Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 35
SIGURLAUG
KRISTINSDÓTTIR
+ Sigurlaug
Kristinsdóttir
var fædd að Garða-
holti í Hólahreppi í
Skagafirði 22. júlí
1921. Hún lést á
heimili sínu, Norð-
urgötu 32 á Akur-
eyri, 3. janúar síð-
astliðinn.
Foreldrar hennar
voru Kristinn
Gunnlaugsson og
Gunnhildur Sigurð-
ardóttir, sem bæði
eru látin. Dætur
þeirra voru, Sigur-
laug Matthildur, fædd 13. jan-
úar 1923, og Auður, fædd 30.
apríl 1928. Sigurlaug gekk að
eiga eftirlifandi eiginmann
sinn, Ásgrím Stefánsson 10.
maí 1947, hann er fæddur 4.
október 1923. Þau eignuðust
einn son, Kristin sem fæddur
VIÐ VORUM þijár systurnar, nú
hefur sú elsta okkar kvatt. Við ól-
umst ekki upp saman því við misst-
um móður okkar þegar við vorum
ungar. Kringumstæður föður okkar
voru slíkar að hann varð að láta
okkur í fóstur.
Þannig missti hann okkur allar
frá sér. En við náðum þó vel saman
aftur.
Ég naut þess alltaf að vera litla
systir, og fyrir það vil ég þakka,
og alla umhyggju hennar fyrir mér.
Það voru fleiri sem nutu um-
hyggju hennar og hjálpsemi bæði
innanlands og utan.
Allt það mikla magn af fötum,
þvegið óg viðgert, sem hún sendi
til Póllands og annarra landa, ber
vitni um það. Var til dæmis ein
kona í Póllandi farin a5 kalla hana
mömmu. Þau voru svo samtaka í
þessu hjónin eins og öllu sem þau
tóku sér fyrir hendur.
er 6. október 1949.
Eiginkona hans er
Þórdís Ketilsdóttir.
Þau búa í Keflavík.
Áður höfðu þau
Sigurlaug og Ás-
grímur tekið Heklu
Gestsdóttur 6 mán-
aða gamla, hún er
fædd 2. maí 1947.
Hún er gift Herði
Júlíussyni og búa
þau á Ákranesi. Síð-
ar tóku þau tvo
drengi í fóstur,
Kristin Gunnars-
son, f. 25. septem-
ber 1959 og Hannes Rútsson,
sem fæddur er 28. júlí 1959 og
voru þeir hjá þeim til fullorð-
insára.
Útför Sigurlaugar verður
gerð frá Hvítasunnukirkjunni
við Skarðshlíð á Akureyri í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
Og glöð var hún þegar hún fékk
fyrsta ellilífeyrinn greiddan, því hún
hafði hugsað sér að fyrstu krónum-
ar skyldu fara í að annast um tvö
böm í Mið-Ameríku, það hélst með-
an hún lifði og heldur enn. Þannig
var hennar hjartalag.
Ég vil þakka hjúkrunarfræðing-
um og lækni sem önnuðust hana,
á heimili hennar, fyrir þeirra miklu
hjálp. Guð blessi ykkur öll. Hún
sagði eitt sinn, „þetta er allt svo
ljúft,“ og það var líka ljúft að hugsa
um hana.
Ég þakka þér allt, elsku Sigur-
laug.
Þín systir,
Auður.
Elsku amma mín, með þessum
fáu orðum vil ég þakka þér allar
okkar samverustundir. I þínum
augum var ég alltaf stóra ömmu-
SIGURPALL M.
ÞORKELSSON
+ Sigurpáll M.
Þorkelsson
fæddist á Siglufirði
27. febrúar 1914.
Hann lést í Reykja-
vík 3. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Þorkell
S. Svarfdal skip-
stjóri og kona hans
Jóhanna Kristjáns-
dóttir. Eftirlifandi
eiginkona Sigur-
páls er Svava Ara-
dóttir, f. 7. mars
1913.
Sigurpáll hóf
prentnám á Siglufirði 1. janúar
1931 og lauk þar námi. Sigur-
páll vann þar til ársins 1943
er hann fluttist til Reykjavíkur.
í Reykjavík hóf Sigurpáll störf
í ísafoldarprent-
smiðju, þar sem
hann setti m.a.
texta í Morgunblað-
ið. Þegar Prent-
smiðja Morgun-
blaðsins var stofn-
uð á síðari hluta
fimmta áratugarins
réðst Sigurpáll til
starfa þar og vann
hann við blaðið allt
fram til ársins 1984
er hann lét af störf-
um fyrir aldurs sak-
ir. Síðustu starfsár
sín við blaðið las
hann prófarkir.
Útför Sigurpáls fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
atliöfnin klukkan 13.30.
Kveðja frá samstarfsmönn-
um á Morgnnblaðinu
LÁTINN er gamall starfsfélagi okk-
ar, Sigurpáll Þorkelsson prentari.
Sigurpáll eða Palli eins og við köll-
uðum hann ætíð var góður starfsfé-
lagi. Hann lét af störfum í árslok
1984 eftir farsælt starf hjá Morgun-
blaðinu í áratugi.
Palli var glaðvær félagi og iðju-
samur. Ég minnist þess þegar ég
kom óharðnaður unglingurinn til
vinnu í setjarasalinn í upphafi árs
1966. Þar mætti mér velvild allra,
einkum þó hinna eldri eins og Sig-
urpáls og meistara míns, Samúels
Jóhannssonar, sem ég skilgreindi
sem kallana í salnum þrátt fyrir
að þeir væru á besta aldri.
Palli var vélsetjari á 5-vélinni
eins og sagt var, mætti eins og
klukka og afkastaði miklu. Hann
var frábær íslenzkumaður og kom
engum á óvart að hann skyldi val-
inn í prófarkalesturinn þegar hætt
var að nota gömlu vélarnar og blýið.
Starfsandinn í setjarasalnum
var nokkuð sérstakur. Þar unnu
einungis karlmenn og mótuðust
samskipti manna nokkuð af því.
Þá þóttu prentarar harðir í horn
að taka og þroskuðumst við ungu
mennirnir í þessu andrúmslofti.
Okkur var kennt að vinna og láta
hendur standa fram úr ermum.
Þannig fyrirmynd var Palli, vann
sitt verk og glettist við okkur á
milli tarna.
Palli kom alltaf með nesti með
sér í vinnuna og man ég vel að það
þótti mörgum félaganna gott að sitja
nærri þegar hann mataðist því oft
stelpan, sem þú áttir svo mikið í
og er það ekkert skrítið því mamma
kom með mig nýfædda heim til þín
og bjuggum við hjá þér og passaðir
þú mig meðan mamma vann. Síðan
fluttum við á efri hæð í sama húsi
og þú. Þá stækkaði fjölskyldan,
Skúli bróðir fæddist og var hann
alltaf hjartatottið hennar ömmu.
Þú og afi fluttuð á Siglufjörð og
stuttu seinna fæddist Helga. Ekki
leið langur tími þar til við fluttum
líka á Siglufjörð. Ég man hvað þú
varst glöð þegar við komum norð-
ur, því alltaf vildir þú hafa okkur
öll nálægt þér. Ef afí fór í ferðalag
þá svaf ég hjá þér, ef mig langaði
að vera hjá þér, borða eða sofa þá
var ég alltaf velkomin til þín og
áttum við oft góðar stundir saman.
Á Siglufírði fæddust Ásgrímur og
Trausti, vorum við þá orðin fímm
systkinin. Eftir fímm ára stopp á
Siglufirði fluttu mamma og pabbi
til Ólafsvíkur og var það sárt fyrir
þig að horfa á eftir okkur fara. Þó
að síðustu 17 ár hafí verið nokkur
hundruð kílómetrar á milli okkar
þá höfum við alltaf haft sterkt sam-
band, heimsótt hvor aðra og notað
símann. Ég hef alltaf getað treyst
á þig og sagt þér það sem mér ligg-
ur á hjarta því þú varst svo góður
hlustandi og ráðagóð.
Elsku amma, þegar ég sá þig í
ágúst síðastliðnum þá vissum við
hvert stefndi og fannst mér það
mjög sárt að þú værir að fara frá
mér til himna. En svo kom ég norð-
ur í október, áttum við þá góða
stund saman og fundum báðar hvað
sterkt.samband er milli okkar. Þú
varst svo róleg, yfirveguð og sátt
við að vera á leið heim í paradís.
Hafðir mest áhyggjur af afa.
Amma takk fyrir alla þá birtu
og hlýju sem þú hefur fært mér og
mínum gegnum árin, þín er sárt
saknað.
Þín ömmustelpa,
Sigurlaug Jensey.
Þegar ég tek mér penna í hönd
langar mig með nokkrum orðum
að minnast okkar kæru vinkonu og
var það mikið í boxinu að það var
til skiptanna.
Ég minnist Sigurpáls af hlýhug.
Við áttum langt samtal þegar
Morgunblaðið flutti í Kringluna en
þá kom hann ásamt eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Svövu Aradóttur, og
lék á als oddi.
Gamlir vinnufélagar senda látn-
um félaga saknaðarkveðjur og eig-
inkonan, sem ætíð stóð við hlið hans,
fær samúðarkveðjur okkar allra.
Arnór G. Ragnarsson.
Sigurpáll hóf nám í prentiðn
1931 eftir að foreldrar hans fluttu
frá Dalvík til Siglufjarðar. Bóklegt
nám stundaði hann í Iðnskóla Siglu-
fjarðar 1931.
1943 breytir hann um, fer til
Reykjavíkur og tekur til starfa hjá
Isafoldarprentsmiðju og vinnur að
Morgunblaðinu og við aðskilnað
Morgunblaðsins og ísafoldar, vann
hann það sem eftir var af starfs-
ferli sínum hjá Morgunblaðinu. Sig-
urpáll gat sér hið besta orð í iðn
sinni fyrir góða ástundun og sam-
viskusemi og oft urðu vaktirnar
langar hjá honum. Var hann þess-
vegna metinn að verðleikum af
húsbændum sínum, sem sýndu það
í verki. Sigurpáll var vel inni í
ýmsum málum og því góður í við-
ræðu. Áhugamaður um skák var
hann og atti kappi við sterkustu
forrit í tölvu sinni og.hafði ánægju
af. Sigurpáll gifti sig 1958 Svövu
Aradóttur sem lifir mann sinn.
Þau hjónin komu sér upp fögru
og snotru heimili, bókakostur var
mikill og góður. Gestrisni þeirra var
elskuleg og innileg á þeirra myndar-
lega heimili. Við hjónin þökkum
þeim innilega fyrir góða kynningu
í áraraðir.
Vottum Svövu okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
J.Ó.
trúarsystur, Sigurlaugar Kristins-
dóttur, sem Drottinn þefur kallað
heim til dýrðarinnar. Ég mun ekki
rekja ætt hennar Laugu, það munu
aðrir gera.
Við hjónin höfum þekkt þau
Laugu og Ása í fjöldamörg ár, allt-
af var gott að mæta þeim og finna
í nærveru þeirra það sem stendur
í sálmi einum: „Sterk eru andans
bönd sem eru í Kristi hnýtt.“ Við
kynntumst þeim best á Siglufírði
þar sem þau störfuðu í fjöldamörg
ár, og þar eru margir sem minnast
þeirra og ég veit að á eilífðarinnar
morgni verða það einhverjir sem
þakka Laugu fyrir að hafa sagt
þeim frá Jesú.
Maðurinn minn, Óskar, ferðaðist
oft til Siglufjarðar, stundum einn,
og stundum með aðstoðarmanni,
hann talaði oft um hversu gott það
var að koma heim til Laugu og
Ása, þar var alltaf opið hús og
móttökur yndislegar. Þegar við vor-
um með samkomur á Siglufírði
gátum við alltaf átt það víst að þau
kæmu til að hjálpa okkur, einnig
var gott að vera með þeim á Zion,
og saman fórum við á sjúkrahúsið
til að syngja og vitna. Nú, ef kalt
var úti þá gistum við heima hjá
þessum kæru hjónum, og áttum
ógleymanlegar spjallstundir yfír
kaffibollanum. Síðast þegar ég sá
Laugu lá hún á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri, hún var mikið
veik, en frá henni ljómaði birta og
friður, hún var svo örugg í Guði
sínum. Nú er hún heima.
Nú er hún heima í himnanna sal
og hlýðir á englanna tal.
Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg
í sólbjörtum himnanna sal.
„Þegar ég er farinn burt og hef
búið yður stað, kem ég aftur og tek
yður til mín, svo að þér séuð einnig
þar sem ég er.“ (Jóh. 14:3) Já, elsku
Lauga, þökk fyrir allt. Þú hefur
fengið að fullna skeiðið, varðveitt
trúna og nú er þér geymdur sveigur
réttlætisins. Blessuð sé minning þín.
Guð blessi þig, Ási, og styrki og
aðra ættingja og vini.
Ingibjörg Jónsdóttir.
+ BALDUR SNÆLAND vélstjóri, Hrafnistu Reykjavík, lést 11. janúar. Aðstandendur. -
+ Systir okkar LIUA INGVARSDÓTTIR, dvalarheimilinu Kirkjuhvoli, Hvolhreppi, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 10. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Systkinin.
+ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRfÐUR EIRÍKSDÓTTIR frá Túnsbergi, verður jarðsett frá Hrunakirkju laugardaginn 13. janúar kl. 13.30. Jóhanna M. Þorgeirsdóttir, Eiríkur Þorgeirsson, Sigríður Ó. Þorgeirsdóttir, Óttar Gunnlaugsson, Siggeir Þorgeirsson, Kjartan J. Þorgeirsson, Sólborg Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
bóndi,
Leifsstöðum,
sem lést á heimili sínu 4. janúar, verður
jarðsunginn frá Bergsstaðakirkju laug-
ardaginn 13. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurður Ingi Guðmundsson,
Óskar Leifur Guðmundsson,
Danfel Smári Guðmundsson.
Jarðarför
GUNNHILDAR GUÐJÓNSDÓTTUR
klæðskera,
Laugalæk 1,
ferframfrá Fossvogskirkju mánudaginn
15. janúar kl. 13.30.
Þórdis Guðjónsdóttir,
Guðmundur Þór Pálsson,
Guðmundur Gunnarsson,
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir,
Sesselja Gunnarsdóttir.