Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 8
8 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frysting loðnu fyrir Japansmarkað hafin af fullum krafti
„Menn hugsa ekki
um annað en loðnu“
BYRJAÐ er að frysta loðnu fyrir Japansmarkað á svæðinu frá Rauf-
arhöfn, austur um land og til Vestmannaeyja. Þegar loðnan færist suður
með landinu færist frystingin og er búist við að tekið verði við loðnu til
frystingar allt vestur á Snæfellsnes. Frystihúsin hafa undirbúið sig vel
fyrir vertíðina, bætt tækni við flokkun, og mjög víða hefur afkastageta
verið aukin, bæði í frystihúsum og með frystiskipum. Ef áætlanir stóru
sölusamtakanna ganga eftir verður 31 þúsund tonn af loðnu fryst fyrir
Japansmarkað og mögulegt er að selja þangað enn meira. Á síðasta ári
framleiddu þessi samtök um 20 þúsund tonn.
Morgunblaðið/Sigurgeir '
Fyllt í
skarðið
UNNIÐ er af kappi í Vestmanna-
eyjum við viðgerð á Nausthamars-
bryggju, en stórt skarð kom í hana
þegar litháiska skipið Siauliai
sigldi á hana á mánudagsk völd.
Skemmdin er rétt við löndunar-
stað loðnubræðslu Isfélagsins og
því nauðsynlegt að koma bryggj-
unni í gagnið á ný hið fyrsta.
„Nú hugsa menn ekki um annað
en loðnu enda verða menn að standa
sig þennan stutta tíma sem hún er
verðmest," segir Benedikt Jóhanns-
son, frystihússtjóri hjá Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar. Þijú fyrirtæki
frysta loðnu og sömu sögu er að
segja af fleiri stöðum, t.d. á Seyðis-
firði og Fáskrúðsfirði.
Frystihúsin hafa verið að frysta
fyrir aðra markaði, fyrst fyrir Rúss-
land og síðan fyrir Kóreu og Tæ-
land áður en hrognafyllingin náði
tilsettu lágmarki fyrir Japan en það
var á fimmtudag og föstudag. Hall-
dór G. Eyjólfsson, deildarstjóri hjá
SH, segir að vertíðin byrji vel.
Frystihúsin hafi lagt á sig mikla
vinnu við undirbúning. Mikill verð-
munur sé milli flokka og mikilvægt
að vanda flokkunina. Með því móti
sé hægt að skapa mikil verðmæti.
Benedikt _ Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri IS, segir að fyrirtæki
innan raða ÍS séu búin að frysta
1.500-2.000 tonn fyrir Rússland en
fyrirtækið vilji fá meira og um 800
fyrir Tævan. Hann segir að ÍS geri
ráð fyrir að frysta 13 þúsund tonn
fyrir Japan og hægt sé að selja
mun meira.
Flokkað á miðunum
Finnbogi Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sfldarvinnslunnar í Neskaup-
stað, segir að loðnan sé góð búbót.
Menn verði hins vegar að hafa í
huga að þó vel hafi gengið síðustu
tvö ár og útlitið sé gott núna sé
markaður fyrir frysta ioðnu sveiflu-
kenndur og ekki hægt að ganga
að þessum tekjum vísum.
Síldarvinnslan leggur mikið undir
eins og fleiri fyrirtæki á Austfjörð-
um. Frystitogarar fyrirtækisins,
Blængur og Barði, verða nýttir til
loðnufrystingar. Þegar loðnan færir
sig suður fyrir land er ætlunin að
útbúa loðnuskipið Beiti með loðnu-
flokkara um borð og láta frystitog-
arana fylgja honum eftir. Þá stend-
ur til að frystitogararnir Gnúpur
úr Grindavík og Örfirisey frá
Granda frysti loðnu úr Beiti. Finn-
bogi segir að aðeins sé byijað að
flokka um borð í Beiti en reynslan
ein geti síðan skorið úr um hvað
hann ráði við.
Síldarvinnslan hefur tekið á leigu
danskt loðnuskip til að flytja
bræðsluloðnuna úr Beiti á Norð-
flörð. Loks hefur fyrirtækið tekið á
leigu hráefnistanka Vestdalsmjöls á
Seyðisfirði til að geyma bræðslu-
loðnu sem fyrirhugað er að bræða
á Norðfirði í vertíðarlok.
Ný flokkunarstöð
Borgey á Höfn hefur tekið Dal-
borgu á leigu og er að útbúa hana
fyrir loðnufrystingu. Borgey og
Skinney vinna þar að loðnufryst-
ingu eins og ein vél, að sögn Hall-
dórs Árnasonar framkvæmdastjóra.
Á Fáskrúðsfirði er verið að útbúa
aðstöðu fyrir tvo frystitogara, Vest-
mannaey og Örvar, sem þar ætla
að frysta loðnu úr nýrri flokkunar-
stöð Loðnuvinnslunnar hf. Flokkun-
arstöðin var gangsett á föstudags-
morgun með þremur flokkurum af
fimm sem þar verða en einn bilaði
síðar um daginn. Loðna var keyrð
í þijú frystihús á staðnum og eitt
á Stöðvarfirði. Gísli Jónatansson
framkvæmdastjóri segir að loðnan
hafi verið heldur smá fyrsta daginn.
Mokveiði hefur verið hjá loðnu-
skipunum og sumir hafa fyllt sig á
örfáum klukkutímum. Guðmundur
Ólafur lauk löndun á Eskifírði um
klukkan tvö aðfaranótt föstudags
og var aftur byijað að landa úr
fullu skipi klukkan eitt í gær, túrinn
tók því ekki hálfan sólarhring.
Barnaleikhúshátíð í Reykjavík
Til styrktar
börnum
í Sarajevo
hér
FYRIR dyrum stendur
bamaleikhúshátíð
hér á landi, til
styrktar barnaleikhúsi í
Sarajevo. Á hátíðinni verð-
ur boðið upp á sjö leiksýn-
ingar. Leiksýningarnar eru
á vegum UNIMA á ís-
landi, samtaka brúðuleik-
húsa, og ASSITEJ, sem
eru alþjóðleg barnaleik-
hússamtök.
Hvers vegna er þessi
barnaleikhúshátíð haldin
núna?
„Hátíðin er haldin ein-
göngu í því skyni að safna
peningum fyrir þetta eina
barnaleikhús sem starfar í
Sarajevo í Bosníu. Allir
sem koma nálægt þessari
hátíð gefa vinnu sína. Há-
tíðin hér á landi er liður í
fjársöfnun sem fram fer á
öllum Norðurlöndum. Við
erum að vísu þeir einu sem hafa
þann háttinn á að halda barnale-
ikhúshátíð, hinir hafa safnað
beinum fjárframlögum.“
Hvers vegna hafið þið þennan
háttinn á hér á landi?
„Ég lít á þessa hátíð sem tákn-
ræna athöfn í tvennum skilningi.
Með henni erum við bæði að sýna
i verki að við teljum að börn þurfi
leikhús, sérstaklega á slíkum
hremmingatímum sem nú eru í
Sarajevo, og svo hitt að með því
að styrkja og styðja við bakið á
einhverjum einum aðila sem við
teljum að sé mjög mikilvægt að
haldi velli, þrátt fyrir þessar
hryllilegu aðstæður sem þarna
ríkja, séum við að stuðla að því
að eðlilegt líf, bæði fyrir börn og
aðra, komist sem fyrst á þarna
á ný. Við völdum að vera með
barnaleikhúshátíð til þess að geta
boðið löndum okkar að taka þátt
í þessum táknræna atburði líka.
Við erum að gefa fólki möguleika
á að fara í leikhús með börn sín
og styrkja um leið börn í Bosníu.“
Hvaða leiksýningar verða á
hátíðinni?
„fyöðleikhúsið verður með eins
manns sýninguna Lofthræddi
örninn. Möguleikhúsið sýnir Æv-
intýrabókina. _ Furðuleikhúsið
sýnir Bé tveir. íslenska brúðuleik-
húsið sýnir Kabarett. Sögusvunt-
an sýnir Smjörbitasögu og Tíu
fingur sýna Englaspil. Loks má
geta þess að Leikfélag Reykjavík-
ur mun taka þátt í þessari hátíð
en ekki er enn ljóst með hvaða
hætti og menntamála-
ráðuneytið hefur veitt
þessari hátíð ijárstuðn-
ing.“
Hvers vegna var
ákveðið að styðja ein-
mitt þetta leikhús í
Sarajevo?
„Þetta leikhús, Pozoriste
Mladih, er eina barnaleikhúsið
sem enn starfar í Sarajevo. Þeir
sem að því standa hafa sýnt ein-
stakan kjark og seiglu við ótrú-
lega erfiðar aðstæður. Þarna
vantar allt, svo sem hvers kyns
tæknibúnað, hita, stundum meira
að segja rúður í gluggana, fólkið
kemur svangt í vinnuna - samt
er haldið áfram að sýna.
Þau hafa fengið þekkta erlenda
leikstjóra erlendis, til dæmis Sus-
an Sontag, sem er mjög þekktur
leikstjóri í Bandaríkjunum. Hún
setti upp með leikhúsinu í
Hallveig Thorlacius
► Hallveig Thorlacius er
fædd í Reylq'avík árið 1939.
Hún lauk stúdentsprófi árið
1958 og stundaði nám í Moskvu
í þrjú ár. Hún var grunnskóla-
og menntaskólakennari í tíu
ár. Stundaði eftir það þýðing-
arstörf en hefur frá árinu 1971
starfað við brúðuleikhús. Frá
1984 hefur hún rekið eigið
brúðuleikhús, Sögusvuntuna.
Hún er gift Ragnari Arnalds
alþingismanni og eiga þau
tvær dætur.
Fólkið kemur
svangt í vinn-
una - samt er
haldið áfram
að sýna
Sarajevo Beðið eftir Godot árið
1992. Einnig hafa þau fengið
franskan leikstjóra, Massimo
Schuster, hann setti upp með
þeim í fyrra Ubu í hlekkjum.
Leikhússtjóri Pozoriste Mladih
heitir Mermin Tulit. Hann var vel
þekktur leikari í Sarajevo fyrir
borgarastyijöldina sem þar hefur
geisað. Hann varð fyrir því slysi
fyrir nær fjórum árum að stíga
á sprengju fyrir utan heimili sitt
og missti báða fæturna. Hann er
nú á Italíu og er að læra að ganga
á nýjum fótum sem smíðaðir voru
þar fyrir hann. Fram að því lék
hann í hjólastól og lét sig aldrei
vanta í vinnuna.
Massimo Schuster mun taka
við öllum þeim peningum sem
safnast á Norðurlöndunum og
fara sjálfur með þá til Sarajevo
og afhenda þá persónulega í
barnaleikhúsinu þar. Hann ætlar
að fara að setja upp með starfs-
mönnum leikhússins nýja sýn-
ingu. í barnaleikhúsinu í Sarajevo
starfa 25 manns. Ég
fékk mynd af leikhús-
inu senda frá Massimo
Schuster. Þetta er ekk-
ert óvenjuleg mynd en
þó má sjá að sprengja
hefur sett ör á veggi
þar sem hún hefur fall-
segja að aldrei hafi
hitt beint á leikhúsið,
ið. Þeir
sprengja
en einn morguninn, fimm mínút-
um eftir að tvö hundruð börn
höfðu gengið inn í salinn, sprakk
sprengja beint fyrir framan leik-
húsið. Börnin voru svo lánsöm
að vera rétt komin inn í húsið.“
Hvar verða leiksýningar
barnaleikhúshátíðarinnar?
„Sýningar verða í Möguleikhús-
inu við Hlemm, á Fríkirkjuvegi
11 og í leikhúsi Jóns E. Guð-
mundssonar við Flyðrugranda.
Dagskráin verður birt í blöðum
og fjölmiðlum í næstu viku.“