Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Einhllba kvótaákvörbun Norbmanna um veibar úr norsk-íslenska síldarstofnlnum vekja hörb vlbbrögb. . Norðmenn vilja enga samninga FORÐUM okkur. Þetta er ekki lítil og góð hafmeyja. Könnun méðal íbúa Garðabæjar á viðhorfi til bæjarins Sammála um að gott sé að búa í Garðabæ í KÖNNUN á viðhorfi og skoðunum íbúa í Garðabæ til ímyndar, þjónustu og framtíðar bæjarfélagsins, sem Gallup hefur unnið fyrir bæjaryfir- völd kemur fram að þátttakendur eru mest sammála um að gott sé að búa í Garðabæ. Ingimundur Sig- urpálsson bæjarstjóri sagðist eiga von á að niðurstöðurnar yrðu hafðar til hliðsjónar þegar afstaða er tekin til íjárhagsáætlunar hveiju sinni. „Væntanlega munu fulltrúar allra flokka meta sína stefnu í ljósi þéssa," sagði hann. Lítt meðvitaðir um skatta Ingimundur sagði að könnunin hefði verið gerð í framhaldi af tillögu sem lögð var fram í bæjarstjórn. „Hún er fyrst og fremst gerð til að fá fram sjónarmið bæjarbúa til þess hvemig þeir vildu sjá bæinn fyrir sér eftir um tíu ár,“ sagði hann. „Svo var forvitnilegt að sjá hvernig ímynd bæjarfélagsins er í hugum bæjarbúa. Það sem kom á óvart var hvað menn eru lítt meðvitaðir um að skattar í Garðabæ eru í lág- marki. Við erum með útsvar í lág- marki og megum ekki fara neðar. Spurt var hvernig skattar í Garðabæ væru í saman- burði við önnur sveitar- félög og það voru ansi margir sem töldu þá svip- aða eða hærri en annars- staðar. Sennilega er það vegna þess að skattar ríkisins og sveitarfélaga eru innheimtir í staðgreiðslu og þá í einni prósentu en það er fyrst við álagningu sem þessi prósenta er leið- rétt. Það er eins og að sveitarfélög með lágar álögur njóti þess ekki.“ Betri ímynd meðal eldri íbúa Könnunin fór fram dagana 19. til 25. október s.l. og var úrtakið þús- und einstaklingar í Garðabæ á aldr- inum 18 til 75 ára valdir tilviljunar- kennt úr þjóðskrá. Svör fengust frá 73,1%. ímynd Garðabæjar í hugum íbúanna var athuguð með sex full- yrðingum. Helmingur úrtaksins fékk jákvæða fullyrðingu en hinn nei- kvæða og voru svörin metin á fimm stiga huglægum kvarða þar sem hvert gildi fékk tölu. Fundið var meðaltal fyrir hverja fullyrðingu og kom fram að fólk er mest sammála því að gott sé að búa í Garðabæ. Athygli vekur 'að 18 einstaklingar gáfu hæstu möglega einkunn en ekki er marktækur munur á ímynd bæjarins meðal karla og kvenna né þeirra sem eiga fasteign í bænum eða þeirra sem ekki eiga fasteign. ímyndin batnar marktækt eftir því sem fólkið er eldra en er lægst hjá þeim sem eru 15 til 24 ára. Sjálfstæðismenn með bestu ímyndina Þegar litið er til stjórnmálaafstöðu kemur fram að þeir sem kusu Sjálf- stæðisflokkinn í síðustu bæjarstjórn- arkosningum hafa bestu ímyndina af Garðabæ. Þeir sem neita að svara um hvað þeir kusu, kusu ekki eða kusu annarsstaðar eru rétt yfir með- altali og þeir sem kusu aðra flokka en Sjálfstæðisfiokkinn hafa lægstu ímynd af bænum. Þeir íbúar sem hafa bestu ímyndina búa í Amarnesi, þá koma Byggðir og Lundir en verstu ímyndina hafa íbúar á Grund- um og Fitjum. Tíu spumingar vörðuðu núverandi þjónustu í Garðabæ og voru flestir ánægðir með íþrótta- og tómstunda- mál. Næstir komu grunnskólarnir, þá þjónustan á bæjarskrifstofunum, frágangur gatna og gangstétta, upp- vaxtarskilyrði unglinga, frágangur opinna svæða og göngustíga, sam- skipti við yfirstjórn bæjarins, dag- vistarmál, þjónusta við aldraða og loks menningarmál. Aðrar tíu spurningar voru um áherslur Garðabæjar í framtíðinni og er mesta áherslan lögð á íþróttir- og æskulýðsmál. Þá kemur frágang- ur á götum og gangstéttum, fegrun umhverfis, einsetinn skóli, frágang- ur opinna svæða, aukin þjónusta við aldraða, fjölgun leikskólarýma, al- menningssamgöngur og lækkun á útsvari. Þegar beðið var um for- gangsröðun málaflokkanna kom fram önnur mynd því þá varð einset- inn skóli í fyrsta sæti en íþróttir- og æskulýðsmál í öðru sæti. 63% tilbúnir til að greiða hærri skatta Af öðrum niðurstöðum má nefna að þrír af hveijum fjórum telja sig fá nægilegar upplýsingar um það sem er að gerast í bæjarfélaginu hveiju sinni. Um 63% eru tilbúin til að greiða hærri skatta til bæjarfé- lagsins ef það yrði til þess að fram- lög hækkuðu til þeirra mála sem hver og einn setti í forgangsröð. Tæplega 70% telja þjónustu og skatta svipuð og í öðrum sveitarfé- lögum, og tæplega 83% vilja að skattar og þjónusta verði óbreytt í bænum. 77% vilja fjölga fyrirtækjum Næstum þrír af hveijum fimm telja að bærinn ætti að láta fjölgun íbúa afskiptalausa en rúmlega 77% vilja að bærinn leggi sérstaka áherslu á að fjölga fyrirtækjum í bænum. Tæplega 62% vilja ekki að Garðabær sameinist einhveiju ná- grannasveitarfélagi á næstu tíu árum og þriðjungur þeirra sem vilja sameiningu vill sameinast. Bessa- staðahreppi. Rúmlega 61% telur heppilegast að uppbygging atvinnu- lífsins verði sem mest í iðnaði og rúmlega 52% nefndu verslun og þjónustu. Þá vilja 74,1% að bæjarfé- lagið hafi áhrif á atvinnuframboð og helmingi þeirra sem það vildu fannst það best gert með því að bjóða fyrirtækjum ódýrar lóðir. 77% vilja fjölga fyrir- tækjum Nýr forstjóri Ríkisspítaia Mikið álag á mörgum sjúkradeildum Vigdís Magnúsdóttir Y’IGDÍS Magnúsdótt- ir var sett forstjóri Ríkisspítala 1. des- ember sl. Staða Ríkisspítala er erfíð um þessar mundir. Á síðasta ári var halli á rekstri Landspítalans 190 milljónir króna. Hver skyldi vera meginástæða þessa hallareksturs? „Stór liður, eða 50 millj- ónir króna eru óinnheimt gjöld sem innheimtast áttu sem sértekjur. Við höfum ekkert tekið fyrir svokölluð ferilverk, svo sem aðgerðir í sambandi við kvenlækn- ingar, sem á öðrum sjúkra- húsum hafa víða verið sér- greidd, við höfum talið að reglugerð væri ekki nógu skýr þar um. í því máli er verið að vinna núna. Hver eru helstu verkefn- in sem nýr forstjóri Ríkisspítala þarf að takast á við? „Fyrst og fremst er það fjár- hagsvandi Landspítalans og hvernig á að reka spítalann á næsta ári. Samkvæmt fláHögum vantar okkur 350 til 400 milljónir ef reka á spítalann á sama hátt og árið 1995. Nú erum við á stöð- ugum samráðsfundum, ég og Ing- ólfur Þórisson aðstoðarforstjóri hér ásamt með öllum sviðsstjórum spítalans. í samráði við þá verðum við að skoða hvemig við getum rekið spítalann innan þess fjár- lagaramma sem honum er settur. Við reiknum með að þurfa að loka talsverðu og hagræða, sem þó dugar ekki til. Það hefur verið reynt að hagræða og spara síðan árið 1992.“ Önnur verkefni sem blasa við? „Mörg verkefni blasa við í sam- bandi við þennan fjárhagsvanda. T.d. vildum við mjög gjarnan fá annað húsnæði fyrir öldrunardeild- arnar okkar sem nú eru í Hátúni lOb. Við vorum að vona að við fengjum Heilsuvemdarstöðina og gætu flutt deildarnar þangað. Þá væru þær nær spítalanum og fengju betra húsnæði. Við höfum líka verið að skoða hvort hægt væri að sameina mæðraskoðun sem nú fer fram bæði á Kvenna- deild Landspítalans og á Heilsu- verndarstöðinni. Þá myndu kraftar starfsfólks nýtast betur. Eins væri gott að tengja ungbarnaeftirlitið barnaspítalanum, í því væri hag- ræðing. Loks erum við með ýmis- legt fleira í huga. Við höfum lokað Lýtalækningadeildinni okkar, þar voru ellefu rúm. Við erum að hugsa um að reka hana með ann- arri handlæknisdeild, báðar myndu þá rúma 32 sjúklinga. Það væri hagstæðari eining í rekstri. Hluti rúmanna myndum við reka virka daga en annan hluta alla vikuna. Hvernig er staðan í starfs- mannahaldi með tilliti til fyrirhugaðrar ha- græðingar? „Meiri stöðugleiki hefur verið í starfs- mannahaldi Ríkisspít- ala en var fyrstu árin eftir að ég kom þar til starfa sem hjúkr- unarforstjóri. Það er ekki ljóst enn sem komið er hvort það þarf að segja upp starfsfólki í kjölfar lokanna og hagræðingar. Það er alltaf tals- verð hreyfing á starfsfólki einkum á sjúkradeildum, ég vona að hægt verði að færa fólk til svo ekki komi til uppsagna. Hver er staðan í deilu Ríkisspít- ala við röntgentækna? „Aðaldeiluefnið er það að rönt- gentæknar eiga framvegis að vera ►Vigdís Magnúsdóttir, for- stjóri Rikisspitala, er fædd í Hafnarfirði árið 1931 og hef- ur búið þar æ síðan. Hún lauk hjúkrunarprófi árið 1956 og vann síðan í tvö ár á Landspít- alanum. Var í Bandaríkjunum við nám og störf í tvö ár. Starfaði síðan eitt ár á Land- spítalanum og níu ár á skurð- stofu St. Jósepsspítalans í Hafnarfirði. Varð aðstoðar- forstöðukona á Landspítalan- um árið 1970. Fór til Noregs og lauk prófi í spítalastjórnun þar. Varð hjúkrunarforstjóri Landspítalans árið 1973 og hefur gegnt því starfi þar til nú. á vöktum og þeir telja að þeir missi laun í formi yfirvinnu vegna þess. Einnig höfðu þeir fímmtán stunda yfirvinnu sem til var komin vegna sérstaks verkefnis. Þessum samningi var sagt upp af hálfu spítalans en hefur nú verið settur inn á nýjan leik, svo sá hluti máls- ins er leystur. Þessi deila veldur óneitanlega mikilli röskun á starf- semi spítalans. Hvar á spítalanum er álagið mest? „Mjög mikið álag er á barna- deildinni, á Vökudeildinni hefur álagið verið sérlega mikið og það hefur farið sívaxandi vegna m.a. glasafijóvgananna, nú fæðast fleiri fyrirburðir en ella. Núna um jólin voru t.d. níu glasaböm á Vökudeildinni. Ekki er síður mikið álag á handlæknisdeildar, lyflækn- ingadeildar og geðdeildar, þeir sem koma á inn á bráðavöktum eru lagðir inn á þær deildir. Við stjórn- um ekki bráðainnlögnum. Það er því mikið álag á mörgum deildum. Hvað er helst til ráða? „Það mætti t.d. koma upp sjúkrahóteli, helst sem næst spítalan- um, erlendis er miklu meira um göngudeildir og sjúkrahótel en hér er og það sparar mikið. Við erum nokkuð á eftir í þessari þróun. Mér hefur dottið í hug að Fæðingarheimilið myndi henta vel sem sjúkrahótel og það er í næsta nágrenni spítalans. Bygg- ing nýs barnaspítala á Landspít- alalóð er forgangsverkefni hjá mér. Við það yrði öll aðstaða til barnalækninga stórbætt og einnig yrði af því rekstrarhagræðing. Þá gætu deildar sem reknar eru nú fjarri spítalanum flutst í núverandi húsnæði barnadeildar." Samkvæmt fjárlögum vant- ar okkur 350 til 400 milljónir ef reka á spítalann á sama hátt og árið 1995.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.