Morgunblaðið - 10.02.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 ' 17
Reuter
Kosningar nálgast í Ástralíu
ÁSTRALIR ganga að kjörborði eftir þrjár vikur.
Verkamannaflokkurinn hefur verið við völd í land-
inu í 13 ár en ef marka má skoðanakannanir hefur
hann nú níu prósentustiga minna fylgi en bandalag
Frjálslynda flokksins og Þjóðarflokksins. Á mynd-
inni áritar leiðtogi Verkamannaflokksins, Paul
Keating forsætisráðherra, kosningaspjöld í Bris-
bane.
Líklegar orsakir flugslyssins í Dóminíkanska lýðveldinu
Bilun í þotunm eða
mannleg mistök
Frankfurt, Puerto Plata. Reuter.
HECTOR Roman Torres, flugmála-
stjóri Dóminíkanska lýðveldisins, seg-
ir að 'engin merki sprengingar hafi
fundist á braki úr Boeing-757 þot-
unni sem fórst undan ströndum lands-
ins aðfaranótt miðvikudags. Hann
sagði að líklega væri skýringarinnar
annað hvort að leita í bilun í þotunni
eða mannlegum mistökum flugmann-
anna.
Cetin Birgen, eigandi tyrkneska
leiguflugfélagsins Birgenair, sem átti
þotuna en leigði hana dóminíkanska
flugfélaginu Alas Nacionales, fullyrðir
hins vegar, að flugvélin hafi verið í
fullkomnu lagi er hún lagði upp í
hinstu ferðina.
Birgen sagði að flugvélinni hefði
verið haldið við í samræmi við for-
skrift Boeing-verksmiðjanna og vísaði
á bug fregnum þess efnis að viðhaldi
hennar og eftirliti hafí verið ábóta-
vant.
„Ég hef gengið úr skugga um við-
hald og ástand þotunnar og get með
góðri samvisku sagt að hún var
tæknilega í fullkomnu lagi. Flugvélin
varð að bíða í klukkustund áður en
lagt var upp vegna úrhellis. Að feng-
inni flugtaksheimild fór hún af stað
og átta mínútum síðar voru flugmenn-
imir í sambandi við flugstjórnarmið-
stöðina í Miami á Flórída, sem gaf
þeim heimild til að breyta um flug-
hæð,“ sagði Birgen.
Hann sagði að undir venjulegaum
kringumstæðum hefðu flugmennimir
kvittað fyrir heimildina með því að
lesa hana til baka. „En það eina sem
við heyrðum er „augnablik" og síðan
ekki söguna meir,“ bætti Birgen við.
Flugstjóri þotunnar var 62 ára og
aðstoðarflugmaðurinn yngi'i en báðir
höfðu flogið Boeing-757 þotum meira
en 1.000 flugtíma.
Færri lík
Leit að fórnarlömbum flugslyssins
hefur verið hætt. Embættismenn í
Dóminíkanska lýðveldinu sögðu í
gær, að 129 lík hefðu fundist en 189
manns voru um borð í þotunni, sem
var á leið til Þýskalands er hún fórst.
Þýski sendiherrann, Edmund
Duckwitz, sagði hins vegar á
fimmtudagskvöld, að líkin hefðu ver-
ið mun færri og í gærkvöldi sagði
Eugenio Cabral, framkvæmdastjóri
almannavarna í landinu, að 87 heilleg
lík hefðu fundist. Fulltrúi bandaríska
varnarmálaráðuneytisins hefur skýrt
frá því, að heimamenn á smábátum
hafi siglt á slysstaðinn, jafnvel á
undan björgunarskipum, og stolið
skilríkjum og peningum af líkum
sumra fórnarlamba slyssins. Því vís-
uðu dóminíkanskir embættismenn
aftur á móti á bug í gær.
Hvað stóð þotan lengi?
Misvísandi upplýsingar voru enn
gefnar um starfsemi þotunnar. Flug-
vallarstjórinn í Puerto Plata sagði
að Boeing-757 þotan hefði staðið
óhreyfð á vellinum í tvær vikur fyrir
flugið og verið í góðu lagi. Talsmað-
ur Birgenair sagði þotuna hafa stað-
ið óhreyfða frá 13. janúar að beiðni
Alas Nacionales, sem vildi, ef á þyrfti
að halda, geta gengið að henni fyrir-
varalítið. Fulltrúar dóminíkanska
flugfélagsins sögðu hins vegar að
þotan hefði staðið ónotuð í mesta
lagi þijá daga fyrir hinstu ferðina.
Sérfróðir menn um flugvélar, sögðu
að þota, sem staðið hefði ónotuð og
óhreyfð í mánuð, væri ekki örugg.
Anatolíj Kúlíkov innanríkisráðherra Rússlands
Vill þjóðnýta banka
Moskvu. Reuter.
ANATOLIJ Kúlíkov, innanríkisráð-
herra Rússlands, sagði í gær, að
hann væri hlynntur þjóðnýtingu
sumra viðskiptabankanna og breyt-
ingum á útflutningsgiöldum á olíu
til að afla meiri fjár fyrir herinn og
ráðuneyti sitt. Efnahagsráðherra
Rússland sagði í gær, að samþykkt
þingsins um hækkun lágmarkslauna
væri marklaus.
Itar- Tass-fréttastofan hafði eftir
Kúlíkov í gær, að hann hefði krafist
sérstaks fundar í ríkisstjórninni til
að ræða það „alvarlega ástand, sem
ríkir í heraflanum og innanríkisráðu-
neytinu sökum fjárskorts".
„Herinn er koðna niður eins og í
febrúar 1917. Þá varþað vegna áróð-
urs bolsévika en nú vegna peninga-
leysis,“ sagði Kúlíkov en það eru
hersveitir innanríkisráðuneytisins,
sem bera hitann og þungann af hern-
aðinum í Tsjetsjníju.
Ekki er óalgengt í Rússlandi, að
einstakir ráðherrar lýsi sinni skoðun
á mótun efnahagsstefnunnar og það
vakti mikla athygli á síðasta ári þeg-
ar Alexander Korzhakov hershöfð-
ingi og yfirmaður forsetalífvarðarins
skrifaði ríkisstjórninni bréf og lagði
til, að olíuiðnaðurinn yrði endur-
skipulagður. Korzhakov er mjög
valdamikill og sagður fiafa mikil
áhrif á Borís Jeltsín forseta.
Marklaus samþykkt
Jevgeníj Jasín, efnahagsráðherra
Rússlands, sagði í gær, að sú ákvörð-
un rússneska þingsins, dúmunnar,
að hækka lágmarkslaun í landinu
væri fyrir utan fjárlög og kæmi því
líklega ekki til framkvæmda.
Dúman samþykkti á miðvikudag
að lágmarkslaun skyldu vera 75.900
rúblur á mánuði, um 1.060 ísl. kr.,
en það er talið auka útgjöld ríkis-
sjóðs um 400 milljarða rúblna á
mánuði. Sagt er, að fáir séu á þess-
um lágmarkslaunum en þau eru höfð
til viðmiðunar og hækkun þeirra
gæti því aukið verðbólguna.
Vilja stöðva vopna-
sölu til Tævan
Peking. Reuter.
KÍNVERJAR kröfðust þess í fyrra-
dag að Bandaríkjastjórn tæki fyrir
alla sölu á háþróuðum vopnum til
Tævan. Það væri forsenda þess að
hægt væri að binda enda á deilu
Kína og Tævan.
Shen Guofang, talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins,
sagði einnig að Kínverjar myndu
gera ihnrás í Tævan ef stjórnvöld
í Taipei féllu frá því markmiði sínu
að sameina kínversku ríkin og
reyndu að knýja fram sjálfstæði
Tævan.
Lee Teng-hui, forseti Tævan,
sem talið er að muni vinna sigur í
forsetakosningum í næsta mánuði
lagði áherslu á að hann hefði árætt
að fara á fund erlendra ríkisstjórna
og barist fyrir hagsmunum „Kín-
verska lýðveldisins", líkt og Tævan-
ir vilja sjálfir kalla land sitt.
Bandaríkin tóku upp stjórnmála-
samskipti við stjórnvöld í Peking í
stað Taipei árið 1979 en hafa hald-
ið áfram vopnasölu til Tævan. Var
nýlega samþykkt að selja þangað
150 orrustuþotur af gerðinni F-16.
Um helgina
býður IKEA
vel að vanda.
Sængurvera-
sett og hillur
á sérstöku
tilboði meöan
birgðir endast.
Opið frá 10-17 laugardag
og 13-17 sunnudag.
fyrir fólkið í landinu
Holtagörðum við Holtaveg / Grænt númer 800 6850