Morgunblaðið - 12.01.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 39
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
GYLFI Björnsson sjóntækjafræðingnr og eigandi Sjáðu ásamt
Onnu Þóru Björnsdóttur og Láru Albertsdóttur afgreiðslustúlku.
Sjáðu - ný
gleraugnaverslun
GLERAUGNAVERSLUNIN
Sjáðu hefur verið opnuð á Laugar-
vegi 40. Verslunin býður vörur frá
L.A. Eyework. Þær eru upphaf-
lega frá Bandaríkjunum en eru
nú framleiddar á Ítalíu. Auk þess
verða m.a. ítölsku Fendi gleraugun
til sölu í Gleraugnaversluninni
Sjáðu, svo og japönsku umgjörð-
irnar Blazon, en þær eru úr títani
og henta mjög vel þeim sem hafa
ofnæmi fyrir málmum. Umgjörð-
irnar eru mjög léttar en titan hef-
ur m.a. verið notað í geimferðaiðn-
aði.
Þá verður mikið úrval af um-
gjörðum fyrir böm. Eigendur versl-
unarinnar eru Ingibjörg Jónasdóttir
og Gylfi Bjömsson sjóntækjafræð-
ingur. Gylfi segir að mest áhersla
verði lögð á góða þjónustu í nýju
versluninni. „Við ætlum að fylgja
eftir gleraugunum sem við seljum.
Við viljum fá viðskiptavinina til
okkar aftur ef þeir eru ekki fylli-
lega sáttir, svo að við getum leyst
vandamálið," sagði Gylfí.
Innanrými verslunarinnar
hannaði Allan Ford innanhúshönn-
uður.
Ættfræði-
námskeið
að hefjast
ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN fer
bráðlega af stað með ættfræð-
inámskeið. Kennt er í Austur-
stræti lOa.
Grunnnámskeið í Reykjavík
hefjast upp úr 16. janúar, fram-
haldsnámskeið um næstu mánaða-
mót og grunnnámskeið verða
væntanlega í Keflavík, á Akranesi
og víða úti á landi. Á námskeiðun-
um !æra menn til verka við ætt-
rannsóknir, fræðast um ættfræði-
heimildir, leitaraðferðir og úr-
vinnslu í ættskrám af ýmsu tagi.
Auk þjálfunar í vinnubrögðum fá
þátttakendur aðstöðu til að rekja
eigin ættir með notkun frumheim-
ilda og prentaðra bóka. Leiðbein-
andi er sem fyrr Jón Valur Jens-
son, guðfræðingur.
Gönguferð
um Garðabæ
SÚ nýbreytni hefur verið tekin upp
hjá Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar
að efna til gönguferða um hverfi
bæjarins, ásamt bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins.
Næsta gönguferð verður farin
sunnudaginn 14. janúar. Gengið
veiður um Fitja-, Ása- og
Grundarhverfi. Áætlað er að hitt-
ast við íþróttamiðstöðina við Ás-
garð og leggja af stað þaðan kl.
10.30. Gangan endar einnig þar.
Allir íbúar Fitjar, Ása- og
Grundarhverfa eru velkomnir og
eindregið hvattir til að koma í
gönguferð og ræða við bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins um sitt
hverfi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæði-
flokksins í Garðabæ eru einnig
með viðtalstíma í húsi Sjálfstæðis-
félagsins að Lyngási 12. Fyrsti
viðtalstími ársins verður laugar-
daginn 27. janúar milli kl. 10.30
og 11.30.
Staðtölur
almannatrygg-
inga gefnar út
í fyrsta sinn
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins
hefur gefið út í fyrsta sinn nýtt
tölfræðihefti, Staðtölur almanna--
trygginga 1994. Ætlunin er að
staðtölur almannatrygginga komi
framvegis út á hveiju vori, þannig
að nýjustu tölur úr rekstri al-
mannatryggingakerfisins liggi
ávallt fyrir. Staðtölur fyrir 1995
munu því koma út í vor.
Staðtölur almannatrygginga
1994 innihalda tölulegar upplýs-
ingar um útgjöld lífeyris-, sjúkra-
og slysatrygginga fyrir árið 1994.
Tölurnar eru bornar saman við
útgjöld fyrri ára, þannig að hægt
er að sjá þróun almannatrygginga
síðustu ár.
Ritstjóri Staðtalna er Ólafur
Þorsteinsson, deildarstjóri hag-
deildar Tryggingastofnunar, en
ábyrgðarmaður er Karl Steinar
Guðnason, forstjóri. Staðtölunum
er dreift til yfir 2000 einstaklinga,
opinberra stofnana og fyrirtækja
sem starfa að heilbrigðis- og fé-
lagsmálum.
Krossgátubókin
komin út
KROSS-
GÁTUBÓKIN
1996 er ný-
komin út.
Þetta er í 13.
skipti sem
Ó.P. útgáfan
gefur út
krossgátu-
bók. Bókin er
68 blaðsíður
og eru krossgátur á hverri síðu. I
frétt frá útgáfunni segir að bókin
hafi fest sig í sessi á markaðnum
og krossgátubókin í fyrra hafi t.d.
selst í stærra upplagi en fyrri
bækur. Eitthvað er til af eldri
bókum hjá útgáfunni.
KIN
-leikur að læra!
Vinningstölur 11. jan. 1996
1 *5 *8» 14*23»29«30
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
RADAUGl YSINGAR
Atvinna
Rafvirki óskast til starfa strax í Rafverki hf.,
Bolungarvík. Mikil vinna.
Framtíðarstarf fyrir réttan mann.
Upplýsingar í Rafverki í síma 456 7373.
Laus staða
við búvísindadeild
Bændaskólans á Hvanneyri
Staða endurmenntunarstjóra við búvísinda-
deild Bændaskólans á Hvanneyri er laus til
umsóknar.
Starf endurmenntunarstjóra felst í nám-
skeiðahaldi og þróun endurmenntunar við
skólann, en einnig fylgir starfinu kennslu-
skylda við báðar deildir skólans, bændadeild
og búvísindadeild.
Staðan veitist frá 1. mars 1996, en umsókn-
arfrestur er til 1. febrúar 1996.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Magn-
ús B. Jónsson, skólastjóri, í síma 437 OOOO.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík.
Landbúnaðarráðuneytið,
1 l.janúar 1996.
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar-
atkvæðagreiðslu um kjör stjórnar, endur-
skoðenda og trúnaðarráðs í Verslunarmanna-
félagi Hafnarfjarðar fyrir árið 1996.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félags-
ins, Lækjargötu 34D, eigi síðar en kl. 12.00
á hádegi mánudaginn 15. janúar 1996.
Stjórnin.
K I P U L A G R f K I S I N S
Reykjanesbraut/
Fífuhvammsvegur
Mislæg gatnamót og tvö-
földun Reykjanesbrautar
Mat á umhverfisáhrifum -
frumathugun
Skipulag ríkisins kynnir mat á umhverfisáhrif-
um mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar
og Fífuhvammsvegar og tvöföldunar Reykja-
nesbrautar frá Nýbýlavegi, suður fyrir Fífu-
hvammsveg í Kópavogi.
Tillaga að ofangreindum framkvæmdum og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum þeirra
liggur frammi til kynningar frá 12. janúar til
19. febrúar 1996 hjá Skipulagi ríkisins,
Laugavegi 166, Reykjavík og Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 2, Kópavogi.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdirn-
ar og leggja fram athugasemdir. Athuga-
semdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 19. febrúar 1996 til Skipulags ríkis-
ins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást
ennfremur nánari upplýsingar um mat á
umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Rafstöðvar
Til sölu lítið notaðar neyðarrafstöðvar
15 kVA, bensín- eða dieselknúnar.
Upplýsingar í heimasíma 555 3594 og í síma
852 0202, fax 565 4636.
Hafnasandur hf.,
Fagrabergi 38, Hafnarfirði.
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast mánudaginn 15. janúar.
Þeir, sem ekki náðu að innrita sig á kynning-
arfundum, er bent á að upplýsingar eru veitt-
ar í síma 551 0705 milli kl. 11.30 og 12.30
og 16.30-17.30.
Stjórn Germaniu.
Framhaldsnámskeið
Framhaldsnámskeið í starfsnámi fyrir upp-
eldis-, meðferðarfulltrúa og fólk íhliðstæðum
störfum, s.s. stuðningsfulltrúa, starfsleið-
beinendur, gæslumenn o.fl.
Framhaldsnámskeiðið hefst 19. febrúar og
stendur til 19. apríl 1996. (Vakin er athygli
á misritun í Félagstíðindum, þar sem segir
að námskeiðið hefjist 27. febrúar).
Skilyrði fyrir inntöku á framhaldsnámskeiðið
er, að umsækjendur hafi lokið grunnnám-
skeiði í starfsnámi. Framhaldsnámskeiðið
spannar yfir 80 kennslustundir og fer kennsla
fram á Grettisgötu 89, Reykjavík.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð
fást hjá Starfsmannafélagi ríkisstofnana,
Grettisgötu 89, Reykjavík, sími 562 9644.
Umsóknum ber að skila fyrir 20. janúar 1996.
Fræðslunefnd féiagsmáiaráðuneytisins.
Kringlan
Til leigu u.þ.b. 100 fm verslunarbil í Kringl-
unni 8-12.
Umsóknir óskast sendar fyrir 16. janúar nk.,
merktar: „Kringlan - 15563“.