Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 32

Morgunblaðið - 11.02.1996, Síða 32
32 SUNNUDAGUR H. FEBRÚAR 1996 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ INGIBJÖRG OLGA HJALTADÓTTIR + Ingibjörg Olga Hjaltadóttir var fædd í Reykjavík 10. mars 1934. Hún lést í Borgarspíta- lanum 2. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru María Guðbjörg 01- geirsdóttir, f. 11.8. 1905 á Akureyri, d. 14.1. 1991 í Hafnar- firði, og Hjalti Árnason, f. 21.8. 1903 á Höfðahólum, d. 28.6. 1960 í Reykjavík. Þau Maria og Hjalti skildu. Albróðir Ingibjargar er Hörður, f. 25.9. 1932. Hálfsystkini hennar eru: Einar Jóhann, sammæðra, f. 27.1. 1942, og samfeðra eru Nanna, f. 28.6. 1939, Hrönn, f. 7.10. 1941, Elín, f. 7.5. 1945, og Hrefna, f. 23.12. 1953. Hinn 15. september giftist Ingibjörg Héðni Emilssyni, f. 22.2. 1933 á Eskifirði. Foreldr- ar hans eru Emil Björn Magn- ússon, f. 2.8. 1906 á Eskifirði, d. f. 25.11. 1952 í Reykjavík, og Margrét Árna- dóttir, f. 15.1. 1908 í Reykjavík. Börn Ingibjargar og Héð- ins eru: 1) Margrét, f. 13.1. 1957, gift Birni Guðmunds- syni. Börn þeirra eru Héðinn, f. 1975, Guðrún, f. 1980, og Helgi, f. 1990. 2) María Solveig, f. 27.7. 1958, gift Þór- arni Benedikz. Dóttir þeirra er Ingibjörg, f. 1984. 3) Emil Björn, f. 20.4. 1965, maki Margrét Björg Guðnadóttir. Dóttir þeirra er Arna Rut, f. 1993. 4) Magnús, f. 13.6. 1967, maki Margrét Þórarinsdóttir. 5) Davíð, f. 17.3. 1969, maki Kristín Benný Grét- arsdóttir. Synir þeirra eru Grétar Atli, f. 1993, og Gunnar Atlj, f. 1994. Útför Ingibjargar Olgu Hjaltadóttur verður gerð frá Fossvogskirkju á morgun, mánudaginn 12. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. FÖSTUDAGURINN 2. febrúar var fallegur vetrardagur. Sólin skein á drifhvíta nýfallna mjöllina svo stirndi á hana. Skammdegismyrkrið var farið að láta undan síga. Þenn- an fagra dag lagði tengdamóðir mín, Ingibjörg Olga Hjaltadóttir, í sína hinstu ferð. Dauðinn var henni líkn, löngu og erfiðu veikindastnði var lokið, hvíldin var fengin. Öll hefðum við viljað hafa hana lengur á meðal okkar, en það er ekki spurt um stað eða stund; tíminn var kom- inn. Ég hitti Ingibjörgu fyrst 29. des- ember 1’975. Ég hafði kynnst Mar- gréti, eiginkonu minni, tveim dög- um fyrr og fór til hennar í heim- sókn í Kúrland 4 þar sem fjölskyld- an bjó þá. Hógværð og hlýlegt við- mót var mín fyrsta reynsla af verð- andi tengdamóður minni. Hún kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd, tilgerðarlaus, skilningsrík, gerði ekki veður út af smámunum. I samskiptum var hún kona friðar- ins, hávaðalaus en þó ákveðin og með ríka réttlætiskennd. Allir gátu treyst henni, hún brást engum. Starfsvettvangur Ingibjargar var á heimilinu. Fjölskyldan var stór, börnin voru orðin fimm, Margrét, María Solveig, Emil Bjöm, Magnús og Davíð. Það var þvi í mörg horn að líta. Umhyggja Ingibjargar fyrir börnunum sínum og eiginmanni, Héðni Emilssyni, vakti strax að- dáun mína. Velferð þeirra skipti hana öllu máli. Brátt bættist ég í þann hóp og síðar hin tengdabörnin og bamabömin. Störf sín rækti Ingibjörg af alúð og trúmennsku við eigin sannfæringu. Hún vissi vel að ekkert starf er mikilvægara en starf uppalandans. Hún var þó ekkert að tala um það og því síður að hreykja sér. Hún lét verkin tala. Hún umvafði bömin sín ást og umhyggju og skapaði með því verð- mæti, mannauð, sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Alltaf var hún til staðar, mörg þerraði hún tárin og gleði barnanna var líka hennar gleði. Bömin hennar njóta nú verka móður sinnar og föður; þau em öll einstaklega hjálpsöm, traust og góðir félagar. Öll bömin okkar Margrétar, Héð- t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐJÓN SIGURJÓNSSON sjúkraþjálfari, Þúfubarði 4, Hafnarfirðl, andaðist í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði aðfaranótt 4. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum vináttu og hlýhug. Sérstakar þakkir til starfsfólks St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Steinunn I. Jónsdóttir, Sverrir Berg Guðjónsson, Guðríður Ragnh. Valtýsdóttir, Guðjón Steinar Sverrisson, Sigríður Jenný Halldórsdóttir, Ágústa Valdís Sverrisdóttir. Í Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, THOR JENSEN G. HALLGRÍMSSON, Kleppsvegi 134, sem lést þriðjudaginn 6. feþrúar sl., verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykja- vík þriðjudaginn 13. febrúar. Athöfnin hefst klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast af- þakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta líknarfélög njóta þess. Þóra Hallgrímsson, Guðni Georg Sigurösson, Margrét Camilla Hallgrfmsson, Ólafur Már Asgeirsson, Elín Asta Hallgrímsson, Sigurbjörn Sveinsson, Thor Ólafur Hallgrfmsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. inn, Guðrún og Helgi, urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vera hjá ömmu Ingibjörgu þegar þau vom lítil og við foreldramir að vinna. Þau nutu umhyggju ömmu sinn- ar, fundu sig ömgg hjá henni, leið vel. Þau áttu líka skjól hjá henni og afa Héðni þegar við foreldrarnir fórum í fjallaferðir til að styrkja líkama og sál. Stundum hvatti Ingi- björg okkur beinlínis til að fara í slíkar ferðir. Hún vissi hve mikla ánægju það veitti okkur og vildi allt gera til að leggja okkur lið. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við vorum búin að vera í viku í sólskini og hita á Lónsöræfum sumarið 1978. Þegar við komum úr ferðinni og gengum fyrir eldhús- gluggann í Kúrlandinu, kaffibrún og sælleg, hélt Ingibjörg að við væmm útlendingar og svo gladdist hún innilega með okkur yfir vel heppnaðri ferð. Það var engu líkara en að hún hefði verið með okkur í ferðinni. Þannig var hún tengda- móðir mín. Velferð okkar allra var henni alltaf efst í huga. Ingibjörg var hvunndagshetja. Slíkt fólk fær ekki orður og þarf ekki heldur á þeim að halda. Ékk- ert var henni meira á móti skapi en tildur, sýndarmennska og framapot. Hún var aldrei í vafa um mikilvægi húsmóðurstarfsins og hún skilaði dijúgu starfi með mikl- um sóma. Veikindastríð sitt háði hún af einstakri hugprýði og æðm- leysi. Sárveik hugsaði hún til okkar allra og sérstaklega voru barna- börnin henni ofarlega í huga. Henni fannst sárt að geta ekki lengur tek- ið þátt í að hjálpa þeim að vaxa úr grasi. Við kveðjum nú Ingibjörgu. Kveðjustundin er sár, en við eigum góðar minningar um hana og getum huggað okkur við það að allt hið góða sem hún gerði fyrir okkur er hluti af okkur. Þannig lifír hún í okkur. Það er okkar gæfa. Blessuð sé minning hennar. Björn. Frænka mín góða. í morgun þegar heiðgult og blátt blóm paradísarfuglsins opnaðist í ægihita suðurhvelsins gall bjallan. Hljómur hennar hafði numið þig burt út í svart vetrarmyrkrið á land- inu kalda. Esjan snævi þakin, hafíð ógnvekjandi. Undraverður lífsvilji þinn fékk ekki sigrað vondan vágest. Þú gættir lítillar frænku af ást og umhyggju. Hún fékk að fara í fyrstu veisluna sína, fermingar- veisluna þína. Hún gleymir ekki gleðinni, dansinum og söngnum né hve falleg þú varst. Einhvern veginn einduróma tónar harmonikku frá þessum fagnaði, kannski er það ekki rétt, það var bara svo gaman að vera til. Þú, fullvaxta í grænum kjól, trú- lofuð, fallegasta frænka í heimi. Lítil frænka leit ævinlega upg til þín. Jólaboð. Bamaafmæli. Árin skoppuðu yfír stokka og steina. Börnin okkar uxu úr grasi. Fagurt heimili ykkar Héðins þar sem fjölskyldan var öll velkomin. Þið glímduð við stórt verkefni, að koma til manns fímm efnilegum börnum. Samhent og samstíga tókst ykkur það með sóma. Bömin urðu líka félagar ykkar, þið gerðuð svo margt saman, þau höfðu ekki tíma til að kynnast sollinum. Ævinlega varstu reiðubúin að samgleðjast, hjálpa og styrkja. Skyldurækin og réttsýn. Rétt var rétt, í minnstu smáatriðum. Ekkert múður. Heilsteyptari og heiðarlegri manneskja var vandfundin. Heiðar- leg í hinni gömlu, góðu merkingu þess orðs. Trygglyndi þínu og ættrækni var við bmgðið. Fjölskyldutengsl skiptu miklu máli í þínum huga, að rækta frændgarðinn, þekkja uppruna sinn. Þú að handleika fjársóði þína, fjöl- skyldumyndir og ættartölur. Fátt gladdi hjarta þitt meir en gömul ljósmynd. Æðmlausust og sterkust varstu samt þegar dauðinn kallaði nánustu ættmenni okkar á braut. Elstu kyn- slóðina. Hvemig geturðu sýnt svo mikila stillingu, spurði litla frænkan. Hún amma okkar, Solveig, kenndi mér það, hljómaði svarið. Og við brostum gegnum tárin. Báð- ar orðnar stoltar ömmur. Ömmu- hlutverkið eitt hið stærsta sem við enn höfðum fengið. Fyrsta barna- bamið varð þitt hjartabam, líkt og öll hin börnin sem fengu að njóta ástríkis þíns, skyld sem óskyld. Smáfluglarnir vom þagnaðir. Flokkur hvítra kakadúa flaug í átt til fjallgarðsins. Litla frænkan tíndi gullin villisólblóm. Gekk inn úr grænum garðinum. Hélt áfram að ylja ser við eld indælla minninga. Stolt yfir frænkunni sem æðraðist ekki en barðist uns yfír lauk. Stolt yfír vinum og vandamönnum sem stóðu vörð um hana sem einn mað- ur í löngu stríði. Úti fyrir hurfu gulir geislar kvöldsólarinnar handan tröllatij- ánna. Bám með sér óskir um hinstu fararheill óravegu yfír fjöll og höf frænkunni góðu til handa. Vertu sem kærst kvödd, elsku Gógó mín. Sólveig Kristín Einarsdóttir. Kveðja frá Bandalagi íslenskra skáta Við andlátsfregn Ingibjargar Olgu Hjaltadóttur hverfur hugurinn langt aftur í tímann. Upp úr 1950 tók skátastarf mjög að eflast í Reykjavík. Böm og unglingar hvað- anæva úr Reykjavík hópuðust inn í skátaheimilið við Snorrabraut. Þar var ekki hátt til lofts eða vítt til veggja, en heimilið rúmaði svo öfluga félagsmiðstöð að fáar hafa jafnast á við hana síðan. Margt stuðlaði að þessu aðdrátt- arafli sem skátastarfíð og skáta- heimilið hafði á stóran hóp ung- menna. Söngur, leikir, ferðalög, útivist og hollar lífsreglur mynduðu fræðslubrunn sem krakkarnir drukku af upptendraðir af löngun til að láta gott af sér leiða. Og at- hafnasvæði skátanna bergmálaði af fjöri þegar komið var saman á kvöldin, sungið og ærslast. Sterkust voru þó áhrif hins góða fólks sem hafði valist til forystu. Einn liðsmaðurinn í forystusveit- inni var Ingibjörg Olga Hjaltadótt- ir, kölluð Gógó. Líklega hefur hún aðeins starfað í 4-5 ár i kvenskáta- félaginu, en á þessum stutta tíma hafði hún sterk og mótandi áhrif á tugi ef ekki hundmð telpna og ungra stúlkna. Hún var aðeins tví- tug að aldri en geislaði frá sér gæsku. Hún tendraði brennandi áhuga og hugsjónir hjá hópunum sínum svo að telpumar ungu máttu ekki missa af neinni stund með henni. Söngvarnir sem hún kenndi við gítarundirleik óma enn í huga þeirra. Árið 1956 hvarf hún snögg- lega þegar aðrar skyldur kölluðu, eiginmaður, heimili og barnahópur sem stækkaði ört. Starfíð varð ekki svipur hjá sjón eftir að Gógó hætti. Nokkrum árum síðar var gerð út sendinefnd til að fá hana til að taka við forystu á ný svo að allt yrði eins og áður. Svo gat þó ekki orðið. Hjóli tímans varð ekki snúið við. Leiðir skildi en skátahreyfíngin á Gógó þökk að gjalda. Hún skal færð fram að leið- arlokum. Hafi hún þökk fyrir allt. Kristín Bjarnadóttir aðstoðarskátahöfðingi. Nú er lokið í bili 50 ára samleið okkar Ingibjargar Hjaltadóttur. Hún kom austur á Eskifjörð heima- byggð mína sumarið 1945 til dvalar hjá þeim góðu sæmdarhjónum Dav- íð Jóhannessyni póst- og símstöðv- arstjóra og konu hans Sigrúnu Árnadóttur, en hún var föðursystir Ingibjargar. Fyrir vom fjórir synir á heimilinu og þótt híbýli væm þröng skorti ekki hjartarýmið þar á bæ. Þau Sigrún og Davíð vom nágrannar og góðir vinir foreldra minna og samgangur mikill. Ingi- björg hafði ekki dvalist lengi þegar við vomm kynntar. Hún var táp- mikil og djarfmannleg í fasi með stór og falleg blá augu og þykkt og mikið dökkjarpt hár, fléttað og flétturnar mislagðar yfír kollinn. Hún hafði átt erfíða bernsku og dáðist ég að kjarki hennar og æðru- leysi að koma ein og sjálf á ókunn- an stað til ókunnugs fólks þótt vandabundið væri. Hún var fljót að blandast í krakkahópinn og ekki leið á löngu áður en hún var farin að sendast um allan bæ með póst og símskeyti fyrir fóstra sinn. Árin á Eskifirði urðu fjögur og þrír vetur í Eiðaskóla. Henni þótti vænt um þennan tíma eystra og batt tryggð við staðinn og rækti hana meðan kraftar entust. Ljósast dæmi um það er óeigingjöm þátttaka hennar í litla kvenfélaginu sem stendur árlega fyrir samkomu aldraðra Esk- og Reyðfírðinga. Árin liðu. Fjölskyldur okkar fluttu til Reykjavíkur. Ingibjörg fór að vinna meðal annars í álnavöru- verslun og frímerkjaverslun Davíðs fóstra síns. Á þessum ámm tók hún virkan þátt í starfí skátahreyfingar- innar og þjóðdansafélagsins og átti um það ánægjulegar minningar. Vorið 1956 hittumst við Ingibjörg eftir nokkurra ára viðskilnað. Það var bjart og fagurt kvöld og hún birtist heima uppábúin ung og fal- leg kona á leið í leikhús með mínum kæra bróður og fleira vinafólki þeirra. Nokkmm vikum síðar fer það sama fólk í ferðalag um Borgar- Qörð. Gamli góði æskuvinskapurinn virtist vera í fullum blóma að sjálf- sögðu. Þau Ingibjörg og Héðinn gengu í hjónaband um haustið þetta sama ár. Heimili okkar hafa síðan verið tengd nánum böndum. Börnin okk- ar voru nokkuð jafnaldra og mynd- uðu einn frændsystkinahóp í bemsku og æsku. Við unnum, ferð- uðumst og lékum okkur saman. Fjölskylda mín naut gestrisni og greiðvikni þeirra hjóna í ríkari mæli en nokkurra annarra. Ingibjörg var framúrskarandi húsmóðir, var einstaklega um- hyggjusöm við börnin og ekki síður gamla fólkið sem hún sinnti svo fallega. Hún var trygg, en við- kvæm, óeigingjöm og ósérhlífin. Minni hafði hún í besta lagi og það nýttist henni vel þegar röðin kom að því að hún gæti sinnt áhuga- máli sínu sem var ættfræði og þjóð- legur fróðleikur. Hún aflaði sér þekkingar í gagnasöfnun og gerð ættartaflna og vann að þessu áhugamáli af stakri vandvirkni og nákvæmni. Hún tók meðal annars saman niðjatal Árna Árnasonar og Kristínar Olafsdóttur, en það voru foreldrar tengdamóður hennar. Það kom út 1993. Ingibjörg veiktist fyrir rúmum 3 árum. Heilsan var þrotin en bar- áttuþrekið var óbilað þrátt fyrir það. Þessi atorkusama fjölskylda sneri nú bökum saman til að gera lífið eins bærilegt og kostur var á. Margt ber að þakka ágætri mág- konu minni. Ég minnist margra dýrmætra stunda með henni og ekki síst síðustu misserin. Veri hún guði falin. Edda Emilsdóttir. • Fleirí minningargreiimr um Ingibjörgu Olgu Hjaltadóttur bíða birtingar ogmunu birtast í blað- inu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.