Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
NEMENDUR Stóru-Vogaskóla flytja helgileik byggðan á jólaguðspjallinu.
Borgarafundir
um snjóflóðamál
á þremur stöðum
BORGARAFUNDIR um snjó-
flóðamál og -varnir verða haldnir
á þremur stöðum nú um helgina,
16.-17. desember: Á Patreksfirði
(fyrir íbúa Vesturbyggðar), á
Siglufirði og á Neskaupstað.
Hugsanlega verður einnig fundur
á Seyðisfirði og þá síðdegis á
sunnudag. Fundirnir verða með
sama sniði og borgarafundir sem
haldnir voru um síðustu helgi á
Flateyri, ísafirði, í Súðavík og í
Bolgungarvík.
Ráðuneytisstjóri umhverfis-
ráðuneytisins, veðurstofustjóri og
formaður almannavarnaráðs
munu halda framsöguerindi, en á
eftir verða umræður og fyrirspurn-
ir til framsögumanna.
Fjallað verður um fyrirhugaðar
breytingar á framkvæmd snjó-
flóðavarna í framhaldi af störfum
ráðuneytisstjóranefndar og sér-
stakrar nefndar sem falið var að
endurskoða stjórnskipulag snjó-
flóðamála. Einnig verður rætt um
stöðuna í snjóflóðamálum al-
mennt, neyðaráætlanir og við-
brögð við hættuástandi og hvað
er hægt að gera til að auka ör-
yggi íbúa í bæjum þar sem er
snjóflóðahætta.
Aðventu-
messa Kálfa-
tjarnarsóknar
Vogum - Við aðventumessu í
Kálfatjarnarkirkju 10. desember
var í boði fjölbreytt dagskrá;
söngur, helgileikur, upplestur og
hljóðfæraleik. Fjöldi fólks mætti
til messu, svo margt að öll sæti
kirkjunnar voru setin.
Auk kirkjukórsins komu fram
börn úr kirkjuskólanum sem
sungu nokkur Iög meðal annars
Bráðum koma blessuð jólin.
Nokkrir nemendur úr Stóru-
Vogaskóla fluttu helgileik
byggðan á jólaguðspjallinu.
Einnig tóku fermingarbörn þátt
í messunni og Sigurbjörg Jóns-
dóttir lék á blokkflautu. Prestur
var Bjarni Þór Bjarnason héraðs-
prestur.
Sesselja Sigurðardóttir for-
maður sóknarnefndar flutti
ávarp í upphafi messu og greindi
meðal annars frá gjöfum sem
kirkjunni hafa borist á árinu.
Afkoma búa hérlendis 3,14%
lakari í fyrra en 1993
Stærstu bú-
inskila
mestum arði
AFKOMA búa sem komu til upp-
gjörs hjá Hagþjónustu land-
búnaðarins reyndist að meðaltali
vera 3,14% lakari í fyrra saman-
borið við árið þar á undan. Stofn-
uninni bárust 514 búreikningar
frá öllum búnaðarsamböndunum
og voru 458 reikningar notaðar
í uppgjörinu, sem jafngildir rúm-
lega tíunda hluta lögbýla á ís-
landi.
Af einstökum sviðum má nefna
að hagnaður af rekstri sérhæfðra
kúabúa var 6,8% minni 1994 en
árið á undan, eða að meðaltali
tæpar 1,4 milljónir á bú og er
þá miðað við útkomu búrekstrar-
ins áður en laun bóndans voru
reiknuð. Samkvæmt sömu for-
sendum dróst framlegð saman
um 0,3% auk þess sem bæði bú-
greinatekjur og aðrar tekjur
minnkuðu að raunvirði, þær fyrr-
nefndu um 2,7% og þær síðar-
nefndu um 9,1%. Fjármagns-
kostnaður lækkaði hins vegar um
15,3% á milli ára. í úrtakinu voru
167 kúabú og var fjöldi mjólk-
urkúa að meðaltali 25,7 á búi en
fjöldi vetrarfóðraðra kinda að
meðaltali 35.
Afkoma sauðfjárbúa
batnaði um 15,1%
Samanburður á milli kjördæma
leiðir í ljós að kúabú í Eyja-
fjarðarsýslu skiluðu mestum
hagnaði á árinu 1994, eða
1.668.000 að meðaltali, en þau
eru í flokki stærstu kúabúa á
landinu. Hliðstæðar forsendur
fyrir sauðfjárbú og blönduð bú
sýna að stærstu búin skiluðu
einnig bestri afkomu, í báðum
tilvikum á Austurlandi.
Öfugt við kúabúin batnaði af-
koma sérhæfðra sauðfjárbúa um
15,1% milli ára, miðað við hagnað
fyrir laun eiganda, og var afkom-
an að meðaltali 800 þúsund krón-
ur á bú. Hagþjónusta landbúnað-
arins bendir þó á að þessa bættu
afkomu eigi að túlka í samhengi
við 48% tekjuhrun sem varð í
greininni árið 1993. Einnig er
bent á að tekist hafi að lækka
rekstrarkostnað samhliða 3,8%
samdrætti í búgreinatekjum.
„Fastur kostnaður lækkaði t.d.
um 6,2% og breytilegur kostnaður
um 4,7%. Á sauðfjárbúum munar
ekki síst um 37% lækkun fjár-
magnskostnaðar á milli ára,“ seg-
ir í niðurstöðum stofnunarinnar.
Fjöldi vetrarfóðraðra kinda á
þessum búum var að meðaltali
281 og fjöldi mjólkurkúa að með-
altali 0,4, en 90 bú voru í úrtakinu.
Blönduð bú með
lakari afkomu
Afkoma blandaðra búa er að
meðaltali 1.062.000 í fyrra miðað
við hagnað fyrir laun eiganda, sém
er 1,4% lakari afkoma en á árinu
á undan. Fjármagnskostnaður
lækkaði um 28% á blönduðum
búum, fastur kostnaður um 5%
og breytilegur kostnaður um
5,4%. Á móti kemur 25% lækkun
annarra tekna á milli ára. Einnig
kemur fram að samhliða 4% sam-
drætti búgreinatekna jókst fram-
leiðni um 1%.
Jólateiti
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavik
Hið hefðbundna jólateiti
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík verður haldið
í dag, laugardag, milli
kl. ló.OOog 18.00 í
Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Að venju verða á boð-
stólum góðar veitingar.
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
og forsætisráðherra, mun flytja stutta hugvekju.
Tilvalið er að líta við að loknum verslunar-
erindum og verma sig á veitingum í góðra
vina hópi.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Vörður, Óðinn, Hvöt og Heimdallur.
Kaupfélag Húnvetninga 100 ára
Hátíðarhöld í
tilefni dagsins
Blönduósi - Kaupfélag Húnvetn-
inga (KH) er eitt hundrað ára í dag
og heldur upp á daginn undir kjör-
orðunum „Hundrað ár í Húna-
þingi“. Það var hinn 16. desember
1895 sem Jón Guðmundsson á Guð-
laugsstöðum og Þorleifur Jónsson,
alþingismaður á Syðri-Löngumýri,
boðuðu til stofnfundar KH í Verts-
húsinu á Blönduósi. Þorleifur Jóns-
son var kjörinn fyrsti formaður
stjórnar.
í tilefni þessara tímamóta hefur
KH gefið út veglegt afmælisblað
þar sem stiklað er á sögu félags-
ins. Blaðið skreytir fjöldi mynda og
má þar nefna myndir sem Vignir
Reynis tók í tilefni hálfrar aldar
afmælis KH. Myndir Vignis verða
til sýnis á skrifstofu KH á afmælis-
daginn. Auk ljósmyndasýningar
verða ýmsar uppákomur í verslun-
um KH.
Á morgun verður síðan afmælis-
hátíð í félagsheimilinu hvar fram
koma m.a. samkórinn Björk, karla-
kór Bólstaðarhlíðarhrepps og feðg-
inin Svavar H. Jóhannsson og Jóna
Fanney í Litladal.
Geysilegar breytingar hafa orðið
á reksti og umsvifum KH þessi
hundrað ár. Fyrsta hús félagsins
var byggt árið 1899 en á aldar af-
mælinu rekur KH verslunarhús á
Blönduósi og Skagaströnd. Auk
þess rekur KH einnig pakkhús,
söluskála og hina landsfrægu Vilko
súpugerð. Núverandi stjórnarfor-
maður er Jón B. Bjarnason í Ási
en kaupfélagsstjóri er Guðsteinn
Einarsson.
- kjarni málsins!
Jólasvein-
arnir
mættu ekki
Vogum - Sunnudaginn 10.
desember voru ljós tendr-
uð á jólatré, sem sveitarfé-
lagið hefur látið setja upp
á Kirkjuholti. Fjöldi fólks
var saman kominn við at-
höfnina í suðvestan roki.
Undir stjórn kirkjukórsins
voru sungin nokkur jóla-
lög, en samkoman flosnaði
fljótlega upp vegna þess
að jólasveinar mættu ekki.
Fóru börnin heim vonsvik-
in enda höfðu þau mætt til
að hitta jólasveinana, sem
hafa komið þarna mörg
undanfarin ár og fært
börnunum góðgæti úr pok-
unum sínum.