálum og
býst því við að hann muni taka fram
fyrir hönd gjaldkerans, á fundi
framkvæmdastjórnar um helgina,
og veita mér aðgang að bókhalds-
gögnum flokksins. Það er það eina
sem ég hef farið fram á svo að ég
geti sinnt þeirri skyldu minni að
undirrita reikninga flokksins.“
SVIPMYND frá opna Hornafjarðarmótinu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Opna
Hornafjarðarmótið
NÝLOKIÐ er opna Hornafjarðarmót-
inu í brids með þátttöku 44 para víðs-
vegar af landinu. Spilað var á Hótel
Höfn og spilaform var barómeter með
Monrad-uppröðun og spiluð vom 120
spil. Keppnisstjóri var Sveinn Rúnar
Eiríksson og fórst honum það ágæt-
lega úr hendi.
Sigurvegaramir, nýkrýndir Homa-
fjarðarmeistarar, Guðmundur Páll
Árnarson og Þorlákur Jónsson, tóku
strax góða forystu og juku hana jafnt
og þétt enda enduðu þeir með 62,4%
skor. Heildarverðlaun námu kr.
400.000 og skiptu 10 efstu pör þeim
misjafnlega á milli sín. Einnig voru
gefin þrenn humarverðlaun fyrir hæst
skor í ákveðnum setum og fjórir
flugmiðar með íslandsflugi milli
Hornafjarðar og Reykjavíkur.
Lokastaðan
Guðmundur Páll Amars. - Þorlákur Jónss. 624
Aðalsteinn Jörgensen - Hrólfur Hjaltason 428
Guðlaugur R. Jóhannss. - Ásmundur Pálss. 328
PállValdimarsson-RagnarMagnússon 269
ísak ð. Sigurðsson - Helgi Sigurðsson 230
Kristján Kristjánsson - Ami Guðmundsson 165
Þrösturlngimarsson-ErlendurJónsson 161
Ljósbrá Baldursdóttir - Stefán Jóhannsson 145
Bjöm Theódórsson - Sverrir Ármannsson 120
Guttormur Kristm.son - Pálmi Kristm.son 107
Bridsfélag Selfoss og
nágrennis
Fimmtudaginn 21. september sl.
hófst þriggja kvölda barómeter og
gefur Suðurgarður hf. verðlaunin í
mótið. Sextán pör taka þátt I mótinu,
sem líkur í kvöld, 5. október. Röð efstu
para fyrir síðasta kvöldið er þessi:
Hglgi G. Helgason - Kristján Már Gunnarsson 134
Grímur Amarson - Bjöm Snorrason 97
Auðunn Hermannss. - Guðmundur Theodórss. 76
SigfúsÞórðarson-GunnarÞórðarson 42
ÓlafurSteinason-GuðjónBragason __ 20
Þetta eru stig yfír meðalskor. Önn-
ur pör hafa færri stig.
Næsta mót hjá félaginu er Hrað-
sveitakeppnin og formaðurinn, Ólafur
Steinason, tekur á móti þátttökutil-
kynningum í s. 482 1319.
Föstudagsbrids
Föstudaginn 29. september var spil-
aður eins kvölds mitchell. 20 pör spil-
uðu og urðu úrslitin eftirfarandi:
N/S-riðill
Ormarr Snæbjömsson - Sturla Snæbjömsson 247
ÞórðurSigfússon-EggertBergsson 246
Bjöm Bjömsson - Nicolai Þorsteinsson 229
A/V-riðill
Halldór Þorvaldsson - Kristinn Karlsson 262
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 250
AntonValgarðsson-TómasSiguijónsson 245
A föstudögum kl. 19 er alltaf spilað-
ur eins kvölds tvímenningur í Þöngla-
bakka 1, til skiptis Mitcell og Monrad
barómeter. Næsta föstudag, 6. októ-
ber, verður því spilaður Monrad baró-
meter. Keppnisstjóri er Sveinn R. Ei-
ríksson og allir spilarar velkomnir,
skráning á staðnum.
Bridskvöld byrjenda
Bridskvöld fyrir byrjendur eru nú
hafín að nýju og em á föstudagskvöld-
um kl. 19.30. Þau em ætluð spiluram
sem hafa litla eða enga keppnis-
reynslu til að stíga sín fyrstu spor í
keppnisbridsinu. Spilaðar eru eins
kvölda keppnir, þ.e. enginn er bundinn
nema eitt kvöld í einu og spilurum sem
koma einir er parað saman. Spiluð eru
forgefm spil og fá spilararnir eintak
af. spilagjöfinni með sér heim eftir
spilamennsku. Skráning er við mæt-
ingu á spilastað, sem er húsnæði
Bridssambands íslands, Þönglabakka
1, þriðju hæð. Látið nú sjá ykkur og
prófíð hvernig er að spila keppnisbrids!
íslandsmót kvenna í
tvímenningi 1995
íslandsmót kvenna í tvímenningi
verður haldið í Þönglabakka 1, hús-
næði BSÍ, helgina 28.-29. október nk.
Skráning er hafin á skrifstofu Brids-
sambands íslands í síma 5879360.
Spilaður verður barómeter og hefst
spilamennska kl. 11 laugardaginn 28.
október. Skráning er til fimmtudags-
ins 26. október. Spiluð verða a.m.k.
90 spil og fer spilafjöldí milli para
eftir fjölda þátttakenda. Spilað er um
gullstig og Evrópustig. Keppnisgjald
er 5.000 kr. á parið.
Bridsdeild Rang. og Breiðholts
Staðan að loknum tveimur af þrem-
ur umferðum og hæstu skor. Lokaum-
ferð næsta þriðjudagskvöld. Þriðju-
daginn 17. október hefst 4ra kvölda
barómeter tvím. þar sern öllum er
velkomið að spreyta sig.
N/S-riðill:
Rúnar Hauksson - Rósmundur Guðmundsson 260
EyþórBjörgvinsson-OliverKristófersson 249
FriðrikJónsson-SævarJónsson 236
A/V-riðill:
MagnúsTorfason-HlynurMagnússon 262
Gunnar B. Kjartansson - Valdimar Sveinsson 243
EinarGuðmannsson-ÞórirMagnússon 238
Staðan eftir 2 lotur:
MapúsTorfason-HlynurMagnússon 524
Rúnar Hauksson - Rósmundur Guðmundsson 522
Loftur Pétursson - Jón St. Ingólfsson 483
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 2. október var spilað
annað kvöldið af þremur í A. Hansen
aðaltvímenningi félagsins. Spilaðar
vora 5 umferðir og bestum árangri
náðu:
Atli Hjartarson - Þorsteinn Halldórsson +47
BjörgvinSigurðsson-RúnarEinarsson +25
Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson +25
Guðlaugur Ellertsson - Viktor Bjömsson +18
Staða efstu para þegar 10 umferðir
em búnar af 15:
FriðþjófurEinarss.-Guðbr.Sigurbergss. +60
Anna ívarsdóttir - Sigurður B. Þorsteinsson +51
GuðlaugurEllertsson-ViktorBjömsson +48
Keppninni lýkur mánudaginn 9.
október.
Bridsfélag Hafnarfjarðar spilar öll
mánudagskvöld í félagsálmu Hauka-
hússins, innkeyrsla frá Flatahrauni.
Spilamennska byijar stundvíslega kl.
19.30. Keppnisstjóri er Sveinn Rúnar
Eiríksson.
Bridsfélag SÁÁ
Vetrarstarfsemi Bridsfélags SÁÁ
byrjar þriðjudaginn 10. október. Spilað
er í Úlfaldanum og mýflugunni Ár-
múla 17a og byijar spilamennska kl.
19.30. Spilaðir verða tölvureiknaðir
einskvölds tvímenningar. Keppnis-
stjóri verður Sveinn R. Eiríksson og
eru allir spilarar velkomnir.
Nokkrir spilarar þjófstörtuðu
þriðjudaginn 3. október og var mynd-
aður einn riðill. Spiluð voru 28 spil.
Meðalskor var 84 og efstu pör vom:
Magnús Þorsteinsson - Sigurður Þorgeirsson 95
Y ngvi Sighvatsson - Orri Gíslason 95
Guðmundur Siguijbömsson - Gestur Pálsson 92
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík og
nágrenni
Fimmtudaginn 28. september 1995
spiluðu 16 pör, meðalskor 210.
Fróði Pálsson - Haukur Guðmundsson 280
Guðlaugur Nielsen - Þorsteinn Erlingsson 278
Sigurleifur Guðjónsson - Eysteinn Einarsson 260
ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 248
Sunnudaginn 1. október 1995 spil-
uðu 22 pör í 2 riðlum.
A-riðill:
Þórólfur Meyvantsson - Eyjólfur Halldórsson 134
ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 132'
Þorleifur Þórarinss. - Gunnþórann Erlingsd. 115
Meðalskor 108
B-riðill:
Guðlaugur Nielsen - Þorsteinn Erlingsson 230
Jensína Stefánsdóttir - Siguijón Guðröðarson 205
PerlaKolka-StefánSörenson 4 177
Helga Helgadóttir - Sæbjörg .1 ónasdóttir 171
Meðalskor 165