Morgunblaðið - 30.12.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.12.1995, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐiÐ ætli það rætist ekki úr því á næsta ári.“ Óli lagði leið sína norður yfir heiðar og dvaldist með foreldrum sínum á aðfangadag. Ég þykist viss um að hann hafi ekki fengið sér skötu á Þorláksmessu, - en hvað var það þá? „Ég held ég hafi feng- ið mér... hvort ég fékk mér ekki hamborgara," .segir hann og hlær. Steingrímur Pálsson á Engey * Ur tengslum við umheiminn „Við erum að gera klárt fyrir næstu veiðiferð," segir Steingrímur Pálsson, vélstjóri á Engey, sem næst verður á leið blaðamanns um Reykjavíkurhöfn. „Það eru fjórir vélstjórar í áhöfninni. Þrír eru um borð í hveijum túr, en sá fjórði á frí. Við höfum haft þann háttinn á að sá vélstjóri sem er að fara í frí á inniveruna og sér um undirbúning fyrir næsta túr.“ Steingrímur segir að togarinn sé nýkominn úr breytingum frá Pól- landi, þar sem honum hafi verið breytt í frystitogara. í desember hafí hann farið sinn fyrsta túr eftir breytingar og reynslan af þeim hafi verið nokkuð góð: „Við vorum á karfaveiðum á Reykjaneshrygg og aflaverðmætin voru 27 milljónir. Hásetahluturinn var rúmar 330 þúsund fyrir þennan túr.“ Er það ásættanlegt? „Maður vill auðvitað alltaf meira, en ég get ekki kvartað yfir þessu,“ svarar hann. Næst forvitnast blaðamaður um það hvernig Steingrímur kunni við sig á sjónum. „Mér fínnst sjó- mennskan ekki eiga vel við mig,“ segir hann. „Þetta er ósköp einfalt líf og getur verið leiðinlegt til lengd- ar. Það eina sem maður hefur fyrir stafni er að vinna, borða og sofa.“ En hvemig er það fyrir Qölskyldu- mann eins og Steingrím, sem á konu og tvö böm, að dveljast langdvölum á sjó? „Eflaust fylgir því mikið álag,“ segir hann. „Annars er ég tiltölulega nýbyijaður. Ég er aðeins búinn að vera hálft ár á sjó, þannig að það er lítil reynsla komin á það. Ég er samt búinn að vinna það lengi í landi að þetta em viðbrigði. Það er einangrað samfélag um borð og maður dettur alveg úr tengslum við umheiminn. Ég get nefnt sem dæmi að ég heyrði ekki jólalög í desember fyrr en við komum í land._ Það má því segja að ég hafi misst alveg af jólastressinu, - kannski sem betur fer.“ Næst verðúr blaðamanni á að spyija hvort fjölskyldan hafí ekki verið ánægð að fá hann heim yfir jólin. „Það ætla ég að vona,“ segir Steingrímur og hlær. Blaðamaður flýtir sér í næstu spumingu. Hvað er stefnan að gera yfír hátíðamar? „Slappa af, fara í heimsóknir, borða og hafa það gott,“ segir hann. „Um áramótin verðum við hjá foreldrum mínum og borðum kalkún. Ætli við förum svo ekki með krakkana á brennu.“ Að Iokum spyr blaðamað- ur hann vondaufur hvort hann hafí fengið sér skötu á Þorláksmessu? „Nei, ég fékk mér pylsu,“ segir hann. „Eg er ekki alinn upp við skötu.“ Víðir Lárusson á Örfirisey Þekkir aðeins sjómennskuna Áhafnir frystitogaranna Þemeyj- ar, Frera og Orfiriseyjar öttu saman kappi í skák í húsakynnum Taflfé- lags Reykjavíkur þriðja í jólum og þangað lá leið blaðamanns næst. Þar var rætt við Víði Lámsson, háseta á Örfirisey, sem kom í land 22. desember. „Þetta var rúmlega mánaðartúr," segir Víðir. „Aflaverðmætið var 43 milljónir og hásetahluturinn 540 þúsund. Það verður að teljast gott miðað við árstíma, en við vorum mjög heppnir með veður. Ég man að á svipuðum tíma í hittifyrra ÚRVERINU ARI GEIR, Sæmundur, Árni, Guðjón Þór, Ragnhildur Ágústsdóttir og Steinar Smári ætla að borða kalkún og skjóta upp flugeldum um áramótin. j • iiSSÍfc' s* "dUE: x ™ ÓLI GARÐAR Kárason var fara yfir innkaupa- listann þriðja í jólum. ,ÉG ER afspyrnu lélegur skákmaður," segir Víðir Lárusson. ÁRNÝ Hagborg Hálfdánardóttir og Helgi Laxdal með sonum sínum. Sá eldri heitir Helgi Laxdal Helgason og sá yngri Ólafur Daði Helgason. fengum við á okkur brotsjó með þeim afleiðingum að flytja þurfti tvo slasaða menn í land.“ Víðir segir að sjómennska geti varla talist góð fyrir fjölskyldu- menn: „Þetta er mikil útivera, sem hefur náttúrlega sín áhrif á fjöl- skyldulífið. Ég á eins _og hálfs árs stúlku, Rebekku, með Áslaugu kon- unni minni. Hún var ekki orðin mánaðargömul þegar ég fór í sex vikna túr í Smuguna. Þegar ég kom aftur var hún búin að stækka mik- ið. Maður er svo lengi að frá að maður sér mun í hvert skipti sem maður kemur heim.“ Hann segir að Grandi ætli að bjóða sjómönnum sínum upp á sál- fræðinámskeið í tvo daga og allar konur sjómanna hafi þegar farið í vetur: „Ég veit ekki hvernig nám- skeiðið gengur fyrir sig, en ég held að það sé út af þessum útiverum." Það liggur beinast við að spyija hann næst hvort hann sé sáttur við sjómannslífið. „Ég þekki ekkert annað,“ segir hann. Ég byrjaði sextán ára á sjó sem háseti. Ég var síðan einn vetur í Hótel- og veitingaskólanum og matsveinn á sjó eftir það. Þá fór ég í Stýrimannaskólann og vann í tvö ár sem stýrimaður á bát, en gerðist loks háseti á frystitogara. Við erum reyndar fjórir stýrimannslærðir á dekkinu, þannig að það gengur hægt að komast að sem stýrimað- ur. Þetta er nokkuð algengt á frysti- togurum." Víðir segir að jólin séu dásamleg- ur tími. Hann reyni að eyða þeirn sem mest með fjölskyldu sinni og láta engan dag fara til spillis. Sam- einast fjölskyldan þá yfir skötu á Þorláksmessu? „Nei, við fáum skötu í hádeginu á laugardögum í hverri einustu viku á sjónum og mér finnst það vera alveg nóg,“ segir hann. En hvernig skákmaður er hann? „Afspyrnu lélegur," segir hann og hlær. „Ég geri þetta mestmegnis til að blanda geði við félaga mína af öðrurn frystitogurum. Annars hittumst við aðeins á sjómannadag- inn.“ Blaðamann rámar í að þá sé keppt í fótbolta og spyr hann hvern- ig hafi gengið. „Við höfnuðum í næstsíðasta sæti,“ segir hann, „en við unnum reipitogið, sem er náttúr- 1 lega mun áhugaverðara. Við erum i hraustir menn, hraustastir á frysti- j togurunum." Helgi Laxdal á Frera Öll ættin í sjómennsku „Aflabrögð hafa verið góð á þessu ári,“ segir Helgi Laxdal, vél- stjóri á Frera. „Minn síðasti túr var | í Smuguna í september, en þá var \ aflaverðmætið 73 milljónir. Það var langur túr eða 53 dagar, en ég er búinn að vera í leyfi síðan.“ Helgi segist vera afleysingavél- stjóri og þess vegna ekki með frí- kerfí eins og hinir vélstjórarnir: „Hjá mér er þetta ekki spurning um að sigla tvo túra og fá hvíld þann þriðja heldur leysi ég vélstjór- | ana af þegar þeir fara í frí.“ Hann segist að jafnaði vera sex mánuði á ári á sjó, en í fyrra hafi hann I verið 246 daga. Á milli túra er nóg að gera hjá honum á verkstæði fyrirtækisins. „Þar hefur verið mikil vinna í des- ember,“ segir hann. „Auk þess að skipta um togspil á Frera þurfum við að sinna viðhaldi á Vigra.“ Helgi á konu og tvö börn og seg- ir að sjómennskan fari ekki vel sam- an við fjölskyIdulífið ef menn séu lengi til sjós: „Auðvitað væri best að vinna aðeins í landi, en því fylgja ekki eins góðar tekjur. Maður lærði þetta á sínum tíma og verður að fylgja því aðeins eftir og afla sér starfsreynslu." Hvað var það sem réð því að hann fór út í þetta nám? „Það er ekki gott að segja,“ segir hann. „Það hefur sjálfsagt haft sín áhrif að öll ættin fæst við þetta eða pabbi minn, bróðir minn og tengdapabbi minn. Maður vildi alltaf vera að beija í einhveijum hlutum og þetta réðst einhvern veginn."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.