Morgunblaðið - 06.03.1996, Síða 1
64 SÍÐUR B/C/D
55. TBL. 84. ÁRG. s MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Hamas býðst til að gera hlé á sprengjutilræðum
Israelsstjórn segir
tilboðið marklaust
Jerúsalem. Reuter.
HERNAÐARARMUR Hamas-
samtaka Palestínumanna kvaðst í
gær ætla að gera hlé á sjálfs-
morðsárásunum í ísrael, sem hafa
kostað 57 manns lífið á tíu dögum,
ef stjórn landsins féllist á að ráð-
ast ekki á liðsmenn samtakanna.
Stjórn Shimons Peres, forsætis-
ráðherra Israels, sagði að ekkert
mark væri takandi á yfirlýsingu
samtakanna, sem hefðu tvisvar
áður boðist til að láta af sprengju-
tilræðunum án þess að standa við
það.
Peres fór í gær að landamærun-
um að Líbanon þar sem önnur
hreyfing heittrúaðra múslima,
Hizbollah, varð fjórum ísraelskum
hermönnum að bana í fyrirsát á
mánudag. Forsætisráðherrann
kvaðst hafa farið þess á leit við
Bandaríkjastjórn að hún krefðist
þess að Sýrlendingar beittu áhrif-
um sinum í Libanon tii að binda
enda á árásirnar á ísrael.
„Við efumst ekki um að við
getum unnið þetta stríð,“ sagði
Peres um árásir Hizbollah frá Líb-
anon og sprengjutilræði Hamas
og íslamsks Jihads í ísrael. „Ég
tel eina af ástæðum þess, að þeir
hafa hert á hryðjuverkastarfsem-
inni, að þeir óttast nú allt einu að
friðarsamningarnir haldi velli. Þeir
vilja ekki frið. Þeir vilja stríð og
morð og dráp hvað sem það kost-
ar.“
„Ekkert nýtt“
Hernaðararmur Hamas, Izz el-
Deen al-Qassam, gaf út yfirlýs-
ingu þar sem fallist er á beiðni
pólitískra leiðtoga samtakanna um
að gera hlé á sprengjutilræðunum
þar til í júlí. Tilræðunum yrði hins
vegar haldið áfram ef ísraelar réð-
ust á Hamas-liða eins og stjórn
Peres hefur lofað.
Hamas gaf út samskonar yfir-
lýsingu á sunnudag eftir mann-
skætt sprengjutilræðí í strætis-
vagni í Jerúsalem á sunnudag en
gerði samt aðra sprengjuárás í Tel
Aviv daginn eftir. „Þetta er ekkert
nýtt,“ sagði talsmaður ísraels-
stjórnar um yfirlýsinguna í gær.
„Eftir að þeir gera árás biðja þeir
strax um vopnahlé í von um að
komast hjá hefndaraðgerðum.“
Ágreiningur hefur blossað upp
innan Hamas milli harðlínumanna
og hófsamari afla sem vilja semja
við Yasser Arafat, leiðtoga sjálf-
stjórnarsvæða Palestínumanna.
Heimildarmenn í her Israels sögð-
ust ekki vita hvort forystumenn
Hamas hefðu stjórn a öllum liðs-
mönnum hernaðararmsins.
Búist við árásum
Búist er við að ísraelar geri
árásir á Hamas-liða á sjálfstjórn-
arsvæðum Palestínumanna á
næstu dögum ef Arafat grípur
ekki til tafarlausra aðgerða til að
binda enda á hermdarverkin.
Heimildir hermdu að ísraelsstjórn
væri treg til að fyrirskipa allsheij-
arinnrás á svæðin af ótta við að
það græfi undan stjórn Arafats.
Líklegra væri að gripið yrði til
leynilegra og snarpra aðgerða.
■ Loka húsum og vegum/I6
Reuter
PALESTÍNUMENN í Betlehem á Vesturbakkanum efndu til
fjölmennrar göngu í gær til að mótmæla ofbeldi og hryðjuverk-
um og því tilræði, sem þau eru við friðinn. Áberandi var hve
mikið var af börnum í göngunni.
Spenna á Tævan
Erfitt að mynda meirihlutastiórn á Spáni
Aznar fær litl-
ar undirtektir
Manuel Fraga, fyrrum ráðherra í
stjórn Francos, mun stýra viðræðum
Madrid. Reuter.
Vilja ekki
samvinnu
við Island
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið
ÞRÁTT fyrir að Norðmenn og ís-
Iendingar eigi ýmissa sameiginlegra
hagsmuna að gæta varðandi tengsl-
in við ESB og séu saman í EES er
enginn áhugi meðal Norðmanna á
nánari samvinnu þjóðanna eins og
stendur.
s í samtali við Morgunblaðið sagði
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, að auðlindastefna
ESB væri ekki á dagskrá ríkjaráð-
stefnunnar og þýddi ekki að reyna
að taka þar upp önnur mál en þar
væru á dagskrá. Hins vegar væru
umhverfismálin á dagskrá og þar
gætu íslendingar og Norðmenn
komið sínum sjónarmiðum að.
Þótt löndin ættu sameiginlegra
hagsmuna að gæta á þessu sviði,
hvað snerti umhverfismál sjávar, tók
hún dræmt í að löndin ynnu saman
á þessu sviði, heldur lagði áherslu, á
að þau gætu komið sjónarmiðum sín-
um á framfæri á vettvangi norrænn-
ar samvinnu og innan ramma EES
og ESB, eins og Svend Auken, um-
hverfisráðherra Dana, hefði bent á.
í gær sagði Torbjörn Jagland,
formaður norska Verkamanna-
flokksins, að eins og sambandi Nor-
egs og íslands væri háttað nú gæti
ekki verið um samvinnu þeirra að
ræða. Brundtland vildi ekki taka svo
sterkt til orða eða taka undir orð
Jaglands og vildi heldur ekki tjá sig
um samband landanna um þessar
mundir.
■ Samvinna/10 og miðopnu
LEIÐTOGAR repúblikana í full-
trúadeild Bandaríkjaþings hvöttu
til þess í gær, að Bandaríkin sner-
ust Tævan til varnar ef Kínverjar
réðust á landið. Gagnrýndu þeir
jafnframt það, sem þeir kölluðu
„tvískinnung" í stefnu Clinton- _
stjórnarinnar gagnvart Tævan. í
fyrradag boðuðu Kínveijar til eld-
flaugaæfinga rétt undan Tævan-
ströndum frá 8. til 15. mars og
hefur það valdið mikilli spennu á
svæðinu. Forsetakosningar verða á
Tævan 23. þessa mánaðar og hafa
Kínveijar leynt og ljóst beitt sér
gegn Lee Teng-hui forseta. Þetta
kosningaspjald setti einn stuðn-
ingsmanna hans upp og sýnir það
Lee í gervi Ofurmennisins bægja
burt kínverskum sprengjum.
■ Eldflaugatilraunir/17
JOSE Maria Aznar, leiðtogi Þjóð-
arflokksins á Spáni, leitaði í gær
óbeint eftir stuðningi Katalóníu-
flokksins við myndun nýrrar
stjórnar en hann er nú í oddaað-
stöðu í spænskum stjórnmálum.
Talsmenn hans tóku þó tilmælum
Aznars heldur fálega og einn
frammámanna Þjóðarflokksins
kvaðst óttast, að næsta þing ein-
kenndist af samningaþófi og
hrossakaupum frá degi til dags.
„Kjósendur hafa neytt Þjóðar-
flokkinn til að leita samstarfs við
aðra flokka og það sama gildir
um þá,“ sagði Maríano Rajoy,
varaformaður Þjóðarflokksins.
Rodrigo Rato, sem flestir telja
að verði efnahagsmálaráðherra í
stjórn Þjóðarflokksins, sagði hins
vegar í gær, að hann væri svart-
sýnn á samninga við aðra flokka.
„Þetta þing mun einkennast af
stöðugu samningaþófi fram og
aftur,“ sagði hann.
Þrátt fyrir dræmar undirtektir
er því spáð, að Katalóníuflokkur-
inn verði tilbúinn til þess síðar að
ræða stjórnarmyndun. Hefur Þjóð-
arflokkurinn fengið Manuel Fraga,
fyrrum ráðherra í stjórn Francisco
Francos einræðisherra, til að stýra
viðræðum við Katalóníuflokkinn.
------» » »----
Bob Dole á
sigurbraut
Washington. Reuter.
BOB Dole bar sigur úr býtum í
forkosningum repúblikana í Verm-
ont og Georgiu og þótti líklegt, að
hann hefði sigrað í öllum ríkjunum
átta, sem voru með forkosningar
í gær.
Utgöngukannanir bentu alls
staðar til þess, að Dole hefði sigrað
og reynist það rétt hefur hann tek-
ið afgerandi forystu í baráttunni
fyrir að hljóta útnefningu sem for-
setaefni repúblikana. Pat Buchan-
an viðurkenndi það í gær og sagði,
að útgöngukannanir bentu til, að
Dole hefði átt góðan dag. Hann
kvaðst þó mundu beijast allt fram
til landsfundar.