Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fiske
bouillon
Svine
5 kodkraft
0kse
kodkraft
sovs
Alt-i-én teming
-med smag, kulör og jævning^
_____ ^
Cronsags
bouillon
Klar bouillon
Alltaf uppl á
teningnum!
kraftmikið
oggott |
bragð! i
LEIPTOGAFUIMDUR ESB
Nafn nýju Evrópumyntarinnar og tímaáætlun um innleiðingu hennar ákveðin
„Evró“ tekur gildi 1999
LEIÐTOGAR aðildarrikja Evrópu-
sambandsins samþykktu samhljóða
á fundi sínum í Madríd í gær að
hin sameiginlega Evrópmynt yrði
kölluð „Evró“. Jafnframt sam-
þykktu leiðtogarnir tímaáætlun þá,
sem Evrópska gjaldmiðilsstofnunin
hefur lagt fram um innleiðingu
hinnar nýju myntar. Hún verður
tekin upp 1. janúar 1999 og eigi
síðar en árið 2002 fær almenningur
í aðildarríkjum Efnahags- og mynt-
bandalagsins (EMU) Evró-mynt og
-seðla í hendur.
Andstætt því, sem ýmsir höfðu
spáð, náðu leiðtogarnir saman að
loknum stuttum fundahöldum um
öll atriði áætlunar gjaldmiðilsstofn-
unarinnar, sem er undanfari evr-
ópsks seðlabanka, um upptöku sam-
eiginlegs gjaldmiðils. Þetta ber vott
um að þeir séu staðráðnir í að kveða
niður efasemdir um að áformin um
myntbandalag verði að veruleika.
„Efnahags- og myntbandalagið
tekur gildi 1. janúar 1999. Þetta
er sigur fyrir Evrópusambandið,"
sagði Pedro Solbes, fjármálaráð-
herra Spánar, eftir að leiðtogarnir
tilkynntu ákvörðun sína í gær.
Undir þrýstingi að hvika ekki
Leiðtogarnir voru undir miklum
þrýstingi að hvika hvergi frá fyrri
áformum. Hefðu þeir ákveðið að
Leiðtogar ríkja Evrópu-
sambandsins sam-
þykktu í gær að hvika
hvergi frá áformum um
upptöku sameiginlegrar
myntar fyrir aldamót.
—*-------------------
Olafur Þ. Stephensen
segir að þar með hafi
þeir haldið fast við mik-
ilvægan áfanga í sam-
runaþróuninni í Evrópu.
fresta gildistöku EMU hefðu þeir í
fyrsta lagi verið að heykjast á afar
mikilvægum áfanga í samrunaþró-
uninni í Evrópu. Slíkt hefði haft
óvissu í för með sér og dregið enn
úr líkum á að verulegur árangur
náist á ríkjaráðstefnu ESB, sem
hefst á næsta ári.
í öðru lagi mátti búast við öng-
þveiti á fjármálamörkuðum, hefðu
leiðtogarnir breytt um stefnu.
Markaðirnir hafa búið sig undir
upptöku sameiginlegrar myntar og
treysta aukinheldur á þá stefnu
Ófrumlegt en lítt umdeilt
EVRÓ þykir ekki frumlegt nafn
á nýju Evrópumyntina. Það er
hins vegar það nafn, sem öli
Evrópusambandsríkin geta sætt
sig við. Stærsti kostur nafnsins
er líklega sá að það hljómar mjög
svipað á öllum þjóðtungum Evr-
ópusambandsins.
Leiðtogar ESB-ríkjanna og
fjármálaráðherrar þeirra náðu
samkomulagi um að „Evró“ yrði
letrað á seðla og mynt, sem sett
verða í umferð eigi síðar en árið
2002, bæði með latnesku og
grísku letri.
Leiðtogarnir höfnuðu því að
bæta nafni núverandi myntar
hvers aðildarríkis aftan við nafn-
ið (Evró-peseti, Evró-pund) til að
sýna að þeim væri alvara með
áformum sínum um sameiginlega
mynt.
Ekki hefur ákveðið hvernig
Evró skiptist í smærri einingar.
Yves-Thibault de Silguy, sem fer
með peningamál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, sagði
í gær að sér virtist augljóst að
Evró yrði skipt í hundrað eining-
ar. De Silguy varpaði fram þeirri
hugmynd að þessar einingar
gætu áfram heitið því nafni, sem
þær gerðu nú í hveiju ríki — til
dæmis sentímur, pens, fenningar
eða aurar.
upúkinn
...hlífir engum óhreinindum
Aukahlutasett
1.990,
ef keypt meö
ryksugupúkanum
w Aðeins kr.
5 ■ 9 9( ).d
Wr
(+ póstkröfu og burðargjald kr. 395,- /
innifalið ef greitt er með greiðslukorti)
Sími 564 4000
Nýbýlavegi 18, Kóp.
Reuter
LEIÐTOGAR hinna fimmtán aðildarríkja Evrópusambandsins
við fundarborðið í Madríd i gær. Fremst sitja Jacques Chirac,
forseti Frakklands, og Herve de Charette utanríkisráðherra.
efnahagslegs stöðugleika og lágrar
verðbólgu, sem skilyrði Maastricht-
sáttmálans fyrir þátttöku í EMU
neyða ríkisstjórnir aðildarríkjanna
í raun til að fylgja.
í þriðja lagi vildu leiðtogarnir
alls ekki stefna þeim árangri, sem
þegar hefur náðst í ríkisfiármálum
í ýmsum Evrópuríkjum í hættu eða
senda til dæmis frönskum verkfalls-
mönnum þau skilaboð að hugsan-
lega yrði komið til móts við kröfur
þeirra. Lok sumra verkfalla í Frakk-
landi er talið hafa orðið leiðtogunum
nokkur hvatning að halda fast við
EMU-áformin.
Hvað með þá sem verða
utan EMU?
Það er þó langt í frá að öll vanda-
mál varðandi upptöku sameigin-
legrar myntar hafi verið leyst. Þar
ber hæst hvernig hátta eigi sam-
bandi EMU-ríkjanna við þau Evr-
ópusambandsríki, sem ekki verða
stofnríki Efnahags- og mynt-
bandalagsins. Danmörk og Bret-
land, sem ekki þurfa að taka þátt
í bandálaginu, vilja láta gera ýtar-
lega úttekt á þessu máli, sem liggi
fyrir á síðari hluta næsta árs, þann-
ig að hægt verði að ræða málið á
leiðtogafundi í Dublin að ári. ítal-
íu, sem tekur við formennsku i
ráðherraráði ESB um áramótin,
hefur verið falið að standa að slíkri
úttekt.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, benti í gær á þá hættu
að sameiginlega myntin öðlist fljót-
lega mjög sterka stöðu og ríki utan
myntbandalagsins keppist þá við
að fella eigin gjaldmiðla gagnvart
Evróinu og auka verndarstefnu á
ýmsum sviðum. Slíkt gæti eyðilagt
hinn sameiginlega markað Evrópu-
sambandsins, sagði Major.
Major elnangraður
Major var sá eini af leiðtogunum,
sem lét opinberlega í ljós efasemdir
um samkomulagið, sem hann sam-
þykkti þó sjálfur. Major var í erf-
iðri stöðu. Talið er að hann hafi
vonað að Chirac Frakklandsforseti
yrði meira hikandi en raun bar vitni
við að keyra EMU-áformin áfram.
Chirac lét hins vegar óróann heima
fyrir ekki á sig fá.
Þá logar íhaldsflokkur Majors
nú í deilum um þátttöku Bretlands
í myntbandalaginu. John Redwood,
sem keppti við Major um flokksleið-
togaembættið, hefur nýlega hafið
herferð gegn EMU, en áhrifamiklir
íhaldsmenn hafa hins vegar svarað
honum af hörku og krafizt þess að
Bretland haldi þeim möguleika opn-
um að taka þátt í EMU.
Geoffrey Howe, fyrrverandi
utanríkisráðherra, sem segja má að
hafi sært Margaret Thatcher fyrsta
sárinu, er hún var hrakin frá völd-
um, með árás á Evrópustefnu henn-
ar, sagði fyrr í vikunni að setti
Major sig upp á móti Evrópumynt-
inni væri það dómgreindarbrestur,
sem myndi leiða til falls hans.
/ieute/'s-fréttastofan hafði eftir
diplómötum annarra ESB-ríkja í
gær að Major væri enn einangraðri
en áður í hópi leiðtoganna. Litlar
líkur væru á að hann gæti unnið
þingkosningarnar, sem verða eftir
hálft annað ár, og margir leiðtog-
anna litu nú á einangrun hans sem
hans einkavandpmál, fremur en
vandamál Evrópusambandsins.
Almenningur fær Evró-
mynt í hendur árið 2002
Madríd. Heuter.
HELZTU atriði samkomulagfs
leiðtoga ESB-ríkjanna um upp-
töku sameiginlegrar Evrópu-
myntar eru eftirfarandi:
• Myntin verður kölluð Evró.
• Akveðið verður „eins
snemma og hægt er“ á árinu
1998 hvaða ESB-ríki uppfylli
skilyrði fyrir þátttöku í EMU og
byggt verður á hagtölum ársins
1997. Þetta á að tryggja að
ákvörðunin verði tekin á grund-
velli eins áreiðanlegra upplýs-
inga og mögulegt er, en ekki svo
seint að það stefni takmarkinu
um upptöku Evrópumyntar 1.
janúar 1999 í hættu.
• Frá og með 1999 verða allar
ríkisskuldir gefnar út í Evróum,
þar á meðal ríkisskuldabréf.
Þjóðveijar féllu frá kröfu sinni
um að fá að halda áfram að
gefa ríkisskuldabréf út í mörk-
um um einhvern tíma.
• Mynt hvers ríkis fyrir sig
verður áfram löglegur gjaldmið-
ill í almennum viðskiptum í þrjú
ár eftir upptöku Evrósins í
banka- og fyrirtækjaviðskiptum.
Arið 2002 fær almenningur hins
vegar Evró-mynt og -seðla í
hendur. Gjaldmiðill hvers ríkis
fellur endanlega úr gildi að lokn-
um hálfs árs aðlögunartíma, um
mitt ár 2002.
Nokkur atriði eru áfram óleyst
eftir leiðtogafundinn, þar á meðal:
• Skipting Evró í smærri eining-
Nar.
• Framtíð núverándi ríkis-
skulda ESB-ríkja og hvort þeim
þarf að breyta í Evró fyrir ein-
hvern ákveðinn tíma.
• Ymistæknilegúrlausnarefni.
■