Morgunblaðið - 11.02.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 9
FRÉTTIR
Endurmenntunarstofnun háskólans
Námskeið um gæða
stjórnun að hefjast
A NÆSTUNNI hefjast- gæða-
stjórnunarnámskeið á vegum
Endurmenntunarstofunar háskól-
ans. Samtals er um að ræða ellefu
námskeið bæði inngangsnámskeið
og sérðhæfð eftir aðferðum eða
notkunarsviðum. Fyrsta nám-
skeiðið byrjar 13. febrúar.
Inngangsnámskeiðin eru fjögur,
ætluð stjómendum fyrirtækja og
starfsmönnum sem fara með
skipulag gæðamála. Þau eru:
Grunnur að gæðastjórnun og mót-
un gæðastefnu, Gæðakerfí — ISO
9000, Gæðatsjórnun, framfarir
með aðferðum altækrar gæðatj-
órnunar og Tölfræðilegt gæðaeft-
irlit.
Leiðbeinendurnir þeir Davíð
Lúðvíksson verkfræðingur hjá
Samtökum iðnaðarins, Pétur K.
Maack prófessor, Kjartan Kárason
Vottun hf., Höskuldur Frímanns-
son rekstrarráðgjafi og lektor,
Páll Jensson prófessor og Guð-
mundur R. Jónsson dósent eru
allir reyndir kennarar og ráðgjafar
á þessu sviði.
Einnig verða í boði sérhæfð
námskeið sem krefjast grunnþekk-
ingar í gæðastjómun en þau eru:
Notkun tölvu við gæðastjórnun,
Innir gæðaúttekt fyrir stofnanir
og fyrirtæki, Kortlagning og
greining verkferla, áhættugrein-
ing samkvæmt „GÁMES“, Upp-
bygging gæðakefis og handbókar-
gerð í samræmi við ISO 9000,
Tölfræðileg gæðastjórnun; stýririt
og sýnatökur, Gæðastjórnun í
byggingariðnaði og loks námskeið
um Gæðastjórnun í heilbrigðis-
þjónustu.
Þar verða aðalleiðbeinendur auk
kennara úr inngangsnámskeiðum
þeir Hörður Olvason, fram-
kvæmdastjóri Hópvinnukerfum
ehf., Einar Ragnar Sigurðsson,
rekstrarráðgjafi hjá Ráðgarði hf.,
Haukur Alfreðsson, rekstrarverk-
fræðingur og ráðgjafi hjá Nýsi
hf., Asmundur E. Þorkelsson,
matvælafræðingur, Guðrún
Högnadóttir, forstöðumaður
gæða- og þróunarsviðis Ríkissp-
ítala, og Guðmundur Sæmunds-
son, Rannsóknarstofnun bygging-
ariðnaðarins.
Bach-námskeið
byrjar á morgun
Annaðkvöld, mánudagskvöld,
hefst námskeið um ævi, störf og
list Johanns Sebastians Bach í
safnaðarsal Hallgrímskirkju und-
ir leiðsögn Ingólfs Guðbrands-
sonar.
Námskeiðið er haldið á vegum
Endurmenntunarstofnunar Há-
skóla íslands og Listvinafélags
Hallgrímskirkju.
Námskeiðið hefst kl. 20.15 og
verður á mánudagskvöldum frá
12. febrúar til loka apríl. Um 80
manns hafa innritað sig á nám-
skeiðið en hægt er að bæta við
nokkrum þátttakendum.
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Moon Boots
Tegund: Skandia
Litir: Svart, blátt og rautt
Ath. Starnur og góður sóli
Verð:
2.995
Kuldaskór
Tegund: Greenies
Stærðir: 25-30
Litur: Brúnn
Verð:
1.995
5% Staðgreiðsluafsláttur • Póstsendum samdægurs
STEINAR WAAGE /
SKOVERSLUN
SÍMI 568 9212
STEINAR WAAGE/
SKOVERSLUN /
SÍMI 5518519 <3°
J
4
Aðalfundur Verslunarráðsins
fimmtudaginn 1 5. febrúar 1996
kl. 11.30 > 1 5.00, i Súlnasal Hótels Sögu
ísland í alþjóðasamkeppni:
STEFNA VERSLUNARRÁÐSINS
0G STEFNA „HINS OPINBERA"
Aðalfundur Verslunarráðs Islands - samtaka íslensks viðskiptalífs - er haldinn annað hvort ár.
Helstu atriði á dagskrá fundarins nú, auk aðalfundarstarfa, verða:
Ræða formanns Verslunarráðsins
Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri SJOVÁ-Almennra trygginga hf.
Ræða iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Finnur Ingólfsson
Tillaga að nýrri stefnuskrá Verslunarráðs íslands
Sérstök stefnuskrárnefnd hefur unnið með stjórn og framkvæmdastjórn að skilgreiningu markmiða
Verslunarráðsins til næstu framtíðar, úrræða/leiða til þess að ná þeim og leggur auk þess fram
ítarlegan verkefnalista.
Á aðalfundinum liggur fyrir skrifleg kosning formanns,
18 annarra stjórnarmanna og 19 varastjórnarmanna.
Aðgangur og skráning þátttöku
Aðalfundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa á íslensku atvinnu- og viðskiptalífi.
Nauðsynlegt er þó að skrá þátttöku fyrirfram
í síma Verslunarráðsins, 588 6666 (svarað er á skrifstofutíma kl. 08-16).
FUNDARGJALD KR. 2.000 GREIÐIST VIÐ KOMU Á FUNDARSTAÐ
(Fyrir hádegisverð og aðrar fundarveitingar)
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
SAMTÖK ÍSLENSKS VIÐSKIPTALÍFS
OPIÐ TIL KL. 16 LAUGARDAGA