Morgunblaðið - 10.02.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 21
ALLIR þekkja það, þegar
sýður upp úr pottinum við
eldamennskuna. Astæðan er
venjulega sú, að hitinn er of mikill
og lokið hefur verið sett of þétt á
pottinn. Þá er ráðið að taka lokið
af eða a.m.k. hagræða því þannig
að gufan fái að sleppa út og
þrýstingurinn minnki. Sálarlífíð
er ekki ólíkt því sem er að gerast í
pottinum.
Sigmund Freud, höfundur
sálkönnunar, gerði ráð fyrir því
að sálarlifið væri orka, sem tæki á
sig ýmsar myndir í skynjun,
hugsun, tilfinningum og hegðun.
Uppspretta orkunnar væri í frum-
stæðum innri hvötum, sem leita
útrásar. Siðmenning samfélagsins
og siðgæðisvitund einstaklingsins
krefjast þess að hvatirnar séu
beislaðar og fái aðeins útrás á sið-
menntaðan hátt. Oftast heppnast
það vel og þegar best lætur geta
frumstæðar hvatir orðið kveikjan
að auknum þroska og skapandi
starfi.
Þegar hin frumstæða orka
leitar útrásar, sem ekki sam-
Sálin ípottinum
OYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR FJALLAR UM FURÐUR SÁLARLÍFSINS
rýmist kröfum umhverfisins, og
manninum tekst ekki að breyta
henni í samfélagshæft form, skap-
ast hjá honum kvíði. Til þess að
hefta útrás grípur hann til
varnaraðgerða. Þær aðferðir, sem
hér eru nefndir varnarhættir, eru
í besta falli bráðabirgðalausnir og
lítt aðlögunarhæfar til lengdar, og
við beitingu þeirra gegn
frumhvötunum myndast sálræn
togstreita eða spenna.
Varnarhættirnir hliðra mann-
eskjunni hjá því að horfast í augu
við sjálfa sig og veruleikann sem
hún þarf að glíma við og hefur
ávallt í för með sér nokkra
brenglun á raunveruleikanum.
Algengasti varnarhátturinn er
bæling í sinni einföldustu mynd.
Ef kenndir eins og t.d. reiði,
Sálarlífið
er orka
öfund eða kynlöngun vakna, sem
aðstæður eða siðgæðiskennd
viðkomandi einstaklings leyfa
ekki útrás á, eru fýrstu
viðbrögðin gjarnan þau að þrýsta
þeim niður, bæla þær, gleyma
þeim, vita ekki af þeim. Þær
hverfa úr meðvitundinni, en
krauma áfram í dulvitundinni.
Bæling er þó ekki sjúklegt
fyrirbæri út af íyrir sig. Flest heil-
brigt fólk beitir bælingu innan
hóflegra marka. Sé bælingu hins
vegar beitt í of ríkum mæli og
stöðug tilhneiging sé til að bæla
óþægilegar kenndir, hleðst upp
spenna, sem getur síðan brotist út
í tilfinningasveiflum án meðvit-
aðra tengsla við hinar bældu
kenndir. Fólki hættir þá til
snöggra geðbrigða, grátkasta,
reiðikasta eða ýktra
gleðiviðbragða, án nokkurra
tengsla við sálrænar orsakir
þeirra í dulvitundinni. Þetta eru
einkenni sefasýkinnar (hysteria).
Að hinu leytinu getur spennan
komið fram í líkamlegum einkenn-
um og svonefndum sálHkamlegum
sjúkdómum. Bælingin og andlega
spennan sem af henni leiðir er þá
farin að koma fram í líkamlegri
spennu. Dæmi um þetta eru
höfuðverkur og vöðvabólgur, en
einnig hefur komið í ljós að við-
varandi spenna getur valdið ýms-
um alvarlegri sjúkdómum, t.d.
hjartasjúkdómum.
Þegar bæling hefur leitt til
hugsýkiseinkenna og sálfræðileg
meðferð er reynd, er leitast við að
losa um þær varnir, sem gera
viðkomandi ókleift að komast í
samband við eigin tilfinningar, og
hjálpa honum að fá innsýn í sjálf-
an sig. Jafnframt finnur hann með
hjálp læknandans nýjar og far-
sælh leiðir til að gHma við bæði
sinn innri mann og hinn ytri
veruleika.
Svo aftur sé vikið að pottinum,
er rétt að passa upp á suðuna í
tíma. Það getur verið hollt að taka
lokið einstöku sinnum af og láta
blása út. Enn betra er þó að
þrýstingurinn sé að jafnaði hæfi-
legur, þannig að hitinn nýtist sem
best og sálarsúpan verði vel löguð
og fái að njóta sin.
•Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem þeim
liggur á bjarta og er tekið á móti
spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og
bréfum eða simbréfum merkt:
Vikulok, Fax 5691222.
KRISTJÁN Þórður Hrafnsson
þýðir söngtexta Adrians
Mitchells í leikgerð Peters
Halls að Dýrabæ. Var það
mikið vandaverk? „Að því
leyti að ég gerði ákveðnar
kröfur til þýðingarinnar. Eg vildi hafa textana
rétt kveðna, það er að segja samkvæmt brag-
reglum. Þá þurftu þeir að sjálfsögðu að falla að
tónlistinni," segir hann og bætir við að sam-
starfið við tónlistarstjórnandann, Gústav
Sigurðsson, hafi verið með miklum ágætum.
Aðspurður um vinnubrögð segir hann að
þau hafi unnið verk sín hvort í sínu lagi, en
borið síðan saman bækur sínar og samræmt
söngtextana leiktextanum. „Þetta tók tíma og
kostaði töluverða yfírlegu, en ég get ekki ann-
að sagt en ég sé sáttur við árangurinn," segir
hann.
Hver telur hann að boðskapur sögunnar sé?
„Verkið hefur að sjálfsögðu beina skírskotun í
rússnesk stjórnmál á fyrri hluta aldarinnar,
en ef við tökum það sem dæmisögu fjallar það
um að mannlegur breyskleiki fyrirmuni mann-
inum að byggja upp með ofurskipulagningu
fullkomið þjóðfélag. Sem dæmisaga varar
verkið við ofskipulögðu þjóðfélagi, sem
geti snúist upp í andhverfu upphaflega
markmiðsins, að gera alla þegna jafna,“
segir Kristján Þórður.
Melkorka Olafsdóttir þýðir leiktextann.
Er þetta frumraun hennar á þýðing-
arsviðinu? „Já, þetta er fyrsta verkið sem ég
þýði,“ segir hún, en hún lauk leikhúsfræði-
námi í Frakklandi í vor og starfar sem leik-
listarráðunautur hjá ríkisútvarpinu. Fannst
henni erfitt að þýða textann? „Nei, þetta var
ekki sérlega erfið þýðing. Þó þurfti maður að
setja sig inn í verkið og bókstaflega skapa
heilan heim, með tilheyrandi heitum á per-
sónum og öðru slíku.“
Leikfélagið setw upp leikgerð Peters Halls
frá 1984 eins og áður sagði. Er hún frábrugðin
frumtexta Orwells? „Hún er óneitanlega
nokkuð frábrugðin, þótt atburðarásin sé
auðvitað hin sama. Söngtextarnir og lögin
gegna mikilvægu hlutverki í sýningunni," seg-
ir Melkorka, sem vill taka fram að bæði hún og
Kristján séu mjög ánægð með uppfærslu MH-
inga, sýningin sé í alla staði mjög vel heppnuð.
GLÆSILEGIR
MX Z. Sá guli er einn albesti sportsleði sem völ er á
AREIÐANLEGI
KRAFTMIKLIR
HSki-doo sameinast allir bestu kostir vélsleða eins og vinsældir þeirra
sanna best. Skoðaðu mikið úrval af sleðum og ýmsum fylgihlutum og
fatnaði. Einnig: Frábært úrval af notuðum vélsleðum.
Opið um helgina! Lau. 10-16 og sun. 13-16.
QÍSU JÓNSSON HF
Bíldshöfða 14, 112 Reykjavík, Sími 587 6644
BMI
IMHHHMHMnnMMM
Formula III valinn fallegasti sleðinn á vélsleðasýningunni á Akureyri
Formula SLS, enn einn nýr og spennandi vélsleði frá Ski-doo
SPARNEYTNIR