Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 70
70 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
I ée Fá<K tiRæoP-
1 IF<SA rtAfZTRÖ'£>)
í NÓTT'...
Í/hus peeyMPt að wmpieu-
SN/GíLL VfllS AÐ ELTA M16- -06
þt/i HM£>AeseM éG eeVNM A£>{
scei&Lþevn muN HÆGfiea föe,
W/yiPi/eo-
eNfS/LL/NN
pJPLáA&l&7~
/HN5 Sr&iCKU.
ANE>i Oö
HOPFHNÞ/J
Grettir
EMILVIIT'5 SO NICE
TO BE DANCINé U)ITH
YOU A6AIN!
~zc
2-17
Emelía, það er svo gott
að dansa við þig á ný!
Bara að sjá þig og Kennari? Við Við hveija er ég
halda utan um þig hveija er ég aðtal! Hveija . . .
Ó, almáttugur!
og
að dansa?
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hver á fisk-
inn í sjónum?
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
ÉG var að lesa nokkur orð í Alþýðu-
blaði sem mér var sent, eftir Hrafn
Jökulsson, þar er Hrafn að gagn-
rýna Davíð Oddsson og ummæli
hans í ræðu sem hann hélt þann
17. júní síðastliðinn. Þar er hann,
þ.e. Hrafn Jökulsson, að bera sam-
an, líkja saman Davíð Oddssyni og
Jóni Sigurðssyni fyrsta forseta ís-
iands, þar er varðar frjáls viðskipti
þjóðlanda milli.
Ég ætla nú ekki að fara mörgum
orðum um þetta, aðeins minna á
að nú eru mikið breyttir tímar og
Davíð Oddsson getur örugglega
svarað fyrir sig, samt er það svo
að við. verðum örugglega að hafa
mikla gát á samskiptum við þetta
nýja efnahagsbandalag sem mun
beita valdi þegar því hentar ef ekki
er full aðgát viðhöfð í samskiptum,
tengslum við slík bandalög. Þessi
bandalög ættu að geta tryggt smá-
ríkjum hagstæð viðskipti í stað þess
að taka meira en þau veita fyrir
slík viðskipti eins og þau virðast
nú stefna að og útfæra völd sín,
ná þar með yfirráðum. Þetta er hin
nýja útfærslustefna jafnaðarmanna
og sósíalisma. Jafnaðarstefnan hér
á landi auglýsir sig nú sem yfir-
gangs- og þjóðnýtingarstefnu á
nýjan leik, ég hélt að þjóðnýtingar-
stefnan væri að mestu úr sögunni,
hún er viðurkennd og upplýst niður-
rifsstefna og kemur það augljóslega
fyrir sjónir nú þegar stefnt er að
þjóðnýtingu í fískveiðum með veiði-
leyfagjaldi sem nú á að lögfesta.
Hveijir sækja fiskinn?
Landsmenn eiga fiskinn í sjónum
er rökfærslan fyrir þessu uppátæki
þeirra. Hver á að sækja fisk í sjó?
Eru það ekki sjómennirnir? Hvetjir
gera það aðrir? Eru það ekki land-
verkamennirnir sem njóta góðs af
sjómennskunni og er það þá ekki
sameiginleg eign landsmanna?
Verði tekið veiðileyfisgjald af aflan-
um mundi það skapa lækkun á
kaupi sjómanna, eða útgerð verður
að greiða veiðileyfagjaldið og þá
er komið að því að útgerðin tapar
og það vilja jafnaðarmenn, enginn
atvinnurekstur má eignast ágóða
og þar með er grundvöllur alls at-
vinnulífs brostinn og þar með at-
vinnuleysi brostið á. Þetta er sú
stefna sem barist er fyrir af sósíal-
istum og náði sér á strik með lands-
stjórnum liðinna ára með hjálp
framsóknarmanna sem var svo vit-
laus, þar sem þeir stóðu fyrir mikl-
um atvinnurekstri, að allt þeirra
atvinnubrölt var byggt á hálum ís
og misstu þeir því fótanna og ultu
hver um annan þveran með stóran
skuldabagga sem lendir á lands-
mönnum að greiða og bankastofn-
unum. Þennan leik vilja Alþýðu-
flokkunnn og fleiri stilla sig inn á
að upphefja á ný.
Hvað fæst með
veiðileyfagjaldi?
Ef tekin verða veiðileyfagjöld þá
kemur það þannig fram að fiskverð
lækkar, sjómenn fá minni tekjur eða
útgerðin, tekjuskattur lækkar og
ríkissjóður fær lægri tekjur ellegar
verður að borga með útgerðinni eins
og aðrar þjóðir gera nú. Þetta allt
er sú mesta fásinna sem ég hefi
heyrt, allt útaf því að telja sig eiga
það sem maður ekki á. Ef ég veiði
ekki fisk þá á ég engan fisk. Þetta
virðist vera undirbúningur undir
það að rfkið taki við fiskveiðum ef
þessir menn koma sínu fram. Allir
vita nú sem vilja vita hvernig bæjar-
útgerðirnar stóðu sig hér áður fyrr.
Svo ég bæti nú aðeins við, þá er
Halldór Ásgrímsson kominn með í
fjölmiðla að blanda saman fiskveið-
um annarra þjóða og leyfa veiðar
með skiptum við aðrar þjóðir vítt
og breitt um landhelgi okkar. Þarna
er fyrsta skrefíð stigið, að útlend-
ingar taki sér völdin á miðum okk-
ar. Þetta má sko ekki koma til
neinna álita þegar jafnvel okkar
fiskstofn er að ná sér upp, þá á að
eyðileggja okkar hag með svona
fyrirlitningu fyrir þeim átökum sem
við höfum mátt þola til að verja
okkar sjálfstæði. Við yrðum að
margfalda okkar Íandhelgisgæslu
og aldrei yrði friður í okkar land-
helgi, þetta væri þjóðnýting hjá
okkur fyrir útlendinga og til að
hleypa þeim inn á okkur.
Skyldu ekki jafnaðarmenn og
Þjóðvaki vera þarna með tvöfalt já?
ÞORLEIFUR KR. GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33, Reykjavík.
Gerið verðsamanburð
Frá Margréti Davíðsdóttur:
NÚ ÞEGAR jólainnkaupin fara í
hönd borgar sig að bera sjálfur
saman verð á milli verslana á þeim
hlutum sem kaupa á fyrir jólin, en
fara ekki biindandi eftir auglýsing-
um.
Um síðustu helgi var borinn á
heimili mitt myndalisti frá Leik-
fangaversluninni Leikbæ sem
greinilega er ætlað að ná til barn-
anna með. í lista þessum er fullyrt
að þetta eða hitt leikfangið sé á
sérlega hagstæðu verði og á sér-
stöku tilboði. Á mánudaginn lá leið
mín í Tómstundahúsið á Laugavegi
og varð ég þar mjög undrandi að
sjá margt af sömu leikföngunum
(sömu hlutirnir) og áttu að vera á
sérstaklega hagstæðu verði í
Leikbæ í mörgum tilfellum mörg
hundruð krónum ódýrari i Tóm-
stundahúsinu án þess að vera á
neinu sérstöku tilboði!
Því er mér spurn, hvernig verslun
getur leyft sér að auglýsa að hlutur
sé á sérlega hagstæðu verði þegar
hann í raun er mun dýrari en í
öðrum verslunum.
MARGRÉT DAVÍÐSDÓTTIR,
Logafold 31, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.