Morgunblaðið - 16.01.1996, Side 25
f
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 25
LISTIR
Styrkveiting
úr Listasjóði
Pennans
UMSÆKJENDUR um styrk úr
Listasjóði Pennans fyrir 1995 voru
41 talsins og ákvað stjórn sjóðsins
að veita þremur listamönnum
styrk að þessu sinni.
Inga Svala Þórsdóttir hlaut 300
þúsund króna styrk. Inga Svala
lauk námi frá Myndiista- og hand-
íðaskóla íslands 1991 og fram-
haldsnámi frá Hochschule fiir
bildende Kiinste í Hamborg 1993.
Inga Svala hefur tekið þátt í sýn-
ingum bæði hér heima og eriend-
is. Það er álit dómnefndar að Inga
Svala Þórsdóttir sýni í verkum
sínum að hún búi yfir óvenju mik-
illi fjölhæfni: „Hún hikar ekki við
að tefla saman sterkum hlutlæg-
um formum og huglægum táknum
sem reyna jafnt á myndskyn og
lesskilning áhorfandans."
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
fékk 200 þúsund króna vöruúttekt
í Pennanum. Guðný Rósa lauk
námi frá Myndlista- og handiða-
skóla íslands 1994. Stundar hún
framhaldsnám við Ecole Nationale
Superieure des Arts Visuels de la
Cambre í Belgíu. „Guðný Rósa
hefur að mati dómnefndar náð að
Á MYNDINNI eru, frá vinstri: Gunnsteinn Gíslason, Sigríður Sig-
uijónsdóttir, Gunnar B. Dungal, Inga Svala Þórsdóttir, Sigrún
Guðnadóttir móðir Guðnýjar Rósu og Hringur Jóhannesson.
tileinka sér mikla færni í hefð-
bundinni teikningu sem hún brýt-
ur upp í verkum sínum með ólík-
um efnum og formum og eykur á
breidd módelteikningar," segir í
niðurstöðu dómnefndar.
Dómnefnd ákvað að veita Sig-
ríði Sigurjónsdóttur hönnuði sér-
staka viðurkenningu að upphæð
100 þúsund krónur. Sigríður
stundaði undirbúningsnám i list
og hönnun við Brighton Polytec-.
hnic í Englandi 1988 til 1989 og
framhaldsnám í þrívíddarlist-
hönnun við West Surrey College
of Art and Design 1989-1992. Hún
lauk BA-prófi 1992. Sigríður Sig-
urjónsdóttir hefur haldið nokkrar
sýningar hér heima og erlendis
og starfar sem hönnuður. I hönn-
unarverkum Sigríðar sameinast
formfrelsi myndlistarinnar og
notagildi þannig að þau geta stað-
ið sem einstæð myndlistarverk.
Stjórn Listasjóðs Fennans
skipa: Hringur Jóhannesson list-
málari, Gunnsteinn Gíslason
skólastjóri Myndlista- og handiða-
skóla Islands og Gunnar B. Dung-
al.
Endurmenntunarstofnun
á síðdegis & kvöldnámskeið
g verð í síma 525 4923 - 24 - 25, fax 525 4080.
Frá Evu til Maríu
móður Guðs
Konur biblíunnar í nýju ljósi
• Spurt m. a.; hver var sök Evu?;
af hverju rak Sara Hagar á brott?;
á ofbeldi gegn konum í samfélagi okkar
eitthvað sameiginlegt með því ofbeldi
sem við lesum um í Gamla testa-
mentinu?; hver var María móðir Jesú og
hvert er hlutverk hennar í dag?; var Páll
postuli andvígur konum, eða er hann
nótaður til að halda konum frá völdum í
kirkjunni?
• Amfríður Guðmundsdóttir guðfr.
• Þri. 5. mars-9. apríl. (6x).
Tvær útlagasögur
Harðar saga Grímkelssonar
og Gísla saga Súrssonar
Haldið i samstarH við tómstundaskólann.
• Harðar saga Grímkelssonar og Gísla
saga Súrssonar gerast í heiðnum sið á
svipuðum tíma. Harðar saga er að
mestu sviðsett í Þingvallasveit og við
Hvalfjörð en Gísla saga á Vestfjörðum.
Söguþráður er ólíkur en hugsanlegt er
að báðar spretti af einni rót og
söguhetjur eiga margt sameiginlegt.
• Jón Böðvarsson, cand. mag.
• Þri. eða mið. 6. feb.-17. apr. (lOx).
Örnefni, saga og bókmenntir
• Ömefnarannsóknir og hvemig þær
varpa ljósi á sögu og bókmenntir.
• Þórhallur Vilmundarson próf.,
forstöðumaður Ömefnastofnunar.
• Þri 5.-26. mars. (4x).
Rökhyggja og rómantík:
Nokkrar lykilhugmyndir
í listasögu 18. og 19. aldar
skoðaðar í ljósi samtímans
• Hugtökin klassík, nýklassík og
rómantík í ljósi samtímans, vitnað í
texta og myndir frá 18. og 19. öld og
úr samtímanum. Hugmyndaleg tengsl
á milli myndlistar, heimspeki og
stjórnmálasögu og hugmyndalegar
rætur módemismans í myndlist.
• Ólafur Gíslason blaðamaður.
• Fim. 15. feb.-28. mars. (7x).
„Kirkjan ómar öll“:
Ýmis andlit kirkjutónlistar
• Kirkjutónlist í helgihaldi safnaða og
þróun yfir í messur meistaranna og
önnur stórvirki kirkjutónmenntanna.
Kirkjutónlist á íslandi og hlutverk í
trúarlegu sem félagslegu tilliti. Kynnt
þau kirkjutónverk sem flutt verða í
Reykjavík í nálægð páskahátíðarinnar.
• Margrét Bóasdóttir, söngkona og
kennari við Guðfræðideild HÍ, og
Kristján Valur Ingólfsson, rektor
Skálholtsskóla, o.fl.
• Fim. 22. feb.-21. mars. (5x).
Tungumál:
/
ltalska - Byrjendur og framhald
Kínverska - Byrjendur og framhald
Hagnýt nútímasænska
Danska fyrir heilbrigðisséttir
Viðskiptaítalska
íslenska fyrir útlendinga
Viðskipta- og töivuskólinn
Nám sem skilar þér
árangri - núna!
Tö.lvunámskeið fyrir atvinnulífið
Góð tölvukunnátta eykur afköst. Starfsmenn sinna sínu starfi en ekki
tölvuvandamálum! Þeir geta sótt almenn námskeið eða pantað hóp-
námskeið sem hægt er að laga að þörfum fyrirtækja.
Tölvunámskeið fyrir heimilið
Heimilistölvur eru orðnar ótrúlega öflugar og það er synd að nota þær
aðeins fyrir leiki, þegar hægt er að nýta þær á svo margvíslegan hátt.
VTN býður upp á kvöld- og helgarnámskeið þar sem farið er á
hnitmiðaðan hátt í gegnurn algengasta notendahugbúnað. VTN býður
einnig upp á mjög gagnleg námskeið fyrir börn og unglinga.
Rekstur smáfyrirtækja
Námskeiðið er fyrir þá sem standa í rekstri eða þá sem hyggja á rekstur.
Markviss kennsla í helstu þáttum sem snúa að daglegum rekstri
smáfyrirtækja eða einyrkja.
(160 kennslust. /120 klst.)
Virk markaðssetning
Námskeið ætlað verslunareigendum, verslunarstjórum eða fólki með
annan rekstur. Þátttakendum er kennt að tileinka sér vinnubrögð
virkrar markaðssetningar og bæta þannig árangur sinn í viðskiptum.
(108 kennslust. /81 klst.)
Bökhaldsnám
Hefur þú áhuga á vinnu við bókhatd eða kemstu ekki hjá því að færa
bókhald? Á þessu námskeiði eru kennd nauðsynleg atriði til að hand-
færa og tölvúfæra bókhald, vinna afstemmingar og setja upp einfaldan
ársreikning fyrir minni fyrirtæki.
(156 kennslust. /117 klst.)
Tölvunotkun í fyrirtækjarekstri
Hér færðu heildaryfirsýn yfir möguleika einmenningstölvunnar í fyrir-
tækjum og alhliða þjálfún í notkun á algengasta búnaði.
(414 kennslust. / 23 vikur)
Almennt skrifstofunám
Ertu á leið út á vinnumarkaðinn? Eða viltu breyta til? Hnitmiðað
undirbúningsnám þar sem kennd eru þau atriði sem mestu máli skipta
við almenn skrifstofústörf. Námið er opið öllum 18 ára og eldri.
(486 kennslust. / 26 vikur)
Námskeið VTN:
Fjalla um aðatatríðí ” kenna það sem skiptir máli
Eru hagnýt “ skila árangri
Eru nátengd atvínnulífinu “ veita forskot á vinnumarkaði
<Q> A
NÝH E R JI Stjórnunarfélag
íslands
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Ánanaustum 15.101 Reykjavík.
sími: 569 7640. símbréf: 552 8583. skoli@nyherji.is