Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 24

Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 MORG UNBLAÐIÐ ERLENT Reuter Fagnaðarfundir „Móttökumar voru óblíðar“ Annar frönsku flugmannanna segir þá hafa sætt harðræði af hálfu Bosníu-Serba París. Reuter. Kwasni- ewski biðst afsökunar Varsjá. Reuter. ALEKSANDER Kwasniewski, sem tekur við embætti forseta Póllands í næstu viku, baðst í gær í fyrsta skipti opinberlega afsökun- ar á því að hafa villt um fyrir kjós- endum með því að halda því fram að hann hefði meistaragráðu í hag- fræði. „Eg vil taka fram að ég sé eftir þessu, ég vil segja að mér þykir þetta mjög miður - að öllum líkind- um hefði mátt komast hjá þessu,“ sagði Kwasniewski á fundi sem sjónvarpað var í Póllandi. Kwasniewski hefur einnig sætt gagnrýni fyrir að láta hjá líða að skýra frá arðvænlegum fjárfest- ingum eiginkonu sinnar í trygging- arfélagi í yfirlýsingu sem hann varð að leggja fram sem þingmað- ur um hagsmuni hans utan þings- ins. Walesa mætir ekki Kwasniewski, sem er fyrrver- andi kommúnisti, sver embættiseið forseta 23. desember og Lech Walesa, fráfarandi forseti og erkió- vinur kommúnista, ætlar ekki að vera viðstaddur athöfnina. „Af formlegum og siðferðilegum ástæðum, og vegna virðingar fyrir okkar dýrlega lýðveldi, get ég ekki tekið þátt í þessari athöfn,“ sagði Samstöðuleiðtoginn fyrrverandi. NORODOM Sihanouk, konungur Kambódíu, faðmar víetnamska hershöfðingjann Vo Nguyen Giap að sér í upphafi fundar sem þeir áttu í Hanoi í gær. Shianouk er í opinberri heimsókn í Víetnam en tveir áratugir eru frá því að hann sótti Víetnama síðast heim, ANNAR frönsku flugmannanna sem Bosníu-Serbar skutu niður nærri Pale í Bosníu í ágúst sl., seg- ir að Serbar hafi farið ómjúkum höndum um þá. Báðir flugmennirn- ir fótbrotnuðu er þeir lentu eftir að hafa skotið sér út úr flugvél ,sinni, og biðu örlaga sinna á jörðu niðri, ófærir um að hreyfa sig. Lágu flugmennirnir með hendur á höfði er bóndi vopnáður veiðibyssu tók þá höndum. Bosníu-Serbar létu þá lausa á þriðjudag eftir að hafa hald- ið þeim í 104 daga. Flugmaðurinn, Jose Souvignet, og félagi hans, Frederic Chiffot, voru fljótlega fluttir frá bóndanum af vopnuðum mönnum sem hringdu til yfirmanna sinna til að fá fyrir- skipun um hvað skyldi gera, að sögn Souvignets. Þegar hann var spurður hvort að þeir hefðu verið beittir ofbeldi, sagði hann: „Ég get lítið talað um það en það má segja. . . að móttök- urnar hafí verið óblíðar." Þrátt fyrir að flugmennimir væru báðir fótbrotnir, fengu þeir aðeins lágmarksaðhlynningu áður en Ratko Mladic, yfirmaður herafla Bosníu- Serba, yfirheyrði þá. „Meiðsli okkar voru svo alvarleg að nauðsynlegt var að flytja okkur á sjúkrahús sem var betur búið tækjum og þar gengumst við undir skurðaðgerð,“ segir Sou- vignet. „Þar sáum við Mladic aftur. Hann var viðstaddur báðar skurðað- gerðirnar." Skildir að Er flugmennirnir höfðu jafnað sig að einhveiju leyti, voru þeir fluttir í fangelsi og svo á annan þar sem læknar vitjuðu þeirra reglulega og skiptu um umbúðir. Síðar voru flugmennirnir skildir að og segir Souvignet það hafa verið erfiðasta tímann. Nokkrum spurningum blaða- manns Est Republique, sem tók við- talið við Souvignet, kvaðst hann ekki geta svarað. Blaðamaðurinn hafði greinilega fengið einhveijar upplýsingar um fangavist flug- mannanna, m.a. þá að bundið hefði verið fyrir augu þeirra í lengri tíma. Souvignet sagði að þeir hefðu verið klæddir í náttföt af sjúkrahús- inu allan tímann. Þegar hann var spurður hvort að þeim hefði orðið mjög kalt, svaraði hann: „Þetta var ekki alltaf auðvelt." LEIKl'R FYRIR ELSKENDUR OG ÁSTFAXGIÐ FÓLK Leikur og Iosti er nýr og spennandi leikur fyrir 18 ára og eldri. Hvor leikandi fyrir sig fær bók sem hefur að geyma leyndardóinsfullar upplýsingar um hlutverk hans eða hennar, svo og spil sem leiðir þau um óvæntar og forvitnilegar lendur ástar og unaðssemda. Dreifing: Sími 565 4444 Stríðsástandi ekki Pale, Sar^jvo, Belgrad. Reuter. aflýst í Sarajevo RADOVAN Karadzic, leiðtogi Bosn- íu-Serba lýsti því yfir í gærmorgun að stríðsástand ríkti ekki lengur í Bosníu, að Sarajevo undanskilinni. Áður höfðu leiðtogar Serba keppst við að fullvissa Bosníu-Serba um að öryggis þeirra verði gætt í hvívetna í borginni. Slobodan Milosevic sagði „ekkert rúm fyrir kvíða eða áhyggj- ur“ og einn leiðtoga Bosníu-Serba, Nikola Koljevic, „varaforseti" Bosn- íu-Serba, tók í sama streng, sagðist hafa fengið tryggingar fyrir því að þeir Serbar sem vildu búa áfram í Sarajevo myndu njóta verndar. SRATA-fréttastofa Bosníu-Serba sagði í gær að ákvörðun yrði tekin síðar um hvort stríðsástand yrði áfram í hverfum sem Serbar byggja í Sarajevo. Á öðrum svæðum skil- greindi Karadzic ástandið nú sem „stríðshættuástand". Herir Bosníu- Serba hafa þegar tekið til við að flytja vopn sín á brott og það að stríðsástandi skuii vera aflétt gerir stjórn Bosníu-Serba mögulegt að fá fjárveitingar til uppbyggingar. Vilja sjálfstjórn í Sarajevo Hverfin sem Serbar byggja í Sarajevo og eiga að láta af hendi stjórn á í ársbyijun 1996 eru Ilidza, Vogosca, Ilijas og Grbavica. Um 40.000 Serbar búa í þessum hverfum og óttast þeir um líf sitt vegna þess að múslimar kunni að vilja hefna dauða um 10.500 manna sem létu lífið í umsátri Bosníu-Serba um borgina. Bosníu-Serbar hafa óskað eftir tryggingum, allt frá hervernd til sjálfsstjórnar til að tryggja að Serb- ar í Sarajevo geti búið áfram í hverf- um sínum. Leiðtogar ríkjanna sem undirrituðu samninginn hafa þver- tekið fyrir það að gerðar verði á honum breytingar, t.d. hvað varðar sjálfstjórn. Momcilo Krajisnik, forseti þings Bosníu-Serba í Pale, sagði að „loforð og tryggingar alþjóðlegra sáttasemj- ara væru fyrir hendi, sérstaklega frá Carl Bildt," en Sameinuðu þjóðirnar hafa skipað Bildt sérlegan eftirlits- mann með uppbyggingunni í Bosníu. Embættismenn fimmveldanna vör- uðu í gær við því að leiðtogar Bosn- íu-Serba hefðu ítrekað mistúlkað eða ýkt stórlega orð alþjóðlegra sátta- semjara. Bildt sendi fulltrúa sína til Sarajevo í gær til að eiga viðræður við fulltrúa íbúa þar. Staða Sarajevo verður rædd á þingi Bosníu-Serba í Pale í dag og er talið að andstæðingar Karadzic muni reyna að grafa enn frekar undan völdum hans. Búist er við að stuðningsmenn hans í stjórninni í Pale kunni að hrekjast úr embættum sínum og láta þau eftir stjórnmála- mönnum sem fylgja Milosevic Serb- íuforseta að málum. Zhírínovskíj lýkur kosningabaráttunni Vesturlöndum kennt um öll vandamálin Moskvu. Reuter. RÚSSNESKI þjóðernissinninn Vladímír Zhírínovskíj lauk kosningabaráttu sinni í gær með skammaræðu yfir Vesturlöndum þar sem hann kenndi þeim um öll vandamá! Rússlands. „Meðan þið voruð að japla tyggigúmmí og éta Snick- ers vorum við að leggja undir okkur geiminn," sagði Zhírínovskíj í 45 mínútna einræðu á blaðamannafundi í Moskvu. Mestur tíminn fór í að gagnrýna Vesturlönd, einkum Bandaríkin sem hann lýsti sem „landi flótta- manna og ræningja" sem hefði staðið á bak við sam- særi um að leysa Sovétríkin upp árið 1991. Zhírínovskíj seildist langt aftur í aldir eftir dæmum um yfirgang Vesturlanda gagnvart Rússum. Hann sagði Veslurlönd hafa hvað eftir annað ráðist inn í Rússland, hneppt Rússa í ánauð, rænt þá og sölsað undir sig rússneskar auðlindir. Hann kenndi jafnvel Vesturlöndum um landvinninga mongóla í Rússlandi á 13. öld. Zhírínovskíj fór einnig hörðum orðum um helstu and- stæðinga sína. Hann lýsti Borís Jeltsín sem „hálfgild- ings líki“ sem læknar væru að drepa, eins og læknar hefðu orðið Jósef Stalín að bana með eitri að fyrirmæl- um ráðamanna á Vesturlöndum árið 1953. Flokkur Zhírínovskíjs, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, hefur átt undir högg að sækja í kosningabaráttunni og örvæntingar hefur gætt í tilraunum hans til að snúa vörn í sókn. Árið 1993 fékk flokkurinn tæp 23% í þeim hluta kosninganna þar sem kosið var um landslista flokk- anna, en talið er að hann geti vel við unað fái hann helming þess fylgis nú.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.