Morgunblaðið - 30.12.1995, Side 17

Morgunblaðið - 30.12.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995 17 Leeson áfrýjar ekki NICK Leeson, sem knésetti Baringsbanka með áhættuvið- skiptum sínum, hefur ákveðið að áfrýja ekki sex ára fangels- isdómi sem hann fékk í Sin- gapore. Þetta var haft eftir lögfræðingum hans í gær, en fresturinn til að áfrýja dómn- um'rennur út í dag. Cherkassky látinn SHURA Cherkassky, einn af þekktustu píanóleikurum heims, lést á sjúkrahúsi í Lond- on á miðvikudag, 86 ára að aldri. Cherkassky hafði átt við öndunarerfiðleika að stríða eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð. Cherkassky flutti til Bandaríkjanna frá Úkraínu þegar hann var ellefu ára gamall. Hann var þekktur fyrir áhrifamikla tónleika og óvenju fjölbreytta efnisskrá. Boutros-Ghali til Jemens BOUTROS Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom í gær til Sanaa og bauðst til að aðstoða við að leysa deilu Jemens og Eri- treu um yfirráð yfir Hanish- eyjum á Rauðahafi sem olli átökum fyrr í mánuðinum. Boutros-Ghali fer síðan til Eri- treu í næstu viku. Viðskiptajöf- ur ákærður SAKSÓKNARAR í Suður- Kóreu birtu í gær ákæru á hendur stjórnarformanni stór- fyrirtækisins Daewoo fyrir meintar mútugreiðslur í leyni- sjóði Roh Tae-woo, fyrrver- anda forseta. Stjórnarformað- urinn, Kim Woo-choong, er sakaður um að hafa afhent ráðherra Roh jafnvirði 4,2 milljóna króna fyrir samning við ríkið. 14 Filippsey- ingar myrtir 14 MANNS, aðallega börn, voru myrtir á heimilum sínum Camarines Sur í norðurhluta Filippseyja í fyrrinótt. Óþekkt- ir menn, vopnaðir rifflum, réð- ust inn á heimili tveggja fjöl- skyldna og hófu skothríð á fólkið þegar það var að horfa á sjónvarp. Þijú fórnarlamb- anna voru afhöfðuð og aðeins eitt barn, sex ára drengur, komst lífs af. Talið er að morð- in tengist deilu um jarðnæði. Lokatölur í Moskvu SAMKVÆMT lokatölum yfir- kjörstjórnar Rússlands, sem birtar voru í gær, fékk komm- únistaflokkurinn 157 þing- menn af 450 í þingkosningun- um 17. desember. Flokkur Viktors Tsjernomyrdíns for- sætisráðherra er næststærstur með 55 þingmenn og flokkur Vladímírs Zhírínovskíjs 51. Jabloko, flokkur umbóta- sinnans Grígoríjs Javlínskíjs, fékk 45 sæti og Bændaflokk- urinn 20. Brotiending þotu American Airlines í Kólumbíu Tilræði í Grozní Moskvu. Reuter. EINN maður að minnsta kosti beið bana og um tugur særðist í öflugri sprengingu í Grozní, höf- uðborg Tsjetsjníju, í gær. Yfir- maður lögreglunnar í Lenínskíj- hverfinu og bílstjóri haiis særðust lífshættulega í sprengjutilræðinu, sem átti sér stað skammt frá bygg- ing^u innanríkisráðuneytisins í Grozní. Á myndinni má sjá tsjetsjenska bændur draga heim kálf sem drapst í átökum uppreisnarmanna og rússneskra hermanna í bænum Gudermes í Tsjetsníju á þriðja degi jóla. Flugrekstur og þjálfun flugmanna endurskoðuð Bogota, Washinfrton. Reutcr. DAVID Hinson forstjóri bandaríska loftferðaeftirlitsins (FAA) segir, að flugrekstur og flugmannaþjálfun American Airlines verði tekin til skoð- unar hjá stofnuninni vegna flugslyss- ins í Kólumbíu fyrir jól þar sem Bo- eing-757 þota félagsins flaug á fjall. Kólumbísk yfirvöld segja, að rann- sókn á flugrita þotunnar bendi til þess að mannleg mistök hafi átt sinn þátt í því að þotan fórst. Hafi flug- mennirnir ekki aftengt svokallaða lyftispilla (hraðahemla) á vængjum er þeir urðu þess varir að þotan var hættulega nærri jörðu og freistuðu þess að klifra henni burt. Hinson sagði að starfshættir Am- erican Airlinés yrðu teknir til skoðun- ar í samstarfi við stjórnendur flugfé- lagsins, samtök flugmanna og Bo- eing-verksmiðjurnar. Athugað yrði hvort breytingar á flugrekstrarhátt- um og þjálfun flugmanna American gætu aukið á öryggisþáttinn í starf- semi félagsins. Það færi síðan eftir niðurstöðum athugunarinnar hvort stofnunin myndi krefjast þess af öðrum flugfélögum, innan Banda- ríkjanna og utan, sem starfræktu Boeing-757 þotur, að þau tækju upp nýja flugrekstrar- og þjálfunarhætti. í yfirlýsingu frá American Airlines sögðust stjórnendur þess hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með að flugmannamistök kynnu að hafa leitt til slyssins í Kólumbíu. „Það hryggir 'okkur að mistök af KARL Bretaprins er gallharður á því að hann hafi engin áform um að kvænast aftur, að sögn tals- manns bresku hirðarinnar. í höllu drottningar ríkir gremja í garð fjöl- miðla sem slegið hafa því upp að vinkona Karls, Camilla Parker Bowl- es, sé ákveðin í að giftast honum. Heimildir innan hirðarinnar sögðu, að frétt Daily Express um að Camilla Parker Bowles væri staðráðin í því að' verða næsta Bretadrottning væri „heilaspuni". Aukinheldur væri það henni afar ólíkt að setja fram kröfur af þessu tagi, einkum og sér í lagi meðan prinsinn væri enn kvæntur maður. hálfu okkar manna kunni að hafa leitt til slyssins. Óhappið minnir okk- ur á að flugið er hrikalega miskunn- arlaust gagnvart minnsta skeyting- arleysi," sagði í yfirlýsingunni. Karl prins er sagður þess meðvit- aður að allt tal um hugsanlegt hjónaband að loknum skilnaði þeirra Díönu prinsessu gæti haft mjög neikvæðar afleiðingar. Af þess sökum tilkynnti hann í síðustu viku að hann hefði engin áform um að kvænast á ný. Var það að ráði Johns Majors forsætis- ráðherra, sem átti fund með Karli 13. desember. Leiddi Major prinsinn þar í allan sannleik um að hann sjálfur og flestir þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu inyndu leggj- ast af alefli gegn því að hann kvæntist aftur, ekki síst fráskilinni konu á borð við Parker Bowles. Karl gallharður að kvænast ekki London. Daily Telegraph. V erslunarf erðir Islending- ar eyða mestu London. The Daily Telegraph. VERSLUNIN í Bretlandi hef- ur verið mjög lífleg í vetur og sérstaklega jiú um jólin. Vegna þess hve gengið á pundinu er lágt hefur fólk frá meginlandinu og víðar að flykkst til landsins í von um góð kaup og og ef það eru einhveijir, sem skera sig úr í þessum hópij þá eru það Norð- menn og Islendingar. Þeir virðast hafa meiri fjárráð en aðrir. í Lundúnum og í Suður- Englandi hefur verið meira um meginlandsbúa, aðallega Frakka, en nokkru sinni fyrr en í norðausturhlutanum eru það Norðurlandabúarnir, sem mest ber á. Hefur ferðum þeirra þangað, til dæmis til Newcastle, fjölgað ár frá ári en straumurinn hefur verið mestur frá því á haustin og fram til jóla. Nú er þó farið að teygjast úr honum og ljóst, að margir hafa áhuga á útsöl- unum eftir áramót. Víkingaferðir hinar nýju Ron Woodman, markaðs- stjóri Metrocentre í Gateshe- ad, segir, að vel hafi gengið að kynna verslunina á svæð- inu á Norðurlöndum. „Norðmenn og íslendingar eru miklir kaupendur og virð- ast hafa mikinn kaupmátt. Norðmaðurinn kaupir yfirleitt fyrir 85.000 kr. í ferðinni en íslendingurinn fyrir helmingi meira. Þeir skipuleggja versl- unarferðina eins og víkingar ránsferðirnar til forna,“ sagði Woodman. Ferðamálayfirvöld í Bret- landi áætla, að tekjur af ferðamönnum í landinu á þessu ^ri verði næstum 11.000 milljarðar kr. eða 10% meiri en 1994. Gaddur í Glasgow London. Reuter. METFROST var víða á Bretlands- eyjum í gær og veðurfræðingar spáðu því að gaddurinn ætti jafnvel eftir að aukast. Frostið mældist 20 gráður í Glasgow í gær og hefur aldrei ver- ið meira. í Aberdeen var frostið 15 stig sem er mesti kuldi sem þar hefur mælst í desember. Kuldinn í Glasgow í gær var örlít- ið meiri en í Moskvu, Helsinki og Stokkhólmi en Ósló var þó kaldasta höfuðborg Evrópu í gær með 23 stiga frost. Kuldinn hefur valdið miklum erf- iðleikum og jafnvel öngþveiti vegna snjókomu. Astandið gæti átt eftir að versna til muna, því veðurfræð- ingar spáðu því í gær, að stórhríð væri í uppsiglingu. Neyðarástandi var lýst yfir á Hjaltlandi í fyrradag eftir að vegir höfðu teppst af völdum snjókomu og illviðris og rafmagn farið af flestum húsum. Spáð er nýju stormaveðri þar um slóðir næstu daga sem mun auka á erfiðleika eyjarskeggja. Ellefu ára stúlka drukknaði í vatni í Jórvíkurskíri í fyrradag eftir að þunnur ís gaf sig undan henni. Hafði hún hlaupið á eftir hundi sín- um út á ísilagt vatnið. Tveir menn reyndu að koma henni til bjargar en svo slysalega vildi til að þeir drukknuðu báðir líka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.