Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.10.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 1995 19 irnar, enda var snemma komið á alls konar fríðindum, sem misnotuð hafa verið en erfitt að snúa við. M.a. eru heimfararleyfin, sem starfsfólk á rétt á annaðhvert ár með fjöl- skyldu sína til heimalandsins, og fer stundum í heila hnattferð í leiðinni. Margt fleira í rekstrinum hefur á síðari árum hlotið mikla gagnrýni. Verkefni og umfang þenst út Umfang Sameinuðu þjóðanna hefur eðli- lega þanist út með fjölgun aðilarþjóða og auknum verkefnum. Viðbótin hefur að stórum hluta verið fátækar þjóðir, sem ekki geta lagt fram fjármuni til verkefnanna, taka frek- ar til sín. Aðeins tólf ríki greiða 80% af út- gjöldunum. Þar eru Bandaríkjamenn lang stærstir. En jafnvel þeir eru farnir að draga lappirnar og skulda framlög eins og hinar stórþjóðimar hafa löngum gert. Aðeins helm- ingur þáttökuþjóðanna hefur greitt framlög sín fyrir 1995. Þær þjóðir sem leggja til hafa á síðustu 1-2 áratugum farið að beina fijáls- um framlögum sínum í aðrar áttir, m.a. til að geta haft meira að segja um i hvaða verk- efni þau fara. Framlögin eru bæði föst og einnig eru fijáls framlög til sérstofnananna. Sameinuðu þjóðimar era því komnar í miklar skuldir og augljóst að verður að finna lausn á fjármálunum, ef þær eiga að lifa af. Mest til félagslegra mála Þótt friðargæslan sé nú það andlit Samein- uðu þjóðanna sem snýr að almenningi, þá fer mest af fjármunum stofnunarinnar, bæði skyldugreiðslunar og fijálsu framlögin, í efnahagsleg og félagsleg málefni. Fátæku löndin, sem vilja að Sameinuðu þjóðirnar auki þróunarhjálpina, gagnrýna áhugleysi ríkari landanna um þennan málaflokk hjá SÞ og sérstofnununum. Samt sem áður vinna sumar þeirra frábær störf sem ekki hefðu verið unnin án þess. Má nefna sem dæmi að þremur milljónum barna er árlega bjargað með bólusetningum, sem Barnahjálparsjóður- inn og Heilbrigðisstofnun SÞ sjá um og SÞ eiga stóran þátt í að 60% af öllum fullorðnum í þróunarlöndunum getur í dag lesið og skrif- að og 80% barna í þessum löndum gengur í skóla. Svo nefnt sé 'af handahófi, þá hafa Sameinuðu þjóðimar gert fólki í 45 löndum fært að kjósa í fijálsum kosningum. Enginn efast um að starf Barnahjálparsjóðsins og Flóttamannastofnunar SÞ hafí orðið milljón- um fólks og barna til bjargar, en aðrar stofn- anir hafa sætt gagnrýni fyrir að valda illa hlutverki sínu, svo sem UNESCO, FAO og Þróunarstofnunin. Enginn vafi leikur heldur á því að mikið starf og góður árangur hafi náðst á vegum Sameinuðu þjóðanna í þróun alþjóðalaga, sem smám saman hafa skilað árangri og komið skikkan á málin áður en skarst í odda. Þar má nefna hafréttarsáttmálann. Þrátt fyrir stríð í aldir hefur ekki enn tekist að skipta landsvæðum heimsins skaplega svo að jarð- arbúar geti lifað þar í friði, en án stríðs hef- ur tekist að koma á lögum um skiftingu hafsins. Sama er um fleiri alþjóðalög. Að- dragandi þeirra era þessar stóru ráðstefnur, sem Sameinuðu þjóðirnar efna til, þar sem allar þjóðir heims koma saman og reyna að fínna undirstöðu til samskipta í þeim málum sem varða sameiginlega heimsbyggðina. Ný- leg dæmi eru Umhverfísráðstefnan í Ríó, Mannfjöldaráðstefnan í Kairó og Kvennaráð- stefnan í Kína. Ráðsstefnur sem enginn ann- ar hefði getað staðið fyrir og sem á endanum geta endað í samþykktum á alþjóðlegum sam- skiptá- og umgengnisreglum, sem þjóðirnar gangast undir eða er þrýst inn í. Of mikið færst í fang Upphaflegt viðfangsefni Sameinuðu þjóð- anna var að viðhalda og koma á alþjóðlegum friði og öryggi í heiminum og að forða kom- andi kynslóðum frá hörmungum styijalda, eins og það er tilgreint í sáttmála SÞ. Marg- ir eru þeirrar skoðunar að í þessa hálfu öld hafi samtökin færst of mikið í fang og dreift kröftunum um of. Auk hinnar eiginlegu frið- argæslu og eftirlits hafa þær tekist á hendur að veija flutningaleiðir hjálpargagna, aðstoða stíðsþreytt ríki við að koma á kosningum, dómskerfi og að afvopna heri sína. Sumir ganga jafnvel svo langt að samtökin eigi að halda sig við það sem þau geta gert og ættu að gera, en láta öðrum annað eftir, svo sem hjálparstarfið. Þarna er úr vöndu að ráða. Eftir lok kalda stríðsins með öllum sínum ókostum með neit- unarvaldi í Öryggisráðinu, en um leið með 40 ára ógnarjafnvægi sem hélt heiminum í skefjum, hefur því hlutverki verið varpað yfir á Sameinuðu þjóðirnar. Heimurinn setur allt sitt traust á þær þrátt fyrir allt. En Sam- einuðu þjóðunum hafa aldrei verið veitt nein völd. Það stóð aldrei til. Á kaldastríðsárunum var neitunarvaldinu kennt um valdaleysi þeirra, en það hefur ekkert breyst. Það eru Á ALLSHERJARÞINGINU 1946 í Flushing Meadows var ísland formlega tekið inn ásamt Svíþjóð og Afganistan. Thor Thors situr ásamt fulltrúum hinna landanna fram- an við ræðustólinn, þar sem má sjá aðalritarann, Trygve Lie, og á forsetastóli Poul- Henri Spaak, utanríkisráðherra Belgíu. AÐALSTÖÐVAR Sameinuðu þjóðanna voru fyrstu árin í gamalli hergagnaverksmiðju á Long Island, en hafa síðan 1952 verið í glæsilegum eigin höfuðstöðvum á Manhattan. stórveldin í Öryggisráðinu sem hafa þau völd sem um er að ræða. Frá upphafí hafa Sameinuðu þjóðirnar hangið í lausu lofti yfír gjá milli kenninga og framkvæmda, milli kennisetninga og markmiða sáttmálans og blákalds raunveru- leika stjórnmálaástandsins á okkar tímum. Aðalverkefnið á þessum 50 áram samtakanna hefur verið að brúa þetta bil, sem reynist enn erfíðara á síðustu áram, enda hefur ákvörðunum ekki verið fylgt með fjárveiting- um og mannafla til að framfylgja þeim. Sameinuðu þjóðirnar hafa engan her í raun og ekki gert ráð fyrir því í sáttmála Samein- uðu þjóðanna þótt þar sé þeim ætlað að gera sameiginlegar ráðstafanir til að hindra og fjarlægja hvers konar ógnun við friðinn og leysa með friðsamlegum aðferðum deilur og ástand er geti leitt til ófriðar. Kjarni málsins er að þeim er ekki ætlað að hafa afskipti af innanlandsdeilum, einungis hindra ófrið milli fullvalda ELEANOR Roosevelt var einn af aðalhöf- undum Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hér er hún árið 1949 í hópi ungmenna úr starfsliði SÞ, sem hún bauð heim til sín í Hyde Park, þar á meðal Elínu Pálmadóttur (önnur frá hægri). ríkja. En þróunin í heiminum hefur orðið sú að nú beijast bræður einkum innan landa- mæra. Eiga að gæta fengins friðar Samtökin fóru þó strax 1948 að fikra sig áfram til friðargæslu, í fyrstu með eftirlits- sveitum. Það var Dag Hammerskjöld, aðalrit- ari sameinuðu þjóðanna, og Ralph Bunch sem 1956 lögðu til að stofnaðar yrðu gæslusveit- ir, sem urðu undirstaða friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna. Bæði eftirlitsveitir og friðargæsluveitir SÞ hafa síðan gripið inn í og komið í veg fyrir átök víða um heim. Eru friðargæslusveitirnar nú orðnar 35 talsins. Sumar hafa staðið á milli stríðandi aðila og hindrað stríð í 20-30 ár, svo sem á Kýpur og í Gólanhæðum. Friðargæslusveitunum hefur fjölgað mjög á síðari áram, um fímm á árun- um 1988 og 1989. í hveiju tilfelli leggja aðildarlönd til lið úr sínum eigin heijum. Grundvöllurinn og skilyrðið til að SÞ komi á staðinn og taki að sér friðargæslu skal vera sá, að viðkomandi þjóðir séu samþykkar því, að þær séu búnar að semja um frið með ákveðnum skilmálum, sem Sameinuðuþjóða- liðið svo fylgi eftir að séu haldnir. Þetta gekk lengi vel ágætlega. Friður hefur víðast haldið. Sameinuðuþjóð- aliðin fjarlægðu jarðsprengjur, hjálpuðu flóttafólki að snúa heim og fylgdust með mannréttindum og stundum lýðræðislegum kosningum. Menn vilja gleyma því, að á mörgum stöðum hefur það skipt sköpum. Nýleg dæmi eru kosningarnar í Suður-Afríku og í Kambodíu. Annars staðar hefur miður tekist, svo sem í Angola og Sómalíu, enda hafa þar verið innanlandsdeilur, sem Samein- uðu þjóðirnar eiga í raun ekki að hafa af- skipti af. Sama gildir í Bosníu og Rúanda. Sameinuðu þjóðirnar eru ekki innrásarher og liðsveitir á þeirra vegum mega ekki leggja einum aðila lið gegn öðrum. Þá væru það ekki friðargæslusveitir. í innanlandsstríði tveggja eða fleiri aðila geta þær því ekki annað gert en að horfa á aðila beijast og reyna að veija íbúana eins og í Bosníu. Þar hefur þeim þrátt fyrir ómögulegar aðstæður í 4 ár tekist að koma ótöldum tonnum af neyðarhjálp til Ma og flóttafólks í samnings- bundnum friðhelgum borgum. Sameinuðu þjóðunum er sem sagt ekki ætlað að stöðva stríð og hafa enga möguleika á því. Ekki er hægt að vera í senn stríðsaðili og óhlutdræg- ur stuðpúði. SÞ eiga að koma á friðarsamning- um, gæta friðar og að skilmálar séu haldnir. Þetta veldur oft misskilningi þegar við horfum á bláhjálmana á skjánum og spyijum af hveiju í ósköpunum þeir geri ekki eitthvað við þeim hörmungum sem við blasa. Af hveiju er þá farið út í þetta? Heimur- inn og aðstæður hafa gerbreyst síðan reglur voru settar og stofnað til friðargæslusveita. Ekki aðeins að innanlandsátök hafí blossað upp um allt eftir að kalda stríðinu og ógnar- jafnvæginu lauk, heldur hafa fjölmiðlar ög fjölmiðlatæknin gert að fólk horfir heima í stofu á hrakið fólk á stríðssvæðum, flótta- fólk og hungraða og hrópar á Sameinuðu þjóðirnar að gera eitthvað til að stöðva það og lina þjáningar. Þá er slakað á skilyrðunum og tekst oft að ýta SÞ út í vonlausa að- stöðu. Þegar svo linnir og menn átta sig á að það kostaði mannslíf og átök, þá skelfist fólk aftur og hrópar upp að þessu verði að hætta. Sameinuðu þjóðirnar séu ekki til neins. Sameinuðu þjóðirnar hafa undanfarin ár fengið í hausinn slík viðfangsefni í stríðum straumum og munu halda áfram að fá þau í framtíðinni. En minna hefur farið fýrir fjármagni og stuðningi frá meðlimaþjóð- ! unum til að þær hafi bolmagn í að gera það sem gera þarf. Fyrr en síðar kemur að því, að ekki verður lengur hægt að i leggja á SÞ viðfangsefni og búast við ; að þau verði leyst án þess að þátttöku- þjóðimar taki meiri þátt í því, ekki að- eins fjárhagslega heldur líka efnislega. Hlutverkið endurskoðað Sameinuðu þjóðirnar hafa legið undir óvæginni gagnrýni af ýmsum toga að undanförnu, réttmætri og ósann- gjarnri. Ýmsar breytingar eru í farvatn- inu. í Öryggisráðinu hljóta stórveldi á ; borð við Þýskaland og Japan að koma inn og styrkja það í samræmi við nú- verandi heimsmynd. Arabaríkin sækja líka á um fastafulltrúa. Ekki er þó líklegt að neitunarvaldinu verði hnekkt ef það er þá æskilegt. Eins er í skoðun endurskipulagning á rekstri samtakanna, sem ekki standa lengur undir yfírbyggingunni og þörf er á að finna betri aðferðir við friðar- gæslu. Gunther Grendl hershöfðingi, sem hefur langa reynslu af stjórnun friðargæsluliðs, tjáði mér að hann vildi koma upp Sameinuðu þjóða háskólanámi fyrir friðargæslurannsóknir. Fyrst og fremst vantar nýja skilgreiningu á hlutverki Sameinuðu þjóðanna í samræmi við ástandið í heiminum, eins og það er í dag. Þvi þegar á allt er litið er þetta „ein- asta mamman sem við eigum“, eins og Fær- eyingurinn sagði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.