Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kópaskersbúar minn- ast stóra jarðskjálftans TUTTUGU ár eru á morgun, 13. janúar, liðin frá því öflugur jarð- skjálfti reið yfir Kópasker og ná- grenni. Jarðskjálftinn er þeim sem upplifðu hann enn í fersku minni, enda mældist hann rúm sex stig á Richterkvarða. Brottfluttir Kópaskersbúar ætla að minnast atburðarins með því að hittast annað kvöld í sal Lög- reglufélagsins í Brautarholti 30 í Reykjavík. Þar ætla þeir að rifja upp jarðhræringarnar í máli, söng og myndum, en skipuleggjendur „Skjálftavaktarinnar“, eins og þeir kalla samtóomuna, hafa safnað gömlum myndum og úrklippum úr dagblöðum þar sem segir frá jarð- skjálftanum og viðbrögðum fólks við þessum miklu náttúruhamför- um. Átti enga flasskubba Sigrún Kristjánsdóttir, einn skipuleggjendanna, segir hins vegar að erfítt sé að nálgast myndir af skemmdunum því þær séu af skom- um skammti. „Þegar ég spurði móður mína af hveiju hún hefði ekki tekið neinar myndir sagði hún að hún hefði ekki átt neina flasskubba. Ég var alveg búin að gleyma flasskubbunum." Jörðin rifin og tætt Rúmlega eitt hundrað manns bjuggu á Kópaskeri þegar skjálftinn varð. Fáeinir meiddust smávægi- lega og nokkrir aldraðir fengu taugaáfall. A forsíðu Morgunblaðsins daginn eftir skjálftann segir meðal annars í frétt undir fyrirsögninni „Stórtjón á mannvirkjum - fólk flúið - jörð- in rifin og tætt“. „Orð skortir til að lýsa aðkom- unni að Kópaskeri eftir jarðskjálft- ann mikla í gær. Þjóðvegurinn síð- ustu 10 km að þorpinu er sprunginn á 60-70 stöðum. Þegar komið er inn í þorpið verður að gæta varúðar við akstur og göngu því jörðin er rifin og sundurtætt. Og þegar komið er inn í glæsileg heimili Kópaskersbúa blasir við gereyðilegging og rústir og sum húsin eru þannig farin, að sjá má út um rifurnar á þeim.“ Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason Friðrik Jónsson var oddviti Presthólahrepps fyrir 20 árum. Hér sýnir hann hvar hann var staddur er jarð- skjálftinn reið yfir. Hann held- ur um glerstafla sem minnstu munaði að hryndi yfir hann. Hvell- sprakk á vörubíl EINN maður var fluttur á slysadeild eftir umferðarslys á Kringlumýrar- braut í gærmorgun. Tildrögin voru þau að vörubíl var ekið suður Kringlumýrarbraut á akrein lengst til vinstri þegar hvellsprakk á einum hjólbarðanum. Bílstjórinn beindi þá bíl sínum yfir á næstu akrein til hægri en þar var fyrir fólksbíll. Til þess að forðast árekstur við vörubíl- inn beygði bílstjóri fólksbílsins yfir á akreinina lengst til hægri. Þar var fyrir annar fólksbíll sem sveigði út af akreininni og hafnaði á ljósa- staur. Áreksturinn var mjög harður og er talið að bíilinn sé ónýtur. Ekki urðu skemmdir á öðrum bílum, að sögn lögreglunnar. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild með meiðsl á höfði og fæti. Könnun Gallup fyrir Apótekarafélag Islands Almenn ánægja með þjónustu apóteka þjónustu hingað til,“ segir í frétta- tilkynningunni. í niðurlagi tilkynningarinnar seig- ir að markmið Apótekarafélags Is- lands sé að viðhalda góðri og ör- uggri lyfjaþjónustu, bæði í dreifbýli og þéttbýli. „Apótekarafélagið telur að þessu markmiði verði ekki náð nema að fyllstu ábyrgðar sé gætt við framþróun lyfjaþjónustu í land- inu og bendir í því sambandi~á reynslu grannþjóða okkar á Norður- löndunum, sem allar hafa valið ákveðnar takmarkanir í lyfjasöl- unni.“ Hinn 15. mars nk. taka gildi ný ákvæði um stofnun lyfjabúða, út- gáfu lyfsöluleyfa og lyfjaverð. Eru þá að fullu komin til framkvæmda Lyijalög nr. 93/1994. Morgunblaðið/Sverrir GJÖF sjúkraliða var afhent á miðvikudag. Á myndinni eru frá vinstri; Málhildur Angantýsdóttir, formaður vinnudeilunefndar, Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags íslands, Jóna Gréta Einarsdóttir, formaður Röntgentæknafélags ís- lands, og Sigrún Margrét Magnúsdóttir röntgentæknir. Sjúkraliðar styrkja röntgentækna ALMENN ánægja er með þjónustu apóteka að því er fram kemur í niðurstöðum Gallups í símakönnun á viðhorfum almennings til þjónustu apótekanna og hugsanlega þörf fyrir fjölgun apóteka. Yfir 98% þeirra sem afstöðu tóku voru ánægðir með þjónustuna. Gallup gerði könnunina fyrir Apótekarafé- lag íslands. Tekið var slembiúrtak 1.200 íslendinga og svöruðu 851 sem er 70,9% svarhlutfall. í fréttatilkynningu frá Apótek- arafélaginu kemur fram að til sam- anburðar megi geta þess að í, sam- bærilegum könnunum sé sjaldgæft að hlutfall óánægðra fari undir 10%. Ánægja með þjónustu apótek- anna sé útbreidd og enginn teljandi munur milli fólks á grundvelli kyn- ferðis, aldurs og búsetu. 88% telja ekki þörf á fleiri apótekum Þá sé athyglisvert að fólk telji almennt ekki þörf á fleiri apótekum en 88% aðspurðra telji ekki þörf á fjölgun apóteka á því svæði sem þeir búa á. Þessi skoðun sé út- breiddari meðal fólks á höfuðborg- arsvæðinu þar sem 92% aðspurðra telji apótek nægilega mörg. Fram kemur að niðurstöður skoðanakönnunarinnar sýni að hér á landi hafi tekist að byggja upp lyfjaþjónustu sem neytendur telji sig eiga greiðan aðgang að og séu mjög ánægðir með. „Apótekarafé- lag Islands telur þessar niðurstöður sérstaklega athyglisverðar nú, þegar fyrir dyrum stendur hjá Al- þingi að fjalía um endanlega út- færslu nýju laganna, m.a. um stofnun lyfjabúða og veitingu lyf- söluleyfa. En óyfirvegaðar breyt- ingar á þessum ákvæðum gætu svipt grundvelli undan því öryggi sem neytendur hafa notið í lyfsölu- Vinnuslys um borð í skipi VINNUSLYS varð um borð í skip- inu Úranusi þar sem það lá við fest- ar við Holtabakka á þriðjudags- morgun. Annar vélstjóri skipsins fékk járnstykki í höfuðið þegar ver- ið var að hífa hlera. Hann var flutt- ur á slysadeild og tæknideild lög- reglunnar og Vinnueftirlitinu var tilkynnt um slysið. FÉLAG sjúkraliða afhenti á mið- vikudag röntgentæknum fé þeini til stuðnings, vegna deilu við Rík- isspítala um vinnutíma og kjör sem staðið hefur í tæpan hálfan annan mánuð. Um er að ræða um 225 þúsund krónur úr vinnudeilusjóði Sjúkra- Ijðafélags íslands og segir Kristín Á. Guðmundsdóttir tilgang gjaf- arinnar að minna á að sjúkraliðar þekki af eigin raun kjaradeilur. „Við vildum líka minna röntgen- tækna á að fjölmargir standa með þeim, þó svo að ekkert hafi gerst í þeirra málum síðan í byrjun desember," segir hún. í bréfi sem sjúkraliðar afhentu við sama tækifæri, segir m.a. að „orð ylja, fé framfærir. Áhyggjur af starfi, starfsskyldum og fram- færslu fjölskyldunnar tekur hug þess sem á í kjarabaráttu. Rönt- gentæknar og aðrir launþegar vita að forysta sjúkraliða stendur heil að baki þeirra sem hafa vilja, þor og kjark til að leggja sitt af mörkum fyrir bættri afkomu og betra samfélagi". Jón Bald- vin styður konu sem forseta JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, segir í viðtali við Stavanger Aftenblad nýlega að hann hafi ákveðið hvern hann vilji styðja sem frambjóðanda til embættis forseta Islands. Þar sem hann sé^ hins vegar svo umdeildur á íslandi vilji hann að svo stöddu ekki lýsa því yfir opinberlega um hvern sé að ræða, en segir þó að það sé kona. Ætlar sjálfur að sinna barnabörnum Jón Baldvin segir í viðtal- inu við Stavanger Aftenblad að líklegt sé að Davíð Odds- son forsætisráðherra hafi metorðagirnd til að verða forseti, en það myndi stang- ast á við margra ára hefð þar sem síðustu forsetar hafi komið úr menningargeiran- um. Sjálfur segist Jón Baldvin ætla að nota tímann sem gefst frá stjórnmálunum á þessu ári til að sinna barna- börnunum. Morgunblaðið/Ásdís Formenn KRFÍ FORMAÐUR og sjö fyrrver- andi formenn Kvenréttindafé- lags íslands voru viðstaddir útför Önnu Sigurðardóttur frá Dómkirkjunni í gær. Formenn- irnir eru (f.v.): Sólveig Ólafs- dóttir 1975-1980, Inga Jóna Þórðardóttir 1992-1995, Gerð- ur Steinþórsdóttir 1989, Bryndís Hlöðversdóttir, núver- andi formaður Kvenréttinda- félags íslands, Lára Sigur- björnsdóttir 1964-1968, Lára V. Júlíusdóttir 1986-1988, Guðrún Árnadóttir 1990-1992 og Esther Guðmundsdóttir 1981-1985. Aðrir núlifandi fyrrverandi formenn KRFÍ eru Sigurveig Guðmundsdóttir 1969-1970 og Guðný Helga- dóttir 1971-1974. Anna Sigurðardóttir stund- aði skrifstofustörf hjá Kven- réttindafélaginu 1958-1964 og árið 1975 var hún ásamt fleir- um stofnandi Kvennasögusafns íslands. Anna var forstöðumað- ur safnsins frá upphafi. Hún stofnaði Kvenréttindafélag Eskifjarðar 1950 og sat í stjórn Kvenréttindafélags íslands 1959-1969 og var fulltrúi þess á fjölda þinga og funda hér á landi og erlendis. Hún var heið- ursfélagi Kvenréttindafélags Islands frá 1977.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.