Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 15
Skinna-
iðnaður
greiðir
jólabónus
FORS V ARSMENN Skinna-
iðnaðar hf. á Akureyri hafa
ákveðið að greiðastarfsfólki
sínu sérstakan jólabónus til
viðbótar við umsamda desem-
beruppbót og er það gert í
ljósi góðrar afkomu fyrirtæk-
isins á árinu. Launaauki var
einnig greiddur starfsfólki
fyrir síðustu jól.
Bjarni Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Skinnaiðnaðar
vildi ekki gefa upp hversu háa
upphæð væri um að ræða en
sagði að þetta væru peningar
sem starfsfólki munaði um.
„Það hafa allir lagt sig fram
til að ná sem bestum árangri
á árinu og þetta er smá um-
bun fyrir það,“ sagði Bjarni,
Alls eru um 130 ársverk
hjá Skinnaiðnaði og þar
starfa um 140-150 manns.
Jólasöngvar
í Akur-
eyrarkirkju
JÓLASÖNGVAR Kórs Akur-
eyrarkirkju verða annað
kvöld, sunnudagskvöldið 17.
desember í Akureyrarkirkju
og heijast þeir kl. 20.30.
A efnisskránni eru mótett-
ur og aðventu og jólalög frá
ýmsum tímum. Antonia He-
vesi leikur með á orgel.
Stjórnandi kórsins er Björn
Steinar Sólbergsson.
Auk þess að hlýða á kórinn
gefst kirkjugestum kostur á
að æfa jólasálmana fyrir jólin
því auk kórsöngs verður al-
mennur safnaðarsöngur. Að-
gangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Leikhússljóri LA
Trausti
Olafsson
ráðinn
TRAUSTI Ólafsson leiklistar-
fræðingur hefur verið ráðinn
leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar.
Hann er fæddur árið 1949
og lauk á þessu ári námi í
leiklistarfræðum frá Osló-
arháskóla. Hann er einnig
lærður kennari og hefur
B.A.próf í norsku frá Háskóla
íslands. Hann var á árunum
1985-1989 skólasstjóri
Hvammshlíðarskóla á Akur-
eyri. Þá hefur hann fengist
við blaðamennsku og ritstörf
og var kynningarfulltrúi ís-
lensku óperunnar 1992-1993.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
NÚ UM helgina lýkur sýn-
ingu Lárusar Hinrikssonar í
Deiglunni, en hún var fram-
lengd fram yfir helgi vegna
góðrar aðsóknar. A sýning-
unni eru 24 olíumálverk,
myndir málaðar eftir ljóum
sem komu nýlega út í bók
hans, Bergmál tímans, brotið
gler.
Ungir drengir kveiktu óvart
í sinu við áramótabálköst
Litlu munaði að
eldtungurnar
næðu að Bárufelli
„ÉG VAR heppin að vera ekki
búin með jólahreingerninguna,“
sagði Alda Kristjánsdóttir í Báru-
felli II, en ekki mátti miklu muna
að eldur sem kom upp í sinu í fyrra-
kvöld næði að heimili hennar. Ung-
ir drengir höfðu verið að fikta með
eld við áramótabálköst sem verið
er að safna í á Bárufellsklöppum
og vildi ekki betur til en svo að
eldur varð laus og breiddist hann
hratt út.
Alda hefur búið í Bárufelli í 48
ár, hún er ekkja, en mágur hennar
býr að Bárufelli I. „Ég er róleg
að eðlisfari, en mér leist ekkert á
blikuna, eldtungurnar náðu hér
yfir allt því það var mjög hvasst,“
sagði Alda. Áramótabrenna hefur
verið á Bárufellsklöppum í ára-
tugi, „það hefur verið brenna þarna
í um 30 ár held ég, og þá leggur
reykinn oft hér yfir bæinn. Ég er
með slæman asma og ég man að
í eitt skiptið fannst mér ég nærri
vera að kafna hérna inni í húsinu,
stundum finnst mér ég ekki geta
dregið andann," sagði Alda. „Ég
myndi bara vilja láta banna brenn-
una á þessum stað.“
Sót og reykur barst inn í bæinn
og var Alda önnum kafin við að
hreinsa til í gær.
Fyrsta sinubrunaútkallið
Slökkvilið Akureyrar var kallað
út kl. 21.40 í fyrrakvöld og fór
tveir slökkvibílar þegar af stað
með átta mönnum. „Við reyndum
að puðra yfir þetta vatni, það var
mikill eldur á staðnum og ég held
við megum teljast heppnir að hafa
ekki misst hann norður fyrir klöpp-
ina en þá hefði húsið að Bárufellið
verið í stórhættu," sagði Gunn-
laugur Búi Sveinsson hjá Slökkvi-
liði_ Akureyrar.
Útkall slökkviliðsins í fýrrakvöld
var það fyrsta á árinu þar sem um
sinubruna er að ræða, en engin
slík útköll voru í vor, snjór var
yfir öllu fram eftir maímánuði og
jörð kom græn undan honum.
„Þetta var fyrsta sinuútkallið á
árinu, það er auðvitað heldur
óvanalegt," sagði Gunnlaugur Búi.
Síðar sama kvöld, eða kl. 23.30,
var slökkviliðið aftur kallað út,
glóð hafði kraumað í gamalli síld-
arnót sem var á svæðinu og stóð
Morgunblaðið/Kristján
JOHANN Ingi Gunnarsson og Garðar Þór Garðarsson
voru að skoða sig um við áramótabrennuna í gærdag.
Jóhann var í brennunefnd í fyrra, „en það hefur
ekkert verið talað við mig núna,“ sagði hann.
ALDA Kristjánsdóttir í úti-
dyrunum í Bárufelli.
hún í Ijósum logum þegar að var
komið.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði að lögreglan veitti
brennuleyfi, en slökkvilið hefði
lokaorðið varðandi staðsetningu.
Leyfi eru veitt með fyrirvara um
breytingu ef vindátt þykir óhag-
stæð.
Ekki byija of snemma
„Við kjósum heldur að fólk byrji
ekki of snemma að draga saman
rusl í brennurnar, það þarf ekki
nema eitt rok og þá er það fokið
út um allt,“ sagði Tómas Búi.
Hann nefndi einnig að slökkviliðs-
menn óskuðu eftir því að brennur
væru ekki of stórar og þess gætt
að setja ekkert í þær sem tekur
langan tíma að brenna.
Yfirlýsing Árna Bjarnasonar vegna ummæla Óla G. Jóhannssonar um Smuguveiðar
Ohróður sem ekki er
hægt að láta ósvarað
ÁRNI Bjarnason, stýrimaður á
Akureyrinni EA, hefur sent Morg-
unblaðinu yfirlýsingu þar sem
hann mótmælir ummælum Óla G.
Jóhannssonar í Akureyrarblaðinu
í vikunni. Þar ræðir Oli um um-
gengni íslenskra sjómanna í Smug-
unni og segir m.a. að þar hafi fiski
verið hent í sjóinn alveg mis-
kunnarlaust.
„Ég get ekki orða bundist vegna
ummæla Óla G. Jóhannssonar í
Akureyrarblaðinu þann 14. þessa
mánaðar. Þar slær hann sig til
riddara á kostnað sjómannastétt-
arinnar með ömurlegum lýsingum
á vanþroska okkar í umgengni um
hafið, þar sem okkur er líkt við
engisprettufaraldur - níðir hann
okkur niður í skítinn.
Óli hefur greinilega lært þrílið-
una sína þegar hann var í skóla
og virðist hafa notað þá reiknings-
kúnst við þessar fráleitu lygar, sem
hann síðan ber á borð fyrir alþjóð.
M.ö.o. hefur hann reiknað út
hversu mikið hans skip veiddi,
þ.e.a.s. 100 tonn x 40 dagar eða
4.000 tonn. Síðan hversu mikið var
unnið úr aflanum, þ.e.a.s. 30
tonn x 40 eða 1.200 tonn. Því
hefur verið 2.800 tonnum á þessu
eina skipi. Þessi útkoma x 50
togarar gefur okkur 140.000 tonn.
Dálaglegur bingur það.
Þess má geta að mesti afli ís-
lensks togara í Smugunni í ár var
rúm 2.000 tonn. Sérhveijum manni
hlýtur að vera ljóst hvílíkur maka-
laus þvættingur er hér á ferðinni.
Mér dettur ekki í hug að láta
óhróðri sem þessum um mig og
mína skipsfélaga ósvarað. Þorri
þeirra sem Smuguna sækja, fiska
þar, sem annars staðar á þann eina
hátt sem rökréttur er. Þ.e.a.s. fiska
ekki meira en vinnslugeta skip-
anna leyfir. Þó er það svo að í öll-
um stéttum eru misjafnir sauðir
og jafnvel geta leynst þar innan
um algerir bjöllusauðir. Það á jafnt
við um sjómenn og listamenn.
Upp á vegg í stofunni minni
hanga tvær ágætar myndir eftir
Óla G. Þær heita „á fiskislóð" og
„fagur fiskur úr sjó“. Bera þær
höfundi fagurt vitni og gefa til
kynna ótvíræða hæfileika til list-
sköpunar. Því óska ég Óla velfarn-
aðar á listabrautinni og vona að
hann verði heppnari þar heldur
en hann virðist hafa verið sem
sjómaður," segir í yfirlýsingu
Árna.
Morjfunblaðið/Kristján
Dönsuðu kringum
jólatréð á Torginu
NEMENDUR Barnaskóla
Akureyrar hafa safnað leik-
föngum sem þeir ætla að senda
börnum í fyrrum Júgóslavíu. I
gær gengu nemendur og kenn-
arar fylktu liði frá skólanum
niður á Ráðhústorg með pakk-
ana, settu þá undir stóra jóla-
tréð frá Randers, dönsuðu
kringum tréð og sungu nokkur
lög. Eftir það héldu þau aftur
upp í skóla en pakkarnir voru
sendir af stað til barnanna úti
í heimi.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu kl.
11.00, jólatré. Guðsþjónusta í
kirkjunni kl. 17.00. Sr. Birgir
Snæbjörnsson prófastur setur sr.
Svavar Alferð Jónsson inn í emb-
ætti aðstoðarprests í Akureyrar-
prestakalli, Áth. tímann. Jóla-
söngvar Kórs Akureyrarkirkju
kl. 20.00, Syngjum jólin inn.
GLERÁRKRIKJA: Barnasam-
koma verður kl. 11.00, síðasta
samveran fyrir jól. Helgistund
og jólasöngvar fjölskyldunnar kl.
13.00. Blásarahópur frá Tónlist-
arskólanum á Ákureyri leikur
jólalög. Jólafundur æskulýðsfé-
lagsins kl. 17.00.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
„Við syngjum jólin í garð“ á
sun .udag kl. 17.00. Börn og
unglingar sýna leikþætti. Kveikt
á jólatrénu.
H VÍT ASUNNUKIRKJAN:
Samkoma í umsjá ungs fólks,
Mike og Sheila Fitzgerald tala.
Safnarðarsamkoma, brauðs-
brotning kl. 11.00 á sunnudag.
Vakningasamkoma kl. 15.30,
Mike og Sheila tala á báðum
samkomunum. Biblíulestur kl.
20.30 á miðvikudag, bænasam-
koma kl. 20.30 á föstudag.
HÚ SAVÍKURKIRKJA: Að-
ventuhátíð bamanna kl. 11.00,
börn sýna jólahelgileik, lesin
verður jólasaga. Kyrrðar- og
bænastund á jólaföstu kl. 21.00,
aðventusálmar, hugvekja, tón-
list, fyrirbænir.
Verslunarhúsnæði til leigu
Verslunarhúsnæði er til leigu í miðbæ Akureyrar.
Húsnæðið, sem er ca 800 fm að grunnflatarmáli, er til leigu allt
eða í minni einingum. Um langtímaleigu getur verið að ræða.
Ahugasamir eru beðnir að senda nöfn sín, ásamt upplýsingum
um fyrirhugaða starfsemi og rýmisþörf, til afgreiðslu Mbl.,
merkt: V- 1193”.