Morgunblaðið - 09.11.1995, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 55
FRÉTTIR
Skemmtanir
■ KUSK heldur fyrstu tónleika sina
eftir hlé á fímmtudagskvöld ,í Rósen-
bergkjallaranum og hefjast þeir um kl.
23. Hljómsveitin kemur fram eftir nokk-
urt hlé og mun kynna efni af væntanleg-
um geisladisk sínum. Aðgangur ókeypis.
■ EINKAKLÚBBURINN heldur
haustfagnað sinn á Ingólfscafé föstu-
dagskvöld í tilefni af útkomu nýs frétta-
bréfs. Félagar í Einkaklúbbnum fá frítt
til kl. 2 og einnig verður bjór seldur á
hálfvirði. Gulli Helga verður á efri hæð-
inni og DJ Tommi á þeirri neðri.
■ LEIKHÚSKJALLARINN Á
fimmtudag spilar hljómsveitin Botn-
leðja. Húsið opið kl. 22-1. Á föstudags-
kvöld sér Sljórnin um diskóstuðið og á
laugardagskvöld er Siggi Hlö í búrinu
með meira diskó. Á mánudag er Lista-
klúbburinn me_ð dagskrá um Arthur Mill-
er í þýðingu Árna Ibsen.
■ LANGISANDUR AKRANESI
Hljómsveitin Draumalandið skemmtir
laugardagskvöld. Hljómsveitina skipa:
Einar Þór Jóhannsson, Lárus Már
Hermannsson, Ríkharður Mýrdal
Harðarson og Sigurdór Guðmunds-
son.
■ NUNO MIGUEL OG MILLJÓNA-
MÆRINGARNIR leika á föstudags-
kvöldið í Siglufirði og á laugardags-
kvöldið í Sjallanum, Akureyri.
■ AMMA LÚ Á föstudagskvöld verður
haldin Knickerbox hátíð i tilefni af
opnun verslunarinnar að Laugavegi 62.
Húsið opnar kl. 23 og verður tekið á
móti gestum með kokteil í boði Southern
Comfort. Dansarar og módel verða svo
með tískusýningu frá Knickerbox. Það
verða svo D.J. Maggi Magg FM og DJ
Nökkvi sem sjá um tónlistina. Á laugar-
dagskvöld verður sýndarveruleiki á boð-
stólum í boði Smirnoff. Það er svo DJ
Kiddi Big Foot sem sér um tónlistina.
■ BUBBI MORTHENS leikur á föstu-
dagskvöld á Hafurbirninum, Grindavik
og á láugardagskvöldinu á La Parilla,
Sandgerði. Með Bubba leikur bassaleik-
arinn Þorleifur Guðjónsson. Tónleik-
amir hefjast kl. 11.
■ BLÚSBARINN Á föstudags- og
laugardagskvöld leikur hljómsveitin J.J
Soul Band. Þeir flytja blúsbræðing meó
stnu lagi og stöku bossanovalög. Hljóm-
sveitina skipa breski söngvarinn J.J.
Soul, gítarleikarinn Eðvarð Lárusson,
bassaleikarinn Stefán Ingólfsson, á
trommur leikur Steingrimur Óli Sig-
urðarson og á pianó Ingvi Þór Korm-
áksson.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fímmtudags-
kvöld heldur hljómsveitin Fjallkonan
útgáfutónleika. A föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur Skítamórall og hljóm-
sveitin Sixties tekur við og leikur á
sunnudagskvöldinu. Jet Black Joe leika
svo mánudags- og þriðjudagskvöld og
Vinir vors og blóma á miðvikudags-
og fímmtudagskvörd 16. nóvember.
■ SNIGLAR ætlar að halda svokallaða
Vetrarsorgardrykkju laugardagskvöld í
félagsheimili sínu að Bíldshöfða 14 þar
sem fram kemur hljómsveitin K.F.U.M.
& The Andskodans en hana skipa:
Andri Hrannar, Arnar Smokie, Bryn-
dís Sunna, Katrin Hildur, Ofur-Bald-
ur, Óli Jó og Steini Tótu. Húsið opnað
kl. 21 en hljómsveitin hefur leik um
miðnætti.
■ HÓTEL SAGA Á Mímisbar leika
Ragnar Bjarnason og Stefán Jökuls:
son föstudags- og laugardagskvöld. í
Súlnasal á laugardagskvöldið er það svo
Ríósaga sem er skemmtidagskrá með
Ríó Tríó. Eftir sýningu er svo dansleik-
ur með hljómsveitinni Saga Klass. Hús-
ið verður opnað kl. 19 íyrir matargesti
og kl. 23.30 fyrir þá sem ætla að koma
á dansleik.
■ GARÐAKRÁIN, GARÐABÆ Á
föstudags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Klappað og klárt með þeim
Garðari Karlssyni og Önnu Vilhjálms-
dóttur.
■ HÓTEL ÍSLAND Á föstudagskvöld
er einkasamvæmi í aðalsal. Sýning
Ladda í Ásbyrgi heldur áfram föstu-
dags- og laugardagskvöld. Á laugar-
dagskvöld. I aðalsal leikur hljómsveitin
Karma eftir miðnætti. Á sunnudags-
kvöld er svo Intercoiffure hársýning.
■ NÆTURGALINN Hljómsveitin Út-
lagar léikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
■ GULLÖLDIN Á föstudagskvöld
skemmtir Heiðar snyrtir Grafarvogsbú-
um. Skemmtunin hefst kl. 20.30. Hljóm-
sveitin Tarnús leikur og syngur gömlu
íslensku gullaldarlögin.’
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld
leikur dúettinn Blátt áfram. Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur trúbad-
orinn Guðmundur Rúnar og á sunnu-
HLJÓMSVEITIN Kusk heldur
tónleika í Rósenberg á fimmtu-
dagskvöld.
dagskvöld leikur Teitur Guðna. Jón
Ingólfs tekur síðan við og leikur mánu-
dags- og þriðjudagskvöld og dúettinn
Blátt áfram leikur miðvikudagskvöld.
■ RÚNAR ÞÓR leikur föstudags- og
laugardagskvöld í Fjörugarðinum,
Hafnarfirði. Með honum eru Sigurður
Árnason bassaleikari, fyrrum meðlimur
í Náttúru og Jónas Björnsson á trommur.
■ VINIR VORS OG BLÓMA leika í
Sjallanum Akureyri föstudagskvöld.
Meðal gesta eru D.J. Kiddi Bigfoot og
þijár stúlkur frá Módelsamtökunum
verða með undirfatasýningu. Á laugar-
dagskvöld leikur W&B i félagsmiðstöð-
inni Dynheimum.
■ VINIR DÓRA leika fímmtudagskvöld
í Kringlukránni en hljómsveitin hefur
nýlega gefíð út geisladisk er ber heitið
Hittu mig.
■ JET BLACK JOE heldur tónleika i
Loftkastalanum fímmtudagskvöld þar
sem einnig koma fram söngkonan Emil-
iana Torrini og Radíusbræður
skemmta. Húsið opnað kl. 20.30. Jet
Black Jóe er senn á förum utan og eru
þetta þvi síðustu forvöð að beija þá aug-.
um. Einar Lyng snúður á X-inu leikur
fram eftir nóttu.
■ SÓL DÖGG leikur á skemmtistaðn-
um Calypso í Vestmannaeyjum um
helgina.
■ FEITI DVERGURINN Á föstudags-
kvöld leika Næturgalarnir og á laugar-
dagskvöldinu leikur hljómsveitin He's A
live.
■ SSSÓL heldur almennan dansleik á
Inghóli Selfossi föstudagskvöld. Sólin
hefur verið í fríi síðustu misseri vegna
sýninga á söngleiknum Rocky Horror.
Miðaverð er 1.200 kr. og aldurstakmark
18 ár.
KEPPENDURNIR sem kepptu fyrir íslands hönd í Englandi. F.v.
Þorvaldur Gunnarsson, Jóhanna Ella Jónsdóttir, Jón Stefnir Hilm-
arsson, Snorri Engilbertsson, Berglind Freymóðsdóttir, Doris Ósk
Guðjónsdóttir, Henríetta Magnúsdóttir og Jón Ágústsson.
Islenzk
pör kepptu
í Wales
FJÖGUR íslenzk pör kepptu í Welsh
Grand Prix-Bonanza danskeppninni,
sem haldin var í Prestaty i Welsh í
Englandi nýlega. Alls tóku um 200
danspör þátt í keppninni.
í aldurshópi 12-14 ára tóku þátt
fyrir íslands hönd Doris Ósk Guð-
jónsdóttir og Snorri Engilbertsson
og komust i 8. sæti í ballroom-döns-
um en 48 pör tóku þátt í keppninni.
Jóhanna Ella Jónsdóttir og Þorvaldur
Gunnarsson kepptu í svokölluðum
youth-flokki, 16-21 árs, í ballroom-
dönsum og urðu sigurvegarar. Einn-
ig kepptu þau í latin-dönsum og höfn-
uðu í 3. sæti. Keppt var í flokki 16
ára og eldri — amatör — og náðu
þau 2. sæti í ballroom-dönsum og
3. sæti í latin-dönsum. Jóhanna og
Þorvaldur enduðu keppni á sunnu-
dagskvöld með því að taka þátt í
boðskeppni í tíu dönsum samanlagt
og náðu þau þar 3. sæti.
Henríetta Magnúsdóttir og Jón
Ágústsson kepptu einnig í youth-
flokki í ballroom-dönsum og náðu
þau þar 4. sæti og 5. sæti í amatör-
ballroom-keppninni. Berglind Frey-
móðsdóttir og Jón Stefnir Hilmars-
son kepptu í aldurshópi 35 ára og
eldri (senior) og náðu þau 2. sæti í
latin-dönsum og 2. sæti í boðskeppni
í tíu dönsum samanlagt.
Á sunnudagskvöld var haldin liða-
keppni með glensi og gamni. Fjögur
lið kepptu og voru þau frá Eng-
landi, íslandi, Skotlandi og írlandi.
Þess má einnig geta að Jóhanna
Ella Jónsdóttir og Þorvaldur Gunn-
arsson kepptu hálfum niánuði áður
á Staffordshire Open, þar sem þau
lentu í 2. sæti í keppninni Rising
Stars Amatör, 16 ára og eldri, í lat-
in-dönsum og 3. sæti i ballroom-
dönsum. I Amatör open urðu þau i
4. sæti.
Kanadískur
töframaður á
McDonald’s
KANADÍSKI töframaðurinn Andrew
Magic sýnir listir sínar fyrir gesti
og gangandi á McDonald’s Hressó
um helgina.
Andrew hefur stundað töfrabrögð
frá 7 ára aldri og hefur sýnt víða,
bæði í Norður- og Suður-Ameríku
en hann er nú í fýrsta sinn á ís-
landi. Ef veður leyfír mun Andrew
leika listir sinar í garðinum hjá
Hressó, annars inni í salnum. Sýning-
arnar byija kl. 14, 15 og 16 bæði
laugardag 11. og sunnudaginn 12.
nóvember.
Ræða fjárlagafrumvarpið
SVANHILDUR Svavarsdóttir tal-
meinafræðingur flytur erindi um
Asperger heilkenni á fræðslufundi
í Umsjónarfélagi einhverfra sem
verður haldinn í kvöld, fimmtudag-
inn 9. nóvember, í Bugl við Dal-
braut kl. 20.30.
í frétt frá stjóm Umsjónarfélags
einhverfra segir m.a.: „Böm/ungl-
ingar með Asperger heilkenni eru
t.d. með truflaða hæfni til gagn-
kvæmra tjáskipta, eru þrasgjörn,
nota málið sérkennilega, eru oft
klunnaleg í hreyfingum, hafa öfga-
fullán áhuga eða siði og nota lítil
svipbrigði eða handahreyfingu.”
Sýnt verður myndband um Asperg-
er heilkenni. Umræður og fyrir-
spurnir í lokin.
w w
-leikur að lœra!
Vinningstölur 8. nóv. 1995
5*7*9*12*13*17*25
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
JET Black Joe heldur tónleika
í Loftkastalanum á fimmtudags-
kvöld.
■ SÓLON ÍSLANDUS Á föstudags-
kvöld verður tangó á efri hæðinni og á
laugardagskvöld halda þeir Hjörtur
Howser og Eysteinn Eysteinsson upp
stemmningu með tónlist frá ýmsum tíma-
bilum. Á þriðjudagskvöld verður jasstríó
Óla Stephensen á Sólon.
■ CAFÉ AMSTERDAM Á fímmtu-
dags-, föstudags- og laugardagskvöld
leikur dúettinn Amar og Þórir.
■ ÖLKJALLARINN Trúbadúettinn
Rúnar og Ingvar leikur föstudags- og
laugardagskvöld. Á efnisskránni er að
fínna m.a. mikið af bítlalögum í bland
við annað s.s. rokk og popp.
■ CAFÉ ROYALE Á föstudags- og
iaugardagskvöld skemmta þeir Pálmi
Gunnarsson og Magnús Eiriksson.
■ Tónleikar með danshljómsveitinni
T-World eru föstudagskvöld í Norður-
kjallara MH og hefjast kl. 22.30 og kost-
ar 500 kr. inn.
Fræðslufundur
í Umsjónarfé-
lagi einhverfra
SVANHILDUR Svavarsdóttir tal-
meinafræðingur flytur erindi um
Asperger heilkenni á fræðslufundi
í Umsjónarfélagi einhverfra sem
verður haldinn í kvöld, fimmtudag-
inn 9. nóvember, í Bugl við Dal-
braut kl. 20.30.
í frétt frá stjórn Umsjónarfélags
einhverfra segir m.a.: „Böm/ung-
lingar með Asperger heilkenni eru
t.d. með truflaða hæfni til gagn-
kvæmra tjáskipta, eru þrasgjörn,
nota málið sérkennilega, em oft
klunnaleg í hreyfingum, hafa öfga-
fullan áhuga eða siði og nota lítil
svipbrigði eða handahreyfingu."
Sýnt verður myndband um Asperg-
er heilkenni. Umræður og fyrir-
spurnir í lokin.
-----» ♦.4---
■ HJÓLREIÐAHÓPURINN fer
frá Fákshúsunum við Reykjanes-
braut kl. 20 fimmtudagskvöld 9.
nóvember. Hjólað verður upp fyrir
Fella- og Hólahverfí og um Selja-
hverfi, niður í Mjódd og ferðinni
lýkur við Fákshúsin. Öllu hjólreiða-
fólki er velkomið að slást í hópinn.
TILBOÐ
I N, OVEMBER
Vandaðir gripir á einstöku verði!
'0'
Hrærivél
MUM 4555EU
Ein vinsælasta hrærivélin á
Islandi í mörg ár. Nú á
jólabakstursafsláttarvcröi.
Blandari, grænmetiskvörn og
hakkavél fylgja með.
Verð: 16.900 kr. stgr.
Ryksuga
VS 62A00
Nýjasta ryksugan frá Siemens
á sérstöku kynningarverði fyrir
þrifna Islendinga. 1300 W.
Létt og lipur, kröftug og
endingargóð.
Verð: 11.900 kr. stgr.
Símtæki með símsvara
EUROSET 832
Snoturt og fyrirferðarlítið símtæki
með spólulausum símsvara.
Með skjá og hátalara. Þctta er tækið
sem þú hefur verið að bíða eftir.
Verð: 11.900 kr. stgr.
Þráðlaust símtæki
GIGASET 910
Létt og meðfærilegt þráðlaust
símtæki með skjá, laust við allar
truflanir. Langur endingartími
rafhlöðu. Fylgir þér eins og
skugginn um híbýli þín.
Verð: 26.900 kr. stgr.
UMBOÐSMENN OKKAR Á LANDSBYGGÐINNI:
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs • Borgarnes: Glitnir • Borgarfjöröur: Rafstofan Hvitárskála • Hellissandur:
Blómsturvellir • Grundarfjörður: Guöni Hallgrimsson • Stykkishólmur: Skipavík • Búðardalur: Ásubúö •
Isafjöröur Póllinn • Hvammstangi: Skjanni • Sauðárkrókur. Rafsjá • Siglufjöröun Torgið • Akureyri: Ljósgjafinn
• Húsavík: öryggi • Þórshöfn: Noröurraf • Neskaupstaður: Rafalda • Reyöarfjöröur: Rafvélaverkst. Árna E. •
Egilsstaðir: Sveinn Guömundsson • Breiðdalsvik: Stefán N. Stefánsson • Höfn I Hornafiröi: Kristall •
Vestmannaeyjar: Tréverk • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga • Selfoss: Árvirkinn • Grlndavík: Rafborg •
Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. • Keflavík: Ljósboginn • Hafnarfjöröur: Rafbúö Skúla, Álfaskeiöi
í vcrslun
okkaraö
Nóatíini
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • Sími 511 3000