Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 43 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR SÍÐASTLIÐINN vetur birtist hér í Morgunblað- inu greinaflokkur eftir einn af blaðamönnum blaðsins, þar sem fjallað var um enda- lok Sambands ísl. samvinnu- félaga og uppgjör á skuld- bindingum þess við Lands- banka íslands, sem var aðal viðskiptabanki Sambands- ins, meðan það var umsvifa- mesta viðskiptasamsteypa, sem rekin hefur verið á ís- landi. Greinaflokkur þessi átti sér langan aðdraganda. Fyrir um það bil tveimur og hálfu ári hófust umræður á ritstjórn Morgunblaðsins um nauðsyn þess að gera enda- lokum þessa mikla við- skiptaveldis einhver skil. Niðurstaða þeirra umræðna og þeirrar vinnu, sem fór fram nokkru síðar birtist í fyrrnefndum greinaflokki. Greinar þessar voru -að sjálf- sögðu skrifaðar að frum- kvæði ritstjóra Morgun- blaðsins og á þeirra ábyrgð, þótt einn af blaðamönnum blaðsins, Agnes Bragadótt- ir, skrifaði þær undir nafni. Fullt og náið samráð var á milli blaðamanns og rit- stjóra Morgunblaðsins um skrif greinanna og endan- legan frágang þeirra til birt- ingar. Markmiðið með greinum þessum var tvíþætt. í fyrsta lagi að gera einhverja grein fyrir því, hvernig mesta við- skiptaveldi íslandssögunnar gat hrunið með þeim hætti, sem Sambandið gerði og hins vegar á hvern veg, þjóð- bankanum, Landsbanka ís- lands, tókst að lágmarka tap sitt og þar með viðskipta- manna bankans vegna þessa hruns. Hér voru miklir al- manna hagsmunir í húfi og eðlileg krafa, að almenning- ur hefði aðgang að einhverj- um upplýsingum um þetta mál. Þegar greinarnar birt- ust var viðskiptum Sam- bandsins að langmestu leyti lokið. Hér var því um að ræða að safna saman upp- lýsingum um sögulegar staðreyndir, sem engan gátu skaðað en ekki upplýsingum um viðskipti fyrirtækis í fullum rekstri við viðskipta- banka sinn. Slíkar sögulegar upplýsingar um viðskipti fyrirtækja við banka hafa áður komið fram m.a. um viðskipti Landsbankans við Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Kveldúlf hf. án þess, að ríkissaksóknari og Rann- sóknarlögregla ríkisins hafi komið til sögunnar. Þegar fréttir birtust í öðr- um fjölmiðlum um, að bankastjórn Seðlabankans hefði sent erindi til ríkissak- sóknara vegna birtingar þessara greina og meints brots á bankaleynd höfðu ritstjórar Morgunblaðsins samband við formann bankastjórnar Seðlabank- ans og óskuðu eftir að fá í hendur þær upplýsingar, sem bankinn hefði sent til ríkissaksóknara. Þeirri ósk var hafnað á þeirri forsendu, að öðrum fjölmiðlum hefði verið neitað um slíkar upp- lýsingar og eitt yrði yfir alla að ganga. Þegar á það var bent, að krafa Seðlabankans um rannsókn beindist að Morgunblaðinu en ekki öðr- um fjölmiðlum var því svar- að til, að hún beindist ekki að blaðinu heldur meintum brotum bankastarfsmanna. Eins og öllum er nú Ijóst hefur þetta mál frá upphafi snúizt um þann grundvallar- rétt blaðamanna að vernda heimildir sínar, rétt, sem er virtur í lýðræðisríkjum um heim allan. Þegar blaðamaður Morg- unblaðsins var kvaddur til yfirheyrslu hjá Rannsóknar- lögreglu ríksins neitaði hann að svara spurningum rann- sóknarlögreglumanna um heimildarmenn sína. Rann- sóknarlögreglan krafðist þess þá, að Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði, að blaðamaðurinn væri skyldur til að gefa slíkar upplýs- ingar. í greinargerð, sem Rann- sóknarlögregla ríkisins lagði fram í Héraðsdómi Reykja- víkur hinn 5. desember sl. ef vegið alvarlega að heiðri Morgunblaðsins og starfs- heiðri þess blaðamanns, sem greinarnar skrifaði. Þar eru birtar stuttar tilvitnanir í umræddar greinar og síðan segir:„Þessar glefsur bera meginmarkmiði blaðagrein- anna vitni; að varpa ljóma á tiltekna starfsmenn Lands- banka íslands á kostnað við- skiptamanns Landsbanka Islands og fyrirsvarsmanna hans, Sambands íslenzkra samvinnufélaga. A birting trúnaðarupplýsinga af þessu tagi og með hætti sem gert var tæpast nokkuð skylt við lýðræðislegt hlutverk fjöl- miðla.“ Það er með ólíkindum, að slík orð skuli látin falla af hálfu Rannsóknarlögreglu ríkisins í umræddri greinar- gerð. Meginmarkmið blaða- greinanna var að upplýsa almenning á íslandi um málefni, sem vörðuðu al- manna hagsmuni. Þeir al- manna hagsmunir liggja í augum uppi, þar sem spurn- ing var um hvort miklir fjár- munir töpuðust eða hvort þeim yrði hægt að bjarga að hluta til. í greinargerð Rannsókn- arlögreglu ríkisins eru einn- ig hafðar uppi dylgjur í garð fyrirsvarsmanna Lands- banka íslands. Þar segir: „Ætla má að í því tilviki, sem hér er fjallað um, hafi fyrirsvarsmaður ríkisbanka, bankastjóri eða bankaráðs- maður, brugðizt trúnaði við- skiptamanns hrapallega og um leið bankanum, sem hann starfar við.“ Væri ekki við hæfi að Rannsóknarlög- regla ríkisins sannaði slíkar fullyrðingar í stað þess að hafa uppi dylgjur sem þess- ar? Þeir sem starfa við fjöl- miðla vita hins vegar, að upplýsingar berast oft til þeirra með margvíslegum hætti og ekki alltaf á þann veg, sem þeir sem utan við standa telja að liggi beinast við. Héraðsdómur Reykjavík- ur komst að þeirri niður- stöðu í gær, að blaðamanni Morgunblaðsins væri skylt að koma fyrir dóm, sem vitni til skýrslugjafar. Rök hér- aðsdómsins eru þau, að svo ríkir hagsmunir séu í húfi að komast að niðurstöðu um það, hvort bankamenn hafi rofið bankaleynd og að skil- virkni bankaeftirlits verði ekki rýrð, að þeir séu ríkari en þeir hagsmunir, sem lúta að frjálsri blaðamennsku og rétti blaðamanna á íslandi til að vernda heimildir sínar, rétti, sem er viðurkenndur í lýðræðisríkjum um allan heim. Af hálfu Morgunblaðsins hefur þessi úrskurður þegar verið kærður til Hæstaréttar íslands. Þetta mál snýst nú um grundvallaratriði frjálsr- ar blaðamennsku fyrst og síðast en ekki hagsmuni Sambandsins, sem hefur ekki skaðazt á nokkurn hátt, eins og raunar kemur fram í forsendum úrskurðarins. Þeir hagsmunir, sem í húfi eru snúast um starfsskilyrði og aðstöðu fjölmiðla og starfsmanna þeirra til þess að halda uppi upplýsinga- miðlun um mikilsverð mál- efni, sem varða almannahag. Slíkt mál hefur ekki fyrr komið upp á tímum lýðræðis á íslandi. Engir hagsmunir geta verið ríkari en þeir, sem snúa að lýðræði, tjáningar- frelsi og rétti almennings til upplýsinga, sem varða hags- muni hans. Þessa hagsmuni er Morgunblaðið að verja. RETTUR BLAÐA- MANNA - RÉTTUR FÓLKSINS Friðargæsla NATO í fyrrum Júgóslavíu FRIÐARSAMNINGAR hafa verið undirritaðir og senn taka hersveitir Atlants- hafsbandalagsins (NATO) að flykkjast til Bosníu til að sinna þar friðargæslu, sem verður viða- mesta verkefni í sögu bandalagsins. Líkt og ævinlega þegar lagt er út í herfarir hefur sú ákvörðun Bills Clintons Bandaríkjaforseta að leggja til 20.000 manna lið í þessu skyni mætt verulegri andstöðu í Banda- ríkjunum þar sem almenningur er minnugur þess er ungir hermenn sneru í tugþúsunda tali heim aftur frá Víetnam liðin lík. Aðrir hafa líkt Bosníu-herförinni við afskipti Bandaríkjamanna af borgarastyij- öldinni í Líbanon í byrjun síðasta áratugar, sem lauk með háðuglegri niðurlægingu. Enn aðrir hafa aftur á móti vísað tii herfararinnar til Sómalíu, sem George Bush forseti fyrirskipaði í mannúðarskyni skömmu áður en hann lét af emb- ætti og snerist upp í allsheijarmar- tröð fyrir bandarísku þjóðina með tilheyrandi sjónvarpsmyndum af villimönnum dragandi lík banda- rískra hermanna um götur og torg. Forseti Bandaríkjanna tekur ávallt mikla áhættu er hann ákveður að beita herafla landsins og svo er einnig nú. Forsetakosningar fara fram í Bandaríkjunum næsta haust og Bill Clinton mun ekki ná endur- kjöri mistakist herförin til Bosníu. Fréttaskýrendur vitna oftlega til reynslunnar frá Víetnam þegar slík- ar herfarir eru í undirbúningi og almenningur fyllist að öllu jöfnu skelfingu yfir því að enn standi til að úthelia blóði bestu sona þjóðar- innar á erlendri grundu. Skýr markmið Reynslan frá Libanon hræðir einnig og hún varð m.a. til þess að menn, einkum í varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjanna, tóku að krefj- ast þess að skýr pólitísk markmið lægju ávallt fyrir áður en heraflan- um væri beitt. Enda er það svo að ráðamenn í varnarmálaráðuneytinu hafa lagst gegn velflestum friðar- gæsluverkefnum sem upp hafa kom- ið frá því að Kalda stríðinu lauk. Nú veltir almenningur í Banda- ríkjunum því fyrir sér hvort Clinton forseti sé að leggja út í svipað mýrarfen og forverar hans gerðust sekir um í Víetnam. Andstæðingar forsetans á þingi hafa margir hverj- ir haldið því á lofti að hér sé um stórhættulega aðgerð að ræða og að verið sé að krefjast fórna sem þjóðin sé engan veginn tilbúin að færa. Af pólitískum ástæðum er hyggi- legt fyrir fjendur forsetans að vara við þessari herför því fari hún illa munu þeir standa uppi sem sigur- vegarar. Þá er þess að geta að ein- angrunarhyggja hefur farið vaxandi í Bandaríkjunum á síðustu árum og í röðum almennings er sú skoðun nokkuð viðtekin að ekki sé rétt- lætanlegt að beita hernum í Bosníu í því skyni að þröngva stríðandi fylk- ingum þar til að virða gerða samn- inga. Þær raddir munu að sjálfsögðu gerast háværari endi þessi herför illa og pólitískar afleiðing- _____ ar þess yrðu án nokkurs vafa mjög alvarlegar. En er Bill Clinton Bandaríkjaforseti að end- urtaka mistökin frá Víet- nam, Líbanon og Sómalíu? Færa má rök fyrir því að svo sé ekki. Sennilega er ekki hyggilegt að spá fyrir um þróun mála á svæði þar sem gerst hafa svo skelfilegir at- burðir sem í lýðveldum fyrrum Júgó- slavíu. Hér skulu engu að síður færð rök fyrir því að þessi herför verði ekki borin saman við afskipti Banda- ríkjamanna af málefnum Víetnam og aðstæður í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu séu allt aðrar en þær sem ríktu þegar rúmlega 50.000 Banda- ríkjamenn féllu í bardögum við skæruliða Viet Cong. Clinton forseti hefur í ræðum sín- um lagt á það áherslu að mikil áhætta sé samfara friðargæsluverk- efninu í fyrrum Júgóslavíu. Hann hefur varað þjóð sína við að herför- Reuter BRESKIR hermenn í brynvögnum á ferð nærri Gorníj Vakúf í Bosníu. Ekki annað i Víetnam Friðarsamningar stríðandi fylkinga í Bosníu voru undirritaðir í París á fimmtudag. Asgeir Sverrísson segir frá því verkefni sem bíður friðargæslusveita NATO og telur að því verði ekki líkt við mislukkuð hemaðarafskipti Bandaríkjamanna í Víetnam og Líbanon. Aðgerðirnar í Bosníu verða ekki landvinn- ingastríð in komi til með að kosta mannslíf og fyrir liggur að réttnefndir öfga- menn í lýðveldum þessum hafa hót- að því að skapa sams konar ástand í Bosníu og forðum ríkti í Líbanon. Hvers vegna verður verkefnið í Bosníu ekki borið saman við herför- ina til Víetnam? Þess er fyrst að geta að ákvörðunin um að senda friðar- ________ gæslulið til Bosníu full- nægir flestum þeim skil- yrðum sem bandarískir herforingjar hafa komið sér saman um á síðustu árum að séu forsendur —” þess að vænta megi árangurs. Markmiðin eru skýr, styrkur heraflans gífurlegur, liðs- aflinn mun lúta stjórn NATO, regl- ur þær sem skilgreindar hafa verið um beitingu vopnavalds eru af- dráttarlausar og vera sveitanna í fyrrum Júgóslavíu verður bundin við eitt ár. Talsmenn Bandaríkja- hers hafa ítrekað lagt á það áherslu að sérhverri ógnun við gæsluliðið verði svarað af fullum þunga og víst er að leiðtogum Serba, Króata og múslima er fullkunnugt um að slagkraftur liðsaflans verður nýttur til fullnustu ógni sveitir þeirra frið- argæsluliðinu. NATO-herinn mun m.a. ráða yfir sérlega öflugum skriðdrekum af gerðinni Ml-Al og árásarþyrlum af Apache-gerð sem sönnuðu eftir- minnilega gildi sitt í Persaflóastríð- inu. Sveitirnar munu hafa til taks nýjan búnað sem ætti að auðvelda þeim verkefnið. Þannig verða Ap- ache-þyrlurnar búnar myndavélum sem geta sent myndir til stjórnstöðv- ar á innan við 90 sekúndum auk þess sem notast verður óspart við loftmyndir frá gervihnöttum og munu njósnavélum. __________________ í öðru lagi liggur fyrir |\/larkmið og skrifleg yfírlýsing frá hendi leiðtoga Serba, múslima og Króata þár sem þeir, í anda friðarsamninganna sem —— þeir staðfestu í Dayton í Ohio-ríki í Bandaríkjunum, heita því að tryggja öryggi hermanna Bandaríkjanna og annarra þeirra þjóða sem leggja munu fram liðsafla í þessu skyni. Ábyrgð þeirra liggur því fyrir og um hana verður ekki efast. Markmið og verkefni NATO- sveitanna eru skýr. Þeim er ætlað að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu og eðlilegu þjóðlífí með því að tryggja friðinn. Hermennirnir munu taka sér stöðu á svæði rnilli hinna stríðandi fylkinga og munu tryggja öryggi hjálparstarfsmanna og sér- fræðinga sem ætlað er að vinna að endurreisn landsins. Liðsaflinn mun ekki aðstoða við að dreifa hjálpar- gögnum, mun ekki tryggja öryggi* flóttamanna og mun sem minnst afskipti hafa af pólitískri framvindu mála. Þetta sýnir að bandarískir ráðamenn hafa dregið rökréttar ályktanir af reynslunni frá Sómalíu og Haítí. En það eru fleiri ástæður fyrir því að vafasamt er að bera friðar- gæsluna í Bosníu saman við stríðið í Víetnam. Sveitir Viet Cong nutu öflugs stuðnings Norður-Víetnam, Sovétríkjanna og Kína. Baráttuþrek stjórnarhersins í Suður-Víetnam var ekkert og hamslaus spilling ríkjandi; algengt var að hermenn seldu and- stæðingunum vopn sín. Norður- Víetnam var fullbúið til bardaga, hafði raunar verið það frá 1955 er sigur vannst á gömlu nýlenduherr- unum Frökkum, og ráðamenn i norðrinu voru öldungis ákveðnir í að sameina landið. Þrautþjálfaðir atvinnumenn Bandarísku hersveitirnar sem sendar voru til Víetnam verða ekki bornar saman við þær £em fara til Bosníu. í Víetnam var að finna unga menn sem gert var að sinna her- skyldu og þeim var einungis ætlað að vera eitt ár í landinu. Af þessum sökum var liðsafli þessi upp til hópa setur saman af reynslulausum mönnum og skilgreind tímamörk urðu ekki til að hvetja þá til dáða, sérstaklega þegar líða tók að því að menn ættu rétt á að hverfa burt úr því víti sem Víetnam var. Þessum liðsafla var og ætlað að vinna fulln- aðarsigur í stríði við óvin sem bjó yfir miklu baráttuþreki og þekkti ekki hugtakið uppgjöf. Ekkert af þessu á við um Bosníu. Vopnaflutningur erlendis frá til landins hafa að visu farið fram eink- um frá Mið-Austurlöndum en þeir hafa verið óstöðugir. Ekkert utanað- komandi ríki er fullbúið til bardaga, líkt og Norður-Víetnam var og sam- einingarkrafan fer ekki lengur hátt, þótt Serbar hafi mjög haldið henni á lofti á fyrstu árum blóðsúthelling- anna í fyrrum Júgóslavíu. Liðsaflinn sem fer frá Bandaríkjunum er at- vinnumannaher, mun betur þjálfað- ur og betur búinn en sá sem hélt til Víetnam. Þá munu NATO-sveit- irnar ekki mæta fullbúnum herafla óvina sem er ákveðinn í að halda stríðinu áfram. Stríðandi fylkingar í Júgóslavíu eru í raun minnihluta- hópar sem þjakaðir eru af gífurlegri stríðsþreytu eftir hamslaus mann- dráp og grimmdarverk síðustu fjög- urra ára. Loks munu Bandaríkja- menn ekki einir bera ábyrgð á her- förinni þótt þeir leggi fram 20.000 af þeim 60.000 hermönnum sem sendir verða til fyrrum Júgóslavíu. Fjölmörg ríki munu taka þátt þ.á m. hinir fornu fjendur Rússar. Aðgerðirnar í Bosníu verða ekki landvinningastríð. Eins og fram kom nýverið í úttekt blaðamanns Morgunblaðsins sem fór'til Bosníu eru samgöngur allar í landinu sér- lega erfiðar vegna þess hve mann- virki, vegir og brýr, hafa orðið illa úti í átökunum. NATO-sveitirnar munu leggja höfuðáherslu á að __________ stjórna öllu vegakerfinu. Þegar við bætist síðan öflugt eftirlit úr lofti má heita útilokað að einhveij- ar hinna stríðandi fylk- inga geti hleypt af stað meiriháttar hemaðarað- verkefni NATO-sveit- anna eru skýr gerðum án þess að tilhlýðileg viðvör- un berist til stjórnstöðva. Þá verður unnt að halda uppi óskoruðum birgðaflutningum í lofti til NATO- sveitanna. Valið er íbúa Bosníu Það endurreisnarstarf sem við blasir i Bosníu er aftur annað mál Ástæða er til að efast um að Serb- ar, múslimir og Króatar reynist til- búnir til að vinna saman að uppbygg- ingu heilbrigðs þjóðfélags eftir þá skelfingaratburði sem gerst hafa á þessum slóðum og þau myrkraverk sem allir stríðsaðilar hafa gerst sekir um. Það starf er aftur á móti ekki undir NATO og friðargæsluliðinu komið;»heldur sjálfum íbúum Bosníu. RUSSLAND Öllum brögðum beitt í landi óánægiunnar Þingkosningar fara fram í Rússlandi á morgun. Rússneskir stjómmálamenn láta sér í léttu rúmi liggja þótt málflutningur þeirra einkennist af mótsögnum, segir Jón Olafsson, og greinir frá því hvemig fylgið skiptist eftir búsetu og stöðu í Rússlandi. Reuter BARÁTTAN um atkvæðin í Rússlandi tekur á sig ein- kennilegar myndir. Þótt engum komi á óvart að stjórnmálamenn í kosningahug freistist til að segja það við fólk sem það vill heyra, þá reyna menn nú yfirleitt að Iáta í það minnsta líta svo út, að málflutningur þeirra sé ekki allur í þversögnum. En um slíkt skeyta rússneskir stjórnmálamenn ekkert frekar. Að minnsta kosti sum- ir þeirra, og því rniður einmitt þeir sem líkur eru á að sópi til sín atkvæð- unum í kosningunum sem haldnar verða í Rússlandi á sunnudaginn. Jafnaðarstefna eða gamaldags kommúnismi? Fremstur í flokki er Gennadíj Zjúg- anov, leiðtogi hins endurreista Kommúnistaflokks, en skoðanakann- anir benda til að Kommúnistaflokkur- inn fái langflest atkvæði af þeim 43 flokkum sem í framboði eru. Zjúg- anov hefur að undanförnu reynt að gefa þá mynd af sjálfum sér og Kommúnistaflokki sínum að þar séu á ferðinni skynsamir vinstri kratar. Menn sem líti einkavæðingu stjórn- valda afar gagnrýnum augum og vilji fara hægar í að umbylta rússnesku þjóðfélagi og efnahagslífi í átt til kapítalisma, en séu þó stuðningsmenn einkaframtaks að svo miklu leyti sem það geti verið þjóðfélaginu til góðs, stuðlað að auknum jöfnuði og hag- vexti. Allt lítur þetta ágætlega út. En þegar Zjúganov talar við það fólk sem telja má líklegustu kjósendur flokks hans, en það eru ellilífeyrisþeg- ar i stórborgunum og sveitafólk, eink- um í suður-Rússlandi, breytist ræðan dálítið. Nú er það mikilvægt mark- mið að endurreisa Sovétríkin, og snúa við einkavæðingunni sem hafi gjör- samlega farið úr böndunum, og draga Jeltsín og hans lið til ábyrgðar og svo framvegis og svo framvegis. En kosningabarátta Zjúganovs segir þó bara sína sögu um þróunina i rússneskri pólitík. Þegar kosið var fyrir tveimur árum voru rússneskir kjósendur ennþá engan veginn búnir að gera sér grein fyrir eðli fulltrúa- lýðræðisins. Þá réð persónufylgi ein- stakra manna og kannski fáein grundvallarviðhorf mestu um hvern- ig kosið var. Fylgi Zhirinovskíjs er sennilega besta dæmið um það. Það var ekki að menn deildu með honum hugmyndum um rússneska útþenslu- stefnu, eða stjórnkerfið í landinu. Hann var bara eini maðurinn sem var hress og hafði eitthvað að segja sem ekki hafði heyrst þúsund sinnum áður. En nú er öldin önnur. Það er ekki lengur hægt að tryggja sér atkvæði með sprelli, gamanmálum eða slags- málum. Leikurinn er miklu flóknari bæði fyrir lýðskrumara og fyrir al- VLADIMÍR Zhirinovskíj, Ieiðtogi þeirra þjóðernissinna sem lengst vilja ganga, ávarpar kosningafund á Púshkín-torgi í miðborg Moskvu. Floltkur hans vann stóran sigur í síðustu kosningum en flest bendir til að hann eigi mjög undir högg að sækja nú. varlega stjórnmálamenn. Hvernig er hægt að höfða til hinna mismunandi þjóðfélagshópa? Hvaða sögu þarf að segja ellilífeyrisþegum, hver dugar á unga fólkið, sveitafólkið, verkafólkið, menntafólkið og svo framvegis. I þessu er enginn vafi á að Kommún- istaflokkurinn hefur forskot á hina flokkana. Erfitt í einmenningskjördæmum Niðurstöður kosninganna 1993 sýndu hvernig pólitískar hneigðir almennings skiptust eftir búsetu og þjóðfélagsstöðu. Þannig virtust íhaldssöm öfl (Kommúnistaflokkur- inn, Bændaflokkurinn) eiga mest fylgi í Suður- og Vestur-Rússlandi og í Síberíu. Lýðræðisflokkarnir (Flokkur Gaidars, Flokkur Javl- inskíjs, Flokkur Shakhrais og Flokk- ur Popovs og Sobtsjaks) áttu mest í Moskvu og Pétursborg, í norðurhér- uðum Rússlands, í vestur-Síberíu og í Kyrrahafshéruðunum. Fylgi Zhir- inovskíjs var mikið um allt landið, og ekkert minna i héruðum þar sem lýðræðisflokkarnir höfðu betur gagnvart kommúnistum. Þetta munstur virðist ætla að styrkjast í kosningunum núna. Lýð- ræðisflokkarnir hafa langmest fylgi í Moskvu og Pétursborg, miðað við skoðanakannanir, og kommúnistar sækja sitt fylgi suður á bóginn. Zhir- inovskij á undir högg að sækja alls staðar. Það er meira að segja hugs- anlegt að hann hafí það ekki yfír 5 prósenta markið, en til þess að flokk- ur sem býður fram lista á landsvísu geti komið mönnum á þing þarf hann að fá að minnsta kosti 5 prósent atkvæðanna. ________ En landslistarnir, þótt þeir skipti mestu máli um styrk einstakra flokka á þingi, eru ekki allt sem kosið er um, því helmingur þingmanna er kosinn í ein- “““ menningskjördæmum. Þar er líklegt að skipting atkvæðanna verði dálítið öðruvísi en skiptingin á landsvísu. í fyrsta íagi er fjöldi óháðra frambjóð- enda í einmenningskjördæmunum. í öðru lagi eiga frambjóðendur flokka sem bjóða fram á landsvísu víða afar erfitt uppdráttar í einmenningskjör- dæmunum. Flestir stjórnmálaflokk- anna eru með afbrigðum illa skipu- lagðir. Fé skortir og mannafla og fæstir stóru flokkanna hafa skotið rótum utan Moskvu, Pétursborgar og fáeinna kjördæma í evrópska hluta Rússlands. Undantekningin frá þessu eru kommúnistar, en grasrót- arskipulag þeirra er til fyrirmyndar og þess vegna verða þeir sennilega eini flokkurinn sem nær umtalsverð- um árangri í einmenningskjör- dæmunum. Ekki einu sinni kosninga- samtök Tsjérnomyrdins forsætisráð- herra, Heimili vort Rússland, hefur getað komið sér upp sómasamlegum héraðaskrifstofum. Þó eru samtök Tsjernomyrdins sá flokkur sem lang- mestu fé hefur eytt í kosningabarátt- una. Lýðræðisflokkarnir líða fyrir sundurlyndi sitt í einmenningskjör- dæmunum, þvi þótt nokkrir þeirra hafi samið um að láta frambjóðendur sína ekki keppa, er raunin því miður oftar en ekki sú að tveir eða þrír frambjóðendur þeirra flokka sem kenndir eru við lýðræði slást um eitt og sama þingsætið, sem í flestum tilfellum á eftir að enda með að eng- inn þeirra fær það. Arftaki Zhirinovskíjs? En ef einhver flokkur á eftir að safna til sín nokkuð jöfnu fylgi um allt landið líkt og flokkur Zhir- inovskíjs á sínum tíma og hugsan- lega vinna sigra í einmenningskjör- dæmunum sem mark verður á tak- andi, þá er það flokkur þeirra Alex- andr Lebeds, Júríj Skokovs og Ser- gei Glazevs, Kongress Rússkíkh Obshíjn. Nafnið er þvi miður illþýð- anlegt, Samtök rússneskra samfé- laga kemst nálægt merkingunni. Þessi flokkur hefur á fáeinum mán- uðum orðið eitt af sterkustu stjórn- málaöflum í Rússlandi. Galdurinn á bak við þá velgengni virðist vera sá að leiðtogum flokksins hefur tekist að sjóða saman blöndu af þjóðernis- stefnu, efnahagslegri varkárni, og loforðum um að taka stjórn landsins miklu fastari tökum en núverandi stjórnvöld hafa gert og útrýma spill- ingu, glæpum og öðrum meinum rússnesks samfé- lags. En líkt og Zjúganov, leiðtogi Kommúnista- flokksins, hafa Lebed, ” Skokov og Glazev lika til- hneigingu til þess að tala á hveijum fundi eins og andrúmsloftið býður. Gallinn við þá eins og svo marga rússneska stjórnmálamenn er að hvað sem þeir kunna að segja nú eða hafa haldið fram í gegnum tíð- ina, þá eru þeir í raun óskrifað blað. Þess vegna eru þingkosningarnar nú kannski einkum mikilvægar i því að neyða menn til að skerpa stefnumál sín. Eftir kosningarnar gæti hið rétta andlit sumra komið í ljós, og þá fara línur líka að skýrast um væntanlega forsetaframbjóðendur næsta sumar. Því þrátt fyrir allt eru það forseta- kosningarnar í júní á næsta ári sem gætu markað tímamót í sögu Rúss- lands frekar en þingkosningarnar nú. Kommúnistar sækja sitt fylgi suður á bóginn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.