Morgunblaðið - 16.12.1995, Síða 84
TVOFALDUR1. vinningur
EINAR J.
SKÚLASON HF
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÖLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM. IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Þjóðhagsstofnun spáir meiri hagvexti 1996 en í OECD-löndum
Brýnt að gæta aðhalds
í ríkisfjármálum
„HORFUR um hagvöxt á næsta ári
eru betri en búist var við. Nú er reikn-
að með að hagvöxtur verði 3,2%
borið saman við 2% í þjóðhagsáætl-
un. Þetta er nokkru örari hagvöxtur
en spáð er í aðildarríkjum OECD.
Þar er spáð 2,5% hagvexti að meðal-
tali á árinu 1996. Ef áform um enn
frekari fjárfestingu í áliðnaði á ís-
landi verða að veruleika er líklegt
að hagvöxturinn á næstu árum verði
talsvert meiri en í OECD,“ segir í
lauslegri endurskoðun þjóðhagsspár
Þjóðhagsstofnunar.
Þjóðhagsstofnun bendir á að áætl-
anir um framleiðslu og útgjöld á
næsta ári bendi til að bjartara sé
framundan í íslenskum efnahagsmál-
um en verið hafi um langt skeið.
Þjóðarútgjöld hafa aukist hraðar en
gert var ráð fyrir og áætlað er að
þau aukist um 4,9% á þessu ári og
5,6% á því næsta. Þar vega fram-
kvæmdir við stækkun álvers þungt
en einnig er mikill vöxtur í útgjöldum
til einkaneyslu sem talið er að aukist
um 5,5% á þessu ári og 4,2% á því
næsta.
Þá eru horfur á að fjárfesting
aukist mikið á næsta ári eða um
16,3% í heild. Spáð er 2,7% verð-
bólgu og að 7,3 milljarða halli verði
á viðskiptajöfnuði á næsta ári.
„Þegar umsvif í þjóðarbúskapnum
aukast jafnmikið og nú stefnir í er
ávallt hætta á þenslu. Til þess að
sporna við þessari hættu er brýnt
að aðhalds sé gætt í hagstjóm. Mikil-
vægustu hagstjórnartækin sem beita
má í þessu skyni eru ríkisfjármál,
peningamál og gengi krónunnar. Við
þær horfur sem blasa við í þjóðarbú-
skapnum berast böndin einkum að
ríkisfjármálum því einsýnt er að
vænlegasta Ieiðin til að varðveita
stöðugleikann er aðhaldssöm stefna
í ríkisfjármálum," segir í spá Þjóð-
hagsstofnunar.
■ Meiri hagvöxtur/10
Jólahnátur
á sögustund
í Eyjum
SYSTURNAR Sunna Ósk og
Ingibjörg Guðmundsdætur
voru í jólaskapi þegar þær
fóru í hópi nærri 200 leik-
skólabarna á sögustund í
bókasafni Vestmannaeyja á
dögunum.
Jólasveinarnir voru að
sjálfsögðu mættir og brugðu
á leik með börnunum í Eyj-
um. Sunna Ósk og Ingibjörg
tóku dúkkurnar með á bóka-
safnið og í tilefni dagsins
fóru þær allar í jólahnátu-
búningana sína.
Framundan eru síðan litlu
jólin og sjálf jólahátíðin eftir
aðeins rúma viku.
Skurðdeild
Landspítalans
Aðgerðum
fækkar
um 600
JONAS Magnússon, yfirlæknir á
skurðdeild Landspítalans, segir að
horfur séu á að gerðar verði 600
færri skurðaðgerðir á Landspítalan-
um á næsta ári en á þessu ári, en
það er yfir 10% fækkun.
Hann segir að þetta þýði að bið-
listar muni lengjast. í dag eru 1.266
sjúklingar á biðlista og segir Jónas
að biðlistar hafi heldur verið að
lengjast á þessu ári. Hann segir
algengt að sjúklingar þurfi að bíða
í 9 mánuði eftir aðgerð, en sjúkling-
ar með bakmeiðsl geti þurft að bíða
í tvö ár.
IFPL og
Faroe
. Seafood
sameinast
SAMKVÆMT hluthafasamkomulagi
hafa eigendur fyrirtækjanna IFPL
og Faroe Seafood komið sér saman
um að sameina rekstur fyrirtækj-
anna. Bæði fyrirtækin reka fískrétta-
verksmiðjur í Grimsby í Bretlandi,
en IFPL keypti í sumar helming
hlutafjár í Faroe Seafood. Sameining
gengur í gildi fljótlega eftir áramót.
Hlutdeild IFPL í sameinuðu fyrirtæki
mun verða 75%. Velta sameinaðs
fyrirtækis er tæplega 9 milljarðar
ísl. kr. og heildarframleiðsla verður
í kringum 23.000 tonn. Forstjóri hins
sameinaða fýrirtækis verður Agnar
Friðriksson.
Með sameiningu IFPL og Faroe
Seafood Company má ætla að fyrir-
tækið skipi sér sess sem þriðja til
fjórða stærsta fyrirtækið á þessu
sviði á Bretlandseyjum og er af svip-
aðri stærð og Albert Fisher Group.
Áætla má að hlutdeild hins sam-
einaða fyrirtækis á breskum smá-
sölumarkaði verði eitthvað í kring-
um 18-19%. Þannig má segja að
fimmti hver fiskur sem seldur er í
smásöluverslunum í Bretlandi í
frystu formi komi frá hinu nýsamein-
aða fyrirtæki og ef eingöngu er talin
með sú vara sem seld er undir merkj-
um stórverslana er um rúmlega þriðj-
ungs hlutdeild að ræða.
■ Velta sameinaðs/20
POTTAStEIKIR
DAGAR TIL JÓLA
Morgunblaðið/Sigurgeir
Tveimur handlækningadeildum á
Landspítalanum var lokað i gær og
verða þær lokaðar í tvær vikur yfír
jólin. Sjúklingar voru í gær fluttir
yfir á aðrar deildir eða sendir heim.
Dregið hefur verið úr skurðaðgerð-
um á bæklunardeild til þess að
hægt sé að loka deildunum.
Jónas sagði að stjórnarnefnd Rík-
isspítalanna hefði gefið einstökum
deildum spítalans fyrirskipun um
að haga starfsemi á næsta ári í
samræmi við rekstur deildanna á
síðustu þremur mánuðum þessa
árs. I samræmi við þetta hefðu
verið lagðar fram áætlanir um að
dregið yrði úr skurðaðgerðum um
600 á næsta ári, en að jafnaði eru
gerðar um 4.500 skurðaðgerðir á
spítalanum.
Einni deild á handlækningarsviði
yrði lokað allt næsta ár. Einni yrði
lokað í þtjá mánuði í sumar og
tveimur deildum yrði lokað í tvær
vikur yfir jólin. Jónas sagði að þessi
áætlun gerði ráð fyrir fækkun
starfsfólks.
■ Skurðaðgerðum fækkað/4
Formaður Baldurs á ísafirði eftir að Félagsdómur dæmdi uppsögn félagsins ógilda
Hugsanlegt að felög til-
kynni einhliða taxtahækkun
FÉLAGSDÓMUR dæmdi í gær upp-
sögn Verkalýðsfélagsins Baldurs á
ísafírði á kjarasamningi félagsins
ógilda. Pétur Sigurðsson, formaður
Baldurs, sagði í gær að félagið myndi
strax eftir áramót óska eftir því við
vinnuveitendur að teknar verði upp
viðræður um framhaldið og hvemig
aðilar gætu sameiginlega bætt kjör
fiskvinnslufólks.
Pétur sagði að til greina kæmi að
verkalýðsfélög gripu til þess ráðs að
tilkynna hækkun launataxta einhliða,
t.d. um 5.000 kr., fljótlega eftir ára-
mót, með sama hætti og vinnuveit-
endur hefðu einhliða breytt kjara-
samningum með hækkun desember-
uppbótar, þrátt fyrir að hafa' komist
að þeirri niðurstöðu að engar forsend-
ur væru fyrir uppsögn samninga.
„Það var viðurkennd aðferð hér á
árum áður að auglýsa taxta. Ég tel
það ekki fráleita leið miðað við gang
þessara mála. Þessi aðferð var við
lýði í verkalýðshreyfíngunni áður fyrr
þegar hún var baráttutæki fyrir
Morgunblaðið/Kristinn
BJORN Bergsson, lögmaður
verkalýðsfélagsins Baldurs,
kynnir sér dómsniðurstöðu
Félagsdóms í gær.
verkafólk. Nú virðist þetta bara orðið
lognmolla og miðjumoð og sérfræð-
ingaveldi sem segir okkur að fólk eigi
að lifa af 50-60 þúsund króna mánað-
arlaunum," sagði Pétur.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, Bjöm Snæbjöms-
son, formaður Einingar, og Kristján
Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur, segja að
þessi félög muni halda uppsögnum
kjarasamninga til streitu og láta
reyna á þær fyrir Félagsdómi, þrátt
fyrir þessa dómsniðurstöðu. Þeir eru
sammála um að ekki komi til greina
að semja aftur um sameiginlega
launanefnd í kjarasamningum.
Stefndi greiði 100 þús. kr.
málskostnað
í dómsorði Félagsdóms segir að
stefnda, þ.e. ASÍ, fyrir hönd Verka-
mannasambands íslands vegna Bald-
urs, sé gert að greiða stefnanda,
Vinnuveitendasambandi íslands fyrir
hönd Vinnuveitendafélags Vestfjarða,
100.000 kr. málskostnað. „Málsaðilar
eru sammála um að launanefnd hafi
verið bær til þess að leggja á það
mat, hvort forsendur þær, sem til-
greindar eru í 16. gr. kjarasamnings
frá 21. febrúar 1995, hafí staðist.
Þegar litið er til þess hlutverks launa-
nefndar að meta samningsforsendur,
sbr. 16. og 17. gr. kjarasamningsins,
þá þykir ekki unnt að fallast á það
með stefnda, að hann geti á sitt ein-
dæmi metið, hvort samningsforsendur
hafi staðist," segir í niðurstöðum
dómsins.
Dómurinn kemur Þórarni V. Þór-
arinssyni, framkvæmdastjóra VSÍ,
ekki á óvart. „Þama er staðfest að
það hafí verið verkefni launanefndar,
eins og um var samið, að meta hvort
forsendur samninga hefðu staðist,"
sagði hann. Þórarinn sagði að sér virt-
ist dómurinn stefnumarkandi fyrir
önnur félög sem sagt hafa upp samn-
ingum og stefnt hefur verið fyrir Fé-
lagsdóm. Þau verði nú að meta hvort
þau telji ástæðu til að flytja mál sitt.