Morgunblaðið - 16.12.1995, Page 81
morgunblaðið
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 81
IMYJAR HUOMPLOTUR
Besta og helsta útgáfan
TONLIST
Gcisladiskur
GLEÐIFÓLKIÐ
Gleðifóikið, breiðskífa Kristjáns
Kristjánssonar, KK. Lög ogtextar
eftir Kristján, utan tveir textai- sem
hann semur með öðrum, og einn texti
sem er eftir Hafþór Ólafsson. Krist-
ján syngur og leikur á gítara, en
með honum leika Eyþór Gunnarsson
píanó- og hljómborðsleikari, sem
einnig stýrði upptökum, Gumilaugur
Briem trommuleikari, Tómas M.
Tómasson og Þorleifur Guðjónsson
bassaleikarar. Sigfús Óttarsson leik-
ur á trommur í einu lagi. Ellen Krist-
jánsdóttir syngur eitt lag á plötunni
og Hafþór Ólafsson eitt. Japís gefur
út. 38,13 mín., 1.999 kr.
KRISTJÁN Kristjánsson hefur
markað sér sérstaka braut í ís-
lensku tónlistarlífi; með honum bár-
ust ferskir straumar þegar hann
sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu,
Lucky One, og síðan hefur hann
sótt í sig veðrið með hverri breið-
skífunni. Síðasta plata, Hótel Fær-
eyjar, sem kom út fyrir tveimur
árum, var reyndar ekki fullgerð,
þó þar hafi margir frábærir sprett-
ir verið, sérstaklega þegar hann
söng á lágum nótum og tregaskotn-
um. Á nýútkominni plötu, Gleðifólk-
inu, sýnir Kristján frekar þá hlið,
GLEÐIFÓLK Kristjáns Krist-
jánssonar er gleðileg útgáfa.
því þó nafnið á plötunni bendi til
annars ræður ekki uppskrúfuð gleði
sölumennskunnar ríkjum, heldur
íhugul innhverf gleði, víða trega-
skotin. Þó á plötunni sé að fínna
líflegar stemmur, til að mynda
Rigningu og súld og Á 4. hæð og
upphafslagið Um siðgæði, eru text-
arnir ekki innihaldlaust spaug held-
ur athugun á því sem miður fer í
þjóðfélaginu, í bland við beitt háð,
sérstaklega í síðamefnda laginu.
Fáir standa Kristjáni á sporði
þegar ballöður eru annars vegar og
Grand Hotel er afbragðs dæmi um
hvernig best má gera á því sviði,
sérstaklega seinni útgáfan, sem er
opnari og um leið tærari en sú fyrri.
Lagið sem hann orti til systur
sinnar, I Think of Angels, er einnig
ballaða í sérflokki og Ellen Krist-
jánsdóttir syngur hana afbragsðvel.
Fleiri framúrskarandi tónlistar-
menn koma við sögu á plötunni,
þeirra fremstur Eyþór Gunnarsson
sem stýrir upptökum og. útsetning-
um eins og herforingi; allt frá
sveitakeim í rytmablús. Hljóðfæra-
leikur er til fyrirmyndar og líklega
eiga margir eftir að sperra eyrun
þegar þeir heyra hvað Kristján er
snjall gítarleikari, því of lítið hefur
borið á því á plötum hans.
Umslag plötunnar er prýðilegt,
en textablað hefði mátt prófarka-
lesa betur, alltaf er kjánalegt að
sjá týna þar sem standa á tína,
enskar gæsalappir eiga illa við ís-
lenskan texta og fleira mætti til
tína.
Gleðifólk Kristjáns Kristjánsson-
ar er gleðileg útgáfa, ekki síst fyr-
ir það að þetta er ein besta og helsta
útgáfa ársins; á meðan aðrir tónlist-
armenn gerast endurskoðunarsinn-
ar heldur Kristján Kristjánsson uppi
merki íslenskrar plötuútgáfu.
Árni Matthíasson
Hissa á hamaganginum
SÆLGÆTISGERÐIN hefur haft í
nógu að snúast síðan fyrsta breið-
skífa hennar, Acid jazz & funk, kom
út fyrir skemmstu. Bæði er að skíf-
an selst afskaplega vel og svo hitt
að hljómsveitin hefur haft yfrið nóg
að gera við ballspilirí og tónleika-
hald.
Á téðri breiðskífu Sælgætisgerð-
arinnar er að finna ýmis fönklög
og sýrujass, þar á meðal „Mo’ Bett-
er Blues", sem hefur orðið geysivin-
sælt. Liðsmenn sveitarinnar segjast
hálf hissa á hamaganginum, þó að
þeir hafi gert sér grein fyrir því að
þeir væru með gott efni í höndun-
um.
„Við áttum eins von á því að það
myndu engir kaupa plötuna nema
vinir og kunningjar," segja þeir og
kíma, en bæta við að þeir hafi ver-
ið handvissir að „Mo’ Better Blues“
ætti eftir að gera það gott. „Það
er engin furða að fólk kunni að
meta fönktónlist, því hún er svo
grípandi og skemmtileg.“
Eins og fram kemur hefur Sæl-
Sælgætisgerðin hefur
hafið sýrujass og fönk
til vegs með nýútkom-
inni tónleikaskífu sinni.
Annað kvöld heldur
hljómsveitin útgáfutón-
leika í Astro.
gætisgerðin leikið víða og er meira
að segja farin að leika á skólaböll-
um, sem þeir félagar segjast síst
af öllu hafa átt von á. „Það er gam-
an að þessi músík sé að lifna við,“
segja þeir, en bæta við að skemmti-
legast sé að leika á tónleikum. „Á
böllum er mem hamagangur og
allt á fullri ferð. Á tónleikum getum
við aftur á móti leyft okkur að
teygja á lögum og leika okkur með
útsetningar og einleikskafla."
Þeir félagar segjast stefna að því
að taka sér frí til lagasmíða bráð-
lega, en það hefur lítill tími verið
til slíks, enda er sveitin að spila á
hveiju kvöldi og verður í því fram
til áramóta.
Þeir segjast treysta á að minna
verði að gera eftir áramót, svo þeir
nái að hvílast, enda sé stefnan að
hafa gaman af og þreyta hvorki sig
né áheyrendur.
Útgáfutónleikar Sælgætisgerð-
arinnar verða á Astro annað kvöld,
en þeir verða myndaðir í bak og
fyrir og sjónvarpað bráðlega.
Skátahúsið, Snorrabraut
Sýningarsalur Heklu, Laugavegi
alltaf logn og blíða
M;
Skemmtiatriði
í dag, laugardag, kl. 13, byrjum
við með fallegri listdanssýningu eldri
og yngri hópa frá Listdansskólanum
í Mjódd. Þrír yngstu flokkarnir sýna.
Barnakór Breiðholtskirkju syngur
jólalög. Borgardætur syngja og árita
geislaplötu sína. Hljómsveitin
Cigarette kemur fram. Félagar frá
Eldri borgurum Gerðubergi, koma
og spila og syngja. Jólasveinar
skemmta börnunum
o.fl. o.fl.
fram aðjölum
Laugardagur 16. des. kl. 10-22
Sunnudagur 17. des. kl. 13-17
Mánudagur 18. des. kl. 10-19
Þriðjudagur 19. des. kl. 10-19
Miðvikudagur 20. des. kl. 10-22
Fimmtudagur 21. des. kl. 10-22
Föstudagur 22. des. kl. 10-22
Laugardagur 23. des. kl. 10-23
Sunnudagur 24. des. kl. 09-13
Apótek, blómabúðir og veitingastaðir
hafa annan lokunartíma.
Lukkupottur
Fyrir síðustu jól hefur skátahreyfingin selt sígrœn
eðaltré í hœsta gœðaflokki og hafa þau prýtt
mörg hundruð heimili. Svo eðlileg eru trén að
fuglar gœtu átt það til að gera sér hreiður í
greinum þeirra. Sígrœnu jólatrén frá skátunum eru
grœn og falleg jól eftir jól.
f* 10 ára ábyrgö
8 stœröir, 90 - 305 cm
f* Stálfótur fylgir
«=» Eldtraust
f» íslenskar leiðbeiningar
Jólatré meö skrauti - 3 gerðir
Þú verslar fyrir 1.000,- í einhiverri
verslun Mjóddarinnar og fyllir út
lukkumiðann og ert þar með kominn í
lukkupott Mjóddarinnar.
Dregið verður á Þorláksmessu kl. 15.00
og verða nöfn vinningshafa auglýst í
verslunum Mjóddarinnar.
Vinningar eru 15 gjafabréf að
upphæð kr. 4.000,- og matarkarfa
að verðgildi 10.000,- frá Kaupgarði.
Nafn: ................_________.._______
Heimili: _______
Sími: ................................