Morgunblaðið - 01.03.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIB________________________
AÐSENDAR GREINAR
Hvað eru forvamir
í áfengismálum?
ÞAÐ ER að koma í
veg fyrir, að einstakl-
ingur verði áfengis-
sjúklingur. Talið er
öruggt, að einn af
hveijum tíu, sem nota
áfengi, verði áfengis-
sjúklingur. í framhaldi
af því er það skoðun
margra á Norðurlönd-
um, einkum Svía og
Norðmanna, að það sé
árangursríkari áfeng-
isvöm að efla forvarn-
ir, eins og til dæmis
bindindisfélög, en að
ausa ógrynni fjár í
meðferðarstofnanir,
sem ná mjög takmörkuðum ár-
angri.
Meðferðarleiðin
Þessu er öfugt farið með íslend-
inga. Stjórnmálamenn á íslandi í
dag telja að dvöl á meðferðarstofn-
un leysi allan okkar vanda í
áfengismálum. Því miður tala
staðreyndirnar allt öðru máli. Einn
af brautryðjendum A.A. á íslandi,
Guðmundur Jóhannsson, sagði:
25% þeirra, sem í meðferð fara,
fá verulega bót sinna meina. Hjá
30% verður einhver breyting til
batnaðar en tæpur helmingur eða
um 45% fá enga bót, þrátt fyrir
margar ferðir á meðferðarstofnan-
ir. Allt síðari tíma tal um krafta-
verk í meðferðarmálum eru tilbún-
ar tölur og vísa ég þá enn frekar
til ummæla Tómasar Helgasonar
læknis á aðalfundi Landssam-
bandsins gegn áfengisbölinu fyrir
nokkrum árum. Dæmi um oftrú
Alþingis íslendinga á meðferð í
áfengismálum, eru tölur um fjár-
veitingar til þeirra mála árið 1994:
Tii meðferðarstofnana var varið
532,2 millj. á móti 24 millj til for-
varna. Einn fárra ráðherra frá síð-
ari árum, frú Ragnhildur Helga-
dóttir, vildi efla forvarnir og bind-
indisstarf. Hún lagði til í heil'brigð-
isáætlun 1986:
„Það á að stofna til samvinnu
milli heilbrigðisyfirvalda og fé-
lagssamtaka, sem hafa bindindi á
stefnuskrá sinni og reyna að efla
starf þeirra samtaka.“
Hvað gerðu
aldamótamennirnir?
Aldamótakynslóðin lagði
áherslu á forvarnarstarfið og náði
undraverðum árangri. Frá 1. jan-
úar 1915 fram í nóv. 1917 ríkti.
áfengisbann á íslandi. Hver var
árangurinn: Jón Sigtryggsson yf-
irfangavörður í Reykjavík, sem
manna best þekkti til afbrotamála
á þessum tíma, sagði: „Vínbrugg
þekktist ekki á bannárunum. Arin
1916 og 1917 var enginn íslenskur
maður settur í fangelsi fyrir glæp
eða gróf afbrot“. Aldamótamenn-
irnir lögðu áherslu á æskulýðinn.
Þeir hófu útgáfu barnablaðsins
Æskunnar og þeir stofnuðu og
ráku barnastúkur og þeir prédik-
uðu bindindi. Hannes J. Magnús-
son, fyrrverandi skólastjóri, sagði
1946: „Unglingareglan á íslandi
hefur markað dýpri spor í menn-
ingu þjóðarinnar en nokkurn grun-
ar. Auk þess sem Unglingareglan
hefur bjargað óteljandi mönnum
frá hættum eiturnautnanna, hefur
hún verið hinn besti skóli í félags-
legum efnum, sem völ hefur verið
á í þessu landi.“
Þeir sem efla vilja forvarnir í
áfengismálum eiga að ganga til
liðs við Góðtemplararegluna. Þar
er mikið verk að vinna. Afengi-
sauðmagnið hefur verið í mikilli
sókn í Evrópu undanfarinn áratug.
Innan Efnahagsbandalags Evrópu
er að finna 2/3 hluta
af áfengisframleið-
endum heimsins. Allir
góðir íslendingar eiga
hér að snúa vörn í
sókn. Eflum bindindi,
styðjum frjálst æsku-
lýðsstarf.
Snúum vörn í sókn
1989 tókst áróðurs-
mönnum áfengs bjórs
hér á íandi að bijóta
niður síðustu leifar
bannsins frá 1909.
Blöð og aðrir fjölmiðl-
ar fögnuðu þessu sem
hápunkti í mikilli
frelsisbaráttu. Áður höfðu sveita-
stjórnir og íbúar þéttbýlisins vítt
og breitt um landið plægt jarðveg-
inn með beiðnum um fleiri útsölu-
staði áfengis og mikilli fjölgun
vínveitingahúsa. Þetta gerðist
þrátt fyrir áskorun Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar á ári barns-
Þeir sem vilja efla
áfengisforvarnir, segir
Hilmar Jónsson, eiga að
ganga tii liðs við Góð-
templararegluna.
ins 1979, að draga úr vímuefna-
neyslu. Ekkert land í hinum vest-
ræna heimi hefur á eins skipulagð-
an hátt gengið á snið við óskir
Sameinuðu þjóðanna um eflingu
heilbrigðra lífshátta og íslending-
ar. Mann skal því ekki undra, þeg-
ar holskeflan skellur yfir landið
eins og nú gerist með fréttum um
ofbeldi og voðaverk af völdum
vímuefnaneytenda, að unglingar
jafnt sem fullorðnir skelli í góm,
þegar forráðamenn þjóðarinnar og
ráðherrar skipa enn einu sinni
nefnd til eflingar forvarna. Hver
trúir þessum mönnum? 1989 var
líka talað á Alþingi um forvarnir
og fjárveitingar til þeirra. Hveijar
voru efndirnar þá? Einn ráðherra
vann það „afrek“ 1993 að svipta
bindindishreyfinguna öllum opin-
berum styrk. Það voru þakkirnar
fyrir ósíngjörn störf gæslumanna
barnastúkna og hundraða sjálf-
boðaliða á bindindismótum í Galta-
læk. Taka ber fram, að árið eftir
áttu Sigbjörn Gunnarsson þáver-
andi formaður fjárveitingarnefnd-
ar og fleiri þar á bæ ásamt Guð-
mundi Árna ráðherra, eftir að
bæta vel fyrir þessa heimsku.
Ég vil að lokum árétta hið
slæma ástand í áfengis- og fíkni-
efnamálum á Islandi með því að
vitna í grein í Mbl. frá 1. febrúar
eftir Þórólf Þórlindsson prófessor.
Fjallar hún um nýlega könnun á
vímuefnaneyslu unglinga í 10.
bekk grunnskólans. Þar kom
fram, að áfengi er enn sem fyrr
aðalbölvaldurinn og að tæplega
80% nemanda á þessum aldri hafa
neytt þess. Þórólfur segir: „Neysl-
an hér virðist svipuð og í ná-
grannalöndunum, en áfengis- og
hassneyslan í hærra lagi miðað
við hin Norðurlöndin. „Með öðrum
orðum: Eftir nokkur ár gætum
við samkvæmt þessum tölum ver-
ið orðnir áfengisneytendur nr. 1
á Norðurlöndum, í stað þess að
vera neðstir 1993 og 1994. Þetta
er uggvænleg þróun, miklu alvar-
legri en verstu bölsýnismenn hafa
nokkru sinni spáð. Hvað getum
við gert? Nú er vandinn við hvers
manns dyr. Eigum við einhveija
möguleika á áheyrn hjá þjóðinni?
Hvað með foreldra, kennara,
lækna og annað fólk úr heilbrigð-
isgeiranum? Fyrir nokkru gekk
hinn landskunni íþrótta- og bind-
indisprédikari, Magnús Scheving,
á fund forsætisráðherra með bylt-
ingarkenndar hugmyndir og til-
lögur í forvörnum og fræðslumál-
um. Vilji er allt, sem þarf, sagði
einu sinni þjóðþekktur maður. Við
skulum vona að upp vaxi með
þjóðinni hugrakkir, djarfir menn,
albúnir að veita góðum málum lið.
Höfundur er rithöfundur.
WMGE
STEINAR
SKOVERSLUN
Vintælu
fótla?a$kórnir
komnir
Stærðir: 35-42
Litir: Svart og brúnt
Tegund: SCALA SHOE 95
• Ekta leöur
• Gottfótlag
• Góður gúmmísóli
POSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLATTU R
STEINAR WAAGE ,/ I OppskÓ 1'Í1111 STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN / --x--------- -------------- *
SÍMI551 8519/
INGÓLFSTORGI
& AUSTURSTRÆTI 20
SKOVERSLUN
SÍMI 568 9212
Hilmar
Jónsson
FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1996 35