Morgunblaðið - 11.02.1996, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1996 13
gera kröfu til borgarinnar en
langflestir eru ísraelsmenn og
finnst ekki koma til greina að
skipta henni á ný.
Stuðningur við Palestínumenn
Hingað til hefur krafa Palest-
ínumanna notið stuðnings flestra
erlendra ríkja. Þannig hafa t.d.
flest erlend ríki haft sendiráð sín
í ísrael í Tel Aviv en ekki í höfuð-
borginni Jerúsalem og viljað með
því leggja áherslu á að þau líti á
stöðu Jerúsalem sem óleystan
vanda. Fyrirhugaður flutningur
bandaríska sendiráðsins til Jerú-
salem, sem kallað hefur á heiftar-
leg viðbrögð Palestínumanna,
gæti þó verið fyrsta skrefið í að
breyta þessu. Það virðist þó ekki
gæta neinna breytinga í afstöðu
fjölda opinberra gesta sem sífellt
móðga borgarstjórann með því
að virða að vettugi andstöðu hans
og heimsækja Orient House í
austur Jerúsalem þar sem Palest-
ínumenn hafa hálfopinberar
bækistöðvar sínar. Erlendir sendi-
menn sýndu einnig málstað Pal-
estínumanna fádæma stuðning
þegar borgaryfirvöld skipulögðu
mikil hátíðarhöld í fyrra í tilefni
af því sem þau kölluðu 3000 ára
afmæli Jerúsalem. Hátíðin snerist
eingöngu um sögu gyðinga í borg-
inni en saga araba var algerlega
sniðgengin. Viðbrögð umheimsins
voru þau að opnunarhátíð afmæl-
isins var sniðgengin af 53 af 70
fulltrúum erlendra ríkja þeirra á
meðal fulltrúa Bandaríkjanna.
Mótmæli stjórnarandstöðu
Eins og áður sagði hafa palest-
ínsku kosningarnar komið deil-
unni um Jerúsalem í sviðsljósið
enn á ný. Þótt u.þ.b. 150.000
Palestínumenn séu búsettir í
Austur-Jerúsalem á ekki nema
lítill hluti þeirra kosningarétt í
borginni sjálfri. Hinirteljast ýmist
eiga kosningarétt á Vesturbaktr-
anum eða í þorpum umhverfis
borgina. Kosningar þessa minni-
hluta innan borgarinnar ollu þó
mörgum ísraelsmönnum áhyggj-
um. Stjórnarandstaðan reyndi t.d.
að fá hæstaréttarúrskurð um það
að palestínskar kosningar færu
ekki fram innan borgarinnar og
á fyrsta mótmælafundi stjórnar-
andstöðunnar eftir morðið á Rab-
in dreifðu þeir flugmiðum sem á
stóð m.a.:
„Hinn 20. janúar, á sjálfan
hvíldardaginn, munu íbúar austur
Jerúsalem bæði kjósa og verða
kosnir í sjálfstjórn Palestínu-
manna. Borgin mun verða böðuð
í grænum, svörtum og rauðum
fánum og myndum af Arafat
haldið á lofti. Það er á þennan
hátt sem ríkisstjórn Peresar
stendur vörð um einingu Jerúsal-
em.“
Stjórnarsinnar hafa hins vegar
reynt að gera lítið úr mikilvægi
þess að palestínskar kosningar
fari fram innan borgarinnar. Hafa
þeir m.a. haldið því fram að kosn-
ingar innan Jerúsalem séu lítið
annað en utankjörstaðakosning-
ar. Þ.e. að þó kosið sé í Jerúsalem
séu kosningakassarnir þar fremur
póstkassar en raunverulegir kosn-
ingakassar enda hafi þeir rifu á
hliðinni en ekki á toppnum eins
og kosningakassar hafi annars
staðar.
Lítil þátttaka
Þótt ísraelsmenn hafi óttast að
Palestínumenn notuðu kosningar
innan Jerúsalem til að styrkja
kröfu sína til borgarinnar virtust
kosningatölur þar síður en svo
styrkja kröfu þeirra. Kosninga-
þátttaka reyndist hvergi minni en
í Jerúsalem enda munu kjósendur
þar hafa óttast refsiaðgerðir, svo
sem sviptingu atvinnuleyfis, not-
uðu þeir kosningarétt sinn. Ör-
yggisgæsla ísraela fólst m.a. í því
að mynda kjósendur og olli það
óróleika og tortryggni auk þess
sem allt skipulag virðist miða að
því að gera kjósendum í Jerúsal-
em erfiðara fyrir.
shire. Þeir sjá nú hins vegar fram á
að þurfa óvænt að beina spjótum
sínum að Buchanan. Eru sumir
fréttaskýrendur farnir að spá því að
baráttan verði milli þriggja manna,
Doles, Forbes og Buchanans.
Á kjörfundum og í forkosningum
eru valdir kjörmenn er fara á flokks-
þing repúblikana í ágúst, þar sem
forsetaframbjóðandi flokksins verð-
ur kjörinn.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönn-
un í Iowa hefur stuðningur við Dole
minnkað úr 35% í 22% en Forbes
nýtur nú stuðnings 14,5% repúblik-
ana í ríkinu. Rúmlega 40% þeirra
er geta mætt á kjörfundinn sögðust
hins vegar vera óákveðnir. Segja
sérfræðingar að þetta þýði að 42%
þeirra er studdu Dole í desember
hafi nú látið af stuðningi við hann.
Stuðningurinn við Forbes virðist
sömuleiðis ekki standa á mjög
traustum grunni og eru um 23%
þeirra er lýstu yfír stuðningi við
hann í upphafí nú á báðum áttum.
Iowa er landbúnaðarríki þar sem
kristilegir íhaldsmenn eru síst
áhrifaminni hópur en í Louisiana.
Buchanan á því að mati margra
gott sóknarfæri í Iowa. Hafa ber
hugfast að á kjörfundi árið 1988
hlaut kristilegi sjónvarpsmaðurinn
Pat Robertson tæpan fjórðung at-
kvæða í Iowa og lenti í öðru sæti.
Dole vann þá sigur en George Bush,
þá varaforseti, lenti í þriðja sæti.
Óviss forysta
Dole er enn með forystu í skoð-
anakönnunum í New Hampshire en
Forbes hefur þó verulega saxað á
fylgi hans þar. Er það ekki síst það
stefnumál hans að taka upp flatan
17% tekjuskatt og strika í staðinn
út alla frádráttarliði, er nær athygli
almennings.
Forbes hefur varið gífurlegum
fjármunum til baráttunnar og koma
þeir að nær öllu leyti úr hans eigin
vasa. Nýlega var greint frá því að
hann hefði á síðasta ári varið 18
milljónum dollara, tæpum 1200
milljónum króna, í kosningabaráttu
sína, þar af 16,5 milljónum dollara
úr eigin vasa. Þetta er áþekk fjárhæð
og þekktustu frambjóðandurnir hafa
eytt í baráttuna. Til samanburðar
má geta þess að Forbes eyddi 14
milljónum á síðasta ársfjórðungi árs-
ins, Dole 8,4 milljónum, Phil Gramm
5,4 milljónum, Lamar Alexander,
fyrrum ríkisstjóri í Tenessee, 3,5
milljónum og Buchanan 3,2 milljón-
um. Aðrir frambjóðendur á borð við
Richard Lugar, öldungadeildarþing-
mann frá Indiana, eyddu minna.
Að auki þarf Forbes ekki að veija
miklum peningum í kostnaðarsamar
fjársafnanir þar sem að um hans
eigin peninga er að ræða. Þannig
fóru tvær milljónur dollara af þeim
21 milljónum sem Dole notaði í kosn-
ingabaráttuna í fyrra í að safna
peningum.
Sem dæmi um hve mikil Forbes
leggur í baráttuna má nefna að hann
hefur keypt það mikið af sjónvarps-
auglýsingum hjá sjónvarpsstöðvum
í Boston síðustu vikur, en þær nást
í New Hampshire, að talið er hver
íbúi ríkisins hafi séð auglýsingar
hans 34 sinnum á viku. Til saman-
burðar sjá Bandaríkjamenn að með-
altali tíu Budeiser bjórauglýsingar á
viku. Peningar eru hins vegar lítið
vandamál þegar Forbes annars veg-
ar. Heildareignir hans eru metnar á
450 milljónir dollara, tæpa 30 millj-
arða króna, og hefur hann lýst því
yfir að hann sé reiðubúinn að veija
25 milljónum af eigin fé í baráttuna.
Þegar leið á baráttuna 1992 helt-
ist Robertson hins vegar úr lestinni,
fylgi Doles dvínaði verulega og Ge-
orge Bush var að lokum kjörinn for-
setaframbjóðandi repúblikana.
Fyrstu kjörfundirnir og forkosn-
ingarnar segja því ekki alla söguna.
Þegar upp er staðið kann svo að
fara að það hafi verið Dole er vann
mesta sigurinn í Louisiana ef úrslit-
in þar verða til að Gramm hverfi
úr baráttunni.
"*■*%!?**«
kr.
afslátfur
Með því að tryguja
Þvr eitt af þessum 200
sætuni, tryggðu þér
Un; le,ð 8 0«> kr. afslát
afsu,narleyfjsferdjiuu
Benidorm
Costa dol soi
Vikulegt leiguflug
Cancun
Beint leiguflUg t sumar
Parfs
Vikulegt ieiguflug
1 suniar.
Austurstræti 17, 2. hæð. Simi 562 4600.
sæti til
í sumar
33.333
frá kr.
Sumarbæklingurinn er kominn út og þú finnur glæsileg kynningartilboð í heitasta
bæklingi sumarsins til Benidorm, Costa del Sol, Parísar, Cancun og Barcelona.
Við kynnum glæsilega gististaði á Benidorm í sumar og hreint ótrúleg kjör og fyrir
þá sem bóka snemma - miklu lægra verð en í fyrra.
Verð kr.
Verð kr.
H jón með 2 börn ,2-11 ára í viku, Europa Center,
20. júní með afslætti. Skattar innilaldir.
Hjón með 2 börn, 2-11 ára í 2 vikur, Europa Center.
20. júní nieð afslætti. Skattar innifaldir.
51.160
Verð kr.
2 í íbúð, 23. maí, Europa Center. 2 vikur. Skattar innifaldir.
S II M U I D
I 9 9 6
í - •• -
HEIMSFERÐIR