Morgunblaðið - 16.01.1996, Page 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Kartöflur
Jólabók Kristínar Gestsdóttur í ár er gull-
falleg matreiðslubók sem dóttir hennar gaf
henni, bókin lætur ekki mikið yfír sér og
heitir einfaldlega Potatoes eða Kartöflur.
OFANNEFND bók er ein sú
fegursta sem ég hefí eignast,
hún er fagurlega myndskreytt
kartöflum, haustlaufum og
berjum. Við vitum öll að haust-
laufín eru falleg en að kartöfl-
umar séu líka fallegt myndefni
kemur á óvart. Þama em ýms-
ar tegundir af kartöflum allt
frá eins konar rauðskjöldóttum
ef svo má að orði komast upp
í fagurbláar. Þó að við ræktum
íslenskar rauðar á íslandi hefí
ég ekki heyrt um að nokkur
íslendingur ræktaði bláar kart-
öflur. Hver veit nema við eigum
eftir að sjá þær í búðum hér
með framandi grænmeti og
ávöxtum. Kartöfluréttir em
mjög ljúffengir og upplagt að
borða þá núna og áfram á út-
mánuðum, þegar kartöflumar
fara að gefa sig. Ég hefí ekki
mikið gert af þvf að þýða upp-
skriftir úr bókum og blöðum,
en bregð út af vana í þetta
sinn og þýði hér uppskrift að
kartöflusúpu úr bókinni fögm.
Þó er einn galli á gjöf Njarðar,
tvennt í uppskiftinni fæst ekki
hér á landi, en það eru áfír og
asiago-ostur. Áfír er vökvi sem
verður eftir, þegar smjör er
búið til, en það er búið til úr
ijóma eins og flestir vita. As-
iago-ostur er sterkur harður
ostur, sterkari en parmesan-
ostur. Ég notaði því annað í
staðinn, sjá uppkrift. Auk kart-
öflusúpunnar er hér uppskrift
að kartöflubakstri úr bók minni
MINNA MITTISMÁL.
í þættinum frá 6. jan sl. er
of lítill vökvi í partauppskrift-
inni. Á að vera 4 dl maltöl.
Kartöfluostasúpa
650 g kartöflur
1 meðalstór blaðlaukur,
aðeins hvíti hlutinn
2 ‘Abolli kjúklingasoð eða vatn
og 1-2 soðteningar
_______1 bolli vatn að auki___
1 bolli léttmjólk + Adl mysa
___________f stað áfa_________
A bolli rifinn Óðalsostur + A
bolli rifínn Parmisan- ostur í stað
Asiago-osts
nýmalaður svartur pipar
fersk steinselja + smáblað'af
_______grænum blaðlauk________
1. Afhýðið kartöflur og
skerið í mjög þunnar sneiðar.
Þvoið blaðlaukinn með því að
láta kalt vatn úr krananum
renna inn í hann, skerið síðan
ljósa hlutann í þunnar sneiðar.
Setjið kartöflu- og blaðlauks-
sneiðar í soðið eða vatnið +
soðtening og sjóðið við hægan
hita í 10 mínútur (ég lét kart-
öflumar sjóða lengur). Setjið
síðan í matvinnslukvörn eða
meijið gegnum sigti. Setjið aft-
ur í pottinn. Setjið léttmjólk
og mysu saman við og hitið
vel en látið alls ekki sjóða. Ef
súpan sýður getur hún skilið
sig.
2. Setjið rifinn ost saman
við og látið bráðna en látið
samt ekki sjóða.
3. Ausið á diska eða berið
fram í skál.
4. Klippið steinselju og
grænt blað af blaðlauk og strá-
ið yfír.
Meðlæti: Heitt snittubrauð.
Kartöflubakstur
A kg kartöflur
1 meðalstór blaðlaukur
1 dl saltvatn
4-5 skinkusneiðar
____________4 egg___________
‘A tsk salt
A tsk pipar
A dl nýmjólk eða léttmjólk
fersk steinselja
1 dl rifínn mjólkurostur, sú
tegund sem ykkur hentar
1. Sjóðið kartöflurnar, af-
hýðið síðan og skerið í sneiðar.
2. Smyijið eldfast mót, rað-
ið kartöflusneiðunum á botn-
inn.
3. Kljúfið blaðlaukinn, sker-
ið í sneiðar og sjóðið í 1 dl af
saltvatni í' 5 mínútur. Hellið
þá vatninu af en setjið blað-
laukinn yfir kartöflumar. Rað-
ið skinkusneiðunum yfír.
4. Þeytið saman egg, salt,
pipar og rnjólk, klippið steinelj-
una og setjið út í. Hellið yfír
það sem er í mótinu. Rífíð ost-
inn og stráið yfir.
5. Hitið bakaraofn í 210°
C, blástursofn í 190° C, setjið
mótið í miðjan ofninn og bakið
í 20-30 mínútur. í örbylgjuofni
u.þ.b. 8-10 mínútur.
Meðlæti: Gróft brauð og
smjör.
SKAK
Umsjðn Margeir
Pélursson
HVITUR á leik
STAÐAN kom upp á
öflugu alþjóðaskákmóti í
Reggio Emilia á Ítalíu um
áramótin. Stórmeistarinn
Zurab Azmajparashvili
(2.660), frá Georgíu, var
með hvítt og átti leik, en
ítalski alþjóðameistarinn
Bruno Belotti (2.380) var
með svart. Eins
og ftala er siður
hefur Belotti
lagt allt í sölurn-
ar fyrir sókn á
kóngsvæng, en
hvítur varð á
undan hinum
megin á borð-
inu:
22. Rxa7! -
Bxc4 23. Dxc4
- Hxa7 24. a5
- Ha8 25. axb6
- Hb8 26. Dc7
- De8 27. b7
og svartur gafst upp.
Hann á ekki viðunandi
vörn við hótununum 28.
Ba7 og 28. Dxb8 - dxb8
29. Ha8.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Hver kann kapalinn?
KANN einhver kapal þar sem tveir stokkar eru
stokkaðir saman og notaðir í einu og a.m.k. tveir
eða fjórir geta lagt hann eða spilað? Kannist ein-
hver við þetta er hann beðinn að hringja í síma
562-6755
Tapað/fundið
Nisti fannst Gleraugu fundust
LÍTIÐ silfurnisti fannst KRINGLOTT sjóngler-
í Þjóðleikhúskjallaranum augu fundust fyrir utan
fyrir u.þ.b. tveimur vik- Miðstræti 8 sl. föstudag.
um. Upplýsingar í síma Upplýsingar í síma
568-0422. 551-0752.
Med morgunkaffinu
Pennavinir
Ást er ...
7-8
að segja honum að hann
sé myndarlegastur allra á
ströndinni.
TM Rog U.S. P»t Ofl. — all right* rsserved
(c) 1085 Loa Angataa Timss SynðcaM
VAR ég að biðja þig um
að hreinsa hana?
X/
EG veit að þú ert ósátt
við eitthvað í dag, Dísa
mín. Segðu mér hvað er
að angra þig.
AUÐVITAÐ er pabbi þinn
aldrei heima. Hann er nú
einu sinni týndi hlekkur-
inn.
ÉG ætla að panta eitt tveggja manna borð í júlí 1997.
ÞÝSK 23 ára kona með
margvísleg áhugamál:
Thomus Skok,
Schelde-Lahn-Str. 25,
35719 Angelburg-Lix-
feld,
Germany.
ÁTJÁN ára japönsk stúlka
með fjölmörg áhugamál:
Miyuki Hamada,
1761 Chichiihara,
Saeki-cho,
Wake-gun,
Okayama,
709-05 Japan.
TUTTUGU og eins árs
Ghanastúlka með áhuga á
biblíulestri, íþróttum, tón-
list og ferðalögum:
Nana Baissie,
Baptist Church,
P.O. Box 819,
Ayiko Ayiko,
Cape Coast,
Ghana.
TÍU ára tékkneskur piltur
með 'áhuga á hjólreiðum,
íshokkí, póstkorutm, frí-
merkjumo.fi.:
Jakub Sebastian,
u. vezovych domu 2936,
Most 434 01,
Czech Republic.
LEIÐRÉTT
kvöldmatinn annað kvöld.
Árétting vegna
greinar um skipulag
hálendis
í greininni „Hálendið skipu-
Iagt“ í Morgunblaðinu síðast
liðinn sunnudag var texti
inni á korti sem gat boðið
upp á misskilning og því
rétt að skýra málið betur. í
fyrsta lagi var í feitletri inni
á kortinu talað um afmörkun
miðhálendisins vegna
svæðaskipulags. Heppilegra
hefði verið að orðið afmörk-
un hefði verið geymt innan
gæsalappa, því enn má heita
að línur séu ófrágengnar og
talað hefur verið um „ímynd-
aða línu“ í viðræðum hags-
muna- og framkvæmdaað-
íla. í öðru lagi er í mynda-
texta talað um fjórþætta
skiptingu miðhálendisins
sem unnið hefur verið út
frá. Þess ber að geta, að
skiptingin á kortinu er eftir
náttúrufari á svæðinu, en
það kom ekki fram í mynda-
textanum.
Víkveiji skrifar...
STJÓRNVÖLDUM gengur illa
að hemja ferðakostnað hins
opinbera. í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar, sem birt var í síðustu viku
kemur fram að ferðakostnaður
ráðuneyta á árinu 1994 hefur auk-
izt um tæp 20%. Er þetta hæsti
kostnaðarliður ráðuneyta fyrir utan
laun.
Það er tími til kominn að menn
geri sér grein fyrir því, að töluvert
af ferðakostnaði hins opinbera er
óþarfur kostnaður. Það er ekki
nauðsynlegt að opinberir starfs-
menn fari í allar þessar ferðir. Að
hluta til er hér á ferðinni viðleitni
til þess hjá starfsmönnum að skapa
sér auknar tekjur og tilbreytingu í
starfi.
Það mundi ekkert gerast í sam-
skiptum okkar íslendinga við önnur
lönd, þótt verulega yrði dregið úr
þessum kostnaði. Ríkisendurskoðun
leggur til, að athugað verði að fella
niður dagpeningakerfið en greiða
kostnað við ferðir samkvæmt fram-
lögðum kostnaðarreikningum. Það
er full ástæða til að prófa það og
sjá, hvort það leiðir ekki til umtals-
verðs samdráttar í ferðalögum til
útlanda á vegum hins opinbera.
xxx
EINN af varabæjarfulltrúum
Framsóknarflokksins á Akur-
eyri, Oddur Halldórsson, sem sæti
á í íþrótta- og tómstundaráði bæjar-
ins svo og í byggingarnefnd, hefur
Iátið bóka, að hann óski ekki eftir
hækkun á þóknun sinni fyrir
nefndastörf, en til stóð, að hún
hækkaði um 9% um áramót í sam-
ræmi við hækkun á þingfararkaupi.
Fram kemur í frétt Morgunblaðs-
ins um þetta sl. laugardag, að fyrir
hveija fundarsetu fái menn tæpar
4.000 krónur og að varabæjarfull-
trúinn hafi talið óeðlilegt, að þessi
þóknun hækkaði á sama tíma og
leitað sé allra leiða til þess að draga
úr launakostnaði starfsmanna
þeirra stofnana, sem heyra undir
þær nefndir, sem hann situr i.
Þetta er athyglisverð og óvenju-
leg afstaða hjá kjörnum fulltrúa en
vissulega til eftirbreytni.
xxx
BYGGÐASTOFNUN flutti á
milli húsa í Reykjavík og nem-
ur kostnaður við nýtt húsnæði
stofnunarinnar 115 milljónum
króna. Þá keypti stofnunin fyrir
rúmum tveimur árum húsnæði fyrir
starfsemi sína á Akureyri og gerði
lagfæringar á því en heildarkostn-
aður við það húsnæði nemur 55
milljónum króna. Þar eru ijórir
starfsmenn.
Það er ekki við öðru að búast en
kostnaður skattgreiðenda við opin-
bera kerfið á íslandi sé hár, þegar
þannig er staðið að málum. Hveijir
veita heimild til svona háttalags?