Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 71
BREF TIL BLAÐSINS
Góðhugi
Sjóndaprir geta
ekki lesið dagskrá
Morgunblaðsins
Frá Benjamín H.J. Eiríkssyni:
Á STÓRRI eyju í Suðaustur-Asíu
búa margar þjóðir sem tala um
200 tungumál. í öllum heimi talin
eru þau margfalt fleiri. Hvaða
tungumál átti Guð þá að velja og
nota þegar hann ákvað að tími
væri kominn að taka upp samband
við mennina? Hann hafði augljós-
lega löngu áður ákveðið að heim-
sækja þá - koma þangað sjálfur.
Bg vel fáeina ritningarstaði sem
sýna þetta:
„Sjá Drottinn mun út fara frá
bústað sínum, mun ofan stíga
og ganga eftir hæðum jarðar-
innar. “ (Míka 1;3)
„Á þeim degi - segir Drottinn
- vil ég saman safna því tvístr-
aða [...] og ég vilgjöra hið halta
að nýjum kynstofni og hið
burtflæmda að voldugri þjóð.
Og Drottinn sjálfur mun verða
konungur yfir þeim á Síonfjalli
héðan í frá og að eilífu [...] Og
aftur til þín [mun] hverfa hið
forna veldi, konungdómur dótt-
urinnar Jerúsalem. “ (Míka
4;6-8)
„Þá mun máninn fyrirverða sig
og sólin blygðast sín, því að
Drottinn allsheijar sest að völd-
um á Síonfjalli og í Jerúsalem. “
(Jesaja 24;23)
Hér eru sól og tungl á ferð-
inni, tákn Israelsþjóðarinnar.
Míka og Jesaja voru báðir uppi á
8. öld fyrir Krist. Átta öldum síð-
ar heldur boðskapurinn áfram:
„Ég er Alfa og Omega segir
Drottinn Guð, hann sem er og
var og kemur, hinn alvaldi. “
(Opinberunarbókin 1;8)
„Og ég heyrði raust mikla frá
hásætinu er sagði: Sjá tjaldbúð
Guðs er meðal mannanna og
hann mun búa hjá þeim, og
þeir munu vera fólk hans og
Guð sjálfur mun vera hjá þeim,
Guð þeirra. “ (Opinberunarbókin
21;3)
Reynslan sýnir að Guð valdi
tvær leiðir. Ánnarsveg°r þá að
skapa sérstaka þjóð með eigið
tungumál og hlutverk og að greina
hana skýrt frá öðrum þjóðum.
Hinsvegar þá að nota mál sem
allir ættu að geta lært tiltölulega
auðveldlega, eitt og sama málið
fyrir allar þjóðir, táknmál. Biblian
er því að talsverðu leyti samin á
táknmáli. Fórnirnar í musterinu
voru kerfi tákna um samskipti
Guðs og manns, gert samkvæmt
orði Biblíunnar.
Dæmi um tákn: Foreldrar Jós-
efs sonar Jakobs, svo og bræður
hans, skilja strax táknin í draumi
Jósefs: Sól, tungl og 11 stjörnur
eru tákn foreldra hans og bræðra.
Og þessi ijölskylda er upphaf og
tákn ísraels. Og hvað með það?
Jú, í Opinberunarbókinni stend-
ur þetta: Og tákn mikið birtist á
himni: Kona klædd sólinni og
tunglið undir fótum hennar, og á
höfði hennar kóróna af 12 stjörn-
um. Hún var þunguð og hljóðaði
í jóðsótt með hörðum hríðum
(12;1 —2). Hér eru komin táknin
úr draumi Jósefs, og umbúðalaust
kölluð tákn. Konan er ísrael.
Síðan segir: Hún fæddi son,
sveinbarn sem stjórna mun öllum
þjóðum með járnsprota. Og barn
hennar var hrifið til Guðs, til há-
sætis hans (12;5). Það er því ver-
ið að segja frá fæðingu Messíasar
og valdatöku hans. Og Biblíaji
segir hér að framan að hásæti
Guðs sé í Jerúsalem.
Dæmi um önnur tákn eru trén
þrjú: Vínviðurinn, fíkjutréð og
olíuviðurinn. Öll tákna þau ísrael,
hvert á sinn hátt. Hið fyrsta tákn-
ar hið andlega ísrael, annað hið
þjóðlega; ríkið, það þriðja hið trú-
arlega Israel. Olía síðastnefnda
trésins táknar æ heilagan anda.
Margir hafa hnotið um frásögn-
ina af því er Jesús bölvar fíkju-
trénu (Matt. 21;19). Þess atburður
er tákn, eins og margar athafnir
sem hann framkvæmdi. Jesús er
með tákni þessu að boða eyðingu
Israelsríkis. Um það bil 40 árum
síðar rættist spádómurinn á eftir-
minnilegan hátt.
Jesús sagði einnig dæmisögu
af manni sem gróðursetti fíkjutré
en fann ekki ávexti á því. „Högg
það upp, hví á það að spilla jörð-
inni,“ sagði hann. Þetta er einnig
spádómur um eyðingu Ísraelsríkis
(Lúk. 13;6—7).
Það væri óskandi að kalviður-
inn, líklega ösp, sem stóð ber og
nakinn bakvið Stjórnarráðshúsið
Hverfisgötumegin, boðaði ís-
lenzku þjóðinni ekkert illt. Hann
stóð þarna einn og einmana í
nokkur ár og eitt blaðanna birti
mynd af honum.
En Jesús hafði ekki sagt sitt
síðasta orð um fíkjutréð: „Nemið
líkingu af fíkjutrénu. Þegar grein-
ar þess fara að mýkjast og laufið
að springa út, þá vitið þér að sum-
ar er í nánd. Eins skuluð þér vita,
þegar þér sjáið allt þetta, að hann
er í nánd, fyrir dyrum (Matt.
24;32—33).
Jesús er því að boða endurreisn
Israelsríkis og um leið komu
Mannssonarins og valdatöku hans
(Matt. 24;29—31).
En hvar á að draga línuna, í
Biblíunni, hvað er aðeins tákn og
hvað er raunverulegt, þetta sem
á að taka bókstaflega? Er Djöfull-
inn kannski ekki annað en tákn?
Af þeim sem telja ekki aðeins
Djöfulinn tákn, heldur einnig Guð,
tákn sem mennirnir hafi gert sér,
er Feuerbach sennilega frægast-
ur.
í Opinberunarbókinni stendur
að á tímum endalokanna, það er
að segja endaloka núverandi
heimsskipulags, muni Djöflinum
varpað niður til jarðarinnar ásamt
með englum sínum. Snemma árs
1979 setti ég saman ritgerð ekki
stóra, þar sem ég reyndi að túlka
nokkra af spádómum Opinberun-
arbókarinnar. Ég þóttist sýna
fram á það með gildum rökum,
auk þess sem ég studdist við
reynslu mína af dvöl minni í Sovét-
ríkjunum, að Djöfullinn hefði kom-
ið til Rússlands í samræmi við
umrædda spádóma. Við komuna
til Rússlands reyndist hann einkar
raunveruleg og áhrifamikil per-
sóna. Hann stofnaði Sovétríkin.
Þessi skrif min birtust síðan árið
1981 í bók minni Ég Er í kafla
sem heitir Dýrið. Ég þýddi nokk-
urn hluta bókarinnar á ensku, þar
á meðal kaflann um Sovétríkin.
Þessum hluta bókarinnar dreifði
ég lítilsháttar erlendis.
Það er mín skoðun að þessi
skrif mín hafi reynzt einkar ör-
lagarík fyrir stjórnendur Sovét-
ríkjanna. Reagan fór að tala um
stórveldi hins illa, eða stórveldi
illskunnar. Fyrir Sovétríkin sjálf
reyndust skrifin fljótlega banabiti.
Djöfullinn beið þarna mikinn ósig-
ur, en hann er ekki af baki dott-
inn. Hann er mjög svo raunveruleg
persóna svo og englar hans. Opin-
berunarbókin segir að englum
hans hafi verið varpað niður með
honum og því meir en líklegt, að
þeir séu að störfum meðal vor,
með illt í hug, í baráttu sinni gegn
Guði, orði hans í Biblíunni, svo
og kirkjunni.
BENJAMÍN H.J. EIRÍKSSON,
alias Eirik Torin.
Frá Eggerti Ásgeirssyni:
UM ÁRABIL hef ég haft það
ánægjulega hlutverk á fimmtudög-
'um að klippa dagskrá Rásar 1 úr
Dagskrá, C-hluta Morgunblaðsins
og stækka hana á A3 síðu til að
gera aldraðri móður og sjóndapurri
mögulegt að fylgjast með efni út-
varpsins.
Það sem mikið efni berst til blaðs-
ins þykist ég vita að erfitt sé að
gefa Morgunblaðið út án þess að
velja, hafna, stytta eða þá að stækka
blaðið. Er þá ekki einhver milliveg-
ur? Víst er hægt að minnka letrið.
Útvarpið hefur farið áþekka leið -
að láta fólk sitt tala hraðar!
Fyrir fáum árum var dagskrársíð-
an endurhönnuð. Til að fegra hana
var stungið inn í hljóðvarpsdag-
skrána myndum og krossgátu. Til
að efnið allt rúmaðist á síðunni var
letrið minnkað. Ég hringdi í hönnun-
arstjóra blaðsins og greindi honum
frá raunum mínum. Mér tókst ekki
að koma blessuðum manninum í
skilning um vandamálið. Þegar ég
talaði um að auk þess væri pappírinn
grár og prentunin á hann ekki skýr
fann ég að honum þótti ég sveigja
að heiðri blaðsins, þótt mér væri það
fiarri skapi. Ég þóttist mæla fyrir
munn sjóndapurra sem dag hvern
reyna að lesa dagskrána. Samtali
okk.ar lauk í vinsemd og gagn-
kvæmri skilningstregðu - eins og
gjarnan í gagnvirkri miðiun!
Síðan hefur mér oft verið hugsað
til afstöðu fjölmiðla til fólks með
biluð skynfæri: Útvarpið með hraðan
og óskýran lestur - jafnvel með
undirleik hljómlistar og sjónvarpið
með fréttalestur og sýnir jafnframt
myndir sem trufla athyglina.
Nú gerðist það um daginn að nýj-
ar sjónvarpsstöðvar tóku til starfa.
Nú var vini mínum, hönnunarstjór-
anum, aldeilis vandi á höndum. Hann
greip til gamla ráðsins, eins og Síma-
skráin hafði áður gert, og komist
upp með, þrátt fyrir mótmæli Morg-
unblaðsins, að minnka letrið og hafa
að engu ráð frægustu leturfræðinga.
Ekki var letrið á dagskrá Rásar
1 aðeins minnkað heldur voru dag-
skrárliðir hafðir án greinarskila og
tímasetningin inni í línutextanum.
Með þessu minnkaði dagskrárflötur-
inn svo mjög að nú nægði ekki að
stækka hana upp í 200% heldur varð
að tvístækka og dugði ekki til.
Þetta er því kveðja til hönnuðar
Morgunblaðsins. Vikulegum stækk-
unum mínum er hér með lokið og
móðir mín fær ekki notið samhjálpar
minnar og Morgunblaðsins til að
stytta henni stundir. Kannski var
að því komið að hún hætti að geta
fylgst með dagskránni í blaðinu,
enda komin á síðari hluta tíunda
áratugarins. En hópur aldraðra end-
urnýjast og mér verður hugsað til
stækkandi hóps sem ekki getur leng-
ur lesið dagskrána og þarf þá heldur
ekki á blaðinu að halda.
Sá tími kemur að ný stöð bætist
við, rásum fjölgar eða ný fjölmiðlun
kemur inn í líf okkar. Þá er lausn
málsins einföld. Enn má smækka
letrið.
EGGERT ÁSGEIRSSON,
Bergstaðastræti 69, Reykjavík.
REYFARAKAUP!
tilboð
-■
'
X; K ■ ■ ; .
VEGGSAMSTÆÐA kr. 33.250.
Margir litir. Ótal möguleikar á uppstillingu.
SKENKAR frákr. 19.600.
Svart/hvítt/beyki.
SJÓNVARPSSKÁPAR
kr. 15.500 og 9.700
Gullfallegar
KOMMÓÐURí
úrvali
Svart/hvítt/beyki.
Gott verð!
Fallegir FATASKAPAR.
Svart/hvítt/beyki.
SKRIFBORÐ með stækkunarmögu leika SJÓNVARPSSKÁPAR margar
Svart/hvítt/beyki/fura frá kr. 8.600.
Opið í dag laugardag frá kl. 12-20
HiRZLAN
gerðir. Svart/hvítt/beyki/mahoni
Verð frá kr. 5.900
LYNGÁS110, GARÐABÆ - SÍMI 565 4535
BOKAHILLUR. Svart/hvítt/beyki/fura.
Verð frá kr. 3.300.