Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 57
HUGBUNAÐUR
FYRIR
WINDOWS
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
16. desember kl.~'l
VeriÖ velkomin.
9QANIA
HEKLA
GUÐMUNDUR
KR. SIG URÐSSON
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukcrfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 5 7
Okkur langar að rifia upp nokkr-
ar stundir með Guðmundi Kristni
Sigurðssyni. Maður er aldrei viðbú-
+ Guðmundur
Kristinn Sig-
urðsson fæddist 22.
ágúst 1902 og lést
5. nóvember 1995.
Útför hans fór fram
í kyrrþey fyrir
nokkru.
LATINN er nú fyrir
skömmu á tíræðisaldri
Guðmundur Kristinn
Sigurðsson.
Það mun hafa verið
upp úr 1950 sem ég
man fyrst eftir Guð-
mundi en þá ók hann
brauðbíl fyrir Mjólkursamsöluna í
Reykjavík. Við strákarnir á Hrísa-
teignum vorum oft að sniglast við
brauðbílinn þegar hann var að losa
við mjólkurbúðina að Hrísateig 19.
Nærvera okkar var ekki alltaf vel
liðin en stundum fengum við vínar-
brauðsenda þegar við gátum hjálp-
að til.
Þá átti ég ekki von á að kynnast
Guðmundi síðar. En rúmum aldar-
fjórðungi seinna, þegár ég var far-
inn að starfa að bridsmálum á Aust-
urlandi, vantaði okkur vanan mann
til að stjórna Austurlandsmóti í tví-
menningi. Þá var hringt í Guðmund
Kr., eins og hann var jafnan kallað-
ur, en hann hafði þá verið aðal-
keppnisstjóri Bridgesambands ís-
lands og margra bridgefélaga um
árabil. Það stóð ekki á svarinu:
Alveg sjálfsagt, ég skal koma.
Guðmundur Kr. mun hafa stjórn-
að að minnsta kosti þremur Austur-
landsmótum. Ekkert tók hann fyrir,
heldur sagðist hafa af þessu mikla
ánægju. Guðmundur handreiknaði,
færði inn á töflu, dreifði skormiðum,
las upp stöðuna. og hafði vel undan.
Mér fannst með ólíkiiylum hvað
hann var fljótur að þessu, enda er
þetta verk nú ekki talið framkvæm-
anlegt nema með hjálp tölvu.
Ekki er hægt að minnast Guð-
mundar Kr. án þess að nefna þá
höfðinglegu gjöf,_ þegar hann gaf
Bridgesambandi íslands íbúð sína.
Sú gjöf gerði sambandinu kleift að
eignast félagsheimili að Sigtúni 9
og síðar það húsnæði sem Bridge-
sambandið á nú að Þönglabakka 1.
Eg vil fyrir hönd stjórnar Bridge-
sambands íslands þakka Guðmundi
Kr. Sigurðssyni fyrir allt sem hann
hefur gert fyrir bridgeíþróttina á
undanförnum áratugum.
Blessuð veri minning Guðmundar
Kristins Sigurðssonar.
Kristján Kristjánsson
inn að fá fréttir af
andláti, sama hvað
aldraður viðkomandi
er, en við lásum það í
blöðum að Guðmundur
væri farinn og voru
bara tveir mánuðir á
milli hans og bestu vin-
konu hans, hennar
ömmu, Láru Jónasdótt-
ur. Hann var ömmu
mikið traust. Hann var
vinur, ferðafélagi og
túlkur til margra ára.
Guðmundur var mjög
gestrisinn, alltaf átti
hann nóg með kaffinu
þegar við komum í heimsókn. Oft-
ast hittum við hann hjá ömmu eða
í sumarbústað Landsbankans en þar
var hann oft, ásamt móður minni.
Við komum í heimsókn í bæinn
árið 1968, fórum við suður um jól,
þá bauð hann okkur í mat og þetta
var mjög flott veisla og ísterta á
eftir. Hann hugsaði alltaf um börn-
in. Jólin 1978 fórum við til Kanarí
og þegar á staðinn var komið var
það fyrsta sem maður sá amma og
Guðmundur og tóku þau okkur
fagnandi. Þá var glatt og við
skemmtum okkur vel.
Kristinn, Lína Þóra og börn.
Á öllum póst- og símstöðvum er í gildi sérstakt jólapakkatilboð á bögglapóst-
sendingum innanlands til 23. desember og EMS tilboö til útlanda til 16. desember.
Vertu viss um að þínar jólasendingar komist hratt og örugglega til skila íyrir þessi jól.
Frímerki fást á öllum póst- og símstöðvum, auk þess á um 120 sölustöðum,
s.s. bensínstöðvum, bókaverslunum og víðar á höfuðborgarsvæðinu. Frímerki eru
einnig seld á íjölmörgum sölustöðum
utan höfuðborgarsvæðisins.
PÓSTUR OG SÍMi
Gefum öllum
gleöilegjól meö því
aö senda jólapóstinn
tímanlega.
Pósthús á.höfuðborgarsvæðinu og víða
um land verða opin til kl. 18:00 alla virka
daga og til kl. 16:00 laugardaginn 16.
og 23- desember. Póst- og símstöðin
í Kringlunni verður opin til kl. 22:00
frá 18.-22. desember og á Þorláksmessu
verður opið í Kringlunni til kl. 23:00.
I