Morgunblaðið - 16.01.1996, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBI(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sjálfvirkur
sleppibúnaður
Lögleiðingu
frestað fram
á sumar
LÖGLEIÐINGU sjálfvirks sleppi-
búnaðar í skip hefur verið frestað
frá 1. janúar til 1. júlí. Jón Birgir
Jónsson, ráðuneytisstjóri í sam-
gönguráðuneytinu, segir að ástæð-
an fyrir því sé að ekki sé til nægi-
lega mikið af búnaði í landinu.
Jón sagði að stefnt hefði verið
að því að reglugerð um sjálfvirkan
sleppibúnaðinn tæki gildi um ára-
mót. „En þegar grennslast var fyr-
ir um hvort nægilega mikið af
búnaði væri til svo hægt væri að
koma honum fyrir í þeim skipum
sem ekki væru með búnað kom í
ljós að ekki var nægilega mikið á
markaðinum. Við töldum því rétt-
ara að fresta þessu til 1. júlí,“ sagði
hann.
-----» ♦ ♦---
Ottó Wathne
dró Klett til
Nýfundnalands
Taugin
slitnaði
tvisvar
OTTÓ Wathne kom til Nýfundna-
lands með rækjuskipið Klett í togi
eftir tveggja og hálfs sólarhrings
barning í ofsaveðri þar sem vind-
hraði fór yfir 12 vindstig í verstu
hryðjum. Dráttartaug milli skip-
anna slitnaði tvisvar á leið til lands.
Skipin voru við rækjuveiðar á
Flæmska hattinum þegar Klettur
fékk í skrúfuna. Ottó Wathne tók
Klett í tog 300 mílna leið til lands.
Á leiðinni hrepptu skipin versta
veður, að sögn Trausta Magnússon-
ar, útgerðarstjóra Ottós Wathne,
misvinda 12-14 vindstig þegar verst
lét og erfitt sjólag.
Tvisvar slitnaði vírinn milli skip-
anna og tók langan tíma í hvort
skipti að koma taug á milli aftur.
Qddvitinn í Súðavík ári eftir að snjóflóðið varð 14 manns að bana
Uppbygging þorpsins
hefur gengið ótrúlega vel
ÞESS er minnst í dag að eitt ár
er liðið frá því að snjóflóð féll á
byggðina í Súðavík með þeim af-
leiðingum að 14 manns biðu bana.
Sigríður Hrönn Elíasdóttir, odd-
viti í Súðavík, segir að íbúar Súða-
víkur hafí jafnað sig ótrúlega vel
eftir áfallið og uppbygging þorps-
ins gangi ótrúlega vel. „Við höfum
fengið hjálp til að hjálpa okkur sjálf
og ég tel að það hafi riðið bagga-
muninn að við gátum ráðist í að
byggja allt upp á nýtt.“
Nú búa 290 manns í Súðavík,
14 færri en bjuggu þar fyrir snjó-
flóðin. Nokkrar fjölskyldur, meðal
annars sumar þeirra sem urðu
fyrir mesta missinum, fluttu í
burtu en annað fólk hefur komið
í staðinn.
I Súðavík voru rúmlega 60 íbúð-
ir fyrir snjóflóðin. Nú er búið að
úthluta lóðum fyrir 57 íbúðir af
þeim 67 sem gert er ráð fyrir í
fyrsta áfanga nýrrar Súðavikur.
Þar er búið í nítján sumarbústöðum
sem settir voru upp til bráða-
birgða. Allmörg hús eru í byggingu
og er þegar flutt inn í eitt þeirra.
Vinnu er langt komið við að færa
fjögur timburhús sem voru í bygg-
ingu í gamla þorpinu en hafa nú
verið flutt. Margir neyðast þó til
að búa í eldri húsum sínum í vetur
og eiga sumir erfitt með það, að
sögn Sigríðar Hrannar.
Landslagsarkitekar vinna nú að
skipulagningu minningarreits um
þá sem létust í snjóflóðunum en
hann verður við Túngötu og Aðal-
götu, á því svæði sem mesta flóðið
fór yfir.
Að lokinni blysför sem farin
verður um þorpið klukkan 17.30 í
dag verður haldin bænastund á
minningarreitnum í tilefni þess að
ár er liðið frá náttúruhamförunum.
Minningarathöfn verður einnig
haldin í Dómkirkjunni í Reykjavík
klukkan 20.30 í kvöld.
. ■ Við gleymum þeim aldrei/4
Morgunblaðið/Þorkell
KAREN Rós, 8 ára, og Sólveig Olafsdóttir, 10 ára, stúlkur í Súðavík á leið um svæðið í gær þar sem snjóflóðið féll fyrir réttu ári.
Vilja Völu
í sænska
landsliðið
VALA Flosadóttir, ftjáls-
íþróttakona úr ÍR, setti Norð-
urlandamet innanhúss í stang-
arstökki kvenna á móti í Malmö
í Svíþjóð á sunnudaginn. Hún
. stökk 3,82 metra og bætti eig-
ið Norðurlandamet um 6 sentí-
metra.
Svíar hafa boðið henni gull
og græna skóga gerist hún
sænskur ríkisborgari og keppi
fyrir hönd Svíþjóðar á Evrópu-
mótinu innanhúss sem fram
fer í Gautaborg í mars og eins
fái hún sæti í sænska ólympíu-
liðinu sem í Atlanta í sumar.
„Eg vil í lengstu lög halda í
íslenska ríkisborgararéttinn
og komast hjá því að skipta,"
sagði Vala.
■ Vala bætti/Cl
Breski sjómaðurinn áfrýjar úrskurði um farbann til 15. apríl
Norska niðurstaðan talin
endanleg í nauðgunarmálinu
DÓMI í máli bresks sjómanns, sem var dæmdur
í 12 mánaða fangelsi fyrir nauðgun, hefur ver-
ið áfrýjað til Hæstaréttar. Jafnframt hefur far-
bann sjómannsins verið framlengt þar til hæsta-
réttardómur gengur, þó ekki lengur en til 15.
apríl. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsiiis
hefur yfirmaður rannsóknastofu Háskóla Is-
lands í meinafræði sent frá sér endanlegt álit
um DNA-rannsóknir í nauðgunarmálinu þar
sem segir að niðurstaða rannsóknarinnar sé sú
að útilokað sé að sæðissýni í smokk, sem tekið
var til rannsóknar, sé úr sjómanninum og sé
sú niðurstaða byggð á rannsóknum Retsmedis-
inisk institut í Osló, sem teljist fullnaðarrann-
sókn í málinu.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu á laugar-
dag var sakfelling mannsins í héraðsdómi m.a.
byggð á íslenskri rannsókn þar sem innan við
0,1% líkur voru taldar á að sæðið væri úr öðrum
en sjómanninum eða nánustu skyldmennum
hans.
Sigurður Gísli Gíslason, sem sótti málið á
hendur sjómanninum breska fyrir hönd ákæru-
valdsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að
niðurstaða norsku DNA-rannsóknarinnar hefði
borist embætti ríkissaksóknara í gærmorgun.
„Málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar
að ósk ákærða. Af hálfu ákæruvaldsins verður
lögð mikil áhersla á að málið komist sem fyrst
til Hæstaréttar, en það er réttarins að segja til
um framhaldið.“
Aðspurður hvort frekari DNA-rannsóknir
færu fram vegna málsins sagði Sigurður Gísli
að það yrði væntanlega kannað hvort rétt væri
að afla frekari gagna og leggja fyrir Hæstarétt.
Ásgeir Á. Ragnarsson, hdl, veijandi Bretans,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær hafa
fengið í hendur gögn um norsku rannsóknina.
„Þau gögn renna stoðum undir það að norska
niðurstaðan standi óhögguð," sagði hann. Að
öðru leyti kvaðst hann ekki vilja tjá sig um
málið þar sem því hefði verið áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Kærði farbann
Breski sjómaðurinn hefur verið í farbanni frá
18. október sl. Farbannið rann út á hádegi í
gær, en var framlengt í héraðsdómi að kröfu
embættis ríkissaksóknara til 15. apríl. Þann úr-
skurð kærði Ásgeir Á. Ragnarsson til til Hæsta-
réttar, fyrir hönd Bretans. Hann sagðist jafn-
framt hafa óskað eftir því að -málið fengi sér-
staka flýtimeðferð, bæði hvað varðar farbannið
og efnislega niðurstöðu sakamálsins.