Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hannes Hlífar tefldi vel gegn Jóhanni í fyrstu skákinni.
Hannes áttí
góðan dag
Skák
íþróttahúsid vid
Strandgötu í
Ilafnarfirði
EINVÍGIÐ UM ÍSLANDS-
MEISTARATITILINN
GUÐMUNDAR ARASON-
AR MÓTIÐ
14.-22. desember. Teflt frá kl. 17
daglega. Aðgangur ókeypis.
HANNES Hllfar Stefánsson
tefldi mjög vel í fyrstu einvígis-
skákinni um íslandsmeistaratitil-
inn og vann öruggan sigur á Jó-
hanni Hjartarsyni. Einvígið er
aðeins fjórar skákir og Hannes á
því mjög góða möguleika á að
tryggja sér sinn fyrsta íslands-
meistaratitil. Það er ekki teflt í
einvíginu í kvöld, en þriðja skákin
fer fram á morgun og hefst klukk-
an 17.
Þótt frí sé hjá þeim Jóhanni
og Hannesi fer þriðja umferðin í
alþjóðlega Guðmundar Arasonar
mótinu fram í dag og byrjar
klukkan 17 í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði. Islensku
keppendunum þar gekk ekki vel
í fyrstu umferð gegn erlendum
andstæðingum sinum. Arnar E.
Gunnarsson vann að vísu Banda-
ríkjamanninn James Burden mjög
snaggaralega, en átta aðrar skák-
ir Islendinga gegn erlendum and-
stæðingum töpuðust. Eina Ijósg-
lætan síðla kvölds var þegar 01-
afi B. Þórssyni tókst að hanga á
jafntefli á tapað endatafl gegn
danska alþjóðlega meistaranum
Tobiasi Christensen.
Færeyingarnir byrjuðu mjög
vel og unnu báðir. Sérstaklega
kom á óvart að Eyðun Nolsoe,
Færeyjameistara, tókst að sigra
Björgvin Jónsson, alþjóðameist-
ara. Eyðun er reyndar meira
þekktur fyrir tónlist en skák í
Færeyjum og lék m.a. á styrktar-
tónleikum sem haldnir voru í
Mrshöfn vegna náttúruhamfara
á Islandi.
Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra, lék fyrsta leikinn á mótinu
og einnig í einvíginu.
Urslit í fyrstu umferð:
Borge, Danm.-Jón G. Viðarsson 1-0
Guðm. Halldórss.-Þröstur Þórhallss.
0-1
Blees, Hollandi-Kristján Eðvarðsson
1-0
Sigurbjörn Björnss.-Martin, Engl. 0-1
Riemersma, Holl.-Bragi Þorfinnsson
1-0
Ólafur B. Þórss.-Christensen, Danm.
'h-'h
Björgvin Jónsson-Noisoe, Færeyjum
0-1
Björn Þorfinnsson-Bern, Noregi 0-1
Gullaksen, Nor.-Ágúst S. Karlsson 1 -0
Einar Hjalti Jenss.-Sævar Bjarnason
0-1
Nitssen, Færeyjum-Torfi Leósson 1-0
Jón V. Gunnarss.-Magnús Ö. Úlfarss.
0-1
Burden, Bandar.-Amar E. Gunnarss.
0-1
Islendingarnir nýttu sín tæki-
færi illa. Björn Þorfinnsson var
með gjörunnið tafl gegn norska
alþjóðlega meistaranum Ivari
Bern en var alltof fljótfær. Sig-
urbjörn Björnsson brenndi líka af
góðu færi gegn enska alþjóða-
meistaranum Andrew Martin. Það
er nú vonandi að íslensku piltarn-
ir láti ekki hugfallast þrátt fyrir
mótlæti.
Fyrsta einvígisskákin:
Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns-
son
Svart: Jóhann Hjartarson
Frönsk vörn
1. e4 - e6 2. d4 - d5 3. Rc3 -
Rf6 4. Bg5 - Be7 5. e5 - Rfd7
6. Bxe7 - Dxe7 7. f4 - a6 8.
Rf3 - c5 9. Dd2 - Rc6 10. dxcð
- Rxc5 11. Bd3 - 0-0 12. 0-0 -
f5 13. exf6 - Dxf6 14. g3 -
Bd7 15. Hael - Be8!?
Jóhann fer í smiðju til banda-
ríska stórmeistarans Yasser
Seirawans sem tefldi svo gegn
honum sjálfum á heimsbikarmót-
inu í Reykjavík 1991. Hér breytir
hann loksins útaf, en Seirawan
lék 15. - Hc8.
16. Re5 - Hc8 17. Hf2 - Rxe5
18. Hxe5 - Hc6 19. Bfl - Rd7
20. Hel - Rb6 21. Rdl - Bg6
Hvítur stendur sjónarmun bet-
ur vegna þess að hann hefur betri
biskup og traustari peðastöðu,
aðallega vegna þess að svartur
hefur illa bakstætt peð á e6. Hér
kom sterklega til greina fyrir
svart að leika 21. - Rc4 22. Bxc4
- Hxc4. Nú finnur Hannes sterk-
an leik sem setur svart í dálitla
klemmu. á drottningarvængnum.
22. Db4! - Be4 23. Re3 - Rc8
24. c4! - Df7 25. Rg4 - Dc7
26. Re5 - Hd6 27. c5 - Hdd8
28. Bd3 - Bxd3 29. Rxd3 - Hf6
30. Hfe2 - He8 31. Re5 - Hff8?
Hannes hefur bætt stöðuna
jafnt og þétt og náð öruggum
tökum á e5 reitnum. Peð svarts
á e6 er orðið meiri háttar vanda-
mái. Hér var þó betra að leika
31. - Re7.
32. Rf3
32. - b6
Fórnar peði í örvæntingu, enda
var 32. - Hf6 33. Rd4 - Kf7 og
nú 34. He5 eða jafnvel strax 34.
f5! ekki glæsilegt. En nú getur
aðeins kraftaverk bjargað svarti.
33. cxb6 - Rxb6 34. Hxe6 -
Hxe6 35. Hxe6 - Hb8 36. Dd4
- h6 37. b3 - a5 38. a4 - Dcl +
39. Hel - Dc7 40. Rh4 - Dd7
41. f5 - Rc8 42. Rg6
Svartur á nú enga viðunandi
vörn við glæsilegri hótun: 43.
Dxd5+! - Dxd5 44. He8+ - Kf7
45. Hf8 mát.
42. - Rd6 43. He7 - Rxf5 44.
De5 og svartur gafst upp.
Margeir Pétursson
ÁSKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Árni Berg-
ur Sigurþjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Foreldrar hvattir
til þátttöku með börnunum. Jóla-
söngvar fjölskyldunnar kl. 14. Fjöl-
breytt tónlist. Helgileikur. Barna-
og bjöllukórar. Kjörin stund fyrir
alla fjölskylduna. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Pálmi Matthí-
asson.
DÓMKIRKJAN: Aðventuhátíð
barnanna kl. 11. Skírn. Prestur sr.
María Ágústsdóttir. Kór Vest-
urbæjarskóla flytur helgileik.
Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur.
GRENSÁSKIRKJA: Jólafagnaður
barnanna kl. 10.30. Jólasöngvar og
sögur. Óvænt heimsókn. Jólatón-
leikar kl. 14. Fjölbreytt dagskrá.
Stjórnandi Árni Arinbjarnarson.
Helgistund. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barna- og
fjölskyldumessa kl. 11. Tekið við
söfnunarbaukum Hjálparstofnunar
kir-kjunnar. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Ensk jólamessa kl. 16. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Friðarhátíð Æsku-
lýðssambands kirkjunnar í Reykja-
víkurprófastsdæmum. Fata- og
skósöfnun vegna Bosníu við Hall-
grímskirkju kl. 12-20. Ævintýraleg
messa kl. 20.30 með þátttöku Há-
skólakórs, kórs Menntaskólans við
Sund, unglingakórs Grensáskirkju,
strengja- og blásarasveitar frá TR,
gospelbands, götuleikhúss, Hins
hússins, Shakespíranna. Prestar
Hildur Sigurðardóttir o.fl.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir. Hátíðarmessa kl. 14.
Biskup l’slands, hr. Ólafur Skúla-
son, prédikar í messunni og bless-
ar nýtt safnaðarheimili Háteigs-
kirkju að lokinni messu. Kl. 20.30
Jólasöngvar við kertaljós. Ræðu-
maður dr. Páll Skúlason, heim-
spekiprófessor. Organisti Pavel
Manasel. Prestarnir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Sunnudagaskóli
kl. 11. Kl. 14: Skaftholtsheimilið
kemur í heimsókn og flytur helgi-
leik. Jólasöngvar Kórs Langholts-
kirkju kl. 20.
LAUGARNESKIRKJA: Jólasöngvar
fjölskyldunnar kl. 11. Þátttakendur
í I I i-starfi kirkjunnar sýna helgi-
leik. Börn úr Álftamýrarskóla leika
á blokkflautur. Jólaskemmtun barn-
anna kl. 12. Guðsþjónusta kl. 14 í
Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Ól-
afur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnasamkoma kl.
11. Munið kirkjubílinn. Jólasöngvar
kl. 17. Dagskrá um jólin í tali og
tónum. Sr. Halldór Reynisson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Jóla-
söngvar allrar fjölskyldunnar kl. 11.
Barnakórinn leikur helgileik. Mikill
almennur söngur. Prestur sr. Hild-
ur Sigurðardóttir. Organisti Vera
Gulasciova.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Jólastund
sunnudagaskólans. Börn úrtónlist-
arnámi leika á hljóðfæri. Barnakór
^Árbaejarsafnaðar sýnir helgileik.
Jólasöngvar sungnir. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Jólasöngvar
fjölskyldunnar kl. 11. Barnakórinn
syngur. Tekið við söfnunarbaukum
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Sam-
koma ungs fólks með hlutverk kl.
20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Smári Óla-
son. Messunni verður útvarpað.
Aðventustund í kirkjunni kl. 20.30.
Gunnar Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í umsjá Ragn-
ars Schram. Jólatrésfagnaður
barnanna eftir guðsþjónustuna.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðmund-
ur Karl Ágústsson þjónar fyrir alt-
ari, sr. Hreinn Hjartarson prédikar.
Kór aldraðra í Gerðubergi syngur
undir stjórn Kára Friðrikssonar.
Organisti Lenka Mátéová. Lesarar:
Sigríður Jónsdóttir, Eyjólfur Ragnar
Eyjólfsson og Sigurlaug Skúladótt-
ir. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna- og
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Barnakórinn syngur undir stjórn
Áslaugar Bergsteinsdóttur. Að-
ventuljósin tendruð. Umsjón:
Hjörtur og Rúna. Prestarnir.
MESSUR
Guðspjall dagsins:
Orðsending
Jóhannesar.
(Matt. 11.)
HJALLAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Kór Smáraskóla
syngur. Barnaguðsþjónusta kl. 13.
Organisti Oddný J. Þorsteinsdóttir.
Kristján Einar Þorvarðarson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Leikskólabörn
flytja helgileik. Jólaskemmtun
barnastarfsins í Borgum strax að
lokinni guðsþjónustu. Ægir Fr. Sig-
urgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar.
Skólakór Kárness syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Kl.
20: Jólatónleikar kóra Seljakirkju.
Kirkjukórinn undir stjórn Kjartans
Sigurjónssonar. Barnakór Selja-
kirkju eldri og yngri deild undir
stjórn Elísabetar Harðardóttur.
Seljur, kór kvenfélagsins, undir
stjórn Kristínar Pjeturs. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: í dag, laugar-
dag, í Safnaðarheimili kl. 13: Jóla-
skemmtun yngri barnanna, jóla-
guðspjall, jólasöngvar og gott í
gogginn (líka fyrir endurnar), jóla-
pakkar. Kl. 16.30: Jólaskemmmtun
eldri barnanna. Kl. 20: Jólaskemmt-
un Æskulýðsfélagsins. Sunnudag
kl. 17: Jólavaka í kirkjunni. Ræðu-
maður Guðrún Helgadóttir rithöf-
undur. Kirkjukórinn syngur. Ein-
söngvarar: Arndís Fannberg, Elísa-
bet Hermundardóttir, Erla B. Ein-
arsdóttir, Sigríður Snorradóttir og
Svava Ingólfsdóttir. Jólavökunni
lýkur með Ijósahátíð og almennum
söng. Organisti Pavel Smid. Cecil
Haraldsson.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Há-
messa kl. 10.30. Messa kl. 14.
Ensk messa kl. 20. Laugardaga
messa kl. 14. Aðra rúmhelga daga
messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17. Helgileikur.
Ten Sing, Holtavegi, syngur. Söng-
ur Ragnheiður Hafstein. Gengið
kringum jólatré eftir samkomu.
Kaffi, djús og piparkökur á boðstól-
um.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
JÓSEPSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
er messa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hreinn Bernharðsson. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður
Svanur Magnússon. Allir hjartan-
lega velkomnir. Á mánudagskvöld
kl. 20.30 eru árlegi jólatónleikar
Fíladelfíu. Lofgjörðarhópur Fílad-
elfíu syngur ásamt fleirum. Að-
gangur er ókeypis en tekin verða
samskot til þeirra sem minna mega
sín.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudag
kl. 16.30. Fyrstu tónar jólanna.
Kveikt á jólatrénu. Jólasöngvar
sungnir. Gospelkórinn syngur.
Flautuleikur. Elsabet Daníelsdóttir
talar.
MOSFELLSPRESTAKALL: í stað
almennrar guðsþjónustu og sunnu-
dagaskóla í safnaðarheimili verður
jólastund barnastarfsins í Lága-
fellskirkju kl. 11. Bíll frá Mosfells-
leið fer venjulegan hring. Jón Þor-
steinsson.
GARÐASÓKN: Biblíulestur í dag,
laugardag, í Kirkjuhvoli kl. 13. Allir
velkomnir. Bragi Friðriksson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Nemendur úr Flataskóla
taka þátt í athöfninni. Aðventutón-
leikar Kórs Vídalínskirkju kl. 20.30.
Stjórnandi Gunnsteinn Ólafsson.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA:
Aðventustund fyrir alla fjölskylduna
kl. 10.30 árdegis. Unglingar og full-
orðnir flytja helgileik. Lúsía kemur
í heimsókn með þernum sínum.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagskóli kl. 11. Munið skóla-
bílinn. Jólavaka við kertaljós kl.
20.30. Ræðumaður Steingrímur
Hermannsson seðlabankastjóri.
Flytjendur tónlistar: Elín Ósk Osk-
arsdóttir, sópran, Ingunn Hildur
Hauksdóttir píanóleikari, Gunnar
Gunnarsson flautuleikari, Barna-
og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju.
Stjórnandi: Hrafnhildur Blomster-
berg. Kór Hafnarfjarðarkirkju.
Stjórnandi Ólafur W. Finnsson.
Prestar sr. Þórhildur Ólafs og sr.
Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði: Jóla-
söngvar fjölskyldunnar kl. 11.
Barnakórar kirkjunnar leiða söng
og sýna helgileik. Organisti Krist-
jana Þ. Ásgeirsdóttir. Einar Eyjólfs-
son.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Þýsk messa kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa kl. 10.30. Rúmhelga daga
messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Messa
sunnudaga kl. 8.30. Aðra daga kl.
8. Allir velkomnir.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 13. Tekið á
móti söfnunarbaukum fyrir Hjálp-
arstofnun kirkjunnar. Smákökur og
djús á boðstólum. Síðasta skiptið
á þessu ári. Baldur Rafn Sigurðs-
son.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Að-
ventukvöld sunnudag kl. 20.30. Sr.
Arngrímur Jónsson flytur ræðu
kvöldsins og fermingarbörn sýna
helgileik. Einsöngvarar eru Kristján
Jóhannsson, Ingólfur Ólafsson og
Sveinn Sveinsson. Kristín Kristj-
ánsdóttir leikur á fiðlu. Sungnir
verða aðventu- og jólasöngvar sem
kirkjukórinn leiðir. Organisti er
Steinar Guðmundsson. Tekið verð-
ur á móti framlögum til Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Sunnudaga-
skóli sunnudag kl. 11. Tekið á
móti söfnunarbaukum fyrir Hjálpar-
stofnun kirkjunnar. Smákökur og
djús á boðstólum. Síðasta skiptið
á þessu ári. Baldur Rafn Sigurðs-
son.
KÁLFATJARNARSÓKN: Kirkjuskóli
í dag, laugardag, í Stóru-Vogaskóla
kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Síðasta skipti fyrir jól.
Þema: Munum eftir þeim sem
minna mega sín. Létt jólasveifla í
kirkjunni kl. 20.30. Einsöngvarar
Einar Júlíusson, Ólöf Einarsdóttir,
María Baldursdóttir, Rúnar Júlíus-
son og Einar Örn Einarsson ásamt
Kór Keflavíkurkirkju. Bassa- og gít-
arleikarar: Þórólfur Ingi Þórsson
og Sigurður Guðmundsson. Bjöllu-
kór Bústaðakirkju kemur í heim-
sókn ásamt stjórnanda sínum,
Guðna Þór Guðmundssyni organ-
ista. Sr. Sigfús Baldvin Ingvason
flytur ávarp.
KAÞÓLSKA kapellan, Keflavík:
Messa kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: Aðventu-
hátíð barnastarfsins sunnudag kl.
11. Leikskólabörn flytja helgileik.
Jón Ragnarsson.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa sunnudag kl. 14.
Sóknarprestur.
ÞORLÁKSKIRKJA: Jólastund barn-
anna kl. 11. Svavar Stefánsson.
STOKKSEYRARKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA, Hvols-
velli: Kirkjuskóli laugardag kl. 11.
Síðasta samveran fyrir jól. Sigurður
Jónsson.
ODDAKIRKJA, Rangárvöllum:
Sunnudagaskóli í Oddakirkju kl. 11.
Barn borið til skírnar. Síðasta sam-
veran fyrir jól. Sigurður Jónsson.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyj-
um: Sunnudagaskóli kl. 11. Jóla-
helgileikur Hamarsskóla. Popp-
messa á aðventu kl. 20.30. Létt
sveifla í helgri alvöru. Hljómsveitin
Prelátar leiðir safnaðarsönginn.
Arnór og Helga syngja.
AKRANESKIRKJA: í dag, laugar-
dag, stutt helgistund barnanna í
kirkjunni. Jólaskemmtun á eftir í
safnaðarheimilinu. Stjórnendur
Sigurður Grétar Sigurðsson og
Axel Gústafsson. Sunnudag kl. 14
jólasöngvar í kirkjunni. Björn Jóns-
son.
BORGARPRESTAKALL: Barna-
guðsþjónusta í Borgarneskirkju kl.
11.15. Messa kl. 14. Guðsþjónusta
á Dvalarheimili aldraðra kl. 15.30.
Þorbjörn Hlynur Árnason.