Morgunblaðið - 17.11.1995, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
TRYGGVI Hiibner. Gítarleikur í sérflokki.
Góð ferð á
ljúfum nótum
TÓNLIST
Geisladiskur
BETRIFERÐ
Sólóplata Tryggva Hiibner. Utsetn-
ingan Tryggvi Hiibner. Hljómsveitin
Con Brio: Tryggvi Htíbner gítar,
hljómborð, Pálmi Gunnarsson bassi,
Tómas Jóhannesson trommur. Sér-
stakir gestatónlistarmenn: Eyþór
Gunnarsson congatrommur í einu
’lagi, dr. Kristján Þórarinsson klass-
ískur gitar í einu lagi. Höfundar laga:
Tryggvi Hiibner, Jón Ólafsson eitt
lag, Peter Green eitt lag. Upptöku-
menn: Jón Kj. Ingólfsson, Jens Hans-
son, Sigurður Ingi. Hljóðblöndun:
Jens Hansson, Tryggvi Htíbner. Staf-
ræn eftirvinnsla: Snorri Kristjáns-
son, Óskar Páll Sveinsson. Geim-
steinn hf. gefur út, 33,66 mín, 1.690
krónur (1.359 á nóvemberafslætti
Japis).
TRYGGVI Hiibner hefur lengi
verið í hópi okkar snjöllustu gítar-
ieikara og hér sendir hann frá sér
geisladisk með níu lögum, öllum
spiluðum án söngs og verður ekki
-annað sagt en vel hafí til tekist.
Sjálfur er Tiyggvi höfundur sjö lag-
anna, Jón Olafsson bassaieikari á
eitt lag og að auki er á plötunni
meistaraverk Peter Green, lagið
Albatross. Platan ber nafnið Betrí
ferð, og sjálfur verð ég að játa að
ferð mín með Tryggva á vængjum
gítarsins á þessari plötu er með
þeim betri sem ég hef lengi farið.
Tónlistin er öll á þægilegum nót-
um, afslöppuð en þó áleitin og
þrungin orku þar sem snilli Tryggva
á gítarinn nýtur sín í ríkum mæli.
Það er langt síðan ég hef hlustað
á tónlist sem farið hefur betur í
mig, eins og maður einhvern veginn
endurnærist á sálinni eftir að hafa
hlustað á hana. Platan hefur yfír
sér sterkan heildarsvip, með mis-
jöfnum blæbrigðum þó, og umfram
allt hefur hún þá eiginleika að vaxa
við hverja hlustun.
Það er dálítið erfítt að gera upp
á milli einstakra laga á plötunni því
öll hafa þau eitthvað við sig sem
gleður andann og eyrað. Lagið
Fúnksjón með sínu fönkaða yfir-
bragði er býsna áleitið sem og Flug-
þrá og Hanskinn er upptekinn, og
titillagið Betrí ferð vinnur stöðugt
á, en öll eru þessi lög eftir Tryggva.
Lag Jóns Ólafssonar Yogananda er
einnig afbragðs gott og minnir dá-
lítið á hina afslöppuðu tónlist Enyu
hinnar írsku, og er ekki leiðum að
líkjast.
Pálmi Gunnarsson leikur á bassa
og Tómas Jóhannesson á trommur
og skila þeir sínu hlutverki í bak-
varðasveitinni með sóma, þótt at-
hyglin beinist fyrst og fremst að
gítarleik Tryggva, sem er í sér-
flokki að mínu mati. Ef ég get sett
eitthvað út á þessa plötu þá er það
helst útlit plötuhulsturs, sem er
kannski ekki beint „sölulegt" að
sjá. Hins vegar ættu unnendur
góðrar tónlistar í vönduðum flutn-
ingi ekki að láta þessa plötu fram
hjá sér fara og þeim óska ég góðrar
ferðar.
Sveinn Guðjónsson
»au de *&!(♦*»*
DðU>r4t sp 'M
vJOvrUit«j>
Laugardalshöll
..axu toMónleikar af/„
IÐNSKÓUNN f REYKJAVfK
TÆKNIBRAUT
Stúdentsnám
jafnhliða eða að loknu starfsnámi
Innritað: 20.-23. nóv. 1995 kl. 15.00-18.00
Helgárpósturinn
fiM. Mbl.
'★★★
Ó. H. T. Rás 2
★ ★★★
Tíminn
DUFA
Sýnd kl. 11 í A-sal. B.i. 12 ára.
4 P* w
Tár imfrEiNi
Kvikmynd eftir Gísla Snæ Erlingsson
Sýnd í B-sal kl. 4.50 og 6.55. Miðav. kr. 750.
Sýnd kl. 5, 7 og 9. Miðaverð kr. 700.
STJÖRNUBlÓLfNAN - Verðlaun:
Biómiðar. Simi 904 1065.
Reuter
KENNETH sjálfur mætti í
fylgd leikkonunnar Joan Coll-
ins.
FÖRUNAUTAR Mickey Ro-
urke voru tveir, saxófónn og
kona, sem ekki er vitað hvað
heitir.
Um
hávetur
NÝJASTA mynd leiksljórans
Kenneth Branagh, „In the Bleak
Midwinter", eða Um hávetur, var
frumsýnd í London á miðviku-
daginn. Frumsýningin var hluti
kvikmyndahátíðarinnar í London
og að sjálfsögðu mættu margir
frægir gestir til að berja mynd-
ina augum.
Hún er kölluð Jade og er háklassa
vændiskona og hugsanlega
stórhættulegur morðingi.
En hver er hún?
Fyrrum ástkona þin?
Kona besta vinar þíns? QAVID CARUSO
Stenstu hana? ' (ÚrNYPDI
LINDA FIORENTINO
CHAZZ PALMINTERI
-Jlillijjf*
:JlUJ:JiJ 'Jt iiUJjí
KLIKKAÐASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSNINS!
SVMD í HÁSKÓLABÍÖI