Morgunblaðið - 16.12.1995, Side 48
48 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Er kvótinn búinn?
Þversögnin
í DAG er lausnar-
orðið „aukin fram-
leiðni“. Fyrirtæki er ná
þeim árangri, t.d. í iðn-
aði, fá góðan orðstír
fyrir. Á undanförnum
árum hefur „fram-
leiðnin" ekki síður auk-
ist í heilbrigðisþjón-
ustunni.
Þrátt fyrir fækkun
starfsfólks hefur að-
gerðum fjölgað mikið
og meðallegutími styst
verulega. Sérgreina-
deildir okkar standast
svipuðum sérgreinadeildum ná-
grannalanda snúning í þessu efni.
Fleiri útskrifaðir sjúklingar á ís-
lenskum sérgreinasjúkrahúsum
koma á hvem heilbrigðisstarfsmann
en á svipuðum sjúkrahúsum t.d. í
Danmörku. Á sama tíma hefur
heildarkostnaður vegna heilbrigðis-
þjónustu, mælt sem hlutfall af
vergri þjóðarframleiðslu, lækkað og
er lægri en meðaltal OECD-ríkja.
Svo undarlega bregður við, að
upplýsingar um aukna framleiðni í
heilbrigðisþjónustu virðast vera
þeim, er ráða fjármálum landsins,
til lítillar ánægju. Engin hvatning
eða uppörvun berst fólkinu er stóð
að verkinu, heldur er sífellt krafist
meira vinnuframlags og sparnaðar.
Sparnaður má ekki snúast upp í
öndverðu sína. Margaret Thatcher
forystukona fijálshyggjunnar skildi
að þessi viðbrögð
stjórnenda eru óviðun-
andi í samskiptum
fólks. í öðru bindi end-
urminninga sinna telur
hún eðlilegt að sjúkra-
húsum, er auka afköst-
in, beri að fá auknar
fjárveitingar!
Að áliti margra er
gerþekkja ástandið á
sérgreinasjúkrahúsum
hefur verið gengið hart
fram í spamaðarað-
gerðum. Spamaðurinn
kemur niður á bráða-
þjónustunni og gerir
heilbrigðisstarfsfólkinu
erfítt fyrir um að sinna lágmarks-
þjónustu, svo ekki sé talað um líðan
sjúklinga er vistast á göngum og á
skoli.
Nokkur dæmi skulu nefnd:
1. Álagið á margar heilbrigðis-
stéttir hefur aukist á bráðadeildum,
svo að skammtímafjarvistardögum
fjölgaði mikið á árunum 1993-
1994. Á öðram deildum hafa fjar-
vistir lítið eða ekki aukist.
2. Nú hafa myndast verulegir
biðlistar á almennum skurðdeildum
sérgreinasjúkrahúsanna, en áður
vora biðlistar nær eingöngu ein-
skorðaðir við sérdeildirnar. Sem
dæmi má nefna, að 60-70% gall-
vegssjúklinga era innlagðir með
bráðasýkingar og koma flestir af
biðlistum. Mun meiri hætta er á
fylgikvillum við aðgerðir þegar svo
er komið málum. Við eðlilegar að-
Hér er rofín hefð um
jafnrétti, segir Olafur
_
Olafsson, og tekinn
upp skattur, sem
hækkar með tímanum.
stæður má búast við að um 20%
gallvegssjúklinga séu innlögð vegna
sýkinga. Fleiri dæmi mætti nefna
um að sjúklingar á biðlistum kom-
ist ekki inn á sjúkrahús fyrr en
þeir hafa orðið bráðveikir.
3. Meðallegutími á lyflækninga-
deildum Ríkisspítala er nú tæpir 5
dagar, en það er styttri meðallegu-
tími en gerist á svipuðum deildum
í nágrannalöndum. Afleiðingin er
sú að sjúklingar eru útskrifaðir of
snemma og margir era næsta ófær-
ir um að sjá sér farborða. Endurinn-
lögnum fer ijölgandi og kostnaður-
inn eykst!
4. Á fæðingardeildum koma upp
óvænt atvik sem krefjast skjótra
aðgerða. Staðreynd er að rekja má
nokkur slys og mistök til mikils
álags starfsfólks, en bótagreiðslur
fyrir slík tilvik geta verið 10-15
milljónir króna.
5. Á einni sérgreinadeildinni
reyndust 70% þeirra er biðu eftir
mjaðmaaðgerðum 1994 vera á
vinnufærum aldri. Um 80% þjáðust
af slæmum verkjum og þörfnuðust
stöðugrar verkja- og vöðvaslakandi
Ólafur Ólafsson
lyfjameðferðar. Um 70% þjáðust af
svefnleysi. Svörin sem fólkið fær
þegar það freistar þess að komast
í meðferð er: „Kvótinn er búinn“!
6. Á geðdeild ríkisspítalanna hef-
ur inniliggjandi sjúklingum fækkað
mikið vegna lokunar deildar. Sjúkl-
ingar eru útskrifaðir of fljótt. Þar
af leiðandi hefur erfiðum dagdeild-
arsjúklingum fjölgað um 30% en
starfsmannafjöldi er óbreyttur.
Viðbrögð sjúklinga
Þetta fólk sem hér er um rætt
leitar ekki til lækna að nauðsynja-
lausu enda er það reynsla lækna
að slíkt sé sjaldgæft fyrirbrigði. Því
miður heyrast oft gagnstæðar skoð-
anir, jafnvel meðal þeirra er stjórna
fjármögnun heilbrigðisþjónustunn-
ar. Þessi skoðun byggist sjálfsagt
á lítilli reynslu viðkomandi í sam-
skiptum við sjúklinga. Þvert á móti
eru íslendingar vinnusamt fólk og
ókvartsárt. Sem dæmi má nefna
að sjúklingar á vinnufærum aldri
sem gangast undir kransæðaað-
gerðir fara yfirleitt mun fyrr til
starfa eftir aðgerðina en „þjáning-
arbræður" þeirra í nágrannalönd-
unum. Annað dæmi er sýnir vel
viðhorf íslendinga er að íslenskir
læknar er starfað hafa lengi erlend-
is eins og undirritaður og síðan
hafið störf hér heima segja oft eftir-
farandi sögu. Þegar rætt var við
erlenda sjúklinga um veikindavott-
orð svöruðu margir: „Hve lengi“! Á
íslandi er algengt að fólk svari:
„Hvenær get ég hafíð vinnu"!
Sjúku fólki líður illa ef það bíður
lengi eftir aðgerð. En fleira kemur
til-þvi að margir hafa einfaldlega
ekki ráð á að vera veikir. Sjúkra-
dagpeningar eru það naumt
skammtaðir að fólk nær ekki að sjá
sér og fjölskyldu sinni sómasamlega
farborða ef veikindi dragast á lang-
inn. Þetta hefur meðal annars haft
þau áhrif að fólk, sem t.d. þarfnast
aðgerðar vegna „bakveiki", en í
þeim hópi er gjarnan yngra fólk,
getur ekki leyft sér þann „munað“
að hvílast og stunda endurhæfingu
í vikur eða mánuði og ná þannig
bata. Þetta fólk þrýstir mjög á
lækna um skurðaðgerðir. Þetta er
meðal annars skýringin á að við
gerum fleiri „bakaðgerðir“ en ná-
grannaþjóðirnar. Læknar lenda því
í vanda er þeir freista þess að leysa
sjúklinginn úr kreppu. Sjálfsagt
geta einhveijir gagnrýnt þennan
framgangsmáta en þeir hafa líklega
ekkert lært nema af reynslu ann-
arra.
Lokaorð
Af framangreindum dæmum má
ráða að læknar og annað heilbrigð-
isstarfsfólk á sérgreinadeildum er
í verulegum erfiðleikum að sinna
lágmarksþjónustu við sjúklinga.
Svokallaður „flatur niðurskurður"
hefur snúist upp í öndverðu sína
því að bráðadeildir eiga í mun meiri
erfiðleikum en aðrar deildir.
Fjármögnun sjúkrahúsa verður
vitaskuld ekki bætt með því að taka
nokkra tugi milljóna í innritunar-
gjöld sem samsvarar 0,2-0,3% af
heildarfjármögnun heilbrigðisþjón-
ustunnar. Innritunargjöld gera aft-
ur á móti vissum hópi sjúklinga
erfiðara fyrir og er ég sammála
skoðun heilbrigðisráðherra í þessu
efni. Hér er rofin gömul og góð
hefð um jafnrétti, auk þess sem
„skattar“ af þessari tegund hverfa
ekki heldur hækka með tímanum!
Höfundur er landlæknir.
RAS/A UGL YSINGAR
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í vélavinnu við lagningu 132 kV háspennulínu
frá aðveitustöð Eyvindará við Egilsstaði til
Seyðisfjarðar.
Lauslegt yfirlit verksins:
Línuflokkur RARIK á Austurlandi mun reisa
staura og leggja línuna. Verktaki á einungis
að framkvæma eftirfarandi þrjá aðskilda
verkþætti undir sjórn RARIK:
1) Útvega og flytja malarefni á tiltekinn stað
á vegi eða við vegslóða. Heildarmagn er
áætlað um 500-600 rm.
2) Leggi til minnst 20 tonna beltagröfu
ásamt tækjamanni í tímavinnu til að grafa
fyrir staurum og aðstoða við reisingu
staura. Heildartímafjöldi er áætlaður
500-600.
3) Bora og sprengja klöpp og moka upp úr
sprengdum holum fyrir staura þar sem
klöpp er í staurastæði. Bora holur fyrir
stagfestur (bergbolta) í bergi þar sem
þess gerist þörf. Alls er gert ráð fyrir að
sprengja þurfi fyrir 140-180 staurum og
bora þurfi fyrir 20-30 bergboltum.
Bjóðendur geta gert tilboð í allt verkið eða
í hvern af einstökum þremur verkþáttum,
þ.e. malarflutning, gröfuvinnu og borun og
sprengingar. Til greina kemur að sema við
einn, tvo eða þrjá aðila um verkið, þá hver
með sinn verkþáttinn af þremur.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Raf-
magnsveitna ríkisins, Þverklettum 2-4, Egils-
stöðum, og Laugavegi 118, 106 Reykjavík,
frá og með þriðjudeginum 18. desember
1995 og kostar hvert eintak kr. 2.500.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Þverklettum 2-4, Egilsstöð-
um, fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 10. janúar
1996 og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: RA-
RIK 95 005.
Hönnuðir, auglýsinga- og
markaðsmenn, arkitektar
og annað gott fólk
Mjög fallegt og frumlegt 110 fm skrifstofuhús-
næði til leigu í hjarta borgarinnar (Kvosinni).
Söguleg fundaraðstaða, ódýr leiga - pott-
þétt pláss. Til sýnis um helgina.
Upplýsingar ísímum 552 6220 og 551 0752.
Nýkomnarvörur
Úrval af fágætum smámunum og fallegum
antikhúsgögnum. Opið alla helgina.
Antikmunir, Kiapparstíg 40,
sími 552 7977.
G E R M AN IA goethe-institut
Þögla stórmyndin
METROPOLIS
frá 1927
verður sýnd með píanóundirleik Frank Stro-
bel og Pierre Oser í Háskólabíói á morgun,
sunnudaginn 17. desember, kl. 14.00.
Aðgangur ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Kvikmyndin 100 ára Kvikmyndin 100 ára Kvikmyndin 100 ára
auglýsingar
Ferðir ms. Fagranes
um (safjdjúp 18.-23. des. '95.
Mánudagur 18. des.:
Brottför frá (safirði kl. 9.00, frá
Arngerðareyri kl. 11.30.
Aukaferð fimmtudag 21. des.
Frá (safirði kl. 11.00.
Frá Arngerðareyri kl. 13.30.
Ath.: Þessi ferð verður aðeins
farin ef næg þátttaka fæst.
Föstudagur 22. des.:
Brottför frá (safirði kl. 9.00,
frá Arngerðareyri kl. 11.30.
Pantanasími 456 3155.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Sunnudaginn 17. desember kl.
10.30 verður farin hin árlega
vetrarsólstöðuferð Ferðafélags-
ins á Esju. Gangan hefst á mel-
unum austan við bæinn Esju-
berg og liggur leiðin upp á Ker-
hólakamb (852 m) milli Hestagils
og Sauðagils. Komið sömu leið
til baka. Verð kr. 1.000.
Brottför í ferðína er frá Umferð-
armiðstöðinni, austanmegin, og
Mörkinni 6. Fólk á eigin farar-
tækjum er velkomið í hópinnl
Munið að klæða ykkur í hlýjan
fatnað, húfu, vettlinga og þægi-
lega gönguskó.
Ath.: Nokkrar ósóttar pantanir
í áramótaferð F.f. seldar í
næstu vikul Er einhver sem
spilar á gítar og þegar hefur
greitt farmiða í áramótaferð
eða væri til i að slást f för með
þennan hæfileika? Hafið sam-
band við skrifstofuna!
Ferðafélag íslands.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl.
Allir hjartanlega velkomnir.
14.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnud. Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Svanur Magnússon.
Mánud: Jólatónleikar kl. 20.30.
Föstud.: Unglingasamkoma
kl. 20.30.