Morgunblaðið - 29.11.1995, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 51
SAMBi
SAMMi
KI0B0C
SAMBÍ
ri&a
SAMm
cy^-O
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900
SNORRABRAUT 37, SÍMI 5S2 5211 OG 551 1384
ÁLFABAKKA 8, SÍMI 587 8900
NETIÐ HEITASTA MYND ARSINS
sandrabullq^ MICHELLE PFEIFFER
StíOWlGIRLS
| BÍÓHÖLLIN: Sýnd kl. 9 |
og 11.15.
BIÚBORGIN: Sýnd kl.
4.40, 6.50, 9 og 11.15.
™BRnXjKSis
MADISON
COUNTY
CMNtEASTWOOD
MKRVL STREKI'
'■ '■ ■
.
Sýnd kl. 4.50, 7.10
og 9.30.
BOÐFLENNAN
Phil Hart
SliNBAD
Sýnd kl.4.50, 6.55, 9 og 11.
GoldenEye 007~ ASSASSINS j>0CAH0MTA5 SantaClauSE
Löng leið
á toppinn
í BYRJUN ársins 1992 þekkti
enginn Quentin Tarantino, en í
lok þess sama árs var hann hyllt-
ur sem einn frumlegasti leik-
stjóri veraldar. Hann þurfti að
hafa fyrir frægðinni. Hann
fæddist í Knoxville, Tennessee,
fyrir 32 árum. Móðir hans,
Connie Zastoupil, sem er hálfur
Cherokee-indíáni, var aðeins 16
ára gömul þegar hún eignaðist
hann. Hún flutti snemma með
son sinn til Los Angeles.
Tarantino gerðist fljótt mikill
kvikmyndaáhugamaður. Hann
ákvað að hætta í skóla 16 ára
gamall og gerðist sætavísir í
klámkvikmyndahúsi. Þar staldr-
aði hann þó stutt við og gekk í
leiklistarskóla, enda hafði hann
ávallt dreymt um að verða leik-
ari. Hann reyndi fyrir sér í
Hollywood sem slíkur eftir
tveggja ára nám, en varð lítt
ágengt. Eina hlutverkið sem
hann hlaut á fyrstu árum sínum
í bransanum var í einum þætti
sjónvarpsþáttanna Klassapíur
eða „Golden Girls“, sem Elvis-
eftirherma.
Árið 1986 lék hann í fyrstu
kvikmynd sinni. Það var myndin
„My Best Friend’s Birthday", en
besti vinur hans, Graig Hamann,
gerði handrit hennar. Sú mynd
var aldrei fullkláruð vegna mis-
taka í eftirvinnslu.
Um sama leyti fór Quentin að
skrifa handrit og vinna fyrir sér
sem afgreiðslumaður á mynd-
bandaleigu. Hann seldi fyrsta
handrit sitt, að myndinni „True
Romance“, fyrir 2 milljónir
króna. Upp úr því fóru hjólin
að snúast og hann fékk ýmis
verkefni við að lagfæra handrit
annarra og slíkt.
Loks fékk hann ósk sína upp-
fyllta og leikstýrði fyrstu mynd
sinni, „Reservoir Dogs“, sem
hann fjármagnaði með aðstoð
eins aðalleikarans, Harvey Keit-
els. Þar með hófst ferill hans
fyrir alvöru og seinna gerði
hann Reyfara eða „Pulp Ficti-
on“, sem var meðal vinsælustu
mynda seinasta árs.
Quentin hefur einnig fengist
töluvert við kvikmyndaleik og
lék nýlega í myndinni Uppgjörið,
eða „Desperado" sem nú er ver-
ið að sýna í einu kvikmyndahúsa
borgarinnar.
TARANTINO er meðal vinsælustu leikstjóra Hollywood.
Hálf öld
í brans-
anum
BANDARÍSKI stjórnmála-
maðurinn Jesse Jackson
hefur löngum verið mikill
aðdáandi tónlistarmannsins
Quincy Jones. Hann sótti
nýlega kvöldverð sem hald-
inn var Quincy til heiðurs í
tilefni hálfrar aldar afmælis
tónlistarferils hans. Hérna
er hann ásamt listamannin
um. Meðal annarra kvöld-
verðargesta má nefna
Opruh Winfrey, sem stjórn-
ar spjallþætti í Bandaríkjun-
um. Kvöldverðurinn var
haldinn í New York.
BJÖRGVIN söng af innlifun.
Sveiflan í algleymingi
HLJÓMSVEIT Tommy Dorsey kom
í heimsókn hingað til lands um síð-
ustu helgi og spilaði fyrir dansi á
Hótel íslandi á laugardaginn. Þessi
stórhljómsveit er meðal annars fræg
fyrir að hafa spilað undir hjá Frank
Sinatra og nú fetaði Björgvin Hall-
dórsson í fótspor hans við góðar
undirtektir. Að sjálfsögðu söng aðal-
söngvari sveitarinnar, Walt Andrus,
einnig með henni. Stjórnandi hennar
er Buddy Morrow. <'
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
INGVELDUR Björgvinsdóttir, Jenný Davíðsdóttir og Jónína
Pálmadóttir.
UNNUR Arngrímsdóttir, Arngrímur Hermannsson, Helga Bestla
Jónsdóttir, Hermann Ragnar Stefánsson, Anna Hallgrímsdóttir,
Björn Hermannsson og Henný Hermanns.