Morgunblaðið - 16.01.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 21
Sampaio kjörinn forseti Portúgals
Signr sósíalista
markar tímamót
Lissabon. Reuter.
SÓSÍALISTINN Jorge Sampaio bar
sigurorð af hægrimanninum Anibal
Cavaco Silva í forsetakosningunum
í Portúgal á sunnudag. Kosningarn-
ar marka tímamót þar sem tveir
atkvæðamestu stjórnmálamenn
landsins síðustu tíu ára hverfa nú
af vettvangi stjórnmálanna. Sósíal-
istinn Mario Soares fer frá eftir að
hafa gegnt forsetaembættinu í ára-
tug og Cavaco Silva, forsætisráð-
herra á árunum 1985-95, tilkynnti
á sunnudag að hann myndi draga
sig í hlé.
Sampaio fékk 53,8% atkvæðanna
en Cavaco Silva 46,2% og þetta er
annar kosningasigur portúgalskra
sósíalista á þremur mánuðum.
Flokkurinn myndaði ríkisstjórn
undir forystu Antonios Guterres
eftir þingkosningar í október og
þetta er í fyrsta sinn sem forsetinn
og forsætisráðherrann eru í sama
flokknum frá því lýðræði var komið
á í landinu árið 1974 eftir áratuga
einræðisstjórn.
Vill verða sameiningartákn
Soares, sem er 71 árs, nýtur
mikilla vinsælda en gat ekki gefið
kost á sér í kosningunum þar sem
enginn má gegna embættinu lengur
en í tvö fimm ára kjörtímabil.
Sampaio tekur við af honum 9.
mars og kvaðst á sunnudag ætla
að verða „forseti allra Portúgala“
og sameiningartákn þjóðarinnar.
Hann sagðist reiðubúinn að beita
neitunarvaldi gegn frumvörpum
sósíalistastjórnarinnar ef hann teldi
þau ganga gegn þjóðarhagsmunum
Portúgala.
Sósíalista vantar nokkur þing-
sæti til að hafa meirihluta á þinginu
og fréttaskýrendur segja stuðning
Sampaios geta ráðið úrslitum fyrir
stjórnina þegar hún hefjist handa
við að knýja frarn erfiðar sparn-
aðaraðgerðir til að minnka ríkisút-
gjöldin og uppfylla skilyrði um að-
ild Portúgals að fyrirhuguðu Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu-
sambandsins.
Sampaio er 56 ára að aldri og
fyrrverandi borgarstjóri Lissabon.
Hann var leiðtogi Sósíalistaflokks-
ins þegar hann beið ósigur fyrir
Sósíaldemókrataflokki Cavacos
Silva í þingkosningum árið 1991.
Sampaio varð einnig að víkja fyrir
Guterres sem leiðtogi flokksins eft-
ir kosningaósigurinn.
Reuter
JORGE Sampaio, sigurvegari
forsetakosninganna í Portúgal
á sunnudag, ávarpar frétta-
menn í Lissabon eftir sigurinn.
Þúsundir stuðningsmanna
Sampaios fögnuðu úrslitunum á
götum Lissabon eftir að þau lágu
fyrir. Sampaio flutti sigurræðu við
hótel í portúgölsku höfuðborginni
meðan stuðningsmenn hans veif-
uðu fánum, sungu þjóðsöng Port-
úgals og söngluðu: „Sampaio, vin-
ur, þjóðin stendur með þér“.
Hundruð bílstjóra óku um borgina,
virtu umferðarlögin að vettugi og
flautuðu í sífellu meðan farþegar
teygðu sig út um gluggana með
fána landsins.
Scalfaro
hefur
könnimar-
viðræður
Geimganga
Reuter
TVEIR bandarískir geimfarar
brugðu sér í gær út úr geimferj-
unni Endeavour, til að prófa ný
tæki og reyna aðferðir sem not-
ast á við þegar byggð verður
alþjóðleg geimstöð úti í geimin-
um. Sú bygging á að hefjast
snemma á næsta ári. Á myndinni
vinna geimfararnir Leroy Chiao
og Daniel Barry við vélarm sem
er hluti af tækjabúnaðinum sem
prófa á.
Réttur settur á ný
yfir Egon Krenz
Berlín. Reuter.
RÉTTARHÖLD hófust að nýju í
gær yfir Egon Krenz, síðasta leið-
toga kommúnista í Austur-Þýska-
landi fyrir fall Berlínarmúrsins, og
fimm öðrum ráðamönnum. Þeir eru
ákærðir fyrir dráp á 47 manns og
tilraun til að drepa 24 sem reyndu
að flýja yfir Berlínarmúrinn eða
víggirðingar á landamærum þýsku
ríkjanna manndráp. Réttarhöldun-
um var frestað í nóvember vegna
sjúkleika eins sakborningsins.
Krenz skýrði réttinum frá því,
að Míkhaíl Gorbatsjov, þáverandi
leiðtogi Sovétríkjanna, hefði full-
vissað sig um, eftir viðræður við
Helmut Kohl kanslara fyrir samein-
ingu þýsku ríkjanna 1990, að aust-
ur-þýskir leiðtogar yrðu ekki dregn-
ir fyrir rétt. „Því var heitið að eitt
réttarfarskerfi myndi ekki dæma
annað kerfi,“ sagði Krenz.
Sakborningarnir hafa ítrekað
reynt að fá réttarhöldin stöðvuð en
margir þýskir fjölmiðlar hafa sagt
þau vera hin merkilegustu frá
stríðsglæparéttarhöldunum í
Núrnberg fyrir hálfri öld.
Þýskum saksóknurum hefur
reynst erfitt að koma austur-þýsk-
um ráðamönnum á bak við lás og
slá þar sem starfsemi sú, sem þeir
báru ábyrgð á, var ekki bönnuð
samkvæmt austur-þýskum lögum.
Krenz var við völd er Berlínar-
múrinn féll árið 1989. Þeir sem
svara til saka auk hans eru harð-
línumaðurinn Kurt Hager, Gunter
Schabowski, talsmaður stjórn-
málaráðsins, Horst Dohlus, skrif-
stofustjóri stjórnmálaráðsins,
Erich Múckenberger, formaður
þingflokks kommúnistaflokksins
og Gúnther Kleiber, einn valda-
mesti hagfræðingur Austur-
Þýskalands.
Róm. Reuter.
OSCAR Luigi Scalfaro, forseti ít-
alíu, hóf í gær viðræður við for-
menn stjórnmálaflokkanna í von
um að einhverjir þeirra næðu sam-
komulagi um myndun stjórnar.
Starfandi forsætisráðherra, Lam-
berto Dini, baðst lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt í síðustu viku þar
sem ljóst var að stjórn hans nyti
ekki lengur meirihlutastuðnings á
þingi.
Gert er ráð fyrir því að viðræð-
ur Scalfaros við stjórnmálaleiðtog-
ana muni standa í 5 daga. Þeir
kostir sem eru í stöðunni eru
myndun fjölflokkastjórnar sem
standi að víðtækum umbótum á
stjórnarskránni, eða þá að boðað
verði til kosninga, ári áður en til
stóð.
Scalfaro hefur lýst því yfir að
hann sé andvígur því að ganga til
kosninga þar sem að þær myndu
verða á sama tíma og ítalir fara
með forystu í Evrópusambandinu.
Fyrstir á fund Scalfaros voru
tveir fyrrverandi forsætisráðherr-
ar, Giovanni Leone og Francesco
Cossiga, svo og Carlo Scongna-
miglio, forseti þingsins, og Irene
Pivetti, forseti neðri deildar þess.
Viðræðunum á að ljúka á föstudag
en þá hafi Scalfaro rætt við full-
trúa allra flokkanna á þingi, 24
talsins.
Berlusconi fyrir rétt
Á morgun, miðvikudag, hefjast
réttarhöld yfir Berlusconi, sem er
sakaður um spillingu, en það varp-
ar óneitanlega skugga á tilraunir
hans til að komast í stjórn að nýju.
Berlusconi fullyrðir að hann sé
fórnarlamb ófrægingarherferðar
gegn sér en hann, bróðir hans,
Fabio, og rn'u aðrir sem tengjast
fyrirtæki hans Fininvest, eru
ákærðir fyrir að hafa mútað
skattaeftirlitsmönnum.
SUN LIFE
Lífeyristrygging aö þínum óskum
eöa endurgreiðsla ef þú skiptir um skoðun
Sun Life er breskt og alþjóðlegt líftryggingafélag
/ lifeyrissjóður, með starfsleyfi á íslandi.
Hiö sveigjanlega tryggyngafyrirkomulag Sun
Life gerir þér kleift aö aölaga tryggingar þínar aö
breyttum aöstæöum. Ef tekjur hækka eöa lækka
fjölskyldan stækkar, börnin flytja aö heiman eöa
hvaö annað, þá getur þú breytt áætluninni fyrirvar-
alaust.
Þú getur tekiö uppsafnaöa upphæö út
hvenær sem þér hentar og vátryggingarskírteiniö er
aö sjálfsögöu veöhæft.
Lágmarksupphæö er 2500 kr. á mánuði.
Líftrygging, miðað viö þá upphæö getur verið frá
1.000.000 upp í 25.000.000. Iðgjöld má greiöa meö
VISA og EURO.
Sparnaöur aö viðbættum vöxtum er greiddur
út, þegar þér hentar, í gjaldeyri (ensk pund).
w Allar tryggingabætur, sem greiddar eru út í
einu lagi eru skattfrjálsar, samkv. íslenskum lögum.
W Lífeyrissjóöir Sun Life hafa gefið allt aö 16%
meðalársávöxtun undanfarin 18 ár. Lífeyris-
innstæöur ásamt vöxtum eru tryggðar skv. breskum
lögum.
Látist sá tryggöi er líftryggingaupphæðin
greidd út aö fullu, ef iífeyrisinnistæður eru hærri en
tryggingin eru þær einnig greiddar út.
Hægt er aö fá sérstaka sjúkdómatryggingu
meö iðgjaldafrelsi ef viökomandi veikist.
Dæmi um mann sem tekur tryggingu 25 ára:
Mánaðarlegt iðgjald kr 10.000
til 65 ára aldurs..........Samtals kr. 4.800.000
Líftrygging allt tímabiliö..........kr. 6.000.000
Eingreiðsla við 65 ára aldur
miðaö við 7,5% ávöxtun (karlmaður)..kr. 22.100.000
Eöa mánaðargreiðslur út lífiö
án skerðingar höfuöstóls............kr. 110.000
Að gefnu tilefni viljum við benda á að það tekur
styttri tíma að senda fax til Englands og fá svar
til baka heldur en að keyra í Kringiuna og heim
aftur.
Þeim sem vilja kynna sér málið nánar og fá bæklinga
á íslensku er bent á aö hafa samband viö íslenskan
vátryggingamiölara í síma 551 8354
Sun Life
INTERNATIONAL
Sun Life International Limited
Sun Life Court, St James Barton, Ðristol
BS99 7SL Sími 00 44 272 244301