Morgunblaðið - 07.12.1995, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995 35
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
HELJARSTÖKK ÚT
í ÓVISSUNA
SKOÐANIR eru skiptar innan launþegahreyfingarinnar um
það, hvort forsendur gildandi kjarasamninga séu brostnar
eða ekki. Þessi ágreiningur sagði til sín hjá fulltrúum hreyfing-
arinnar í launanefnd ASÍ og VSÍ. Hann segir einnig til sín í
því, að rúmur helmingur félaga innan Verkamannasambands-
ins sagði ekki upp samningum. Hann segir loks til sín í því
að félög, sem sögðu upp samningum, hafa sum hver dregið
uppsagnir sínar til baka.
Verkalýðsfélag Grindavíkur samþykkti með nokkrum meiri-
hluta, svo dæmi sé tekið, að draga uppsögn á kjarasamningi
til baka. Verkalýðsfélagið Eining á Akureyri samþykkti á hinn
bóginn að halda uppsögn á samningi félagsins til streitu.
Ekki var þó eining um þá afstöðu. 170 stóðu að henni en 140
gegn.
Reiknað var með því í upphafi, að febrúarsamningarnir
leiddu til 3,5% kaupmáttarauka á samningstímanum. Gylfi
Arnbjörnsson, hagfræðingur ASI, telur að kaupaukinn verði 2
prósentustigum meiri, eða 5,5%. Þessu veldur minni verðbólga
en reiknað var með, sem og hækkun desemberuppbótar, en
hún er metin til 1,1% hækkunar. Sáttaframlag ríkisstjórnarinn-
ar er metið á milljarð króna. Það felur í sér fráhvarf frá tekju-
tengingu atvinnuleysisbóta, hækkar tryggingabætur og flýtir
viðbótar skattfrádrætti vegna lífeyrisiðgjalda.
Sitt hvað hefur gerzt á þjóðmálasviði, sumt gagnrýnisvert,
sem ýtt hefur undir óróa á kjaravettvangi. Á móti vegur, að
bati segir víða til sín í þjóðarbúskapnum. Spáð er áframhald-
andi stöðugleika og lágri verðbólgu á næsta ári, eða 2,4%.
Atvinna er heldur að aukast. Stækkun álversins í Straumsvík
bætir enn atvinnuástandið. Horfur eru á, sem fyrr segir, að
febrúarsamningarnir feli í sér meiri kaupauka en reiknað var
með. Vaxandi samkeppni á neytendamörkuðum kemur fólki
og til góða.
Byrjandi bata í atvinnulífi og efnahagsbúskap þjóðarinnar
má ekki glutra niður með heljarstökki út í óvissu ótímabærra
átaka á veikburða vinnumarkaði. Það er því fagnaðarefni að
meirihluti verkalýðsfélaga sýnir ábyrgð í afstöðu á ögurstundu
í þjóðarbúskapnum.
FRAKKAR KOMA NIÐUR
Á JÖRÐINA
FRANSKA ríkisstjórnin hefur tilkynnt þá fyrirætlan sína
að taka á nýjan leik þátt í hernaðarsamstarfi Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) eftir þrjátíu ára fjarveru á fundum her-
málanefndar bandalagsins og varnarmálaráðherra þess. Þetta
er söguleg ákvörðun um fráhvarf frá stefnu Charles de Gaulle,
hershöfðingja og forseta Frakklands, sem lét NATO flytja
höfuðstöðvar sínar frá París og herlið sitt út úr Frakklandi
árið 1966.
Frakkar gefa þá skýringu á sinnaskiptum sínum að Atlants-
hafsbandalagið hafi breytzt. Það má vissulega til sanns vegar
færa. Hlutverk bandalagsins er annað en áður, eins og hinar
umfangsmiklu friðargæzluaðgerðir, sem fyrirhugaðar eru í
Bosníu, sýna.
Hins vegar sýnir ákvörðun frönsku stjórnarinnar líka að hún
hefur horfzt í augu við raunveruleikann og endurskoðað
gaullismann hvað varðar hlutverk sitt í Evrópu. Ákvörðun de
Gaulles á sínum tíma markaðist af andstöðu við forystuhlut-
verk Bandaríkjanna og draumsýn um að Frakkland gæti ann-
ars vegar orðið sjálfstæður áhrifavaldur í alþjóðamálum og
hins vegar forysturíki sameinaðrar Evrópu, sem væri óháð
Bandaríkjunum hernaðarlega og pólitískt.
Raunveruleikinn er sá, að Frakkar hafa orðið hvorugt. Þeir
gátu ekki leyst úr Bosníudeilunni, þrátt fyrir stórkarlalegar
yfirlýsingar. Sameiningarmáttur Evrópuríkja reyndist heldur
ekki nægur til að takast á við vandann í Bosníu. Friður var
saminn fyrir tilstilli Bandaríkjanna og nú hafa Evrópuríkin
viðurkennt að friðargæzluaðgerðirnar í Bosníu eru ófram-
kvæmanlegar án þátttöku bandarískra hermanna.
Um leið og Frökkum er nauðsynlegt að bregðast við þessum
staðreyndum, hafa þeir í fyrsta sinn um langt skeið fengið
tækifæri til að ganga til nánara samstarfs við hin NATO-rík-
in með fullri reisn.
Frakkar hafa því komið niður á jörðina er þeir segjast
munu taka þátt í þróun varnarmála í Evrópu í samvinnu við
Bandaríkin, en ekki í andstöðu við þau. Frakkar telja sig nú
geta haft meiri áhrif með aukinni þátttöku í NATO en með
því að standa utan við ákvarðanir bandalagsins. Um leið viður-
kenna þeir gildi samvinnu og samráðs í alþjóðamálum og
mættu gjarnan gera það á fleiri sviðum, til dæmis hvað varð-
ar kjarnorkutilraunir á Kyrrahafseyjum.
KOSNINGASKÝRSLUR
1995 eru ekki aðeins safn
tölfræðilegra upplýsinga
um þingkosningarnar
síðastliðið vor, heldur hefur verið
gerð vinnumarkaðskönnun á fram-
bjóðendum, hliðstæð almennri
vinnumarkaðskönnun, sem gerð var
um sama leyti. Þar með fæst saman-
burður á frambjóðendum annars
vegar og landsmönnum hins vegar.
Skýrslan gefur einnig áhugaverðar
upplýsingar um mismun flokkanna,
til dæmis hvað þátttöku kvenna,
atvinnu frambjóðenda og menntun
varðar.
Sjálfstæðisflokkurinn bendir
gjarnan á að hann sé stærsti verka-
lýðsflokkur landsins, en það endur-
speglast ekki í frambjóðendum.
Frambjóðendur Kvennalistans slá
öllum við hvað hlutfallslegan ijölda
sérfræðinga og háskólamenntaðra
varðar. Ef enn er leyfilegt að tala
um öreigaflokk kemst Þjóðvaki
kannski næst því að vera slíkur
flokkur.
Hlutfallslega séð eru frambjóð-
endur mun menntaðri en lands-
menn, svo þeir eru ekki þverskurður
af þjóðinni. Um þriðjungur þeirra
sem hafa háskólamenntun eru lög-
fræðingar, viðskipta- eða hagfræð-
ingar... og þeir háskólamenntuðu
raða sér gjaman í efstu sætin.
Vaxandi hlutur kvenna: áhrif
Kvennalistans?
Ýmislegt forvitnilegt má lesa úr
Kosningaskýrslum um hlut og þátt-
töku kvenna. Alls voru frambjóð-
endur 843. í fyrsta skipti eru fleiri
konur en karlar í framboði, eða 425
konur og 418 karlar. Eins og bent
er á í skýrslunni skiptir það tölu-
verðu máli að allir frambjóðendur
Kvennalista eru konur. Áð þeim
frátöldum var hlutfall kvenna með-
al frambjóðenda 42% í kosningun-
um nú, en 38% 1991. Konur sækja
sig einnig í kosningaþátttöku.
Undanfarnar kosningar hefur þátt-
taka kvennanna verið heldur minni
en þátttaka karla, en var nú í fyrsta
skipti aðeins yfir þátttöku karl-
anna, 87,5% á móti 87,3% hjá körl-
unum.
Árið 1959 var hlutfall kvenna í
framboði 8%, en þokaðist smátt og
smátt upp og var órðið 25% í kosn-
ingum 1978 og 1979. Þegar
Kvennalistinn bauð í fyrsta skipti
fram 1983 varð hlutfall kvenfram-
bjóðenda skyndilega 35%. Hvort
tilvera Kvennalistans hefur áhrif á
sjálf stjórnmálin er vandmælt, en
áhrifin á tölfræðina eru auðsæ.
Sé hins vegar litið á þijú efstu
sæti listanna er skiptingin ekki jafn
hagstæð konum, því í þeim hópi var
hlutfall karla 58%, en hlutfall
kvenna aðeins 42%. Þetta er þó
breyting frá kosningunum 1991,
þegar aðeins 37% í þremur efstu
sætunum voru konur.
Skiptingin milli karla og kvenna
í þessum efstu sætum er misjöfn
eftir kjördæmum. Reykjavík kemur
áberandi illa út hvað konurnar varð-
ar, því aðeins 33% frambjóðenda í
þremur efstu sætum höfuðborgar-
listanna eru konur. Hagstæðust
konum er skiptingin á Reykjanesi,
því þar eru 54% efstu frambjóðenda
konur.
Óánægðar konur í Sjálfstæðis-
flokknum geta í skýrslunni séð svart
á hvítu að hlutfall kvenna og karla
í efstu sætunum er lang verst í
þeirra flokki. Aðeins 17% af efstu
frambjóðendum á Sjálfstæðisflokks-
listum eru konur, svo heil 83% efstu
frambjóðenda eru karlar. í heild er
myndin nokkuð önnur, því 35%
frambjóðenda Sjálfstæðisflokks eru
konur en 65% karlar, en samt sem
áður er þó flokkurinn áfram með
lægst hlutfall kvenna.
Fyrir utan að allir frambjóðendur
Kvennalistans eru konur, þá er hlut-
fall kvenna í efstu listum hagstæð-
ast hjá Alþýðubandalaginu og óháð-
um og Þjóðvaka, þar sem hlutfall
kvenna er 42%. Hlutfall kvenna á
listunum almennt er hæst hjá Þjóð-
vaka eða 52%.
Hvað aldur snertir er ekki mikill'
munur á aldri kven- og karlfram-
bjóðenda. Meðalaldur karlanna er
ívið hærri, 44,7 ár, en 43 hjá kven-
Hagstofan gefur út Kosningaskýrslur
Endurspegla flokk-
arnir þá kjósendur
sem þeir höfða til?
Hagstofan hefur gefíð út Kosningaskýrslur 1995. í þetta sinn fylgir
einnig rækileg úttekt á frambjóðendum. Sigrún Davíðsdóttir
gluggaði í skýrsluna og bregður upp svipmynd af frambjóðendum
___samanborið við þjóðina og veltir fyrir sér hvað niðurstaðan_
segi um ímynd flokkanna.
Hlutfall kvenna af frambjóðendum
víð alþingiskosningar 1959-95
n t f t
50%
46% 46% 1
lli
Kvennalistinn
bauð fram við
kosningar 1983
59 '63 '67 7174 7879'83 '87 ’91 ’95
Hlutfall kvenna í þrem efstu
sætum við alþingiskosningar 1995
Reykjanes
Norðurl. eystra
Austurland
Suðutland
Norðurl. vestra
Vestfirðir
Vesturland
Reykjavík
Kvennaiisti
Alþýðubandalag
Þjóðvaki
Aiþýðuflokkur
Framsóknarflokkur
Sjálfstæðisflokkur
42%
42%
38%
33%
17% hjá flokkum á
í kjördæmum
KJÓSENDUR yfirgefa Miðbæjarskólann í maí sl. eftir að hafa
greitt atkvæði í alþingiskosningunum.
fólkinu. Meðalaldur frambjóðenda
Alþýðubandalags og óháðra var
43,3 ár og þar með lægstur, meðan
meðalaldur Sjálfstæðisframbjóð-
enda var hæstur eða 45,9 ár.
8% landsmanna eru
sérfræðingar - 30%
frambjóðenda fylla þann hóp
Ef hugað er að skiptingu fram-
bjóðenda annars vegar og lands-
manna hins vegar eftir atvinnu-
greinum er töluverður munur á.
Hlutfallslega starfa margir fram-
bjóðendur við landbúnað, opinbera
stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og
menningarstarfsemi, en fáir við iðn-
að, mannvirkjagerð, verslun og við-
gerðarstarfsemi, hótel, veitingahús,
samgöngur og í heilbrigðisþjón-
ustunni. Þó atvinnugreinaskipting
sé allmismunandi eftir kjördæmum
vegna ólíkra atvinnuhátta eftir
landshlutum er hlutfall frambjóð-
enda er starfa í iðnaði, mannvirkja-
gerð, verslun, hótel- og veitinga-
greinum og samgöngum gegnum-
gangandi samt lágt, meðan hlut-
fallslega margir frambjóðenda
starfa í opinberri stjórnsýslu og við
fræðslustarfsemi.
Hát.t hlutfall þeirra sem koma
úr opinberri stjórnsýslu stafar að
hluta af því að eðlilega eru margir
þingmenn meðal frambjóðenda, en
þetta skýrir samt ekki allan mun-
inn.
Frambjóðendur endurspegla
heldur ekki landsmenn að því er
varðar skiptingu eftir starfsstéttum.
Þannig eru 8% landsmanna stjórn-
endur og embættismenn, en heil
30% frambjóðenda fylla þennan
flokk. Þessi munur stafar að hluta
til af þeim mörgu þingmönnum, sem
eru í framboði. 26% frambjóðenda
eru sérfræðingar, en þann -flokk
fylla aðeins 13% landsmanna.
Hins vegar koma tiltölulega fáir
frambjóðendur úr röðum þjónustu-
og verslunarfólks, eða sjö prósent
frambjóðenda á móti 18% lands-
manna. Aðeins 9% frambjóðenda
koma úr röðum iðnaðarmanna og
sérhæfðs iðnverkafólks, véla- og
vélgæslufólks og ósérhæfðs starfs-
fólks, meðan heil 32% landsmanna
fylla þann flokk.
Ofangreindur munur á skiptingu
frambjóðenda og þjóðarinnar eftir
starfsstéttum gildir að mestu um
öll kjördæmi og alla stjórnmála-
flokka, en samt er nokkur munur
á flokkum að þessu leyti. Hlutfall
stjórnenda og embættismanna er
hæst hjá Sjálfstæðisflokki, því
helmingur frambjóðenda fyllir
þann flokk, meðan hlutfall þessa
hóps er lægst hjá Þjóðvaka eða
17%. Munurinn stafar að ---------
hluta af hve margir þing-
menn eru í framboði fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, með-
an það eru eðlilega fáir
slíkir í framboði fyrir ný-
burann Þjóðvaka. Sé litið
á hlutfall sérfræðinga
meðal frambjóðenda er hlutfall
þeirra hæst hjá Kvennalista, 43%,
en lægst hjá Sjálfstæðisflokki, 17%.
Ef lagður er saman hópur stjórn-
enda, embættismanna og sérfræð-
inga meðal frambjóðenda þá hefur
Sjálfstæðisflokkur hæst hlutfall
þeirra, eða 67%, lægst er það hjá
Þjóðvaka eða 45%, meðan hlutfallið
hjá Alþýðuflokki, Framsóknar-
flokki, Alþýðubandalagi og óháðum
og Kvennalista er á bilinu 59-62%.
Ef litið er á hlutfall þeirra þriggja
stétta, sem fæstir frambjóðendur
koma úr, nefnilega iðnaðarfólks,
véla- og vélgæslufólks og ósérhæfðs
starfsfólks, er hlutfall frambjóðenda
úr þessum stéttum hæst hjá Þjóð-
vaka, 17%, en lægst hjá Kvennalista
og Sjálfstæðisflokki, 3-4%.
Hlutfall háskólamenntaðra
frambjóðenda þrefait hærra
en meðal landsmanna
í skýrslunni er hugað að menntun
frambjóðenda og þeim skipt í þrjú
, menntunarstig, grunnmenntun, sem
er skyldunám eða minna, starfs- og
framhaldsmenntun, sem er meðal
annars starfsmenntun í sérskólum
á háskólastigi og háskólamenntun.
I ljós kemur að frambjóðendur
eru að jafnaði meira menntaðir en
landsmenn almennt. 41% lands-
manna á vinnualdri hafa aðeins
grunnmenntun, en 22% frambjóð-
enda. Hlutfall starfs- eða fram-
haldsmenntunar er nokkum veginn
það sama eða 48-49%, en heil 29%
frambjóðenda hafa háskólamennt-
un, meðan aðeins 11% landsmanna
hafa slíka menntun. Ef aðeins er
litið á þijú efstu sætin kemur í ljós
að 41% frambjóðenda þar eru há-
skólamenntaðir og aðeins sextán
prósent eru með grunnmenntun.
Með öðrum orðum raðast þeir há-
skólamenntuðu gjaman í efstu sæt-
in.
Hlutfall frambjóðenda með
grunnmenntun er lægst hjá Sjálf-
stæðisflokki, 12%, en hæst hjá Þjóð-
vaka eða 29%. Hvað háskólamennt-
un snertir er hlutfall frambjóðenda
með þá menntun langlægst hjá
Þjóðvaka, 21%, en hæst hjá Kvenna-
lista eða 42%. Flestir háskólamennt-
aðir frambjóðendur eru í framboði
í Reykjavík. Öfugt við það sem ger-
ist meðal landsmanna þá eru fleiri
konur en karlar í hópi frambjóðenda
með háskólapróf.
í Kosningaskýrslunni kemur
einnig fram að 29% karlframbjóð-
enda hafa hlotið menntun sína í
lögum, viðskiptafræði eða hagfræði
og 16% í raunvísindum, verkfræði
eða tæknifræði. Háskólamenntaðir
kvenframbjóðendur róa á önnur
mið. 21% þeirra hafa lokið kennara-
prófi og 23% prófi í félagsvísindum.
Ef nota á tölurnar til að bregða
upp svipmynd af flokkunum er
myndin misskýr, eftir því hvaða
flokkar eiga í hlut. Einna skörpust
er myndin af Sjálfstæðisflokki,
Kvennalista og Þjóðvaka að því leyti
að frambjóðendur þessara flokka
raðast gjarnan á hæsta og lægsta
hlutfall þess, sem athugað er.
Kvenframbjóðendur Sjálfstæðis-
flokks eiga greinilega erfiðara upp-
dráttar en í hinum flokkunum, því
hlutfall þeirra er lægst þar, bæði
almennt og eins hvað efstu sætin
varðar. Frambjóðendur hans eru
ívið eldri en frambjóðendur hinna
flokkanna, hlutfall vinnandi fram-
bjóðenda er hæst þar og rúmlega
7s hlutar frambjóðenda flokksins
eru stjómendur, embættismenn eða
sérfræðingar, meðan hlutfall þeirra
sem aðeins hafa grunnmenntun er
lægst og einnig deilir flokkurinn
með Kvennalista lægstu hlutfalli
iðnverkafólks og ósérhæfðs starfs-
fólks. Flokkurinn bendir gjaman á
að hann sé stærsti verkalýðsflokk-
urinn. Það gildir kannski hvað kjós-
endur varðar, en á ekki við um fram-
bjóðendur.
í Þjóðvaka er hæst hlutfall
þeirra, sem hafa einungis
grunnmenntun, og lægst
hlutfall háskólamennt-
aðra frambjóðenda. Þar
er líka hæst hlutfall at-
vinnulausra, hæst hlut-
fall iðnverkafólks og ós-
" érhæfðs starfsfólks og
hlutfall stjórnmálamanna,
og sérfræðinga.
um öreigaflokk
Frambjóðend-
ur hlutfalls-
lega mun
menntaðri en
þjóðin
lægst
embættismanna
Ef enn má tala
sæmir það heiti sér á Þjóðvaka.
Hvorki Alþýðubandalag né Alþýðu-
flokkur komast nálægt Þjóðvaka
að þessu leyti og alls ekki Sjálf-
stæðisflokkurinn.
Kvennalistinn höfðar í málflutn-
ingi sínum gjarnan til kvenna og
þá kvenna sem standa höllum fæti
eins og einstæðar mæður eða lítið
menntaðar konur. Frambjóðendur
Kvennalistans koma þó ekki úr
þessum hópi, heldur er listinn skip-
aður vel menntuðum konum og sér-
fræðingum í ríkari mæli en aðrir
listar.
Spumingin er svo hvort fram-
bjóðendur eiga að endurspegla þá
hópa, sem flokkarnir höfða til. Því
verður hvér og einn að svara fyrir
sig, en Kosningaskýrslurnar veita
umhugsunarefni fyrir þá, sem hafa
gaman af að velta fyrir sér eðli
flokkanna og frambjóðendum
þeirra.
Þrír forystumenn VMSÍ ekki á stjórnarfund ASÍ í mótmælaskyni
Morgunblaðið/RAX
MIKLAR deilur eru komnar upp innan verkalýðshreyfingarinnar vegna niðurstöðu launanefndar. Mið-
stjórn ASI kom saman í gær og voru kjaramálin og sú gagnrýni sem forysta ASÍ hefur sætt að undan-
fömu aðal umræðuefni fundarins.
„Vildum ekki taka þátt í
þessari uppskeruhátíð“
: [IfÍI mk ■ 11
Halldór Kristján Björnsson Gunnarsson
" "7 * |
Björn Benedikt
Snæbjörasson Davíðsson
ALLDÓR Bjömsson,
varaformaður
Dagsbrúnar, Krist-
ján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og
Bjöm Snæbjörnsson, formaður
Einingar á Akureyri, mættu
ekki á miðstjómarfund ASÍ í
gær vegna þeirrar óánægju og
gagnrýni sem kominn er upp
innan Verkamannasambands-
ins um afstöðu meirihluta ASÍ
í launanefnd.
„Ég tók mér frí ásamt fleiri
V erkamannasambandsmönn-
um. Við vildum ekki taka þátt
í þessari uppskeruhátíð, þeir
mega vera einir um hana,“
sagði Halldór Bjömsson, vara-
formaður Dagsbrúnar.
„Ég hafði ekki geð í mér
til að fara á miðstjórnarfund-
inn. Eftir að hafa verið út-
nefndur lýðskrumari í sjón-
varpinu í gær (þriðjudags-
kvöld) af forseta Álþýðusam-
bandsins, þá held ég að ég sé
ekkert að blanda geði við hann
á meðan ég er að jafna mig á
þeim fréttum,“ segir Kristján
Gunnarsson, formaður Verka-
lýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur.
Björn Snæbjörnsson segist
ekki hafa séð ástæðu til að
mæta á miðstjórnarfund hjá
ASÍ vegna þess ágreinings
sem upp er kominn. „Ég held að
það hafi verið ágætt að menn ræddu
niðurstöðu launanefndar án þess
að við værum mikið að þvælast
fyrir því,“ segir hann. Björn kvaðst
þó ekki telja að risinn væri viðvar-
andi ágreiningur innan verkalýðs-
hreyfingarinnar en sagði að þetta
hefðu verið táknræn mótmæli.
Eiga ekki mikið erindi með
málið inn á ASÍ-þing
„Það er ekkert nýtt að menn
greini á við afgreiðslu samninga.
Það hafa orðið til allskonar „flóa-
bandalög" af ýmsum tilefnum og
ýmiss konar úthlaup úr ýmsum sam-
böndum við afgreiðslu kjaramála á
hveijum tíma,“ segir Benedikt Dav-
íðsson, forseti ASI. „Auðvitað er það
alltaf nokkurt áhyggjuefni þegar
menn magna upp ágreining á for-
sendum sem aðrir í hreyfingunni
telja alrangar og beina síðan reiði
sinni inn á við og að samtökunum,
í stað þess að efla kraftana til þess
að ná árangri gagnvart gagnaðilan-
um,“ segir hann.
Tveggja klukkustunda langar
umræður fóru fram um kjaramálin
og þær deilur sem upp hafa komið
innan hreyfingarinnar á miðstjórn-
arfundinum í gær. Þar lagði Bene-
dikt fram sérstaka greinargerð sína
vegna þeirrar gagnrýni sem fram
hefur komið og varði afstöðu sína
og Ingibjargar R. Guðmundsdóttur
í launanefnd ASÍ og VSÍ/VMS.
Talsmenn nokkurra verkalýðsfé-
laga hafa lýst því yfir að ágreining-
urinn sem nú er risinn verði
meðal höfuðmála á Alþýðu-
sambandsþingi I vor. Aðspurð-
ur hvort vænta megi uppgjörs
á þinginu segir Benedikt:
„Það er vel líklegt að mikil
umræða verði um kjaramálin á
þinginu í vor en ég sé ekki að
það sé neitt tilefni til einhvers
uppgjörs út af þessu þar. Þeg-
ar menn, sem hafa haft uppi
hæsta gagnrýni á störf launa-
nefndarinnar, telja sig ekki
einu sinni hafa tilefni til þess
að mæta þar sem þeir eru rétt
kjörnir, eins og í miðstjórn, til
að fjalla um málið, þá finnst
mér ákaflega ólíklegt að þeir
hafi mikið erindi með það inn
á Alþýðusambandsþing," segir
Benedikt.
Búist við allsherjar-
atkvæðagreiðslu
í Dagsbrún
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Dagsbrúnar kemur saman kl.
11 í dag og kl. 13 verður hald-
inn félagsfundur í Bíóborginni
um niðurstöðu launanefndar
og uppsögn samninga. Allar
líkur eru á að viðhöfð verði
skrifleg allsherjaratkvæða-
greiðsla meðal félagsmanna í
Dagsbrún á föstudag og laug-
ardag um tillögu launanefndar
og hvort félagið stendur við
uppsögn samninga. Forystu-
menn innan Dagsbrúnar segja að
tímamörk þau sem vinnuveitendur
hafa sett félögunum til að aftur-
kalla uppsögn samninga, sem er til
8. desember, sé ósvífin og ætla að
hafa þau að engu.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur verður með félagsfund i
Félagsbíói í kvöld þar sem fram fei
skrifleg atkvæðagreiðsla um tillögu
launanefndar og áskorun VSÍ á fé-
lagið að draga uppsögn samninga
til baka.
Bjöm Snæbjörnsson sagði að Ein-
ing ætlaði að sjá til hver yrði niður-
staðan hjá öðram verkalýðsfélögmr
á næstu dögum áður en ákvörðui
yrði tekin um framhaldið en félagií
ákvað í fyrrakvöld að halda uppsögr
kjarasamninga til streitu.